Morgunblaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 23 ___________LISTIR________ Sumarkvöld við orgelið FYRSTU tónleikar tónleikaraðar- innar „Sumarkvðld við orgelið 1996“ verða sunnudaginn 7. júlí kl. 20.30 en þetta er fjórða sumar- ið sem Hallgrímskirkja og List- vinafélag Hallgrímskirkju standa að henni. Alls verða níu tónleikar haldnir í sumar, öll sunnudags- kvöld í júlí og ágúst og síðustu tónleikarnir verða 1. september. Að þessu sinni er það organisti Hallgrímskirkju, Hörður Askels- son, sem hefur tónleikaröðina og leikur hann verk eftir Couperin, Bach, Franck, Saint-Scens og Jón- as Tómasson. Fimmtudaginn 11. júlí kl. 12-12.30 heldur tónleikaröðin áfram með orgelleik Pavels Maná- sek. Aðgangur er ókeypis. Laugar- daginn 13. júlí kl. 12-12.30 og sunnudaginn 14. júlí kl. 20.30 Slunkaríki „Aform og brotaslitur“ SÝNING á verkum franska lista- mannsins Frédéric Grandpré verð- ur opnuð í Slunkaríki á Isafirði á morgun laugardag kl. 16. Sýningin sem ber heitið „Aform og brotaslitur“_, er innblásin á eld- fjallasvæðum Islands og er nokk- urs konar ferðalag listamannsins 'á vit hugarflugsins. Við framsetn- ingu notar hann ýmis efni og miðla. Frédéric er lærður í Beaux-Arts listaskólanum í París, hann hefur sýnt verk sín víða, aðallega í Frakklandi en einnig á Spani og í Kanada. Sýningin í Siunkaríki er fyrsta einkasýning hans hér á landi. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 16-18 og henni lýk- ur 21. júlí. VERK eftir Gunillu. Gunilla sýnir á Mokka GUNILLA Möller opnar sýningu á Mokka við Skólavörðustíg, sunnu- daginn 7. júlí. Sýningin ber heitið „Hús“ og kveikjan er hús og rúst- ir frá Miðjarðarhafssvæðinu. Gunilla er fædd í Svíþjóð, en er nú búsett á íslandi. Hún stundaði myndlistarnám í Danmörku 1984-91. Þetta er fyrsta einkasýnig Gun- illu á íslandi, en hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum i Danmörku. Sýningin stendur til 10. ágúst. ------♦—♦—*------ Islensk portrett - síðasta sýn- ingarhelgi í HAFNARBORG, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, lýkur senn sýningunni íslensk portrett á tuttugustu öld. Þetta er í fyrsta sinn sem heildaryfirlit gefst yfir þetta svið íslenskrar myndlistar og eru vek fengin að láni víða að, frá söfnun, stofnunum, fyrirtækjum og ein- staklingum. Alls eru á sýningunni um 80 myndir eftir um 50 lista- menn. Sýningunni lýkur mánudaginn 8. júlí. verða síðan orgeltónleikar Karels Paukert, organista af tékkneskum ættum sem býr í Bandaríkjunum. Leikur hann verk eftir Soler, Bach, Husa, Kolb, Primosch, Ives, Wi- edermann, Alain og Franck. E.t.v. muna einhveijir eftir honum hér á íslandi, því snemma á 7. áratugn- um var hann 1. óbóleikari Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Hann hefur nú búið í Bandaríkjunum í rúma tvo áratugi og á tónleikunum leik- ur hann sérstaklega tónlist eftir tékknesk og bandarísk tónskáld, þar á meðal verk sem hann hefur frumflutt í Bandaríkjunum. Karel Paukert mun síðan koma fram á Sumartóleikum á Norðurlandi næstu helgi á eftir. 21. júlí munu hjónin Colin Andrews frá Bretlandi og Janette Fishell frá Bandaríkjunum leika bæði saman og sitt í hvoru lagi. 28. júlí kemur Christopher Herrick og leyfir áheyrendum að heyra sýnishorn af því sem tekið verður upp á geisladisk af breska útgáfúfyrirtækinu Hyperion. Þetta er í annað sinn sem Christopher Herrick kemur fram á tónleikaröð- inni, en hann var hér líka árið 1994 og hreifst þá svo af orgelinu að hann óskaði eftir því að Klais- orgel Hallgrímskirkju yrði sjöunda orgelið sem hann leikur á í geisla- diskaröðinni „Organ Fireworks, Great organs of the world“! 4. ágúst mun Ragnar Björnsson leika á orgelið en hann er íslensk- um tónleikagestum að góðu kunn- ur. 11. ágúst leikur Lenka Mátéová á orgelið. Lenka er frá Tékklandi en hefur starfað hér á íslandi frá 1990, fyrst á Austurlandi, en frá 1993 hefur hún verið organisti Fella- og Hólakirkju í Reykjavík. 18. ágúst kemur sænski organist- inn Gunnar Idenstam fram á tón- leikunum. Hann er einn þeirra ungu organista Svíþjóðar sem vak- ið hafa mikla athygli erlendis. Þá hefur hann einnig samið töluvert og mun meðal annast flytja Til- brigði um norræn þjóðlög, hjarðlög og fiðlaralög. Þess má geta að helgina áður leikur Gunnar í Akur- eyrarkirkju. 25. ágúst leikur ítalsk-banda- ríski organistinn David Pizarro og tónleikaröðinni lýkur svo 1. sept- ember með því að dómorganisti dómkirkju Kölnarbúa, prófessor Clemens Ganz, mun leika á Klais- orgelið tónlist m.a. eftir Bach, Mozart Mendelssohn, César Franck og Widor auk þess sem hann leikur af fingum fram. Helgina 7. og 8. september verða síðan aukatónleikar en þá koma fram organisti og Kapellukór Claire í Cambridge og munu þau flytja flölbreytta efnisskrá. eru ódýr og einföld lausn HÚSASMIÐJAN Súðarvogi 3-5 • Sími 525 3000 Helluhrauni 16 • Sfmi 565 0100 Þú ákveður hvemig gluggamirþínir eiga að líta út og við sníðum jyrirþig ejnið. Þetta gefurþér möguleika á að hafa gluggana algjörlega eftir þínu höfði. Ósamsettir gluggar frá Húsasmiðjunni sþara tíma, efni ogfyrirhöfn og henta í öll hús. .þú gefur okkur upp málin og við skilum þér tilbúnum gluggaeimngum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.