Morgunblaðið - 05.07.1996, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR-5. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
Heimasíða Barb Wire
http://vortex.is/pamela
„EKKI SEGJA VINAN"!!
GANGVERKSMYS
DEAD^IOVWG ÍJ *>-
Leslie Nielsen fer á kostum í hlutverki sínu sim
Drakúla greifi í sprenghlægilegri gamanmynd
frá gríngreifanum Mel Brooks.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.í 12 ára.
IAN
HART
ART
MALIK
★★★ GB.DV
Sýnd kl. 7 og 9.
Pamela Anderson, skærasta stjarnan úr lífvarðarhópnum í Strandvörðum
„Baywatch", þreytir hér frumraun sína í hlutverki BARB WIRE, mannaveiðarans
íturvaxna sem einnig rekur einn svakalegasta töffarabar fyrr og síðar. Myndin
er hlaðin nýjustu tæknibrellum sem völ er á ásamt þeim tryllingslegustu
áhættuatriðum sem bíógestir munu sjá á þessu ári! Enda hélt David Hogan um
taumana sem er best þekktur fyrir að hafa stýrt upptökum á áhættuatriðum í
BATMAN FOREVER og ALIEN 2.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i 12 ára.
KOMA
UPP
VFIRBORÐID
Sýnd kl.4.45, 7 og 9.15
HELGARMYIMDIR SJOIMVARPSSTOÐVAIMNA
ÚRVAL + VALKOSTIR=ÚRVALSKOSTIR?
í SÉRFLOKKI
er spænska Oscars-
verðlaunamyndin
Glæstir tímar eða
Belle Epoque eftir
Fernando Trueba,
föstudag (Stöð
2 ►20.50), bráð-
skemmtileg og
manneskjuleg gam-
anmynd um iið-
hlaupa í spænska
borgarastríðinu sem
æsir upp kynhvötina
hjá fjórum dætrum
sérviturs listmálara
sem skýtur yfir
hann skjólshúsi. Myndin er full af kynlegum kvistum og munúðar-
fullu andrúmslofti, vel leikin og tekin, og sýnir Truéba í mun betra
formi en í Hollywoodbömmemum Two Much sem sýnd hefur verið
í Reykjavík í sumar. ★ ★ ★
STÆRSTA kvikmyndahús landsins
er stofan heima. Þungur afturendi,
þungir skattar, þungar skyldur eða
einfaldlega löngun til að vera heima
— allt eru þetta góðar afsakanir
og jafnvel gildar ástæður fyrir að
fara ekki að horfa á kvikmyndir
þar sem þeirra verður óneitanlega
best notið, það er að segja í kvik-
myndahúsinu. Enn er besta afsök-
unin og gildasta ástæðan ónefnd:
Að hnýsilegustu kvikmyndina sé að
finna í heimabíóinu, að í sjónvarpinu
sé mynd sem ekki verður undan
vikist að horfa á. Þessi afsökun og
ástæða mættu vera oftar fyrir
hendi.
Almennt hefur mér þótt kvik-
myndaúrvalið í Ríkissjónvarpinu
hafa verið forvitnilegast undanfarin
ár. Það hefur leyft sér að sýna úr-
valsmyndir frá öðrum löndum en
Bandaríkjunum og einnig gamla
klassíkera, jafnvel þótt þeir séu
svart-hvítir. Reyndar hef ég aldrei
skilið andúð margra á myndum í
fserri litum en fjórum; ætli þetta
sé einhver sauðalitakomplex? Í
seinni tíð hefur hins vegar Stöð 2,
sem í aðalatriðum hefur einbeitt sér
að amerískri iðnaðarafþreyingu,
sótt mjög í sig veðrið; metnaður í
kvikmyndavali hefur stóraukist og
nægir að nefna til marks um það
þriggja lita þríleik pólska meistar-
ans Kieslowskis. Stöð 3 er vonandi
að mjaka sér út úr þeim meinlausu
en máttlitlu amerísku sjónvarps-
myndum sem sett hafa svip á
myndaval þar á bæ. Og Sýn, sem
um tíma var af illum tungum kölluð
Sorpa, virðist vera að ná sér á strik.
Hin svokallaða „harða“ dagskrár-
stefna Sýnar hefur síðustu mánuði
teflt fram nokkrum frambærilegum
bandarískum sakamálamyndum,
auk hrollvekja og vísindaskáldskap-
ar og svo hafa skotist inn á dag-
skrána myndir úr öðrum áttum eins
og dönsku myndirnar Rússneska
söngkonan og Næturvörðurinn. Og
„djörfu“ myndimar svokölluðu eru
fjarri því að særa velsæmiskennd
sæmilega þroskaðs fólks; miklu
frekar að þær séu móðgun við skyn-
semina. Hvað sem öðru líður hefur
Sýn markað sér annan bás, skapað
sér sérstöðu, reynir ekki að þjóna
öllum og þar af leiðandi engum og
er alvöru valkostur. Annar alvöru
valkostur sem margir kvikmynda-
unnendur eiga nú aðgang að gegn-
um Fjölvarpið er TNT Classic Movi-
es, sem fer þó fjarri að bjóði aðeins
upp á sígildar úrvalsmyndir; þvert
á móti er dagskrá hennar mjög
brokkgeng.
Um helgarúrval þessara stöðva
munu þessir dálkar fjalla á föstu-
dögum hér í Morgunbiaðinu.
Sparkmeist-
arar í öndvegi
AMERÍSKAR afþreyingarmyndir,
flestar gerðar fyrir sjónvarp, eru
áberandi á dagskrám íslensku sjón-
varpsstöðvanna í kvöld og engin
forvitnilegri en önnur. Dæmdur
saklaus Presumed Guilty
(RÚV ►22.15) er að vísu undir
leikstjórn reynslumikils fagmanns,
Paul Wendkos og gæti boðið upp á
sæmilega spennu. Annar og örlítið
frumlegri fagmaður, John Flynn,
leikstýrir hrollvekju Sýnar Ban-
vænum leik eða Brainscan en er
þar í frekar ófrumlegu formi eða
•k'h Og síðar á dagskrá Sýnar
(Sýn ►23.20) er mynd úr flokki
sakamálamynda um lögguna Jack
Reed sem sá ábúðarmikli leikari
Brian Bennehy leikur en þessar
myndir hafa verið góð miðlungsaf-
þreying. Steven Seagal sparkmeist-
ari leikstýrir sinni fyrstu mynd Á
dauðaslóð On Deadly Ground
(Stöð 2 ► 14.00 og 0.25) , eins
konar umhverfisverndarhasar með
háum spörkum og snörpum höggum
hans sjálfs og yfirgengilegri kapít-
alistaskepnu Michaels Cains en út-
koman er upp á ★.
Heimildamynd, Bölvun drekans,
um brautryðjanda sparkmyndanna,
Bruce Lee er svo á dagskrá Stöðvar
3 á laugardaginn (Stöð
2 ►22.55).
Eduard Molinaro, leikstjóri frönsku
sjónvarpsmyndarinnar Maisie
skilur margt á laugardagskvöldið
(RÚV ►21.10) er höfundur La
Cage aux Folles, frumgerðarinnar
af bandaríska smellinum The
Birdcage en er að öðru leyti brokk-
gengur leikstjóri. Á reki eða Adrift
er bandarísk stæling á áströlsku
spennumyndinni Dead Calm
(RÚV ►22.45), ★l/2. Meistar-
arnir eða D2: The Mighty Ducks
(Stöð 2 ►21.05, ★ ■/:2), dellu-
mynd sem er aðeins forvitnileg fyr-
ir nærveru Maríu okkar Ellingsen
sem þjálfara íslenska ísknattleiks-
landsliðsins! Hin sígilda vasaklúta-
mynd Stúlkan og gæðingurinn
eða National Velvet með Elísabetu
Tayior (Stöð 3 ►20.20 ★★'/*)
og breska spennumyndin Engum
að treysta eða Deep Secrets, báð-
ar á Stöð 3, eru trúlega bestu valko-
stirnir á stöðvunum á laugardags-
kvöldið. Á sunnudagskvöldið er fátt
um fína drætti og ég neyðist til að
vara sérstaklega við hrútleiðinlegri
mexíkóskri tilgerð um listakonuna
Frida Kahlo (RÚV ►22.35 ★)
Árni Þórarinsson
Þær bestu
áTIMT
Hnyttin myndgerð af sakamála-
sögu Raymonds Chandlers The
Little Sister, með James Garner
í fínu formi sem einkaspæjarinn
hugumstóri. (Leikstj. Paul Bog-
art. (Föstudagur ►18.30)
★ ★★
The Hill (1965)
Sean Connery fer á kostum í
harðneskjulegu fangabúðadrama
eftir Sidney Lumet. (Föstudag-
ur ►23.00)
The Time Machine (1960)
Sígildur vísindaskáldskapur,
byggður á sögu H.G. Wells um
tímavélina. Leikstjóri George Pal.
(Laugardagur ► 18.00)
★ ★ ★
The Asphalt Jungle (1950)
Eitt af meistaraverkum Johns
Huston um skartgriparán sem fer
úr böndunum. Kom Marilyn
Monroe á kortið. (Föstudag-
ur ►22.00) ★★★‘/2
Singing in the Rain (1952
Söngva- og dansmynd allra
söngva- og dansmynda með Gene
heitnum Kelly sem leikstýrir
ásamt Stanley Donen. (Sunnu-
dagur ►18.00) ★★★%
Cet Carter (1972)
Ein besta glæpamyndin sem gerð
var í Bretlandi á áttunda áratugn-
um, hörkuleg og þétt undir stjórn
Mike Hodges og prýdd afbragðs
leik Michaeis Cain. (Sunnudag-
ur ►22.00) ★★★