Morgunblaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1996 49
tANGO
NiSKE.ÐÍKRAMHU5.NU
'7
Kenna'sús.n< «».“•
Byriendnr "a"'M
Innritun og upplýsingar
í s. 551 5103 og 552 2661
...blabið
- kjarni málsins!
7&Am
HÖS&
Platan
imn*&
með
mmm
®zim
er komin aftur.
Fœst í öllum
betri hljómplötuverslunum.
FÓLK í FRÉTTUM
Bill fer í
hergallann
BANDARÍSKI leikarinn Bill Puil-
man leikur forseta Bandaríkjanna
í myndinni Independence Day sem
frumsýnd verður í fimm kvik-
myndahúsum á íslandi á morgun.
Bill, sem er
fyrrverandi
kennari, hefur
verið viðloðandi
leiklist í áratug.
Hann hefur ver-
ið vinsæll auka-
leikari og leikið
í myndum eins
og „Sommers-
by“, „Sleepless
in Seattle“ og
„Spaceballs“.
Upp á síðkastið
hefur hann ver-
ið að sanna sig
enn frekar sem
leikari í mynd-
unurn „Ca-
sper“, „While
You Were Sle-
eping“ „Mr.
Wrong“ og nú
„Independence Day“.
í kjölfar myndarinnar og vin-
sælda hennar hafa verið búin til
leikföng í líki leikara og leikmuna
úr myndinni og dúkkan af Pullman
er þrekvaxin, vopnuð M16 árásar-
riffli, skammbyssu og loftvarnar-
- eldflaug enda ákveður Bill, sem
forseti Bandaríkjanna, að fara
sjálfur í hergallann og leiða heim-
inn í baráttunni við illgjarnar geim-
verur sem ráðast á jörðina í mynd-
inni.
Bandarískt
risabarn
ZACK Strenkert frá Bandaríkjunum
er aðeins 18 mánaða gamall en er
orðinn 90 sm langur og vegur 31
kíló. Zack vóg 19 merkur við fæð-
ingu, 4,7 kíló, og hefur vaxið mjög
ört síðan. Læknar sem fylgjast með
vexti drengsins vita fá dæmi um við-
líka stærð á svo ungu barni og undr-
ast hana mjög. Strenkert sést hér
geispandi á myndinni ásamt móður
sinni Laurie.
Helena
hugleiðir lífið
► DANSKA ofurfyrirsætan Helena Christensen, 26
ára, er ein af þeim sjö stærstu í bransanum og
hefur unnið sem fyrirsæta síðan hún var 18 ára.
„Sá tími kemur í lífi hvers manns að hann spyr sig
hvert stefnir, hver hann er og af hverju lífið sé
eins og það er. Ég er einmitt á þeim tímapunkti
núna,“ segir Helena. Hún er orðin þreytt á fyrir-
sætulífinu og öllu sem því fylgir, þrátt fyrir að eiga
erfitt með að viðurkenna að seinna skeið ferilsins
sé að færast yfir og aukin samkeppni yngri fyrir-
sæta sé sífellt meiri ógnun. „Ég þéna mun meira
af peningum en þessar stelpur og er það ekki það
sem allt snýst um.“ Hún er samt farin að hugsa um
lífið eftir fyrirsætuheiminn og þar kemur ýmislegt
til greina. Hún hefur til dæmis fengið tilboð um að
leika í kvikmyndum og er að vinna að ljósmynda-
bók. „Annars hef ég ekki hugmynd um hvað ég
geri eftir að ég hætti. Ég ætla að nota sumarið í
að ákveða það. Þetta verður eins og að hætta í ástar-
sambandi, maður stendur allt í einu einn og það
getur vakið manni ugg.“
Helena sást ósjaldan á síðum slúðurblaða á meðan
á sambandi hennar og Michael Hutchence söngvara
áströlsku rokkhljómsveitarinnar INXS stóð en þau
hættu saman í fyrra og Michael tók saman við Paulu
Yates fyrrum eiginkonu Bobs Geldofs. Síðan þá
hefur hún verið orðuð við marga poppara og það
fer verulega í taugarnar á henni. „Michael er eina
rokkstjarnan sem ég hef verið með. Ég á að hafa
verið með Liam Gallagher úr Oasis, James í Blur,
Evan Dando og Prince. Ég var í frábæru sambandi
við rokkara í fimm ár og því ætlar pressan að gera
úr mér einhverskonar hljómsveitarpíu."
Móðir Helenu er dönsk en faðir hennar er frá
Perú. Hún á sína bestu og elstu vini í Danmörku
sem hún heimsækir þegar tími vinnst til en heimili
hennar er sem stendur í Monte Carlo.
Cruise
fellur frá
ákæru
► LEIKARINN Tom Cruise
sem höfðaði mál á hendur
þýska tímaritinu Bunte, þeg-
ar það skáldaði upp hluta
af viðtali við hann og sagði
hann ekki geta búið til
börn, hefur fallið frá
ákærunni. Ástæðan er
dauði tveggja fram-
kvæmdasijóra timarits-
ins í flugslysi í síðustu
viku. Tímaritið hef-
ur fallist á að birta
afsökunarbeiðni
og mun greiða
lögfræði-
kostnað
Cruises.