Morgunblaðið - 24.05.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1996 23
LISTIR
Mótunarárin
*
í list Asmundar
Sveinssonar
SÝNING á verkum eftir Ásmund
Sveinsson sem beryfirskriftina
Mótunarárin í list Ásmundar
Sveinssonar verður opnuð laug-
ardaginn 25. maí kl. 16 í Ás-
mundarsafni.
Ásmundur Sveinsson fæddist
23. maí árið 1893 að Kolsstöðum
í Dalasýslu. Foreldrar hans voru
lijónin Sveinn Finnsson bóndi
og Helga Eysteinsdóttir. Ungur
kynntist hann striti sveitalífsins
en listin með stóru L-i var víðs
fjarri. Það var í þessari nánast
myndlausu veröld (sem þó var
hlaðin bókmenntalegum hug-
myndum) sem Ásmundur
Sveinsson ólst upp fram til 22
ára aldurs.
„Ásmundur Sveinson kom til
Reykjavíkur árið 1915 og komst
í læri í tréskurði hjá Ríkarði
Jónssyni myndhöggvara. Auk
þess var hann í almennu námi
við Iðnskólann og lagði stund
m.a. á teikningu undir leiðsögn
Þórarins B. Þorlákssonar. Að
loknu iðnnámi árið 1919 ákvað
Ásmundur að fara í nám í högg-
myndalist til Kaupmannahfnar.
Þar dvaldi hann einn vetur en
kunni illa við sig í skólanum.
Hann tók því ráði Einars Jóns-
sonar myndhöggvara og sótti
um inngöngu í Listaháskólann í
Stokkhólmi þar sem hann síðan
stundaði listnám m.a. undir
handleiðslu Carl Milles næstu
sex árin. Voru þetta miklir ör-
lagatímar fyrir Ásmund bæði
hvað snerti listnámið og al-
menna menntun. Eftir að hafa
lokið burtfararprófi frá Listahá-
skólanum í Stokkhólmi fór hann
í framhaldsnám til Parísar þar
sem hann var búsettur næstu
þrjú árin. I París kynntist Ás-
mundur þeim liststefnum sem
höfðu komið fram í byrjun
aldarinnar og varð vitni að þeim
umbrotum sem áttu sér stað í
samtímalistinni þann tíma sem
hann dvaldi í París. Þá naut
hann tilsagnar heimskunnra
listamanna á borð við Despiau
og Bourdelle.
Sýningunni Mótunarárin í list
Ásmundar Sveinssonar er ætlað
að bregða sérstöku ljósi á list-
sköpun Ásmundar allt frá
æskuárum og þar til hann kom
aftur frá námi árið 1929. Á sýn-
ingunni verður sýndur fjöldi
myndverka, bæði höggmyndir
og teikningar sem aldrei áður
hafa komið fyrir sjónir almenn-
ings. Þá verða einnig á þessari
sýningu nokkur verk eftir þá
listamenn erlenda - Carl Milles,
Despiau, Bourdelle - sem höfðu
hvað mest áhrif á listsköpun
Ásmundar á þriðja áratugnum.
I tengslum við sýninguna hef-
ur verið gefin út bók með grein
um mótunarárin í list Ásmundar
Sveinssoanr eftir Gunnar B.
Kvaran, sem jafnframt er sýn-
ingarstjóri sýningarinnar. Bók-
ina prýðir fjöldi ljósmynda af
verkum Ásmundar.
Ásmundarsafn er opið dag-
lega yfir sumartímann frá kl.
10-16,“ segir í frétt frá Ás-
mundarsafni.
Tónleikar í
Isafjarðar-
kirkju
TÓNLEIKAR verða haldnir í
ísafjarðarkirkju föstudags-
kvöldið 24. maí. Kór Hafnar-
fjarðarkirkju, sem er á ferð
um Vestfirði, flytur íslenska
kórtónlist. Einnig munu þeir
Örn Arnarson tenór og Valdi-
mar Másson baritón syngja
einsöng og dúetta.
Tónlistin er eingöngu ís-
lensk svo sem ættjarðarlög,
þjóðlög og sönglög. Undirleik-
ari verður Sigurður Marteins-
son og stjórnandi kórsins er
Helgi Bragason.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og rennur ágóði af þeim
óskiptur til ísafjarðarkirkju.
Litil málverk
í Eden
BJARNI Jónsson listmálari
hefur opnað sýningu á litlum
málverkum í Blómaskálanum
Eden í
Hveragerði.
Myndefnið er
fjölbreytt en
þó mest af
myndum
tengdum sjó
og þjóðlífi
fyrri tíma.
Bjarni hef-
ur undan-
fama áratugi
gert mikið af heimildamyndum
um sjósókn og líf forfeðra okk-
ar.
Sýningin stendur til 2. júní.
Bjarni
Jónsson
23. maí
Dagskrá: 13:30 Mæting á Ingólfstorg
14:00 Bæn
14:10 Gengið af stað
15:00 Komið aftur að Ingólfstorgi - Tónlist, predikun o.fl.
15:45 Dagskrá lýkur
teii lir
Kærleiks- og friðarboðskapur Krists á meira erindi til okkar í dag en nokkru
sinni fyrr. Jesúgangan er alþjóðleg og verður gengið samtímis í um 200
löndum. Markmiðið með göngunni er að kristið fólk sameinist í að benda
á Jesú Krist sem frelsara heimsins. Jesús verður hylltur og hann beðinn um
blessun yfir íslensku þjóðina.
Taktu þátt í þessum sögulega viðburði.
Aðstandendur göngunnar eru:
Aðventistar S D ■ Fíladelfía ■ Frelsið ■ Hjálpræðisherinn • Kaþólska kirkjan ■ Kefas
KFUK, KFUM ■ Kletturinn ■ Kristlegt félag heilbrigðisstétta ■ Krossinn ■ Orð Lifsins
Ungt fólk með hlutverk ■ Vegurinn kristið samfélag • Þjóðkirkjan