Morgunblaðið - 28.07.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996 13
Konaí
spænsku
akademíuna
Konur eru sjaldséðar í spænsku akadem-
íunni, en á næstunni tekur skáldsagna-
höfundurinn Ana María Matute þar sæti.
Nýlega var svo fertugur rithöfundur valinn
í hóp öldunga akademíunnar. Jóhann
Hjálmarsson segir lítillega frá þessum
höfundum og viðfangsefnum þeirra.
Ana María Antonio Munoz
Matute Molina
SPÆNSKA akadem-
ían er karlveldi, en þar
hafa setið og sitja fá-
einar konur. Skáld-
konan Carmen Conde
fékk inngöngu 1978,
en lést 8. janúar sl.
Nýlega hlaut önnur
kona sæti í akadem-
íunni, skáldsagnahöf-
undurinn Ana María
Matute. Þetta hefur
vakið mikla athygli á
Spáni þar sem vel er
fylgst með gerðum
akademíunnar. Kost-
irnir eru að verk Önu
Maríu Matute eru
rædd og þá ekki eingöngu skáld-
sögurnar frá sjötta og sjöunda
áratugnum sem öfluðu henni
frægðar langt út fyrir landamæri
Spánar.
Ana María Matute er fædd í
Barcelona 1926. Hún var því tíu
ára í upphafi borgarastyijaldar og
eru kunnustu skáldsögur hennar,
þríbálkurinn Los mercaderes
(Stórkaupmennirnir) og Los hijos
muertos (Dánu börnin, 1958), með
efni frá þeim tíma. Skáldsögur
hennar eru í raunsæisstíl.
Olvidado Rey Gudú (Gleymdi
konungurinn Gudú) nefnist vænt-
anleg skáldsaga eftir Matute. Sag-
an gerist á miðöldum og er „skrýt-
in og sérstök“ að sögn höfundar-
ins. Sagan er 1.200 bls. og fellur
ekki að spænskri hefð að mati
höfundarins, en er evrópsk og í
anda H.C. Andersens, Grimms-
bræðra og Perrault sem skrifaði
líka fyrir börn, í raun „hylling" til
þeirra.
Ana María Matute leggur
áherslu á lesandann og ímyndun-
arafl hans. Hver lesandi er sjálf-
stæður heimur og þáttur barnsins
er veigamikill.
Fertugur Evrópumaður
Meðalaldur félaga í akadem-
íunni er 72 ár. Dæmi eru þó um
að menn hljóti sæti þar ungir:
Camilo José Cela 41 árs, ljóðskáld-
ið Pere Gimferrer 39 ára og fyrir
skömmu fertugur rithöfundur,
Antonio Munos Molina. Hann er
nú yngstur akademíufélaga.
Molina sem er af gyðingaættum
og sonur evrópskra innflytjenda á
Spáni talaði í inntökuræðu sinni
um rithöfundinn Max Aub og und-
irstrikaði með því evrópskan arf.
Aub var af þýsk-frönskum upp-
runa. Hann samdi fræga skáld-
sögu um borgarastyijöldina,
Töfravölundarhúsið (1942), og er
í hópi fjölmargra spænskra útlegð-
arhöfunda.
Skáldsaga Munoz Molina, Vet-
urinn í Lissabon (1987) hlaut
bæði Spænsku bókmenntaverð-
launin og Spænsku gagnrýnenda-
verðlaunin 1988. Skáldsögur hans
eru þekktar og hafa sumar verið
kvikmýndaðar. Efni þeirra hefur
höfðað til kvikmyndagerðar-
manna, m.a. Pilar Miró sem gerði
mynd eftir Beltenebros (1989).
Hann tilheyrir kynslóð sem kennd
hefur verið við „nýju spænsku
skáldsöguna", en kann ekki við
þann límmiða. Annað orð sem
hann þolir ekki er „menntamað-
ur“, hann vill frekar kallast bók-
menntamaður. Meðal áhugamála
hans er djass. Hann er greinahöf-
undur og skeleggur sem slíkur og
verður tiðrætt um þá þjóðfélags-
þróun sem hann kallar „byltingu
hinna ríku gegn fátæklingum“.
Orðin eru sótt til hagfræðingsins
Johns Kenneths Galbraiths.
í blaðagreinum beinir Muiios
Molina einkum spjótum að sið-
blindu, ofbeldishneigð og tor-
tryggni gagnvart útlendingum.
Það tíðkast á Spáni eins og í
fleiri löndum að rithöfundar eru
virkir í blaðaskrifum og hafa þeir
margir fasta dálka í blöðum og
tímaritum. Nóbelsverðlaunahöf-
undurinn Camilo José Cela hefur
til umráða síðu í dagbiaðinu ABC
á sunnudögum. í dagblaðinu E1
País eru höfundar á borð við
Mario Vargas Llosa, Antonio
Munoz Molina og Rosu Montero
áberandi. Akademiufélagar hafa
ekki lokað daglegt líf alveg úti
því að þeir tjá sig oft um ýmis
efni, einkum þó bókmenntir og
heimspeki.
Akademían stuðlar að eflingu
og verndun spænskrar tungu, m.a.
með útgáfu orðabóka og veitir
æðstu bókmenntaverðlaun spæn-
skumælandi þjóða, Cervantes-
verðlaunin.
Wlfi'* FLÍSAR
11 111 m rn.rm
PsnaPFSiruviLLitJ
I T:S~ 1 U, I I I II 1.1-1
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
LISTIR
„Það er allt
KVIKMYNDIR
Rcgnboginn
í BÓLAKAFI
(„Down Periscope") ★ ★
Leikstjóri David S. Ward.
Handritshöfundar Andrew
Kurtzman, Elliot Wald.
Kvikmyndatökustjóri Victor
Hammer. Leikendin- Keisey
Grammer, Lauren HoUy, Rob
Schneider, Harry Dean Stant
on, Bruce Dem, WiUiam H. Macy,
Rip Tom. Bandarísk,
20th Century Fox 1996.
KAFBÁTAR eru gamalgrónir
í hettunni sem umhverfi gaman-
mynda frá Hollywood, í bólakafi
gerist að mestum hluta um borð
í einum slíkum. Sá er hálfgerður
haugamatur, úreltur og fornfá-
legur, knúinn dísilvélum. Slíka
farkosti eiga Rússar í hrönnum
í Múrmansk og víðar. Sá uggur
grípur um sig innan stjórnar sjó-
hers Sáms frænda að þessi skip
geti reynst hættuleg heimsfriðn-
um, því er ryðið barið af þessu
þreytulega umhverfi myndarinn-
ar og reynt hvað hann getur.
Ekki er hægt að segja að valinn
maður sé í hveiju rúmi nema í
neikvæðri merkingu, áhöfnin
skipuð erkiflónum frá kapteinin-
um (Kelsey Grammer) niður í
messagutta. En reynt er á þolrif
skips og manna.
Sauðmeinlaus vitleysa sem er
tæpast nógu fyndin fyrir full-
orðna en börn og óvitar virtust
skemmta sér hið besta. Fram-
vinda, uppákomur og brandar-
arnir minna mikið á ameríska
gamanþætii úr sjónvarpi og það-
an er aðalleikarinn, Grammer,
einmitt kominn og kannast sjálf-
sagt margir við hann úr Frasier
og Staupasteini. Grammer verð-
ur ekki dæmdur fyrir frumraun
sína á hvíta tjaldinu, til þess er
hún of rýr í roðinu hvað handrit-
ið snertir, en ekki við Grammer
né forvitnilegt samsafn ágætra
skapgerðarleikara í aukahlut-
verkum að sakast. Það er engin
spurning að karlar á borð við
Rip Torn, Bruce Dern, Harry
Dean Stanton og William H.
Macy eiga betra skilið. Fyrir
yngsta áhorfendahópinn.
Sæbjörn Valdimarsson
VERK á sýningu Ríkeyjar.
Ríkeyí
Perlunni
36. EINKASÝNING Ríkeyjar
Ingimundardóttur stendur nú
yfir í Perlunni í Öskjuhlíð. Sýn-
ingin er mikil að umfangi, yfir
eitt hundrað verk. Má þar nefna
málverk, brenndar lágmyndir
úr leir og postulíni, steyptir
skúlptúrar og fleira. Opið er
alla daga til 3. ágúst.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077