Morgunblaðið - 15.08.1996, Side 56
9
<ss>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
(J?) NYHIRJI •
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
HP Vedn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆH 1
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Nýtt leiðakerfi
tekur gildi
Sáttafundi heimilislækna o g ríkisins
var slitið síðdegis í gær
. Allt situr fast
í læknadeilunni
ÞÓRIR Einarsson ríkissáttasemjari
sleit sáttafundi sem hann boðaði til
í gær með samninganefnd heilsu-
gæslulækna og samninganefnd rík-
isins (SR) um kl. 18 eftir þriggja
tíma fund. Ekkert nýtt kom fram á
fundinum í gær frá hvorugum aði-
lanum, sem gaf tilefni til að reyna
að heQa samningaviðræður að sögn
Þóris og situr allt fast í kjaradeil-
unni. Ríkissáttasemjari ákvað þó að
boða deiluaðila á sinn fund á ný kl.
14 í dag.
Deiluaðilar ræddust ekki við í gær
en Þórir kvaðst hafa rætt ítarlega
við báðar samninganefndir en að
samtölum loknum var ekki talinn
grundvöllur til að hefla viðræður.
„Staðan er óbreytt. Það kom ekk-
ert nýtt fram á fundinum,“ sagði
Gunnar Björnsson formaður SR.
Hann kvaðst vonast til að fá við-
brögð frá samninganefnd lækna en
af hálfu ríkisins væri línan skýr.
Aðspurður um viðbrögð við um-
mælum fjármálaráðherra í fjölmiðl-
um um gerð samnings til áramóta
og að næstu mánuðir verði notaðir
til viðræðna um breytingar á launa-
kerfi lækna sagði Gunnar Ingi Gunn-
arsson, formaður samninganefndar
Læknafélags íslands: „Við höfum
slæma reynslu af því að bóka ein-
hver atriði sem á að leysa síðar. Við
höfum dæmi um bókanir frá 1973
sem hefur átt að afgreiða með nokk-
urra ára millibili í samningaviðræð-
um. Þessar bókanir hafa hrúgast upp
og hafa ekkert annað gildi en að
frysta óleyst vandamál."
■ Læknadeilan/29
NÝTT leiðakerfi Strætisvagna
Reykjavíkur tekur gildi í dag og
hefur leiðum verið breytt og
tímatöflur endurskoðaðar. Mikið
álag hefur verið í upplýsinga-
deild Strætisvagna Reykjavíkur
síðustu daga vegna leiðakerfis-
breytingarinnar.
Lilja Olafsdóttir, forstjóri
SVR, segir að mikið hafi verið
hringt undanfarna daga en fyrir-
spurnir hafi náð hámarki í gær.
Lilja segir fólk hringja til að fá
aðstoð við að skilja leiðakortið í
símaskránni og upplýsingar um
breytingarnar almennt. Hún seg-
ir að langflestir sem hringi séu
jákvæðir og þeim lítist vel á
breytingarnar.
Að sögn Lilju verður unnið úr
athugasemdum í vetur og leiða-
kerfið endurskoðað næsta vor,
eins og reyndar hafi verið gert
að einhveiju leyti á hveiju ári
undanfarin ár.
Endurbótum við Hverfisgötu
er lokið en í dag tekur gildi tví-
stefnuakstur í götunni. Fyrst um
sinn verður þó eingöngu strætis-
vögnum og leigubifreiðum leyft
að aka vestur götuna.
Sigurður I. Skarphéðinsson,
gatnamálastjóri, segir fara vel á
því að gatan sé opnuð samhliða
því að nýtt leiðakerfi Strætis-
vagna Reykjavíkur er tekið í
notkun. Hverfisgata gegni lykil-
hlutverki í leiðakerfinu milli
stórra skiptistöðva.
Sigurður segir að heildarkostn-
aður við framkvæmdirnar sé 39
m.kr. Stærsti hlutinn fór I að
útbúa torg við Þjóðleikhúsið en
einnig hafa verið gerðar ýmsar
endurbætur við götunasem miða
að því að auka öryggi. A mynd-
inni er verið að leggja lokahönd
á merkingar við Hverfisgötu.
■ Nýjar skiptistöðvar/4-5
Loðnu-
aflinn yf-
ir milljón
tonna
Stefnir í mesta
fískafla í
sögunni
■a
FISKAFLI landsmanna nú í lok
fiskveiðiársins er meiri en
nokkru sinni fyrr. Frá því
fyrsta september 1995 til loka
júlí í ár hafa veiðzt um 1,7
milljónir tonna innan landhelg-
innar og rúmlega 221.000 tonn
utan landhelgi. Síðustu tvö árin
var aflinn þegar einn mánuður
var eftir af fiskveiðiárinu 1,3
milljónir og 1,5 milljónir tonna.
Heildaraflinn þetta fiskveiðiár
er því farinn að nálgast tvær
milljónir tonna.
Mestur afli á einu ári til
þessa er 1.752.256 tonn.
Fyrstu 7 mánuði ársins er afl-
inn innan lögsögu og af úthafs-
karfa orðinn rúmlega 1,3 millj-
ónir tonna og er það um
300.000 tonnum meira en á
sama tíma síðustu þrjú árin.
Sé litið á fiskveiðiárið, ræður
þar mestu að loðnuaflinn er
kominn yfir eina milljón tonna,
en svo mikill hefur loðnuafli
aldrei orðið á einu ári, hvað þá
á ellefu mánaða tímabili.
Loðnuafli á sama tíma fisk-
veiðiársins í fyrra var 640 þús-
und tonn og 862 þúsund tonn
árið 1994.
Afli utan lögsögu 220
þúsund tonn
Afli utan lögsögu fyrstu 7
mánuði ársins er 221.263 tonn.
Mest hefur veiðzt af síld, tæp-
lega 165.000 tonn og af úthafs-
karfa hafa veiðzt 45.500 tonn.
Þá er rækjuafli af Flæmska
hattinum um 10.500 tonn og
600 tonn af Dohrnbanka.
■ Fiskaflinn stefnir/19
Morgunblaðið/Ásdís
Viðræður íslendinga og Dana um lögsögumörk
Varanlegrar lausnar
leitað á næstunni
ÍSLENDINGAR og Danir munu á
næstunni leita leiða til að finna var-
anlega lausn á ágreiningi sínum um
mörk fiskveiðilögsögu íslands og
Grænlands og íslands og Færeyja.
Þetta varð niðurstaða fundar emb-
ættismanna ríkjanna, sem lauk í
Reykjavík í gær. Næsti fundur verð-
ur haldinn í Kaupmannahöfn í byrj-
un september og fram að því munu
stjórnvöld landanna athuga þá kosti,
sem eru fyrir hendi.
í yfirlýsingu, sem utanríkisráðu-
neytið sendi frá sér eftir fundinn,
kemur fram að báðir aðilar hafí
haldið fast við grundvallarréttar-
stöðu sína. Þar segir einnig að í ljósi
aukinna veiða á svæðinu milli Græn-
lands og íslands að undanförnu, sem
gera megi ráð fyrir að haldi áfram,
telji ríkin að líkur hafi aukizt á
árekstrum, sem stjórnvöld í löndun-
um geti þurft að hafa afskipti af.
„Aðilar telja óvíst hvort það fyrir-
komulag á samstarfi, sem hingað til
hefur verið við lýði í samskiptum
þeirra á þessu sviði, dugi til að bregð-
ast við hinum breyttu aðstæðum,"
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Samningaleið eða dómstólaleið
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að vilji menn komast
hjá árekstrum til frambúðar, sé
annaðhvort að semja um málið eða
vísa því til þriðja aðila. „Að mínu
mati er skynsamlegra að reyna
samningaleiðina en ég útiloka ekki
hina leiðina," segir ráðherra.
Halldór segir að í viðræðunum í
gær hafi staðan skýrzt mikið.
..það er skilningur á milli aðila
um það hvað menn voru að gera
1988,“ segir Halldór. Óformlegt
samkomulag, sem var niðurstaða
samtala íslenzkra og danskra emb-
ættismanna í nóvember 1988, hefur
nú verið gert opinbert og birtist í
Morgunblaðinu í dag. „Ég tel að við
höfum verið með rétta túlkun á því
allan tímann og að skjalið sem slíkt
skýri það,“ segir Halldór.
■ Ein leið/28
Morgunblaðið/Sigrún
SUNNUBERG landaði um 200
tonnum af loðnu í gær á
Vopnafirði.
Sumar-
loðna fryst
í fyrsta
skipti
Vopnafjörður. Morgunblaðið.
SUMARLOÐNA var fryst hér á
landi í fyrsta skipti, á Vopnafirði í
gær. Sunnubergið kom með loðn-
una og mun hún fara á lágverðs-
markað í Rússlandi, en hægt mun
vera að frysta mikið magn af þess-
ari loðnu.
Fulltrúi rússneskra kaupenda,
Bretinn Ian Harding, var á Vopna-
firði til að meta loðnuna, en það
er breska fyrirtækið J. Marr sem
sér um milligöngu viðskiptanna.
Loðnan er flokkuð og fer sú stærri
í frystingu, en annað í mjöl.
Ian Harding sagði Rússana
reykja loðnuna og setja í dósir.
Þegar búið verður að frysta 350
tonn verður siglt með loðnuna beint
til hafnar í Riga í Rússlandi, en
þangað er um viku sigling.
Að sögn Friðriks Guðmundsson-
ar, forstjóra Tanga, fæst helmingi
hærra verð fyrir frysta loðnu en
fyrir mjöl og lýsi, auk þess sem
þetta útvegar fólki vinnu í landi,
en sumarfrí hefur verið í frystihús-
inu síðustu fjórar vikurnar.
■ Tangi frystir/19
------♦ ♦ ♦----
Beijaspretta
víða mikil
VÍÐA um land er beijaspretta með
eindæmum góð þetta árið og eflaust
margir sem eru farnir að tína ber
í skyrið sitt.
Bæði á Vestfjörðum og austur á
landi er orðið krökkt af krækibeijum
og margir farnir að tína bláber og
aðalbláber en nokkuð er enn um
grænjaxla. Fyrir vestan er sprettan
best í grösugu landi en minni á
berangri. í Kelduhverfi er blábeija-
tínslan þegar hafin og í Mjóafirði
eru menn farnir að tína ber í sultur
og saft. Krækibetja- og blábetja-
spretta er þar með mesta móti í ár.
í Vestur-Húnavatnssýslu lítur
mjög vel út með beijasprettu á frið-
uðum svæðum og er hún betri en í
meðalári. Frá Kirkjubæjarklaustri
fréttist að krækiber væru vel sprott-
in og óvenjusnemma á ferðinni. Þar
er hins vegar engin bláber að hafa.
■ Berjaspretta/17