Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 54

Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 54
54 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MMC Pajero '93 steingrár, sjálfsk., toppl., M. Benz 300 D '91 silfurgrár, sjálfsk., toppl., ál- álfelgur, ek. 90 þ. km. V. 2.870 þús. Ath. skipti. felgur o.fl., ek. 135 þ. km. V. 2.890 þús. Ath. skipti. Toyota Hi-Lux Ex-Cap V6 flöskugrænn, sjálfsk., ek. 140 þ. km. V. 1.490 þús. Toyota Camry GLi '91 Ijósþlár, sjálfsk. ek. 79 þ. km. V. 1.190 þús. Ath. skipti. Porsche 944 '86 gullsans., álfelgur, toppl. o.fl. M. Benz 380 SEL '82, einn með öliu, Eins og nýr, ek. 71 þ. km.V. 1.870 þús. Ath. skipti. eins og nýr. V. 2.190 þús. Ath. skipti. BÍLABIER Hyrfarhöf da 4 Sími. 587 9393 Toyota Landcruiser MMC Lancer 4x4 '93 VX '93 og '94 VW Golf station '94 GMC Jymmy '95 Toyota Supra '88 Porsche 928/88 MMC Pajero '92 Lada sport '94 og ‘95 o.fl. o.fl. Vegna mikillar sölu vanfar alla nýlega bila ó sta&inn og ó skró. AEG þvottavélar eru á um það bit 27.000 ístenskum heímilum. AEG þvottavélar eru á tvöfatt fleiri heimitum. er næst algengasta þvottavélategundin. ÞRIGGJA Ara ÁBYRGÐ A ÖLLUM AEG ÞVOTTAVÉLUM BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 553 8820 Umbodsmenn um allt land Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni E. Hallgrímsson, Grundarfiröi.Vestfirðlr: Geirseyrarbúöin.Patreksfiröi. Rafverk Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf.Húnvetninga, Blönduósi.Skagfiröingabúð, Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. KEA.Siglufirði. Kf. Þingeyinga.Húsavík. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstað. KASK, Höfn Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Blað allra landsmanna! ffatgmifyUifeife - kjarni mábins! Ef þú kaupir þvottavél, án þess að skoða AEG þvottavélar... ...er það eins og ferð til Egyptalands án þess að skoða I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Pokarnir í Bónus ekki verri en aðrir pokar ÞURÍÐUR Árnadóttir hringdi og vildi gera at- hugasemd við kiausu í Velvakanda um dýra poka í Bónus. Hún verslar oft í Bónus og notar því þessa poka mikið. „Þeir rifna aldrei hjá mér,“ sagði hún og tók fram að hún væri öryrki með lágar tekjur og það væri Bónusverslunum að þakka að hún kæmist- af. Um innlenda dagskrárgerð KÆRI Velvakandi. Við höfum lengi tuðað út af inniendri dagskrár- gerð í sjónvarpi allra landsmanna og ekki að ástæðulausu. Mest fjallað um stórskrítna einfara og utangarðsmenn. Eg varð því himinlifandi yfir þætti Sonju B. Jónsdóttur, „Tjamarkvartettinn", sem sýndur var fyrir skömmu. Hún fær stóra rós og hrós frá mér fyrir frábært inn- legg í íslenska dagskrár- gerð. Mjög sérstæður þáttur og áhugaverður. Þarna náðist rammíslenskt til- gerðarlaust andrúmsloft, sem er sjaldséð á skjánum. Allt hjálpaðist að, svo sem einstaklega góður efnivið- ur, fágun og einlægni við- mælenda, glæsileg með- ferð í íslensku máli, góður og nýstárlegur söngur og ekki síst fróðlegt og afar gott myndmál. Með kærri kveðju, Hulda Jósefsdóttir. Fyrirmyndar- verklag MIG LANGAR að lýsa yfir sérstakri ánægju minni með verklag manna frá Vatnsveitunni þar sem þeir eru að vinna við Skipa- sund, og þakka fyrir gott skipulag. Áuglýst var hve- nær verkið ætti að hefjast og hvenær því lyki og sýn- ist mér að þeir standist áætlun. Allt hefur staðið eins og stafur á bók hjá þeim og öll umgengni er til fyrirmyndar. Ibúi við Skipasund Sýklar í sápu STEINUNN Magnúsdóttir spyr: Er spítalamjúksápan gerð sérstaklega fyrir spít- alana eða er hún á boðstól- um í búðum fyrir almenn- ing? Ef svo er væri fróð- legt að vita frá hvaða fyrir- tæki hún er. Vænti svars fljótlega. Tapað/fundið Púði tapaðist HÁLFSAUMAÐUR búta- saumspúði, lillablár á lit með stjömu i miðjunni, tapaðist á leiðinni frá miðbæ Reykjavíkur og vestur í bæ sl. mánudag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 552-4116. Töskupoki tapaðist MUNSTRAÐUR rauð- brúnn töskupoki, sem dreginn er saman í opið með böndum, tapaðist í miðbænum aðfaranótt 1. maí. Hafi einhver fundið töskuna er hann beðinn að hringja í síma 555-2992. Hanski fannst MJÖG fínn kvenhanski fannst í Vallartröð sl. mánudag. Upplýsingar í síma 554-1886. Gæludýr Kettlingar TVEIR svartir og hvítir kettlingar fást gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 567-6827. Kettlingar TVEIR átta vikna kettl- ingar, ofsalega sætir, fást gefins á gott heimili. Upp- lýsingar í síma 554-4045. SKAK IJmsjón Margelr Pétursson HVITUR leikur og vinnur Staðan kom upp í síðustu umferðinni í keppni í opnum flokki á Skákþingi íslands um páskana. Hjalti Rúnar Ómarsson (1.690), Kópa- vogi, hafði hvítt og átti leik gegn Baldri H. Möller (1.560) úr Garðabæ. 29. Bc6! (Annar vinningsleikur með svipaðri hugmynd er 29. Bd5!) 29. - Dd8 (Eða 29. - Dc8 30. d7! - Dxc6 31. Hxf8+ - Kxf8 32. d8=D+) 30. Dxe6+ - Kh8 31. De7 - Kg8 32. Bd5+ og svartur gafst upp því mátið blasir við. Hjalti Rúnar sigr- aði með yfirburðum í opna flokknum, hlaut 8 V2 vinning af níu mögulegum, Ólafur I. Hannesson varð annar með 7 vinninga og Sigurð- ur Páll Steindórsson þriðji með 6'/2 v. Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur fer fram í kvöld kl. 20 í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Þess er að vænta að kosið verði um það, hvort Ólafur H. Ólafs- son eða Daði Öm Jónsson verði formaður félagsins. Farsi Víkverji skrifar... VÍKVERJI brá sér niður á Al- þingi síðdegis á mánudag til að fylgjast með umræðum um sfld- arsamninginn svokallaða. Þetta voru að vissu leyti tímamótaumræð- ur. Tveir ráðherrar, þeir Halldór Ásgrímsson og Þorsteinn Pálsson, höfðu undirritað samninginn í Ósló um morguninn og nú voru þeir mættir á Alþingi nokkrum klukku- stundum síðar til þess að gefa þing- heimi skýrslu um hann. Víkveiji taldi víst að flestallir þingmenn væru í salnum til þess að hlusta á umræðurnar. En það var öðru nær. Rétt liðlega tugur þingmanna var í salnum! Er þetta hægt? xxx VÆGI þingsins í þjóðlífinu er minna en það var áður. Þetta endurspeglast í fjölmiðlum landsins. Þingfréttir eru fyrirferðarminni en þær voru. Því er mikilvægt að sjón- varpað sé frá umræðum á Alþingi. Sjónvarpsstöðin SÝN sá um þessa þjónustu en rásir hennar hafa nú verið teknar undir annað efni. Ríkis- sjónvarpið veitir þessa þjónustu en útsendingin er rofin á sjötta tíman- um, þegar útsendingar hefjast á sápuóperum. Víkveiji er þeirrar skoðunar að þingið sjálft eigi að taka frumkvæðið svo tryggt verði að allar umræður í þinginu verði tiltækar landsmönnum. xxx VORIÐ er tími gróandans. En vorið er líka sá tími sem knattspýrnumenn vakna af vetr- ardvala. Því er vorið árstíð Vík- verja. Knattspyrnumenn eru þegar farnir að spá í íslandsmótið. Af gömlum vana munu þjálfarar 1. deildar spá KR sigri í Islandsmót- inu. En venjulegir sparkfíklar spyija þeirrar spurningar, hvort einhveiju liði takist að ógna veldi Akurnesinga. Þeir tefla að venju fram geysisterku liði og sigursælum þjálfara. Það er næðingssamt á toppnum, það vita Skagamenn. Þeim hefur tekist að sitja þar í fjög- ur ár. Þeir eru margir sem vilja velta Skagamönnum af toppnum. En það er líka sterkur kjarni sem vill að þeir sitji þar áfram. xxx FYRIR nokkru lagði Víkveiji leið sína til Ólafsvíkur til að sækja þar mannfagnað í félagsheimili staðarins. Ástæða er til að óska heimamönnum til hamingju með félagsheimilið, sem er hið glæsileg- asta sem Víkveiji hefur komið í. Það er gjörólíkt hinum hefðbundnu félagsheimilum, þar sem sviðið er í öðrum endanum þaðan sem salur- inn liggur langur og mjór. í Ólafs- vík er húsið teiknað þannig að gest- ir eru í nálægð við sviðið, hvar sem þeir sitja í húsinu. Byggingin er hin glæsilegasta og rós í hnappagat yfirsmiðsins Sigurðar Elinbergssonar. .Sigurði er reyndar margt til lista lagt. Hann rekur ásamt konu sinni Eygló gisti- heimilið Höfða. Þegar Víkveija bar að garði var Sigurður að matbúa fyrir mannfagnaðinn um kvöldið. Áður en Víkveiji fór í félagsheimil- ið ákvað hann að fá sér ölglas og að sjálfsögðu var Sigurður við kran- ann. Þegar matur var fram borinn í félagsheimilinu fór Sigurður fyrir þjónaliðinu og stjórnaði sínu fólki með glæsibrag. Og þegar dansleik- urinn hófst við undirleik Klaka- bandsins var ekki um að villast, Sigurður stóð á sviðinu og lék fim- lega á bassann. Loks er frá því að segja að þegar Víkveiji kom í gisti- heimilið um nóttina var komið norð- anbál og skítkalt í herberginu. Og viti menn. Sigurður var mættur með verkfærakassann og bjargaði málunum. Þegar Víkveiji hélt heim á leið eldsnemma morguninn eftir var Sigurður ekki sjáanlegur. Hann átti svo sannarlega skilið að fá að sofa út!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.