Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 24

Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 24
24 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 IflKII MORGUNBLAÐIÐ VII\U M LU 111 LjúðHst stanga- ve/di- mannsins Hvernig læra menn að veiða lax á aðeins fimm mínútum? Mel Krieger er að vísu frábær leiðbeinandi, en líklega var til of mikils mælst að hann kenndi listina á svo skömmum tíma. Sveinn Guðjdnsson lærði þó heilmikið á þeim stutta tíma sem þeir voru saman, ásamt Pálma Gunnarssyni, í Laxá í Kjós. Mel Krieger er líka ástríðufullur veiðimaður, en kannski _með dálítið öðrum hætti en Pálmi. „Eg hef verið veiðimaður síðan ég man eftir mér, en þó fínnst mér að líf mitt sem veiðimaður hafí ekki byi'jað fyrr en ég var 35 ára, fyrir 32 árum, þegar ég byrjaði í fluguveiðinni. Flugu- veiðin er hin æðsta list veiðimennsk- unnar, ljóðlist stangaveiðimanns- ins,“ segir Rrieger og er farinn að nálgast félaga sinn í hástemmdum yfírlýsingum. Hann kinkar kolli í áttina til Pálma, sem er þegar kom- inn út í á, og segir með sannfæring- arkrafti í röddinni: „Pálmi er fanta- góður veiðimaður." Mel Rrieger dregur heimatilbúna steinslöngu upp úr pússi sínu. „Peg- ar maður verður þreyttur á veiðun- um er ágæt tilbreyting að slöngva steinum." Hann kastar í áttina að Pálma og steinninn lendir með skvampi í ánni rétt hjá. Veiðimaður- inn kippist við og skimar í kringum sig með ósvikinn veiðiglampa i aug- um. ,,Pálmi er alvarlegur veiðimað- ur. Eg er að reyna að kenna honum að taka veiðarnar ekki alveg svona alvarlega," segii' Rrieger hlæjandi. VEIÐIMENNSRAN liggur í frumeðli mannsins. Pálmi Gunnarsson gengur reyndar svo langt að fullyrða að hún sé ein af sterkustu hvötum mannsins. „Eg gleymi því ekki þegar ég kom með fyrstu silungana heim í eldhús til mömmu austur á Vopnafirði," segir hann. „Stoltinu yfír því að hafa dregið björg í bú og ánægjunni af því að borða eitthvað sem ég hafði veitt sjálfur. Það var þetta sem vakti upp veiðidelluna í mér,“ segir Pálmi, sem hefur stundað veiðar allar göt- ur síðan. Það eru þó ekki nema sex ár síðan hann kveðst hafa lært að kasta rétt. Það var þegar hann sá myndband með kasttækni Mels Kriegers. Þessi geðþekki Kaliforníubúi varð því á vissan hátt örlagavaldur í lífí Pálma Gunnarssonar. „Hann leggur áherslu á átakslausa kasttækni og eftir að hafa tileinkað sér hana hættir þetta að vera puð. Állt verður svo miklu auðveldara og það liggur við að lífið og tilveran fái annan svip,“ segir Pálmi og brosir við til- hugsunina, enda þekktur fyrir að taka veiðimennskuna af ástríðu. ✓ I F LUGUV EIÐI MEÐ MEL KRIEGER • PÁLMI þreytir sjóbirtinginn og Mel Krieger fylgist með. Eitt að ve/da, annaé) að drepa Mel Krieger rekur stofnun í heimalandi sínu þar sem kennd eru undirstöðuatriði fluguveiðinnar. Sem slíkur er hann þekktur maðui' og eftir hann liggja bækur og mynd- bönd á þessu sviði. „Við leggjum áherslu á kasttæknina, því hún er undirstaðan. Við kennum meðal ann- ars leiðsögumönnum að kenna fólki að kasta. Það eru sorglega mörg dæmi um að fólk sé að eyða tíma og fjármunum í laxveiðiám, en hefur ekki vald á kasttækninni. Úr þessu viljum við bæta.“ Og það eru fleiri úrbætur í veiði- mennskunni sem Krieger hefur brennandi áhuga á. Það er til dæmis varðandi hugarfar og viðhorf manna til veiðinnar. „Það er eitt að veiða físk og annað að drepa hann. Sumir veiðimenn eru eins og minkurinn, sem drepur allan þann físk sem hann kemst í, en étur svo ekki nema einn. Þetta er rangt. Töfrar veiðimennsk- unnar felast ekki í því að landa sem flestum fiskum og drepa þá. Töfr- arnir felast í því að vera með línuna í hendinni og ekkert nema lauflétta fluguna á hinum endanum og svo glímunni við að fá fiskinn til að táka.“ Pálmi tekur undir þetta sjónar- mið: „Það er stórkostleg tilfinning að leggja pínulitla þurrflugu út í vatnið, meðal þúsunda lifandi, og fá fískinn til að taka þína flugu, en ekki hinar.“ Ki'ieger kveðst yfírleitt sleppa Er barnið á mótþróaskeiðinu? GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR FJALLAR UM FURÐUR SÁLARLÍFSINS Spurning: Dóttir mín, sem er eins og hálfs árs, er farin að naga á sér neglurnar. Er eitthvað sem ég get gert til að fá hana til að hætta þessu? Annað sem mig langar til að fá svar við: Hún virð- ist stundum gera í því, eins og til að kanna mín viðbrögð, að kasta ýmsum hlutum, svo sem bókum, í gólfið. Hvemig á ég að bregðast við þessu? Þá finnst mér eins og hana skorti einbeitingu. Hún veð- ur úr einu í annað. Er það kannski einkennandi fyrir börn á þessum aldri? Svar: Þegar spurt er um hegðun- areinkenni hjá barni og viðbrögð við þeim, eins og hér er gert, er oftast nauðsynlegt fyrir sálfræð- inginn að spyrja til baka til þess að fá gleggri mynd og helst að sjá bamið. Þegar þess er ekki kostur hljóta svör við spumingunum að verða mjög almenns eðlis og koma að takmörkuðu gagni fyrir foreldrana. í fyrsta lagi hefur spyrjandi áhyggjur af því að dóttirin sé far- in að naga neglur. Naglanag er mjög algengt hjá börnum og ung- lingum, en þó ekki íyrr en eftir fjögurra ára aldur. Það þykir bera vott um spennu og kvíða, en á seinni áram hafa læknar og sál- fræðingar gert minna úr þessu einkenni en áður og látið það af- skiptalaust, nema að ummjög slæm dæmi sé að ræða. I banda- rískri rannsókn á bömum og ung- lingum 5-18 ára gömlum reyndust um 40% naga neglur. I íslenskri rannsókn, sem gerð var á geð- heilsu bama 5-15 ára, sem gerð var á 7. áratugnum, var naglanag á meðal algengustu einkenna. Það er því allt að því normal að naga neglur á vissum aldri og oft- ast hættir naglanagið án þess að nokkuð sé gert. Það er hins vegar mjög sjald- gæft að kvartað sé yfír því að mjög ung börn, eins og í þessu tilviki, nagi neglur. Fremur að þau sjúgi fingur. Spyrjandi lýsir því að bamið skorti einbeitingu og vaði úr einu í annað. Virðist sem barnið muni vera nokkuð órólegt, með örar hreyfingar og mikið á ferðinni, hugsanlega með það sem stundum er kallað handæði. Gæti verið að „naglanagið" sé hluti af þessum hreyfióróa barnsins? Vissulega era mörg börn á þessum aldri mikil fyrir sér og þurfa jafnvel sérstaka pössun svo að þau fari sér ekki að voða. Þetta batnar venjulega með aldrinum, en ef það gerist ekki gæti barnið verið haldið ofvirkni og sjálfsagt að leita sérfræðiálits. Einnig lýsir spyrjandi því hvernig barnið reynir að ögra honum, grýta hlutum, og virðist kanna viðbrögð. Aldurinn frá 1- 3ja ára hefur verið nefndur mót- þróaskeið. Þá er barnið að vakna til vitundar um sjálft sig og fer að prófa sig gagnvart öðmm. Það hefur lært að segja nei og það uppgötvar fljótt hvemig það get- ur stjómað fólkinu í kringum sig, sérstaklega mömmu, með hegðun sinni. Þetta er eðlilegt þroska- ferli. Stór þáttur í þessu er at- hyglisþörfin og það er greinilegt að telpan í þessu dæmi er að kalla á athygli. Óll böm þarfnast at- hygli, sum meiri athygli en önnur. Ef þeim tekst ekki að leiða að sér athygli með því að vera þæg og góð, þá reyna þau neikvæðu leið- ina, að gera eitthvað af sér. Og venjulega er hún óbrigðul. Ef telpan væri nýbúin að eignast systkini leggðist afbýðisemin ofan á og magnaði athyglisþörfina. Þá þyrfti hún að deila athyglinni með öðrum og yrði að beita enn áhrifaríkari aðferðum til þess að fá sinn skerf. Neikvæð athygli, sem kemur fram í skömmum og refsingum, er betri en engin athygli. Mikil- vægt er að foreldri skilji hvað býr á bak við þessa hegðun. Ef barnið finnur að foreldrarnir skilja hvað það er að segja þeim með háttalagi sínu er mikið unnið og barnið hefur reyndar með því einu fengið þörf sinni að miklu leyti fullnægt. Foreldrar sem skilja orsakirnar fyrir hegðun barnsins hjálpa því líka oftast, beint eða óbeint, venjulega með því að beina athyglisviðleitni þess inn á heppilegri brautir. Vara- samt er að barninu takist sífellt að ná athygli á neikvæðan eða óheppilegan hátt og þótt barnið setji fram kröfur sínar á þann hátt er mikilvægt að foreldrarnir uppfylli þessa þörf á jákvæðan hátt, með því að veita umbun, verðlauna eða hrósa fyrir hið já- kvæða í fari barnsins án þess þó að refsa fyrir hið neikvæða. Um- önnun foreldranna, tilfinninga- legt atlæti og sem mestar sam- vistir við barnið skapar því nauð- synlega öryggiskennd og er hornsteinn að þroska barns og heilsu, jafn mikilvægt og matur og drykkur. •Lesendur Morgunblaðsins geta spurt sálfræðinginn um það sem þeim liggur á hjnrtn. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 569 1100 og bréfum eða símbréf- um merkt: Vikulok, Fax 5691222.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.