Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 19/5 - 25/5.
►AUKNING heildar-
kostnaðar vegna lyfseðils-
skyldra lyfja, bæði l\já
sjúklingum og Trygginga-
stofnun ríkisins, fyrstu
fjóra mánuði ársins er tæp
13% miðað við sama tíma
í fyrra. Ástæðumar em
taldar vera ný og dýr lyf
á markaði og aukin að-
hlynning sjúklinga í
heimahúsi.
►SJÖ úrlausnir nemenda
við Gmnnskóla Raufar-
hafnar í samræmdu prófi
í íslensku hafa ekki skilað
sér til yfirferðar. Niður-
stöður prófsins vom
kynntar í vikunni. Meðal-
einkunn nemenda var
hæst í ensku eða 7 og
lægst í stærðfræði eða 5,5.
Meðaleinkunn var 5,8 í ís-
lensku og 6,3 í dönsku.
►SÓLVEIG Lijja Guð-
mundsdóttir, 19 ára stúlka
úr Njarðvíkum, var kjörin
fegurðardrottning íslands
á föstudagskvöld. í öðm
sæti varð Auður Geirsdótt-
ir, fegurðardrottning
Norðurlands, og Harpa
Rós Gísladóttir, fegurðar-
drottning Reykjavíkur,
varð í þriðja sæti. í fjórða
sæti varð Halla Svansdótt-
ir, fegurðardrottning
Vesturlands, og var hún
kjörin vinsælasta stúlkan.
► EDMUND Joensen, lög-
maður Færeyja, kom
ásamt eiginkonu sinni og
föruneyti í opinbera heim-
sókn til íslands á þriðju-
dag. Hann kom m.a. til
Súðavíkur og Flateyrar en
Færeyingar hafa gefið
rausnarlega til uppbygg-
ingar á stöðunum.
Fimm í framboði
FIMM höfðu tilkynnt um framboð til
forsetakjörs þegar framboðsfrestur
rann út á miðnætti aðfaranótt laugar-
dags. Frambjóðendumir eru Ástþór
Magnússon, Guðrún Agnarsdóttir,
Guðrún Pétursdóttur, Ólafur Ragnar
Grímsson og Pétur Hafstein. Guðmundi
Rafni Geirdal tókst ekki að safna til-
skildum fjölda meðmælenda áður en
framboðsfrestur rann út.
Grétar forseti ASÍ
GRÉTAR Þorsteinsson, formaður Sam-
iðnar, var kjörinn forseti Alþýðusam-
bands íslands á þingi þess í vikunni.
Hann fékk 76% atkvæða en Eiríkur
Stefánsson, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar, fékk
24% atkvæða. Hervar Gunnarsson féll
frá forsetaframboði sínu og var kjörinn
1. varaforseti og Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, sem verið hefur 1. vara-
forseti ASÍ, var kjörin 2. varaforseti.
Spánverjar vilja
Sementsverksmiðj-
una
SPÆNSKT fyrirtæki hefur lýst yfir
áhuga á því við íslensk stjómvöld að
kaupa Sementsverksmiðjuna hf. á
Akranesi. Spánveqamir vilja kaupa
meirihluta verksmiðjunnar en ekki
endilega alla verksmiðjuna. Erindið er
til athugunar hjá einkavæðingamefnd
ríkisstjómarinnar og ríkisstjóminni.
Tekið undir með siða-
nefnd
BOLLI Gústavsson, vígslubiskup á
Hólum, fellst á niðurstöðu siðanefndar
Prestafélags íslands um að biskup ís-
lands hafi brotið alvarlega af sér gagn-
vart hinu kirkjulega embætti með því
að bera út opinberlega upplýsingar um
fund sóknarprests í Langholtskirkju og
skjólstæðings vegna persónulegra
hagsmuna sinna. Hann sér hins vegar
ekki ástæðu til að hafa frekari afskipti
af málinu.
Jandarbíjev fellst á
viðræður við Jeltsín
LEIÐTOGI aðskilnaðarsinna í
Tsjetsjníju, Zelimkhan Jandarbíjev,
féllst á fímmtudag á viðræður við Bor-
ís Jeltsín Rúss-
landsforseta fyrir
forsetakosningam-
ar 16. júní. Jeltsín
fagnaði þessu sem
fyrsta mikilvæga
skrefínu í átt til
friðar í Tsjetsjníju
og formaður sendi-
nefndar Öryggis-
og samvinnustofn-
unar Evrópu í
Grosní, sem hafði milligöngu um við-
ræðumar, tók í sama streng. Þótt enn
sé öldungis óvíst að samkomulag náist
um frið eru viðræðumar einar taldar
geta styrkt stöðu Jeltsíns (kosningabar-
áttunni. Hver skoðanakönnunin á fætur
annarri bendir nú til þess að Jeltsín
verði endurkjörinn. Augljóst er að hann
er í sókn meðan helsti andstæðingur
hans, Gennadí Zjúganov, frambjóðandi
kommúnista, stendur í stað.
Olga og upplausn 1
Norður-Kóreu
► YFIRVÖLD í Bandaríkj-
unum upprættu á fimmtu-
dag kínverskan vopna-
smyglhring, sem tvö kín-
versk vopnafyrirtæki eru
talin viðriðin. 2.000 vélbyss-
ur og sjálfvirkar byssur
voru gerðar upptækar,
fleiri en nokkru sinni áður
í sögu Bandaríkjanna. Sjö
menn voru handteknir og
sex Kínverjar, þeirra á með-
al háttsettir starfsmenn
vopnafyrirtækjanna, eru
eftirlýstir.
► ÓTTAST er að a.m.k. 800
manns hafi farist á þriðju-
dag þegar ofhlaðin ferju frá
Tansaníu hvolfdi á Viktoríu-
vatni. Þetta er mannskæð-
asta ferjuslys í sögu Austur-
Afríku.
► ÍRAKAR féllust loks á
mánudag á skilyrði Samein-
uðu þjóðanna fyrir því að
þeir fengju að selja olíu til
að kaupa matvæli, Iyf og
aðrar nauðsynjar og draga
þannið úr neyð almennings
í írak.
► BRESKA stjórnin hóf á
miðvikudag stórsókn til að
NORÐUR-kóreskur orrustuflugmaður kynna samstarsþjóðum sín-
með ofurstatign flúði á herþotu til um í Evrópusambandinu þá
Suður-Kóreu á fimmtudag og flóttinn ákvörðun sína að neita að
þykir til marks um upplausn innan taka þátt í ákvarðanatökum
hers kommúnistastjómarinnar í Norð- sambandsins fyrr en kuar-
ur-Kóreu. Mikil óánægja er meðal for- iðudeilan verður levst. p
réttindastéttarinnar í landinu og mat- ► TANSU Ciller, fyrrver-
vælaskorturinn er meiri en nokkru sinni andi forsætisráðherra
áður frá því í Kóreustríðinu 1950-53. Tyrklands og leiðtogi ann-
Algengt er að fólk gangi til fjalla í von ars stjórnarflokksins, veitt-
um að finna forðarætur sér til matar. ist harkalega að Mesut
Óttast er að ástandið leiði til aukinnar Yilmaz forsætisráðherra á
spennu á Kóreuskaga og torveldi til- miðvikudag og sagði hann
raunir til að stuðla að friðsamlegri sam- gersamlega óhæfan til að
búð kóresku ríkjanna. gegna embættinu.
FRÉTTIR
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir Fegurðardrottning íslands
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
SÓLVEIG Lijja Guðmundsdóttir, nýkjörin Fegurðardrottning íslands, með höfuðdjásnið sem titlinum
fylgir. Henni á hægri hönd er Áuður Geirsdóttir, Fegurðardrottning Norðurlands, sem varð í öðru
sæti, og vinstra megin er Harpa Rós Gísladóttir, Fegurðardrottning Reykjavflcur, sem varð í þriðja sæti.
Leiðist fátt meira
en aðgerðarleysi
SÓLVEIG Lilja Guðmundsdóttir,
nýkjörin Fegurðardrottning Is-
lands, kveðst vonast til þess að
hafa nóg að gera á komandi
mánuðum og segir að sér leiðist
fátt meira en aðgerðarleysi, þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við hana
í gærmorgun.
Sólveig Lilja er fædd og uppal-
in við sjávarsíðuna í Njarðvík og
hefur unnið í fiskvinnslu en starf-
ar nú á skrifstofu kolavinnslufyr-
irtækis auk þess að vera í námi.
Sólveig Lijja er yngst sex
systkina og býr nú ein með móð-
ur sinni. Hún var kjörin fegurð-
ardrottning Suðurnesja í fegurð-
arsamkeppni sem þar var haldin
i mars sl.
„Þetta er alveg æðisleg tilfinn-
ing en ég hafði ekkert leitt hug-
ann að því að ég gæti staðið
uppi sem sigurvegarinn. Ég hélt
að svona keppni væri iryög
taugatrekkjandi en í raun er hún
ótrúlega skemmtileg. Titillinn
opnar vonandi margar dyr fyrir
mig og ég vonast til þess að mik-
ið verði fyrir mig að gera á þessu
ári. Þetta er í fyrsta sinn sem
ég tek þátt í svona keppni en ég
hef áður tekið þátt í tískusýning-
um,“ segir Sólveig Li\ja.
Hún er í kvöldskóla
Fjölbrautarskóla Suðurnesja og
fer lfldega í dagskólann næsta
haust. Hún hefur lokið sex önn-
um á hagfræðibraut og henni
lætur vel að fást við tölur. „Mér
finnst mjög gott að vinna undir
álagi. Það er betra að hafa mikið
að gera heldur en lítið. Það á
eftir að koma í Ijós hvaða verk-
efni ég fæ en ætli það verði ekki
mest sýningarstörf og auglýs-
ingastörf,“ sagði Sólveig Lilja.
Hún segist reyna að halda sér
í formi með því að fara í sund
og þolfimi og svo gætir hún vel
að mataræðinu.
SÓLVEIG Lilja í hópi ástvinanna. Lengst til vinstri er Berta Gerður Guðmundsdóttir, systir Sólveig-
ar Lilju, Pálína Ágústsdóttir, móðir hennar, Snædís Guðmundsdóttir, systir Sólveigar Lilju, þá
Sólveig Lilja sjálf, sem heldur utan um ömmu sína, Bertu Hannesdóttur.
Hörð keppni á Hvítasuiinumóti Fáks
Gordon óvænt í efsta sætið
KEPPNI A-flokks gæðinga hjá Fáki
í fyrrakvöld var dramatísk svo ekki
sé meira sagt. Sýning Sigurbjörns
Bárðarsonar á Dyn frá Ytra-
Skörðugili misfórst þegar skeifa
datt undan og enduðu þeir í neðsta
sæti. Áður hafði Svartur frá Una-
læk og Þórður Þorgeirsson komið
sér vel fyrir í efsta sætinu. En Sig-
urbjörn var ekki af baki dottinn
þegar hann kom með síðasta hest-
inn í keppni, Gordon frá Stóru-
Ásgeirsá. Skutust þeir öllum á óvart
upp í efsta sætið með 8,61 í ein-
kunn.
Óður frá Brún, sem Hinrik
Bragason sat, kom næstur með
8,59. Næstir komu Svartur ogÞórð-
ur Þorgeirsson með 8,58, Geysir frá
Dalsmynni og Ragnar Hinriksson
með 8,57, Hannibal frá Hvítár-
bakka og Sigurður Matthíasson
með 8,55, Hljómur frá Brún og
Hulda Gústafsdóttir með 8,52,
Prins frá Hvítárbakka og Viðar
Halldórsson með 8,51 og síðastir í
úrslit eru Dalvar frá Hrappsstöðum
og Daníel Jónsson með 8,48.
Urslit verða á annan í hvítasunnú
og má búast við harðri keppni.