Morgunblaðið - 05.07.1996, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ferdinand
Smáfólk
‘Afsakaöu hvað ég er seinn ...
,l U)OOF"? WHAT'S THAT
SUPP05ED TO MEAN ?
I DONT KN0U)..IT'S JU5T
S0METHIN6 EVERVONE IN
OUR FAMILV ALUJAYS SAlD..
Ég var að gera heimaverkefnin Menntun er mikilvæg, en
mín ... gleymdu ekki að gefa hundin-
um ...
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Simi 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
f
i
4
Guðstrú og
ofstæki fara
ekki saman *
Frá Alberti Jensen:
ÞEGAR ég sá í fjölmiðlum biskup
ganga í gegnum hóp kvenna við
Digraneskirkju til að komast á
prestastefnu, þar sem sundrung og
valdabarátta réð, kom mér í hug
hvort hinni dæmalaust ógeðfelldu
ofsóknarherferð á hendur manninum
og fjölskyldu hans væru engin tak-
mörk sett. Allt er mál þetta fullt af
hatri og ógeði. Þarna er allt gert til
að eyðileggja og draga saklausa fjöl-
skyldu manns ofan í svaðið, þó eng-
in sök sé á þau sönnuð. Fyrirlitlegir
glæpamenn hafa fengið betri með-
ferð. Ég hef hingað til haldið að
íslenskt réttarfar hefði upp á þau
mannréttindi að bjóða að hver væri
saklaus þar til sekt væri sönnuð.
Ófrægingarherferð og fullkomið of-
stæki sem einkennt hefur suma fjöl-
miðla í niðurrifsárásum á mann í svo
viðkvæmri stöðu er þeim til mikillar
vansæmdar og setur þá á lágt plan. •
Það er í raun enginn öruggur um
mannorð sitt, þó það sé engilhreint.
Ef einhver hvíslar ljótu og óvandað-
an fjölmiðil vantar efni, gæti fjand-
inn orðið laus. Fleiri hafa látið illum
látum. Stígamótakonur, sem eru alls
góðs verðar vegna baráttu fyrir þá
sem þess þurfa, fóru í biskupsmáli
á rangan vallarhelming og tóku sér
vald götunnar. Guðstrú er mér heil-
ög, en ég felli mig ekki við ofstæki.
Fyrr átti ég á dauða mínum von,
en að meðal presta væru illvígar
deilur og valdabarátta. Prestar virð-
ast hafa gert marga af helstu mann-
kostum útlæga úr sínum félagsskap.
Þegar biskup þurfti þeirra mest, var
drengskapurinn víða vant við látinn.
Þegar vígslubiskupinn í Skálholti
veitti Langholtspresti að málum
gegn söfnuðinum, fólkinu sem sá
fyrir þeim, þá fannst mér heilagleik-
inn renna til. Formaður presta áh'tur
það friðarslit að fá mótframboð.
Hann hefur þó síst borið klæði á
vopnin. Ef Sigurður vígslubiskup,
Flóki Kristinsson og Geir formaður
verða andlit presta útávið fá söfnuð-
irnir ástæðu til að biðja Guð um
neyðar hjálp, því ekki eru lögin þeim
í hag. Þau voru gerð fyrir forrétt-
indafólk. Áður en kosning formanns
presta fór fram, kvaddi séra Sólveig
Lára sér hljóðs og varaði menn við
að ljá séra Geir lið, slíkur friðarspill-
ir sem hann væri. Hann komst að
með Qögra atkvæða mun og var svo
veruleika- fyrtur að fínnast ekkert
athugavert að hafa helming presta
í andstöðu. Fundur þessi var á lágu
plani í mörgum skilningi. Konum var
haldið utan áhrifa. Ovinsæll bók-
stafstrúarmaður kosinn formaður.
Rætnar árásir á æðsta mann kirkj-
unnar hljómuðu frá áður líttþekktum
sjálfskipuðum dómurum sem ef til
vill sáu ekki aðrar leiðir til að gera
ljóst að þeir væru til.
Það hlýtur að vera erfitt að kenna
og boða eitthvað sem ekki er trúað
á. Á fundi þessum var ekki góðleiki
meðal manna. Ég tala nú ekki um
lítillæti og umburðarlyndi. Kreddu-
fullir siðapostular, sem söfnuðir hafa
glapst til að kjósa, heimta æviráðn-
ingu til að tryggja áskrift á laun líf-
ið á enda. í augum þessara manna
eru söfnuðirnir aukaatriði. Þeir líta
á sjálfa sig sem óhreyfanlega þjóna - i
almættisins. Menn þessir vita ekki
hvað þeir gera kirkjunni illt með J
þessari eigingirni sinni og tillits- 4
leysi. Það gladdi mig að vinur minn
Halldór Reynisson, sem greinilega
er í hópi hinna hógværari presta,
mælti móti allri æviráðningu. Menn
eins og hann og t.d. séra Sigfinnur
Þorleifsson vita, að þar sem fólkið
fær að velja og hafna, eru þeir ör-
uggir. Prestar eiga ekki að getað
kúgað söfnuð sinn eins og á sér stað ,|
í Langholtskirkju.
Hvort sem þeim konum sem vöktu
upp afgamla fortíðardrauga, rétta 4
eða ranga, líkar betur eða verr, var
rangt og illa að málinu staðið.
Tíminn frá sögðum atburðum of
langur. Þær draga nú mikið af sak-
lausu fólki niður með manninum sem
þær vilja refsa. Ef þeim finnst það
rétt er trú þeirra á hinar betri leiðir
engu betri en sumra prestanna.
Hatur er slæmur ferðafélagi og sísti yj
græðarinn. Ég hef skrifað greinar
um glámskyggni dómara í málum *
er varða níðingsskap á börnum og (
konum. Líka þar sem morð koma
við sögu. í engu þeirra mála, þó sök
hafi sannast, hefur viðkomandi og
fjölskylda verið leikin jafn grátt og
hr. Ólafur Skúlason og hans fólk.
Við konurnar vil ég segja, að á öllum
málum eru margir fletir. Veljið þá
bestu fyrir ykkur og aðra því hatur
og hefnigirni hittir gerendur sjálfa. ,
Látið ekki leiðast af öfgafólki.
ALBERT JENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík. ’
Biddu um Banana Boat
alnáttúrulegu sólkremin
(All natural Chemical Free)
□ Verndandi, húðnærandi og uppbyggjandi Banana Boat Body
Lotion m/Aloe Vera, A, B2, B5, D og E-vítamín og sólvöm #4.
□ Banana Boat rakakrem f/andlit m/sólvörn 18,115,123.
□ Natúrica húðkremin hennar Birgittu Klemo, eins virtasta
húðsérfræðings NorSurlandanna Prófaðu Natunca Örttkrlm
og Naturica Hud+krám húðkremin sem allir em að tala um.
□ Hvers vegna að borga um eða ytir 2000 kr. fyrir Propolis
þegar þú getur fengið 100% Naturica Akta Propolis á innan
vðlOðOkr?
□ Biddu um Banana Boat e) þú vilt spara 40-60% þegar þú
kaupir Aloe Vera gel, 6 stærðir frá 60 kr. - 1000 kr. (tæpur
hálfur litri)
Banana Boat og Naturica fást í sólbaðsstofum, apótekum,
snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur.
Banana Boat E-gel fæsl lika hjá Samtökum psoriasis-og
exemsjúklinga.
Heilsuval - Barónsstig 20 v? 562 6275
Alit efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.