Morgunblaðið - 18.07.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aldarafmæli
verslunar á
Stöðvarfirði
Á STÖÐVARFIRÐI verður haldið
upp á hundrað ára verslunaraf-
mæli um helgina. Afmælishátíð
verður dagana 19., 20. og 21. júlí
eða frá föstudegi til sunnudags.
Á sérstakri hátíðardagskrá á
laugardaginn verður útnefndur
heiðursborgari og afhjúpaður
minnisvarði um Carl Guðmundsson
og eiginkonu hans, Petru A. Jóns-
dóttur, en Carl var frumkvöðull
verslunar á Stöðvarfirði. Minnis-
varðann gerði grafíklistamaðurinn
Ríkharður Valtingojer sem búsett-
ur er á Stöðvarfirði.
Þéttbýli í kring
um verslunina
Carl Guðmundsson fékk fyrst
verslunarleyfi árið 1896 og telst
fyrsti kaupmaðurinn í Stöðvarfírði.
Áður þurftu menn úr sveitinni að
sækja verslun í Fáskrúðsfjörð og
Djúpavog. Þéttbýli myndaðist í
Stöðvarfirði í kringum verslun
Carls og fólki fjölgaði.
Hann byggði reisulegt hús, sem
var lengi stærsta húsið í byggðar-
laginu og var það kallað Carlshús,
en það var rifið fyrir nokkrum
árum. Verslun var á neðri hæð
hússins en íbúð kaupmannsins á
þeirri efri. Carl rak jafnframt út-
gerð með verslun sinni.
Sonur Carls, Stefán, tók við
versluninni, þegar faðir hans lést
af slysförum. Hann seldi svo versl-
unina 1931 og flutti Kaupfélag
Stöðfírðinga í húsið árið 1940. Þar
var Kaupfélagið með verslun sína
til ársins 1980, þegar það flutti í
nýbyggt verslunarhúsnæði.
Ekki er vitað hvenær Stöðvar-
fjörður byggðist, en talið er að það
hafí verið fyrir 930. í Landnámu
er sagt að Þórhaddur hinn gamli,
hofgoði í Þrándheimi, hafí numið
þar land og Stöðfirðingar séu frá
honum komnir.
Um 1700 voru Stöðvarfjörður
og Breiðdalur sameinaðir í eitt
hreppsfélag. Stöðvarfjörður varð
svo sérstakt hreppsfélag 1905, en
þá voru íbúar rúmlega 150. Síðar
fjölgar þeim jafnt og þétt og urðu
þeir flestir 360 árið 1980. Síðan
hefur þeim fækkað og eru þeir nú
um 300 talsins.
Útgerð hefur alltaf verið stór
þáttur í Stöðvarfírði og lengst af
voru bændur í sveitinni titlaðir
útvegsbændur, en þeir stunduðu
bæði búskap og sjósókn. Um 1950
var komið hraðfrystihús á staðinn,
en áður var fískurinn nær ein-
göngu verkaður í salt eða hertur
og var frystihúsið mikil iyftistöng
fyrir staðinn. Síldarævintýrið átti
sinn þátt í uppgangi bæjarins og
voru þá miklar framkvæmdir í fírð-
inum sem stóðu alit til byrjunar
áttunda áratugarins.
Afkoma Stöðfirðinga byggist að
langmestu leyti á sjósókn og úr-
vinnslu sjávarafurða og þjónustu
sem tengist útgerð. Gerður er út
skuttogari auk margra smábáta. Á
Stöðvarfirði er nú rekin freðfisk-
verkun, verkaður saltfískur, harð-
fiskur, skreið, loðna og fleira.
Fjölbreytt dagskrá
um helgina
Fjölbreytt hátíðardagskrá verð-
ur um helgina. Haldnar verða
myndlista- og ljósmyndasýningar,
dansieikir verða alla helgina þar
sem hijómlistamenn staðarins
Morgunblaðiö/öjorn uislason
HUNDRAÐ ára verslunarafmælis verður minnst á Stöðvar-
flrði um helgina.
AFKOMA Stöðvarfjarðar hefur ætíð byggst á útgerð.
Hér má sjá sjómenn leggja að landi og bæinn í baksýn.
koma fram og leika tónlist við
hæfí allra aldurshópa. Kolbrún
Björgvinsdóttir, Kogga, verður með
myndlistasýningu í Gallerí Snæ-
rósu, Geir Pálsson málari verður
með sýningu á verkum sínum í
grunnskólanum og ljósmyndasýn-
ing verður í Steðjahúsinu.
Einnig fer fram árlegt hlaup til
minningar um Önnu Maríu Ingi-
marsdóttur, unga frjálsíþróttakonu
sem féll frá í blóma lífsins.
I tengslum við hátíðina var hald-
in lagakeppni þar sem tónsmiðir
og textahöfundar staðarins voru
beðnir um að semja lag sem notað
yrði til kynningar á keppninni. Sig-
urlagið heitir „Sumarnætur" og er
eftir Garðar Harðarson og texta
samdi Björgvin Valur Guðmunds-
son.
Einnig var haldin samkeppni um
merki hátíðarinnar þar sem slag-
orðin „Stöð í Stöð“ koma fram.
Reyndar er átt við „Stuð í Stöð,“
en þar sem vísað er til flámælis
íbúa landshlutans verður stuð að
stöð. Ýmislegt fleira verður til
gamans gert, kveiktur verður varð-
eldur, haldin flugeldasýning, grill-
veisla, útimarkaður, farið í göngu-
ferðir og fleira.
NEMENDUR er luku 18 eininga námi ásamt rektor Tækniskóla
íslands, stjórnarformanni Endurmenntunarstofnunar og endur-
menntunarstjóra.
NEMENDUR er luku 30 eininga námi ásamt rektor Háskóla ís-
lands, sljórnarformanni Endurmenntunarstofnunar og endur-
menntunarstjóra.
Utskrift
hjá Endur-
menntunar-
*
stofnun HI
NEMENDUR í þriggja missera
námi Endurmenntunarstofnun-
ar Háskóla íslands í rekstrar-
og viðskiptagreinum voru
brautskráðir i 11. sinn 15. júní
sl. Að þessu sinni luku 19 nem-
endur náminu.
Námið samsvarar 18 eining-
um á háskólastigi og er hægt
að stunda það með starfi. Helstu
þættir námsins eru: Rekstarhag-
fræði, reikningshald og skatt-
skil, fjármálastjórnun, stjórnun
og skipulag, starfsmannastjórn-
un, upplýsingatækni í rekstri og
stjórnun, framleiðslustjórnun,
markaðs- og sölufræði, réttar-
reglur og viðskiptaréttur, þjóð-
hagfræði og haglýsing og
stefnumótun.
Annað hvert ár býður Endur-
menntunarstofnun tveggja miss-
era framhaldsnám fyrir þá er
lokið hafa 18 eininga náminu.
Föstudaginn 14. júní voru braut-
skráðir 15 nemendur úr því.
Alls hafa nemendur þá lokið 30
einingum en helstu þættir fram-
haldsnámsins eru: Framhalds-
nám í stjórnun, tölfræði, gæða-
stjórnun, framhaldsnámskeið í
fjármálum og reikningshaldi,
markaðsrannsóknir, auglýsing-
ar, utanríkisverslun og stjórnun
þjónustufyrirtækja.
Þeir sem luku 18 eininga prófi
nú eru: Anna Guðný Aradóttir,
Arnheiður Árnadóttir, Auðunn
Guðjónsson, Birgir Bjarnason,
Birna Kolbrún Gísladóttir,
Bjargey Elíasdóttir, Björn
Valdimar Guðmundsson, Eirík-
ur Valsson, Haukur M. Stefáns-
son, ívar J. Arndal, Jón Freyr
Jóhannsson, María Jónasdóttir,
Oddný Indiana Jónsdóttir,
Pálmi Finnbogason, Ragnar Jó-
hannsson, Róbert Sveinn Ró-
bertsson, Sigrún Anný Jóhanns-
dóttir, Svavar Ásbjörnsson og
Þorvaldur Birgisson.
Þeir sem luku framhaldsnámi
og þar með 30 einingum eru:
Arnhildur Ásdís Kolbeins, Ár-
mann Benediktsson, Bjarni G.
Ólafsson, Friðþjófur K. Eyjólfs-
son, Guðjón Reynir Jóhannes-
son, Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir,
Hallveig Andrésdóttir, Helga
Stefánsdóttir, Helgi Þórisson,
Kristján Þór Hallbjörnsson,
Skúli M. Sigurðsson, Stella Ols-
en, Ulfar G. Ásmundsson, Vala
Hauksdóttir og Þorbjörn Guð-
jónsson.
Málaðu strax^
utanhússmákdnsu
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 ■ Slmi 525 3000
Helluhrauni 16 ■ Sími 565 0100
Max utanhússmálning erþrœlsterk
akrylmálning frájotun.
• MAX er með 7% gljáa.
• MAX er vatnsþynnanleg.
• MAX er fáanleg í himdruðiun iitatóna.
• MAX hefur reynst einkar vel á Islandi.
mm
T
\
)
I
)
I
í
i
t
i
t
I
|
I
I
I
I
I
i
I
t
I
I
l