Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 21

Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 21. 3EPTEMBER 1996 21 Sænsk umræða um viðskipti og siðferði Ofurlaun for- stjóra gagnrýnd Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. LAUN sænskra forstjóra hafa verið mjög til umræðu í Svíþjóð vegna ummæla Maritu Ulvskog mennta- málaráðherra í útvarpsviðtali fyrir skömmu. Þar talaði Ulvskog um græðgi og svínarí, sem gerði vart við sig víða í þjóðfélaginu, því ofur- laun í viðskiptalífinu hefðu slæm áhrif annars staðar í þjóðfélaginu. Sem dæmi tók hún að Hákan Mo- gren, framkvæmdastjóri lyfjafyrir- tækisins Astra, hefði fengið tvær milljónir sænskra króna í bónus, ofan á átta milljón króna árslaun sín, svo árlaun hans voru um 100 milljónir íslenskra króna. Af þessum spannst umræða, sem jafnvel Göran Persson forsætisráðherra hefur komið að. Laun hans eru innan við tíu prósent af kaupi Mogrens. Mogren þótti Ulvskog ganga gegn grundvallarreglum, sem gilda ættu fyrir ábyrga ráðherra, en á móti ásakaði hún hann um að vera með hótanir, um skort á siðferði og sið- ferðisblindu og sagði slæmt siðferði viðskiptalífsins skemma út frá sér. Mogren bendir á að forstjóralaun í sænskum stórfyrirtækjum miðist við alþjóðafyrirtæki. Með lægri launum yrði erfitt að laða að hæfa menn. Þeir sem samsinna Mogren segja laun viðskiptaiífsins haga sér eftir markaðnum. Andmælendur hans segja að ef forstjórarnir eigi að fá há laun til að vera sambærilegir er- lendum forstjórum ættu til dæmis verkamenn Volvo að fá sömu laun og verkamenn General Motors. Launin fari ekki eftir markaðnum heldur eftir hvað einstakir forstjórar geti spennt bogann hátt og nær væri að launa ríflega þá sem stunda rannsóknir í fyrirtækjunum og leggja þar með grunninn að velgengni þeirra. í kjölfar þessara umræðna fór Mogren til Bandaríkjanna til að kynna sænskt atvinnulíf. Þar notaði hann tækifærið og hnýtti í sænsku stjórnina fyrir þekkingarleysi á að- stæðum sænskra stórfyrirtækja eins og Astra, sem starfaði um alian heim en væri metið heima fyrir á þröngum mælikvarða. Þessu reiddist Persson forsætisráðherra, því þeir sem kynntu sænskt atvinnulíf erlendis ættu ekki að vinna gegn því. Þó hann hafi áður haft á orði að brenni- merkja ætti Svía sem töluðu illa um land sitt erlendis, vildi hann ekki brennimerkja Mogren, en lýsti van- þóknun á orðum hans. Um laun Mogrens vildi hann ekki tjá sig, en samsinnti málflutningi Ulvskogs. Undanfama mánuði hefur komið hvert málið á eftir öðru upp í Svíð- þjóð þar sem ýmsir embættismenn og stjórnmálamenn hafa makað krókinn með því að láta ríkið eða bæjarfélög greiða óhóflega risnu eða kostnað. Margir þeirra eru úr röðum flokks forsætisráðherra, Jafnaðar- mannaflokknum. Með ummælum sínum var Ulvskog að skella hluta af skuldinni á viðskiptalífið, því ofur- laun yfírmanna þar og vafasamt sið- ferði hefði smitað út frá sér yfír í aðra geira. Undanfarin misseri hefur Svíum einnig orðið tíðrætt um háar greiðslur forstjóra, sem láta af störf- um, svo áhugi á kaupum og kjörum „toppanna“ er landlægur í Svíþjóð sem stendur. OPERA EFTIR |On ASGEI RSSOn ■ BEST SOTTA ATRIÐIÐ A LISTAHÁtÍÐ „Sýningin á Galdra-Lofti ií íslensku óperunni er fágætur listviöburöur." „Jón Ásgeirsson er heilsteypt tónskáld, sjálfum sér samkvæmur og þorir að semja tónlist sem hljómar vel i eyrum.“ Þ.P., Mbl. „Frammistaða Þorgeirs Andréssonar í hlutverki Lofts telst til tíðinda." F.T.St., DV Niöurstaöa: Sýning sem telst til stórviðburða í íslensku listalífi. Höfundurinn Jón Ásgeirsson hefur unnið þrekvirki og öll vinna aðstandenda er þeim til mikils sóma. A.B., Abl. Laugardaginn 21. sept. kl. 21:00 Laugardaginn 28. sept. kl. 20:00 ♦ m ♦ AÐEinS TVÆ R SYnmcAR mÍÐOSALA OPin DAGL. 15-19 SÍmÍ 551-1475 ÍSLENSKA ÓPERAN -vertu viðbúinm vinninyi Fáðuþérmiða fyrir kl. 20.20 i kvöld FULLKOMIN AFERÐ FARÐANS FRÁ KANEBO VEITIR ÞÉR ^ EINSTAKA VELLÍÐAN. Kaneho Art through Technology Japanskar snyrtivörur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.