Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ1996 25
Myndþerapía oistmeðferð)
Eitt af því sem liggur einna
mest á herðum formanns KSÍ er
Að vísu höfðu nýjar reglur
tekið gildi áður, sem hertu
sjálfkrafa á hreinlætinu.
Það er þó öruggt að í ís-
lenskum matvælaiðnaði má
taka enn f rekar til hendinni
hvað varðar þessi mál
almennt.“
Erum þar af leiðandi sveigjanlegri
og getum framleitt fyrir minni við-
skiptavini eftir þeirra óskum.“
Þá segist Eggert vera farinn að
huga að því að láta framleiða kex
fyrir sig erlendis sem hann geti
ekki gert hér. Viðskiptavinir sínir
vilji gjarnan geta keypt alla kexlín-
una hjá honum. „Hins vegar fer ég
hægt og rólega af stað í þessum
efnum,“ segir hann og lýsir því yfir
að kexframleiðsla sé mjög
„skemmtileg" því auðvelt sé að
bæta framleiðsluna. „Auðvitað þarf
hugmyndaauðgi til að koma fram
með nýjar vörur og stöðugt er hægt
að bæta sig í markaðsmálum. Sjálf-
ur er ég til dæmis í mjög miklum
beinum tengslum við viðskiptavini
mína og mun halda því áfram."
Um 40 manns vinna hjá Frón
og leggur Eggert áherslu á að
hann sé með fyrirtaksstarfsfólk,
sem margt hafi verið starfandi hjá
fyrirtækinu um mjög langan tíma.
Boltinn rúllar
Ekki er hægt að yfirgefa Eggert
án þess að koma inn á mál Knatt-
spyrnusambands Islands, þar senj
hann hefur verið mjög virkur und-
anfarin ár. Aðspurður hvernig
hann fari að því að sinna formanns-
starfi KSÍ, öflugasta sérsambands
innan íþróttahreyfingarinnar, með-
fram framkvæmdastjórastöðunni
segist hann líklega vera ofvirkur.
„Ég er alltaf mættur hér fyrir eða
um kl. 7 og hugur minn er hér
yfir daginn,“ segir hann en bætir
við að vísu sé hann með sérsíma
fyrir fótboltann og það sé stund-
um(!) hringt í hann.
Hann segist sömuleiðis fara dag-
lega inn á skrifstofu KSÍ og vinna
mjög náið með framkvæmdastjóra
sambandsins. „Sýaðreyndin er sú
að starfsemi KSÍ hefur gjörbreyst
a undanförnum árum. Nú er starf-
andi sterk og öflug skrifstofa með
mjög hæfu starfsfólki sem sinnir
daglegri stjómun,“ segir hann.
Hann viðurkennir þó fúslega að
hann eyði megninu af frítíma sínum
í þetta hugðarefni sitt. Þegar spurt
er um hvort hann sé nokkurn tíma
heima hjá sér svarar hann: „Nei,
nei, og alls ekki á sumrin.“ Hann
segir það kannski ekki koma mikið
að sök, því þau hjónin hittist í vinn-
unni!
Efst á baugi innan KSÍ núna eru
viðræður við borgarráð og íþrótta-
og tómstundaráð um rekstur Laug-
ardalsvallar og byggingu nýrrar
stúku, sem hófust sl. föstudag.
„Vonandi sér fyrir endann á þessu
máli fyrir mánaðamót sem hefur
verið í gangi frá því ég tók við
formennsku. Völlurinn er ekki lög-
legur keppnisvöllur samkvæmt lög-
um Alþjóða knattspymusambands-
ins og höfum því þurft að treysta
á velvilja góðra eftirlitsmanna, sem
hafa ekki kært okkur. Ég er fullur
bjartsýni að kominn sé sá vilji sem
þarf til að leysa þetta mál og það
verði gengið frá þessu máli nú fyr-
ir mánaðarmót.“
Með samningnum við borgina sjá
menn fyrir sér að hægt verði að
reka völlinn á hagkvæmari hátt en
borgin gerir nú. „Um leið er mikið
keppikefli fyrir okkur að völlurinn
sé sem best útlítandi og uppfylli
skilyrði sem nauðsynleg eru. Þá er
pressan á okkur sjálfum í stað þess
að nú þurfum við að ýta á þriðja
mann. Síðst en ekki síst kæmi þarna
inn fólk sem þætti vænt um völlinn
og hlúði þá að honum.“
Hrcinn“ bisness!"
að afla auglýsingatekna. Eggert
segist hafa gert sér grein fyrir því
þegar hann tók við formennsku,
að til þess að fá fleiri og sterkari
auglýsendur til liðs við sig væri
mikilvægt að þeir hefðu beinan hag
af samstarfinu. „Ég sem lykilmað-
ur í fyrirtæki færi ekki í samstarf
við íþróttahreyfinguna nema fyrir-
tækið hefði gagn af því. Þetta er
hreinn bisness en ekki ölmusa eins
og var til skamms tíma. Við út-
bjuggum því samninga þar sem
kemur fram hvað okkur ber að
gera til að uppfylla samninginn og
sömuleiðis skyldur fyrirtækisins.
Einnig komum við því á að einn
maður frá hvorum aðila hittist
a.m.k. einu sinni í mánuði, fari
yfir stöðuna og komi fram með
nýjar hugmyndir."
Lokaorð Eggerts eru þau að það
sama eigi við um KSÍ og fyritæk-
ið, að eigi reksturinn að vera góður
þurfí stöðuga yfirlegu, mikla vinnu
og rætkunarsemi.
Verklegt sumarnámskelö
Aðallega œtlað kennurum, hjúkrunarfrœðingum, iðjuþjálfum, ráðgjöfum og
öðru fagfólki, sem starfar á uppeldis-. félags- og heilbrigðissviðum og jafnframt
öðrum þeim. sem áhuga hafa á að kynnast aðferðum myndþerapíu,
Námskeiðið veitir þátttakendum œfingu í:
að umbreyta tilfinningu í myndir
að gera sjálfsprottnar myndir
að skilgreina viðkomandi myndir út frá eigin meiningu
að skoða eigin tilfinningar, minningar og ástand út
frá myndunum
að tjá sig, miðla og deila með öðrum i hópumrœðum
að nýta ofanskráð ferli til sjálfstyrkingar.
Þátttakendur þurfa ekki að hafa œfingu í teiknun.
Kennari er Sigríður Björnsdóttir, löggiltur myndlistarkennari og löggiltur félagi í
„The British Associations of Art Therapists."
Innritun og nánari upplýsingar í síma 551 7114, flest kvöld.
Sjóvá-Almennar eru fyrsta tryggingafélagið sem
hefur lækkað tryggingakostnað heimilanna
afslætti og endurgreiðslu á hluta iðgjalda.
Ræddu við tryggingaráðgjafa
okkar í Kringlunni 5, næsta
umboðsmann eða leitaðu álits
hjá viðskiptavinum sem þekkja
Stofn af eigin raun.
Þú tryggir ekki eftir á!
m