Morgunblaðið - 05.07.1996, Síða 21

Morgunblaðið - 05.07.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996 21 Karpov vinning-i frá sigri ANATOLY Karpov gerði jafn- tefli í gær við mótheija sinn Gata Kamsky og vantar þar með aðeins einn vinning til að tryggja sér heimsmeistaratitil- inn í skák. Þetta var fimmtánda skákin í einvígi Karpovs og Kamskys, en það fer fram í Elysta nærri Kaspíahafi. Nærri 200 far- ast í flóðum SUÐUR-Kína þarf nú að þola einhver verstu flóð sem um getur á síðustu fimmtíu árum. Fórnarlömb síðustu daga eru nú orðin hátt í tvöhundruð. Flóðin hafa rifið á brott þús- undir húsa og heilu að minnsta kosti sjöhundruðþúsimd hekt- ara ræktaðs lands. Á að gizka tíu milljónir manna hafa beðið tjón af völdum flóðanna. 17 bíða banaí sjálfsmorðsá- rás TAMÍLSK kona úr röðum upp- reisnarmanna á Sri Lanka framdi sjálfsmorðsárás á Jaffna-skaga á norðurhluta Sri Lanka í gær. Að minnsta kosti 17 manns létust í árásinni og 50 særðust, þeirra á meðal húsnæðismálaráðherra Sri Lanka. Sex stjórnarhermenn voru á meðal hinna látnu. Alnæmi-ráð- stefna í Kanada HEIMSINS stærsta ráðstefna um alnæmisjúkdóminn hefst í Vancouver á sunnudaginn, þangað sem ijöldi vísindamanna, baráttufólks og stjórnmála- manna mun streyma. Hin viku- langa ellefta alþjóðlega alnæmi- ráðstefna mun sameina allt að 15.000 þátttakendur frá 100 löndum. Má vænta skrautlegrar blöndu vísindalegrar umræðu og tilfinningahlaðinna aðgerða bar- áttufólks af ýmsu tagi. Geimskutlu- áætlun í hættu? SÉRSTAKUR rannsóknarhóp- ur bandarísku geimferðastofn- unarinnar NASA komst að þeirri niðurstöðu í nýrri könnun að hægja yrði á áætlunum til að skera niður útgjöld til geimskultuáætlunarinnar fyrir lok þessa áratugar eða taka áhættu á alvarlegu slysi ella. Tilraunir NASA til að minnka kostnað við áætlunina með því að minnka öryggiseftirlit og færa meira af daglegum verk- efnum í hendurnar á utanað- komandi aðilum hefur leitt til versnandi vinnuanda meðal starfsfólksins írhöfuðstöðvun- um á Canaveralhöfða. Kasmír-gíslar sennilega á lífi VESTRÆNU gíslarnir fjórir, sem öfgahópur aðskilnaðar- sinna í Kasmír hafa haldið á valdi sínu frá því í júlí í fyrra, eru samkvæmt heimildum dag- blaðsins Greater Kashmir enn heilir á húfi. Þrotlausar tilraun- ir til að fá gíslana lausa hafa engan árangur borið hingað til og óttast var að þeir væru látn- ir. í ágústmánuði í fyrra fannst fimmti gíslinn, Norðmaðurinn Hans Christian Ostro, háls- höggvinn í fjallshlíð í Kasmír. ERLENT Reuter 40 gráður í Grikklandi ÁSTRALSKUR ferðamaður kæl- ir ferðafélaga sinn við Panþeon- hofið í Aþenu í gær. Hiti fór hátt í 40 gráður í logni og greip um- hverfismálaráðuneytið gríska til neyðarráðstafana vegna þess. Umferð einkabíla var bönnuð í miðborginni þar til í dag, og iðn- fyrirtækjum var gert að draga úr framleiðslu um 30% til þess að draga úr mengun. Fólk var hvatt til þess að halda sig inni við, vera léttklætt og nýta sér loftkældar, opinberar bygging- ar, svo sem innileikvanga, til þess að forðast hitaslag. Oheppileg orð Doles um reykingar Segir fyrrum land- lækni hafa verið heilaþveginn Washington. The Daily Telegraph. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, atyrti í fyrradag Bob Dole, forsetaframbjóðanda repúblikana, fyrir að halda því fram, að „fijáls- lyndir íjölmiðar" hefðu „heilaþveg- ið“ einn þekktasta lækni landsins, um hættur sígarettureykinga. Læknirinn sem um ræðir er C. Everett Koop, sem gegndi embætti landlæknis^ í forsetatíð Ronalds Regans. „Ég er viss um að dr. Koop veit meira um hætturnar sem stafa af tóbaki en svonefndir fijáls- lyndir fjölmiðlar eða Dole þingmað- ur,“ sagði Clinton í ræðu í Chicago á miðvikudaginn og var vel fagnað. Þeir sem beijast gegn reykingum hafa haldið því fram, að Dole haldi verndarhendi yfir tóbaksframleið- endum gegn framiögum í kosninga- sjóð hans. Nýlega gaf Dole í skyn að nikótín væri ef til vill ekki ávana- bindandi, og hélt því fram, að sígar- ettur væru ekki hættulegri en margt annað sem maður iéti eftir sér. „Sumir segja að mjólk sé ekki góð,“ sagði hann í viðtali. Dr. Koop er dyggur repúblikani og stuðningsmaður Doles. Á lækn- aráðstefnu átaidi hann forsetafram- bjóðandann, og sagði að orð hans „sýndu annað hvort mikinn þekk- ingarskort hans á ávanabindingu nikótíns eða blindan stuðning hans við tóbaksframleiðendur." Dole sagði í sjónvarpsviðtali að Koop fylgdist með „þessum frjáls- lyndu fjölmiðlum og hefur líklega misst áttanna." Fréttamaðurinn spurði þá hvort læknirinn hefði ver- ið heilaþveginn, og Dole svaraði: „Líklega að vissu marki." Clinton hefur haldið því fram, að nikótín sé ávanabindandi lyf og því skyldu stjórnvöld setja reglur um dreifingu og neyslu á því. Dole leggur hins vegar áherslu á að stjórnvöld eigi að halda að sér hönd- um og leyfa fullorðnu fólki að taka eigin ákvarðanir. BÐ FLYTJUM Vlð bjóðum okkar trúföstu viðskiptavinum 30% afslátt af öllum okkar vel þekktu gæðavörum: HIGH DESERT drottningarhunang, blómafrjókorn og Propolis, ALOE VERA frá JASON og Dr. Guttorm Hernes dag- og næturkrem gegn húðvandamálum. TILBOÐIÐ GILDIR FRÁ OG MEÐ ÞRIÐJUDEGI 2. JÚLÍ TIL OG MEÐ LAUGARDEGI 6. JÚLÍ. Þeir viðsHipiavinir. sem eHhi eiga host á að heimsæHja oHHurá ITmabilinu. gefa einnig nqft sér tilboðið með því að panta gegn pösthröfu. Visa eðaEuro. Borgarhringlunni. Þorpinu. , simar I B PRINGESS MARCELLA ORGHESE • Dagkrem • Rakakrent • Rody lotion • Ilmprufa » 2 varaliiir MeÐ HVERJH BORGHESE AJNDUTSIQÍEMI FYLGIR ÞÉSSl GLÆSILEGl KAIMIKJ ÚTSÖLUSTAÐIR Hygea, Kringlunni og Austurstræti - Libia, Mjódd - Spés, Háaieítisbraut - Sautján, Laugavegi - Sólbaðstofan, Grafarvogi - Apótek Suðurnesja, Kefíavík - Akraness Apótek - Ninja, Vestmannaeyjum. * Takmarkað magn. blabib -kjarni málsins! MQliiMflfKlI röBeeru verði 1 sum Sfgr Á&ur 59.850 ' PÓSTIJR OG StMI Söludeild Armúln ? t, simi SS0 /800 L. xi a post oq ; Ekkcrt kcifiurfí;staoiinn fyrir. -m, ÚLL '4;.. IMF í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.