Morgunblaðið - 21.09.1996, Side 14

Morgunblaðið - 21.09.1996, Side 14
14 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ h VIÐSKIPTI Í Mikill vöxtur í út- flutningi hugbúnaðar Flutt út fyrir tæpan milljarð ÁÆTLAÐ er að útflutningsverð- mæti íslensks hugbúnaðar hafi numið um 800-1.000 milljónum króna á síðasta ári. Þessi útflutn- ingsgrein hefur vaxið hratt á örfá- um árum, en útflutningsverðmæti hugbúnaðar nam einungis um 4 milljónum á árinu 1991. íslensk fyrirtæki hafa haslað sér völl víða um heim og á mismunandi sviðum t.d. með vírusleitarbúnað, bókhald- skerfi og stýrikerfi fyrir sjávarút- veg. Að_ sögn Þórarins _Stefánssonar hjá Útflutningsráði Islands liggja nú fyrir staðfestar upplýsingar um útflutning á hugbúnaði á síðasta ári fyrir um 600 milljónir króna. Hins vegar vantar upplýsingar frá nokkrum aðilum sem vitað er að hafa náð talsverðum árangri á þessu sviði. „Það er óhætt að áætla að útflutningurinn hafi verið á bil- inu 800-1.000 milljónir," sagði Þór- arinn. Sérstök könnun á útflutningi hugbúnaðar var gerð nýlega í tengslum við útgáfu sérstaks upp- lýsingarits um íslensk tölvu- og hugbúnaðarfyrirtæki „Directory for information and communication Technology". Við skráningu í ritið var óskað eftir upplýsingum frá fyrirtækjunum um veltu og útflutn- ing. Að þessari útgáfu standa auk Útflutningsráðs, Aflvaki hf., Rann- sóknarþjónusta Háskólans, Pjár- festingarskrifstofa íslands, Samtök iðnaðarins og Samtök hugbúnaðar- fyrirtækja. Góður vöxtur á þessu ári Varðandi útflutning hugbúnaðar á þessu ári sagði Þórarinn að eng- ar tölur væru fyrirliggjandi ennþá, en vitað væri að vöxturinn hefði verið mjög góður. Búið væri að senda út fyrirspurnir til fyrirtækj- anna og yrði væntanlega greint frá áætluðum útflutningi hugbúnaðar á þessu ári á morgunverðarfundi ráðsins sem haldinn verður á þriðjudag. Á fundinum verður einkum fjall- að um þátttöku í hugbúnaðarsýn- ingunni Cebit í Þýskalandi. Sjö íslensk hugbúnaðarfyrirtæki tóku þátt í Cebit-sýningunni í fyrsta skipti á sl. ári í sérstökum þjóðar- bás sem var skipulagður af Út- flutningsráði. Fyrirtækin nutu jafnframt styrks frá Iðnlánasjóði vegna þátttökunnar. Fundur Út- flutningsráðs verður haldinn á Hótel Sögu þriðjudaginn 24. sept- ember kl. 8. Mikil ávöxtun hjá hluthöfum í Hraðfrystihúsi EskiQarðar hf. Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. Gengi hlutabréfa frá l.sept. 1995 til 19.sept. 1996 1. okt. 1. des. 1995 1. feb. 1. apr. 1. jún. 1. ág. 19. sept. 1996 Bréfin hafa 6,5-faldast í verði á einu ári l HLUTABRÉF í Hraðfrystihúsi Eski- ijarðar hf. hækkuðu um 5% á fimmtudag þegar fyrirtækið birti upplýsingar um afkomu sína fyrstu átta mánuði ársins. Þá kom fram að endanlegur hagnaður fyrirtækis- ins á tímabilinu nam alls um 315 milljónum króna, en hagnaður fyrir skatta nam 395 milljónum. Veltufé frá rekstri nam 422 milljónum. Á sama tímabili í fyrra nam heildar- hagnaðurinn um 205 milljónum. Þessi hagstæða afkoma hefur þrýst mjög upp verði hlutabréfa fyr- irtækisins. Hefur markaðsverð bréf- anna nú 6,5-faldast á einu ári. Gengi þeirra var 2,6 í viðskiptum fyrir réttu ári síðan. í október var ákveðið að tvöfalda hlutafé félagsins með út- gáfu jöfnunarbréfa, en það hafði lít- il áhrif á gengi þeirra. Á virkum hlutabréfamarkaði leiðir slík útgáfa jöfnunarhlutabréfa að öllu jöfnu til lækkunar á gengi þeirra. Var geng- ið 2,39 í lok sl. árs, en hefur hækk- að ört á þessu ári og var 8,40 í við- skiptum á fimmtudag. Sem dæmi um ávinning hluthafa félagsins má nefna að bréf að nafn- virði 1 milljón króna voru að mark- aðsvirði 2,6 milljónir í september á sl. ári. Sami hluthafi var orðinn eig- andi 2 milljóna króna að nafnvirði í október eftir jöfnun sem var að markaðsvirði 4,7 milljónir í janúar. Eftir síðustu viðskipti nemur mark- aðsvirði þessarar hlutabréfaeignar um 16,8 milljónum. Markaðsvirði bréfanna hefur þannig 6,5-faldast á einu ári. \ \ Starfshópur fjármálaráðherra vinnur að nýskipan lífeyrisréttinda ríkisstarfsmanna Stefntað því að frumvarp verði tilbúið í október l í I STARFSHÓPUR á vegum Ijár- málaráðherra, sem í eiga sæti full- trúar ráðuneytisins og samtaka opinberra starfsmanna, stefnir að því að leggja fram tillögur í frum- varpsformi um nýskipan í lífeyris- málum opinberra starfsmanna í næsta mánuði. Jafnframt hefur starfshópurinn sett sér ákveðin meginatriði að vinna út frá i starfi sínu, þar sem meðal annars er geng- ið út frá því að heildarverðmæti réttinda verði sambærilegt í nýju lífeyriskerfi og því kerfi sem nú er við lýði. Samkvæmt þeim grunnatriðum sem unnið er út frá í starfi hópsins er stefnt að því að frá og með næstu áramótum verði núverandi lífeyriskerfi lokað og nýir starfs- menn sem koma til starfa hjá ríkinu fái lífeyrisréttindi samkvæmt nýja kerfinu. Jafnframt verði'núverandi starfsmönnum ríkisins gefinn kost- ur á að færa sig yfir í nýja kerfið telji þeir hag sínum betur borgið með þeim hætti. Gert er ráð fyrir því að í hinu nýja lífeyriskerfi opinberra starfs- manna verði greitt af öllum launum, en ekki dagvinnulaunum eins og nú er hjá opinberum starfsmönnum. Reiknað er með að nýr lífeyrissjóð- ur verði ekki stofnaður í kringum hið nýja kerfi heldur verði um fjár- hagslega sjálfstæða deild að ræða innan Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Aukin ellilífeyrisréttur Þá er gert ráð fyrir að heildar- verðmæti réttinda í nýja kerfinu verði sambærileg við það sem ríkis- starfsmenn hafa áunnið sér sam- kvæmt því kerfi sem gilt hefur. Hins vegar verði innan kerfisins um að ræða tilhliðrun frá maka- og örorkulífeyrisrétti yfir í rétt til elli- lífeyris, þannig að fyrrnefndu rétt- indin minnki en ellilífeyrisréttindi aukist að sama skapi. Eins og kunnugt er ollu tillögur um breytingar á lögum um Lífeyris- sjóð opinberra starfsmanna miklum deilum síðastliðinn vetur og voru teknar til baka í kjölfar eindreginna mótmæla opinberra starfsmanna. Steingrímur Ari Arason, aðstoð- armaður ijármálaráðherra, stýrir starfi hópsins, en auk fulltrúa ríkis- ins á Bandalag starfsmanna ríkis og bæja fulltrúa í hópnum, sem og Bandalag háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Verði ekki samkomulag í starfshópnum er sá möguleiki fyrir hendi að samið verði um þessi mál í næstu kjarasamning- um, þannig að ríkisstarfsmönnum verði heimilt að borga í annan líf- eyrissjóð en Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins. f Vonir bundnar viðnýjan yfirmann Olivetti I í t Opið hús Vesturholt 16 - Hafnarfirði Til sýnis laugardag og sunnudag frá kl. 13-17.Mjög sárstakt og skemmtilegt einbýlishús. Upplýsingar hjá Fjárfestingu fasteignasölu, sími 562 4250 og 565 1148 hjá eiganda. Mílanó. Reuter. SKIPUN nýs yfirmanns Olivettis hefur vakið vonir um endurskipu- lagningu á fyrirtækinu, en sérfræð- ingar benda á að mörgum spurning- um um framtíð þess sé ósvarað. Fyrirtækið hefur orðið fyrir nokkr- um skakkaföllum undanfarinn hálf- an mánuð og nú síðast hefur Franc- esco Caio verið vikið úr stöðu aðal- framkvæmdastjóra og Roberto Col- aninno skipaður eftirmaður hans. „Loksins er stjórnleysistímanum Húsgögn, Ijós og gjafavörur lokið,“ sagði sérfræðingur íMílanó.„Umrót síðustu vikna er að baki. Ég tel ekki að málinu sé hér með lokið, en erfiðasti kaflinn er afstaðinn." „Ef stjórn fyrirtækisins ræðir við fjárfesta, helztu viðskiptavini og samstarfsaðila og leggur fram skýra meginstefnu ætti ekki að koma til frekari vandræða," sagði ítalskur sérfræðingur í London. „En fyrst verður að binda enda á vangaveltur um ijármálin og meginstefnuna," sagði hann. á fyrri árshelmingi 1996, þegar það var rekið með tapi upp á 440.2 millj- arða líra eða 289 milljónir dollara. Eftirlitsstofnun kauphallavið- skipta, Consob, hefur krafizt svara við 16 spurningum um meginstefn- una, fjárhagsstöðuna og verðmæti hlutabréfa. Fyrirtækið hefur forðazt að svara spurningum, sem skipta markaðinn mestu máli, meðal ann- ars um núverandi skuldastöðu. s Rannsókn íIvrea Hlutabréf hækka CN k-t <j fu > >-i '3 Munið brúðargjafalistann. MÖRKINNI 3 Sf MI 588 0640 • FAX 588 0641 Léttis gætti í kauphöllum vegna þess að mestu erfiðleikar Olivettis að undanförnu væru að baki, að minnsta kosti í bili. Hlutabréf í fyr- irtækinu hækkuðu í verði, en skýr- ingin var talin spákaupmennska fremur en tiltrú á Colaninno. Fyrstu viðbrögð við skipun Col- aninnos og afsögn Caios báru vott um gætni. Aðeins hálfur mánuður er síðan Caio sigraði í valdabaráttu í stjóm fyrirtækisins og Carlo De Benedetti stjómarformaður sagði af sér. Olivetti hefur ekki komið slétt út síðan 1990 og hafin er rannsókn tveggja aðila á afkomu fyrirtækisins Auk þess er hafin bráðabirgða- rannsókn rannsóknardómara í Oli- vetti-bænum Ivrea í málum Caio, sem gegndi stöðu sinni í aðeins þijá mánuði, De Benedetti og nýs stjórn- arformanns, Antonio Tesone. Grun- ur leikur á að fyrirtækið hafi gefið út villandi yfirlýsingar um fjárhags- stöðu sína. Bent er á að þessi vandamál hverfi ekki með skipun Colaninno, sem er náinn bandamaður De Benedetti og yfirmaður Sogefi, verksmiðju sem framleiðir hiuti í bifreiðar og er undir stjórn iðnfyrir- tækis De Benedettis, CIR. „Ástand- ið er enn óljóst og nýi maðurinn og De Benedetti eru stofnar af sama meiði,“ sagði verðbréfasali í Mílanó. I l. I I. ! 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.