Morgunblaðið - 05.07.1996, Page 19

Morgunblaðið - 05.07.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5.JÚLÍ1996 19 ÚRVERINU Veiðin mikil en loðnan dreifðari Mikil hvalagengd á miðunum veldur sjómönnum nokkrum erfiðleikum ÁGÆT loðnuveiði var á miðunum í gær en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins virtist sem loðnan væri dreifðari og skipin að taka fleiri köst en áður til að fylla sig. Eitt og eitt skip hitti þó á þéttar torfur og fékk stór köst. Loðnusjó- menn fá nú 5000 krónur fyrir loðnu- tonnið víðast hvar á landinu. Samkvæmt skýrslu Samtaka fiskvinnslustöðva höfðu í gær borist 34.111 tonn af loðnu á land frá því að vertíð hófst. Inn í það kann þó að vanta einhveijar landanir í gær. Upphafkvóti samkvæmt uppýsing- um Fiskistofu er 737 þúsund tonn. 3.200 tonn til Eskifjarðar Björn Kristinsson, verksmiðju- stjóri loðnuverksmiðjunnar á Eski- firði, segir ioðnuna ágætt hráefni á meðan hún sé ný. „Við höfum hald- ið skipunum í landi í sólarhring eftir löndun og pössum upp á að hafa aðeins tveggja daga vinnslu framundan til að loðnan skemmist ekki,“ segir Björn. Afkastageta loðnubræðslunnar á Eskifirði er um 1000 tonn á sólarhring en nú eru komin þar á land um 3200 tonn. Björn segir heildar fitu- og þurrefn- isnýtingu loðnunnar um 30%. Norðmenn landa í Grindavík Tvö norsk loðnuskip, Holmsjo og Midoyviking, lönduðu í Grindavík í gær, 550 tonnum hvor. Finnbogi Alfreðsson, framkvæmdastjóri Fiskimjöls og lýsis hf. í Grindavík, segir að Normönnum sé fijálst að koma til Grindavíkur með loðnu því engir ístendingar hafi sýnt áhuga á því að koma þangað á vertíðinni. Þar að auki komist ekki hvaða skip sem er inn í Grindavíkurhöfn. „Það er um 36 klukkustunda sigling hingað af miðunum en um 45 klukkustunda sigling af miðunum til Noregs þannig að þetta munar ekki svo miklu fyrir þá. Þeir bara fá ekki löndun í Noregi enda allt yfirfullt og þeir vilja báðir koma hingað aftur,“ segir Finnbogi. Hvalurinri til vandræða Loðnusjómenn hafa kvartað und- an mikið af hval á miðunum enda verður tjón oft mikið ef hvalir lok- ast inn í nótinni. Á Hábergi GK hafa tvo síðustu túra verið gerðar tilraunir með hvalafælu sem gefur frá sér hátíðnihljóð og styggir hval- ina. Þorsteinn Símonarson, skip- stjóri á Háberginu segir að ekki sé komin nægileg reynsla á tækið til að hægt sé að fullyrða um árangur. „Tækið er fest á flotið og fer því í sjóinn um leið og nótin. Eg próf- aði að setja það í sjóinn um daginn þó ég væri ekki að kasta en þá voru tveir hvalir að leika sér við skipið. Þeir syntu í burtu og greini- legt að það var eitthvað sem styggði þá, hvort sem það var tækið eða bara skipið. Við bindum að minnsta kosti miklar vonir við hvalafæluna því það er gríðarlega mikið af hval á miðunum og heilmikið mál ef þeir lokast í nótunum," segir Þor- steinn. gaBBQaswa ' sas* Morgunblaðið/Þorsteinn Kristjánsson VÍKINGUR AK á loðnumiðunum og með fulla nót af loðnu á síðunni. Opnumídag! ★ Ótrúlega verslun á Laugavegi 118 gengt Hlemmi ★ Allar vörur á sama verði, 189 kr. ★ Þúsundir vöruflokka, m.a. leikföng, verkfæri, ritföng, geisladiskar og kassettur, gjafavörur, búsáhöld, hreinlætisvörur, silkiblóm, fatnaður, skór, garðáhöld, snyrtivörur, sælgæti o.fl. o.fl. ★ HeildsöluHornið er á sama stað og selur gjafavörur, myndaramma, leikföng o.fl. á heildsöluverði. ★ Opið alla virka daga frá kl. 10 -18.30, laugardaga kl. 10 -16.00. Borgarkringlunni og Laugavegi 118. Fax 581 4124 EITT VERÐ A ÖLLUM VÖRUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.