Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 13

Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 13 Morgunblaðið/Sturla P. Sturluson GUÐMUNDUR A. Guðnason, Gróa Guðnadóttir, Hlöðver Kjartansson og Sveinbjörg Hermannsdótt- ir við lónið í Botni. Kransinn og jarðgangamunninn í baksýn. Blómakransi fleytt til minn- ingar um horfna laxveiði Suðureyri - Níu systkini ættuð úr Botni í Súgandafirði stóðu fyrir allsérstæðri uppákomu á lóninu í botni Súgandafjarðar sama dag og jarðgöngin undir Botns- og Breiðadalsheiði voru opnuð. Við athöfn var veglegum blómakransi fleytt út á lónið til minningar um horfna laxa og laxarækt í Botnsá og Botnslóni. Hlöðver Kjartansson, lögfræð- ingur, var einn þeirra sem sá um kransafleytinguna og sagði hann það enga tiiviljun að þessi dagur hafi orðið fyrir valinu til kransa- fleytingar því orsaka þess að Botnsá og Botnslón séu nú alger- lega lífvana megi rekja til upp- hafs jarðgangagerðarinnar í Botnsdal. Bæði gleði og sorg „Við gleðjumst og fögnum inni- lega opnun jarðganganna eins og aðrir hér á svæðinu, en erum jafn- framt hrygg og ieið yfir þeirri eyðileggingu sem unnin var á 30 ára laxaræktunarstarfi systkin- anna í Botni og afkomenda þeirra. Forsaga málsins er sú að börn Albertínu og Guðna úr Botni ásamt fjölskyldum þeirra höfðu í þrjátíu ár unnið að ræktun árinn- ar og lónsins í Botni og lagt í það mikla vinnu og erfiði. Sumar eftir sumar hafa þau systkinin sem ekki eru búsett á Suðureyri komið vestur í gamla bæinn í Botni, sem nú er notaður sem sumarhús, og unnið sameig- inlega að uppbyggingu ræktun- arstarfsins í ánni og lóninu enda um mikið áhuga- og hugsjóna- starf að ræða. Það var svo 4. sept- ember 1991 þegar áin og lónið voru full af laxi sem ósköpin dundu yfir. Undirverktaki sem vann við jarðgangamunnann í Botnsdal ruddi þá út í ána miklu magni af aur, leðju, torfi og grjóti. Afleiðingarnar voru hörmulegar því laxinn drapst að hluta til á svæðinu og flaut upp, en annar forðaði sér. A þeim fjór- um árum sem siðan eru liðin hef- ur enginn lax gengið á svæðið enda botn árinnar og Iónsins að stórum hluta þakinn leir. Ekki bætt tilfinningalegt tjón „Vegagerðin hefur með sem- ingi fallist á ábyrgðarþátt sinn vegna þessa tjóns sem orðið er í ánni og lóninu og hefur greitt fyrir það einhverjar bætur. Hún hefur hins vegar ekki viljað taka neitt tillit til þess mikla tilfinn- ingalega tjóns sem búið er að valda þeim er að uppbyggingu laxaræktarinnar stóðu. „Hér áður fyrr var það á hverju vori stór hópur ættarinnar sem beið þess með óþreyju að komast vestur í laxaræktina. Þá var iðandi mann- líf í gamla bænum í Botni og bros á hverri vör. Nú finnst þessu sama fólki lítið í að sækja hér fyrir vestan og þeir fáu sem enn koma vestur af gömlum vana horfa nú með söknuði yfir leirugar og líf- vana tjarnirnar og ylja sér við minninguna um gljáfagran laxinn stökkvandi í lóninu í kvöldkyrrð- inni. Það er þessara gömlu góðu daga sem við erum að minnast með því að fleyta kransi á Iónið,“ sagði Hlöðver Kjartansson að lok- um. Fjölmenni við útför Ásólfs Pálssonar Eystra-Geldingaholti - Útför Asólfs Pálssonar, bónda á Asólfs- stöðum í Þjórsárdal, var gerð frá Stóra-Núpskirkju laugardaginn 14. september að viðstöddu fjölmenni. Sóknarpresturinn, sr. Axel Árna- son, flutti ritningarorð og jarðsöng. Sr. Sigfinnur Þorleifsson flutti minn- ingarræðu en hann var sóknai-prest- ur hér um áratug. Þá sat Ásólfur reyndar í sóknarnefnd. Söngfélag Stóra-Núpskirkju söng og organisti var Þorbjörg Jóhannsdóttir, en Ásólf- ur söng í kirkjukórnum í áratugi, enda söngmaður góður og hafði yndi af söng. Frændi Ásólfs, Stefán Guð- mundsson frá Ásum, og kona hans, Katrín Sigurðardóttir, sungu ein- söng. Að jarðarför lokinni var erfi- drykkja í félagsheimilinu Árnesi. 011 var athöfnin einkar hátíðleg og hlý- leg og í anda Ásólfs. Það fór ekki framhjá þeim er viðstaddir voru að hér var kvaddur einstakur maður. Ásólfur á Ásólfsstöðum var bjartsýnn hugsjónamaður, afar vinsæll og er sárt saknað af öllum þeim er hann þekktu. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson ANNA Margrét Sigurðardóttir, lyfjafræðingur, ásamt eigin- manni sínum Gunnþóri Ingvasyni. Nýr apótekari tekur við á Seyðisfírði Seyðisfirði - Nýr apótekari hefur nú tekið við rekstri Apóteks Aust- urlands. Nýi apótekarinn heitir Anna Margrét Sigurðardóttir og er lylQa- fræðingur að mennt. Hún útskrif- aðist úr Háskóla íslands árið 1992. Að loknu náminu starfaði hún hjá Háskóla íslands en síðan hjá Omega Farma. Anna er kvænt Gunnþóri Ingva- syni og eiga þau tvö börn. Bæjarbúar buðu nýju íbúana velkomna með miklu blómahafi. Að sögn Önnu er engra sérstakra breytinga að vænta í rekstrinum. Áfram verður leitast við að veita bæjarbúum góða þjónustu eins og fráfarandi apótekari Þorgils Bald- ursson hefur gert fram að þessu. Hundmða þúsunda rúmmetra berghmn Egilsstöðum - Berghrun hefur orðið í svokallaðri Gripdeild rétt fyrir utan Ós í Hjaltastaðaþing- há. Ekki er vitað með vissu hve- nær hrundi en menn urðu þess ekki varir fyrr en nýverið. Talið er að hrunið hafi í kjölfar rign- inga um verslunarmannahelgi en það eru einu stórrigningarnar sem hafa verið á Austurlandi í sumar. Morgunblaðið/Þórhallur Þorsteinsson Kolapo Spennandi markaðstorg allar helgar Q Lcdarflíkar ú 500 kr stk k 1200 leðurflíkur seldar á einstöku verði Ungmennahreyfmg Rauða Krossins býður þessa helgi upp á 1200 notaðar leður- og skinnflíkur á aðeins 500 kr. stk. !!! Jakkar, buxur, vesti, kápur. frakkar, húfur, pils, kjólar o.fl. o.fl. Allt á að seljas Q Fazreyjar-Vestmannaeyjar I ■ Færeysk Knetti og reyktur Vestmanneyjalundi Henry úr Vestmannaeyjum byrjaði síðustu helgi og sló í gegn með frábærum matvælum sem hann vinnur sjálíúr. Þessa helgi býður hann upp á færeysk Rnetti, steiktar fiskibollur, sólþurrkaðan saltfisk, fiskbökur, reyktan Lunda og nýjar Lundabringur. Allt sannkallað sælgæti - og Q Úrval af QÓðu saltkjöti É ■ Hrossasaikjöt, dilkasaltkjöt og folaldasaltkjöt Benni er með hrossasaltkjöt, dilkasaltkjöt og folaldasaltkjöt á úrvalsverði um helgina. Einnig heimsfrægu hangilærin og áleggið góða. Hann er líka með ostafyllta lambaframparta, gómsæta hangibögglana og úrval af annari kjötvöru á sannkölluðu kolaportsverði. Sprengitilbod á ýsuflökam Kaupir eitt kg af ýsuflökumog færð annað ókeypis Um helgina er boðið upp á ýsuflök á algjöru sprengitilboði (þú kaupir eitt kg af ýsuflökum og færð annað ókeypis). Fiskbúðin okkar er líka með kæsta og saltaða skötu, fiskibökur, fiskrétti, fiskborgara, glænýja stórlúðu, nýja Rauðsprettu, glænýjan lax og mikið úrval af öðrum fiski. IFA'PORTSINS Opnar eftir aSra helgi Frábœrt tœkifœrl > til að selja nýja vöru eða losa sig við gamla vörulagerinn! STORKOSTLEG ín.nns'S’cSD RISAE PLUSYNílNG VEROUR OPNUO UM HELGINA _ Athugið að fyrirtœklð Oravíddir er með sérstakan aðgangseyri að sýningu þessari. KOLAPORTIÐ Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.