Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 31

Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 31 AÐSEIVIDAR GREIIMAR Þankabrot um verð- launaljóð o g prósa A LISTAHATIÐ ’96 var meðal annars efnt til ljóðasam- keppni og bárust 525 ljóð frá um 200 ljóð- skáldum. Meira barst af hefðbundnum ljóðum en dómnefnd- in átti von á en meiri- hlutinn var þó undir svokölluðum „fijáls- um háttum“. Síðan var gefin út ljóða- bókin „Blánótt" með ca. 10% af afrakstr- inum. Vissulega ánægjulegt, ef ljóð- skáldin eru í vaxandi mæli farin að hagnýta sér ljóð- stafi og rím! Menningararfleifð okkar í ljóða- gerð hefir allt frá lýðveldisstofnun oftar en ekki verið eitthvað, sem helst þurfti að misþyrma rækilega til að vera nútímalegur og vekja athygli. A hátíðastundum er engu að síður ávallt í ræðu og riti rætt um varðveislu þjóðlegrar menningar, ræktun bókmenntaarfsins o.s.frv. í tilefni alþingishátíðar 1930 var efnt til ljóðasamkeppni sem bar ríkulegan ávöxt í glæsilegum Guðmundur Guðmundarson ljóðum. Tónskáldin heilluðust og sömdu fögur lög. Uppskeran var og verður ávallt meðal dýrgripa þjóðar- innar. Og sagan end- urtók sig við lýðveldis- stofnun 1944. Síðan hefir verið býsna hljótt um hátíðaljóðasam- keppni þar til nú. Þegar framan- greindar sigurgöngur í Ijóðum og tónum eru hafðar í huga ásamt tækifærisljóðum af ýmsu tilefni, þá kemur 1. verðlauna-ljóðið „Blánótt“ nokkuð á óvart. Þetta er bálkur „myndríkur og marg- ræður“ eftir heimspekinginn og ljóðskáldið Gunnar Harðarson. Blánótt. Hugleiðing „Út í fínmalað kaffið/bættirðu kardimommum/og settir í eirlitaða ketilinn/hinkraðir þangað til vatn- ið fór aftur að sjóða/helltir í smá- bollana freyðandi vökvanum. /Og í dauflýstri stofunni/sveif kliður- inn líkt og reykur,/ leið út um opinn gluggann, út á götu/þar sem léttklæddir skuggar flöktu á mild- Helgi Hálfdanarson Lágt sýrustig NÝLEGA birtist í einu Reykjavík- urblaðanna grein, sem bar fyrir- sögnina „Auknar gáfur tengdar við lágt sýrustig í heilanum". Þetta var ágæt grein, fróðleg og vel skrifuð. Að þvi einu varð fund- ið, að i þessari fyrirsögn hefði ekki átt að standa „lágt sýrustig" heldur „hátt sýrustig", enda kem- ur það fram í greininni, að með orðinu „sýrustig“ er átt við pH- stigann, svo sem er föst málvenja í fræðunum þeim arna. í greininni segir: „Lífeðlisfræðingurinn ... komst að því að þvi basískari sem efnasamböndin í heilaberkinum reyndust, þeim mun greindari var viðkomandi einstaklingur, ..og vísar það til hækkandi sýrustigs. Sama dag birtist í sama blaði önnur grein, sem bar yfir þvera síðu fyrirsögnina „Magasýrustigið hærra í Bandaríkjunum". En af greininni var ljóst, að þar hefði átt að standa „lægra“ í stað „hærra". Nú er það svo, að ekkert er eðlilegra en að þarna verði rugl- ingur á, enda hafa þess orðið dæmi hvað eftir annað í blaða- skrifum. Blessaður pH-stiginn er sem sé þannig hugsaður, að á honum mælist „sýrustigið“ þeim mun lægra sem hið mælda efni er súrara. Það liggur í augum uppi, hvað þessi málnotkun er andkannaleg, því svo er að sjá sem mæling sýni þeim mun fleiri mælieiningar sem minna er af því sem mælt er. Fyrir nokkrum árum benti und- irritaður á það í greinarkorni í Morgunblaðinu, að mjög væri ruglazt á þessu, sem vonlegt væri, og eðlilegt að orðanotkun af þessu tagi hneykslaði málkennd manna. Það skiptir máli, að hægt sé um að ræða á þann hátt sem almenn- ingi getur þótt eðlilegur, en að sjálfsögðu án þess brotið sé gegn því sem tíðkast í fræðunum. Þess gerist æ brýnni þörf í þjóðfélagi sívaxandi iðnvæðingar, enda þótt fræðimenn geti sem bezt komizt af með það sem venjan hefur helg- að. Svo kynni að virðast sem ekki þyrfti annað en að hafa hér á hausavíxl, kalla sýrustigið basa- stig, og væri þá öllu réttlæti full- nægt. Svo einfalt er málið ekki. Orðið „sýrustig" á sér erlenda samsvörun og staða þess er sterk- ari en svo, að við því verði hrófl- að. En í Morgunblaðsgrein þeirri, sem hér var getið, segir svo: „Hins vegar mætti einnig hafa hér annan hátt á, þegar svo ber undir, svo að einhverju öðru orði yrði við komið, og þá notuð mæli- tala, sem fengist af réttu hlutfalli mælieininga og magns. Auðvitað yrði sú mælitala að vera í sam- ræmi við pH-stigann og fást hveiju sinni án reiknings að heitið gæti. Lægi þá beint við að leggja neikvæða logrann af mólstyrk hítroxíl-jóna til grundvallar. Ekki mætti það þó vera nema óbeinlín- is, og nota þyrfti aðra stærðar- gráðu en tölur pH-stigans, til þess að ekki yrði þar ruglingur á. (Næsta stærðargráða fyrir ofan yrði hæfíleg.) Einföld og þægilega glögg lausn væri, að mælitalan fylgdi pH-stiganum öfugum á þann hátt, að pH=7 samsvaraði tölunni 100. Sé pH-gildi lægra en 7 (í súrum vökva), samsvaraði það hærri tölu en 100; en pH-gildi hærra en 7 (í bösuðum vökva) samsvaraði lægri tölu en 100. Sé tala þessi kölluð t.d. „súrtala" (St), yrði hún hveiju sinni: St = (-log [OH']+3)xlO en það jafngildir: St = (17-pH)xlO Með þeim hætti fengi hlutlaus vökvi St=100; vökvi með pH=5 fengi St =(17-5)xl0 = 120; og vökvi með pH=9,3 fengi á sama hátt St = 77. Eða, svo dæmi séu tekin: hreint vatn hefði St = 100; en 0,1 M saltsýra hefði St = 160. Þannig yrði súrinn í hvaða vökva sem væri, tilgreindur svo sem venja er til um mælingar, að mælitalan verður þeim mun hærri sem meira er af því sem mælt er, en ekki öfugt. Tillaga þessi er hér með ítrekuð til athugunar, ef ekki til gamans, þá í alvöru. Kynslóðabilið og ruglingurinn, segir Guðmundur Guð- mundarson, er orð- inn hrikalegur í svo- kallaðri ljóðagerð. um veggjum/og hlátrar og vélhjól brutu upp samhljóma torgsins. /Með sykurhúðuðum kökum/sýnd- irðu okkur landsvæði andstæðra fylkinga/útskýrðir staðhætti og aðstæður/ hvernig þorpin breytt- ust í Iínur/ Talaðir við okkur um kvöldið allt með leiftur í aug- um/við gný af fjarlægum þrum- um/...“ Þetta er aðeins upphaf bálksins, 16 fyrstu af 131 ljóðlínu. Greina- stærð Morgunblaðsins leyfír ekki lengri tilvitnun. Þeir ritdómar, sem ég hef séð ásamt ummælum dómnefndar eru hástemmt lof. Skyldu tónskáldin vera andvaka af innblæstri og löngun til að túlka textann í tón- um? Hér á í hlut hámenntaður og óumdeildur gáfumaður. Því miður verð ég að viðurkenna að mér finnst „Blánótt. Hugleiðing“ ekki vera ljóð heldur laust mál, prósi í mislöngum línum. Það er löngu tímabært að fram fari aðgreining á ljóðum, bundnu máli og prósan- um, sem er óbundið mál, skáld- sagnamál, andstætt ljóðmáli. Þessu ættu dómnefndir vissulega að gera sér grein fyrir, þegar ljóða- samkeppni er háð. Satt að segja grunar mig að andleg meltingarfæri margra ljóð- elskra íslendinga eigi erfítt með að kyngja, hvað þá melta þessar hugleiðingar sem ljóð. Þótt snjallar hugdettur séu á víð og dreif í þess- um mikla bálki, þá er augljóst að kynslóðabilið og ruglingurinn er orðinn hrikalegur í svokallaðri ljóðagerð. Prósi Prósinn er orðinn staðreynd, sem á fullan rétt á sér sem prósi. Prósaljóð er hinsvegar öfugmæli nei, já eða óljóð. Með orðinu prósa- ljóð er verið að reyna að keyra um gamalgrónar lendur Ijóðagerð- arinnar í einskonar afturábak gír. Nudda sér utan í ljóðlistina. Orðið prósi segir allt sem segja þarf. Háskólinn hikar ekki við að lof- syngja allskonar prósahugdettur og vangaveltur sem ljóð. Hann ætti vissulega að vera í forystu- hlútverki og greina þarna á milli. Lofa ljóðhefðinni og prósanum að þróast, án þess að stofna til hjóna- bands á fölskum forsendum. „Ungu skáldin hafa það mikil- væga hlutverk, að flytja arfínn milli kynslóða.“ Þetta er orðrétt eftir þeim mæta manni Þórði Helgasyni, lektor, sem átti verð- launaljóð nr. 2, sem er snjöll son- netta. Hann hefur líka gaman af „afturábak gírnum“ og eru því einnig 2 prósar eftir hann í Blánótt. Fífldirfska Það nálgast að sjálfsögðu fífl- dirfsku hjá leikmanni að efast um að arfinum sé til skila haldið í 1. verðlaunaljóðinu. Þar er við dóm- nefndina að sakast, ekki skáldið. Við vitum flest að til þess að yrkja ljóð, sem standa undir nafni þurfa menn að vera gæddir skáld- gáfu, aga og yfirvegun. Ég hef áður vakið á því athygli að ýmsir styrkþegar meðal ljóðskálda eru taldir „sjení“, þótt afurðirnar séu aðallega prósi sem sárafáir nenna að lesa. Jafnframt telja þeir sig hina einu sönnu bjargvætti ís- lenskrar ljóðmenningar. Þjóðin hefir mikið dálæti á ljóð- um og einnig lausavísum. Hagyrð- ingar eru í hávegum hafðir um land allt og þegar þeir leiða saman hesta sína er jafnan húsfyllir og mikil hrifning. Skólar Barna- og unglingaskólarnir hafa miklu hlutverki að gegna gagnvart ljóðlistinni. Um þessar mundir er að hefjast nýtt skólaár. Það er vægast sagt furðulegt að enn skuli vera notast við falsaðar kennslubækur og rit um bók- menntir og mannkynssögu. Það er einnig afleitt að fræðsla um ljóðagerð skuli vera flókin og leiðinleg í stað þess að kennarinn leiði bömin við hönd sér, lesi með þeim ljóð þjóðskáldanna og skemmtilegar vísur og útskýri um leið mikilvægi ljóðstafa og ríms. Því miður eru dæmi þess að kennarar skapi sér vinsældir hjj börnunum með því að láta þau sleppa við að læra utan að ljóð. Mikilvægt er að hagnýta kennslu til að vekja áhuga og að- dáun barna og unglinga á ljóða- gerð í stað þess að láta þau halda að hér sé um einhverja galdra- formúlu að ræða. Með von um að íslensk ljóð- menning blómstri um ókomin ár! Höfundur er framkvæmdasijóri. Tabita tilbúnar gardínulengjur 145x225 cm / 2 í pk. f 1.975,j Sefyr 25 lampi og Zirkon 37 skermur 2.645,- Backdun dúnsængl og koddi 5.450: Ginia felligardína 80x160 cm 2.970,- Gunita tilbúnar gardínulengjur 145x225 cm / 2 í pk. 7.375,- Tabita sængurverasett 100% bómull 1.975.- #1/.- mmm Rajgrás rúmteppi 180x280 cm Vefnaöarvörudagsr í IKEA Urval efna hefur oft verið gott en aldrei sem nú. Ásdís Jóelsdóttir textilhönnuður veröur til ráðgjafar um efnis- kaup, hugmyndir og saumaskap á gardínum, himnasængum, dúkum, púðum o.fl. í dag, laugardag milli 13 og 17. 1 fyrir allti snjalla Holtagöróum viö Holtaveg / Póstkröfusími 800 6850

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.