Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
i'm 60IN6 H0ME,MANA6ER
IF AM'ONE MIT5 A 8ALLT0
RI6HT FIELP, LET ME KNOU)
MERE5 MV PHONE NUMBER,
OUR FAX NUM0ER AND
OUR E-MAIL APPRE55..
0UTFIELPER5 5EEMT0 BE
MUCH MORE C0N5IDERATE
THAN TMEV U5EDT0BE..
Ég er að fara heim, stjóri. „Ef Hérna er símanúmerið mitt, fax- Útvallarmenn virðast vera miklu
einhver slær bolta út á hægri númerið okkar og netfangið. tillitssamari en þeir eiga vanda til.
vallarhelming, láttu mig þá vita.“
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Komið og
fylgið mér
Frá Sigfúsi B. Valdimarssyni:
í MATTHEUSAR guðspjalli 4.
kapítula, 17.-20. versi, er sagt frá
því er Jesús byijaði að predika og
sagði: „Gjörið iðrun“ og hann gekk
meðfrem Galíleuvatninu. Sá hann þá
bræðuma Símon Pétur og Andrés
sem voru fiskimenn. Hann kaliaði á
þá og sagði: „Komið og fylgið mér,
og mun ég gjöra yður að mannaveið-
urum.“ Þessir fiskimenn hlýddu kall-
inu og urðu fyrstu lærisveinar Jesú,
og boðberar þess fagnaðarerindis er
hann flutti að „Frelsa synduga
menn!“ „Leita að hinu týnda og frelsa
það.“ Drottinn Jesús Kristur er hinn
sami í dag. Hebr. 3:9. Lifandi og
upprisinn Frelsari, sem fyrir sinn
heilaga anda og lifandi orð, kallar á
menn og konur á öllum aldri til fylgd-
ar við sig, og margvísleg er þjónust-
an í víngarði hans. Eg heyrði rödd
hans og kom til hans „sár af synd“
þegar ég var 21 árs. Hvílík gæfa.
Stærsti viðburður lífs míns. Eins og
Jesús segir: „Þann sem til mín kem-
ur, mun ég alls ekki burtu reka.“
Hann tók mig að sér í því hörmunga-
rástandi sem ég var í og frelsaði
mig. A einu augnabliki hafði ég „end-
urfæðst" Var orðinn „ný sköpun í
honum“ 2. Kor. 5:17.
Svo þegar ég flyt til ísafjarðar
1946 kallaði Guð mig til að hefja
þar kristilegt sjómannastarf. Sr. Sig-
urbjörn Á. Gíslason hvatti mig líka
og studdi meðan hans naut við. Sal-
em Sjómannastarfið er því 50 ára á
þessu ári. Ég get ekki annað sagt
en að Drottinn hafi leitt það og bless-
að á undursamlegan hátt öll þessi
ár, og ég lofa hann fyrir að enn
gefur hann mér heilsu til að sinna
þessari þjónustu. Ég er þakklátur
öllum þeim mörgu vinum, sem ég
hefi eignast utan lands og innan. Það
er ómetanleg uppörvun. Fagnaðarer-
indi Jesú Krists getur aldrei orðið
nema til blessunar og gleði, þeim sem
vilja taka við því. „En öllum þeim,
sem tóku við honum, gaf hann rétt
til að verða Guðs böm, Þeim sem
trúa á nafn hans“ Jóh. 1:12.
Á sjómannadegi fer fjöldi sjó-
manna til árdegismessu og hlýðir á
Guðs orð og tekur þátt í lofgerð il
Drottins og er það vel við hæfi því
margs er að minnast og margt er
að þakka, þó einnig hafi komið sorg
og söknuður, en þá hefir líka margur
fengið að upplifa hve gott það er að
eiga Jesú, „sem einkavin í hverri
þraut“. Því miður hættir mörgum við
er líða tekur á daginn að slást í fýlgd
með bölvaldinum „Bakkusi" en því
fylgir aldrei nema vonbrigði og
óhamingja, því vil sterklega vara við
slíku. Haldið dag ykkar út með lof-
gerð í hjarta, og hafið svo Jesú með
í öllum verkum ykkar. Minnist sálms-
ins, sem ég held að við öll höfum
lært. „Við freistingum gæt þín og
falli þig ver“.
Að endingu vil ég benda á að
ræðu Péturs fiskimanns er hann
flutti á stofndegi kristinnar kirkju
og skráð er í 2. kapitula Postulasög-
unnar. „En er þeir heyrðu þetta,
stungust þeir í hjörtun og sögðu við
Pétur og hina postulana: Hvað eigum
vér að gjöra, bræður? En Pétur sagði
við þá: Gjörið iðrun og sérhver yðar
láti skírast í nafni Jesú Krists... Og
með öðrum fleiri orðum bar hann
vitni, áminnti þá og sagði: Látið frels-
ast frá þessari rangsnúnu kynslóð.
Þeir sem þá veittu orði hans viðtöku
voru skírðir og á þeim degi bættust
við hér um bil þijú þúsund sálir. Og
þeir héldu sér stöðuglega við kenning
postulanna og samfélagið, brotning
brauðsins og bænirnar.“ Þannig
verður kristin kirkja að starfa í dag,
svo sami árangur náist. Svo endar
þessi kapítuli með þessum orðum:
„En Drottinn bætti daglega við í
hópinn, þeim er frelsast létu.“ Lesið
nú í samhengi þennan kapítula og
síðan sem allra mest í hinni heilögu
bók. Orð Jesú er andi og líf.“ „Sæl
er sú þjóð, sem á Drottin að Guði.“
Sálm. 33:12.
Gleðilega sjómannahátíð.
SIGFÚS B. VALDIMARSSON,
sjómannastarfinu Salem,
ísafirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ölum
Opið
um l'tvítasunnuna:
2Ó. maí hvítasunnudag:
Kaffihlacihorö Ul. 14-18
laðtorð U1. 18.30 - 21.30
27. maí mánuaag,
annan í hvítasunnu,
Kaffihlaðborð U1. 14 - 18
i
:
G
I
€
v
C
<
i
i
(
(
(
I
I
I