Morgunblaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
EINKAÞOTA sjeiksins er glæsilega innréttuð og tekur um 300
farþega.
Lögreglumenn gættu einkaþotu á Keflavíkurflugvelli
Sjeik hafði viðdvöl hér
SJEIK úr konungsfjölskyldu Sam-
einuðu arabísku furstadæmanna,
konur, börn og mágkona hans
höfðu tæplega sólarhrings viðdvöl
hér á landi í fyrrinótt.
Með hópnum var fylgdarlið og
áhöfn einkaþotu sjeiksins. Einka-
þotan er af gerðinni Airbus og var
hennar sérstaklega gætt af lög-
reglumönnum á Keflavíkurflug-
velli.
Eysteinn Eyjólfsson, starfsmað-
ur í móttöku Flughótelsins í Kefla-
vík, sagði að konur og börn hefðu
farið í skoðunarferð um næsta ná-
grenni eftir komuna hingað til
lands síðdegis á miðvikudag. Hóp-
urinn hefði komið við í Bláa lóninu
og margs hefði verið spurt. Fólkið
hefði t.a.m. undrast birtuna og
spurt hvenær sólarupprás yrði um
morguninn.
Um nóttina gisti sjeikinn og fjöl-
skylda hans í tveimur svítum og
14 herbergjum á fjórðu hæð hótels-
ins. Fylgdarlið gisti á þriðju hæð.
Karlmönnum úr starfsliði hótelsins
var hvorki heimilt að koma inn á
fjórðu hæðina né í matsal á meðan
konur og börn voru þar. Konur
voru með blæju á meðan karlmenn
voru viðstaddur. Eins og áður seg-
ir er sjeikinn úr konungsfjölskyldu
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna, heitir Hans ágæti sjeik
Khalifa Bin Hamdan og ber fjöl-
skyldunafnið A1 Nahyan. Ekki feng-
ust nánari upplýsingar um stöðu
hans innan konungsfjölskyldunnar.
Hópurinn, alls um 40 manns, fór
héðan fyrir hádegi í gær.
Eysteinn sagði að fólkið hefði
verið kröfuhart en góðir gestir.
Hefði það yfirgefið hótelið mjög
ánægt.
Tekur
sæti Olafs
Ragnars
• SIGRÍÐUR Jóhannesdóttir
kennari í Keflavík mun taka sæti
Ólafs Ragnars
Grímssonar ný-
kjörins forseta
íslands þegar
Alþingi kemur
saman í haust.
Sigríður var
fyrsti varamað-
ur Alþýðu-
bandalagsins í
Reykjaneskjördæmi og tók sæti
Ólafs Ragnars í vor þegar hann
vék af þingi eftir að hafa tilkynnt
framboð til embættis forseta ís-
lands.
Samkvæmt upplýsingum Frið-
riks Ólafssonar skrifstofurstjóra
Alþingis hefur Ólafur Ragnar ekki
enn sagt af sér þingmennsku.
Formleg afsögn fer fram með þeim
hætti að viðkomandi skrifar af-
sagnarbréf til forseta Alþingis þar
sem óskað er eftir lausn frá þing-
störfum. Við það tekur sá sem er
næstur á lista, sæti hans.
------♦ ♦ ♦------
Ráðinn héraðs-
prestur
•SÉRA Gylfi Jónsson hefur ver-
ið ráðinn hérðasprestur í Reykja-
víkurprófasts-
dæmi vestra.
Séra Gylfi hefur
unnið að æsku-
lýðsmálum og
öldrunarmálum
innan prófasts-
dæmisins og
verið fram-
kvæmdastjóri
kirkjukynningarviku prófasts-
dæmanna auk starfa fyrir nýbúa.
Séra Gylfi vígðist til Staðar-
prestakalls í Þingeyjarprófasts-
dæmi árið 1974 ogþjónaði um
skeið innan sænsku kirkjunnar.
Sóknarprestur í Bjarnanespresta-
kalli var hann í sex ár. Rektor
Skálholtskirkju var hann um
þriggja ára skeið, aðstoðarprestur
í Seljasókn varð hann 1985, safn-
aðarprestur í Grensássókn 1988.
Séra Gylfi er fæddur 28. apríl
1945.
-kjarni málsins!
0á
/oo%>
•*r,„****‘:-
,/Á! '
W' iJTK
íot ;}
SPjZ&SC/R'iMl •/
l/ÍTRfí
/^rerr/^C
0p/ /rf(//YP(S /
010ic/ r/£//z/v
ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON EHF.
STOFNAÐ 1913
-
Ef viö mættum auglýsa það sem vfð þurfum að auglýsa - þá auglýstum við ekki svona kjánalega. Skiluröu?
AUK/S(Ak652-1