Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 32

Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ HA UKUR GUÐJÓNSSON + Haukur Guð- jónsson fæddist í Þórkötlustaða- hverfi í Grindavík hinn 29. október 1927. Hann lést hinn 12. september siðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Guðjón Jóns- son og Guðbjörg Pétursdóttir frá Höfn í Grindavík. s- ,Haukur var elstur '"'s fimm barna þeirra. Hin eru: Guðmund- ur, Pétur, Jón Elli og Guðbjörg. Haukur gekk að eiga Agnesi Árnadóttur hinn 27.10. 1956. Eignuðust þau fjögur börn sam- an. Þau eru: 1) Árni B., f. 27.6. 1956, í sambúð með Hólmfríði Georgsdóttur og á hún fjögur börn. 2) Guðjón, f. 30.1. 1958, kvæntur Þórnýju Harðar- dóttur og eiga þau tvö börn. 3) Pétur R., f. 18.9. 1959, kvæntur Dórótheu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn. 4) Bryndís, f. 31.1. 1961, gift Skúla E. Harðarsyni og eiga þau tvær dætur. Fyrir átti Agnes dótturina Guðrúnu Helgu Pálsdóttur, f. 14.1. 1953, og á hún einn son. Utför Hauks Guðjónssonar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Okkur langar að minnast Hauks Guðjónssonar tengdaföður okkar í örfáum orðum og þakka honum fyrir þau ár sem við fengum að eiga með honum. Haukur Guðjóns- son var fæddur í Þórkötlustaða- hverfi í Grindavík. Hann bjó í einu af þremur hiísum sem stóðu í Nes- inu og var kallað Höfn. Þegar Haukur var um 16 ára fluttist fjöl- skyldan í Járngerðisstaðahverfið og var húsið flutt úr Nesinu og stendur það við Túngötu 7 í Grinda- vík. Haukur fór ungur til sjós og var skipstjóri á nokkrum skipum en lengst var hann á Má GK-55 sem hann stjórnaði í 24 ár, og reyndist hann farsæll skipstjóri. Varð hann svo að láta af sjómennskunni vegna Veikinda. Eftir það fór hann að vinna í landi. Tók hann að sér vél- stjórn í Hraðfrystihúsi Grindavíkur hf. og vann þar þangað til það hætti rekstri. Að þeim tíma loknum vann hann í nokkurn tíma hjá Neta- gerðinni Möskva í Grindavík. Hinn 18. mars 1992 missir Haukur eiginkonu sína Agnesi Árnadóttur, aðeins 64 ára að aldri. Var það honum og allri fjölskyld- unni mikill missir. Haukur og Ag- nes keyptu lítinn sumarbústað við Þingvallavatn sumarið 1991 ásamt dóttur sinni Bryndísi og Skúla tengdasyni sínum. Bryndís, Skúli og dætur voru búin að útbúa Iitla paradís á Þingvöllum ásamt Hauki. Nú þegar hans nýtur ekki lengur við mun þessi paradís standa sem minning um Hauk og verk hans þar. Áhugi Hauks á sumarbústaðn- um, endurbætum og gróðursetn- ingu var mjög mikill og hjálpaði það honum mikið eftir missi eigin- konu sinnar. Haukur og Skúli tengdasonur hans áttu þar margar góðar stund- ir og voru með ýmis framtíðar- áform um gróðurinn og uppbygg- ingu á bústaðnum og svæðinu í kring. Margar voru ferðirnar þar sem þeir fóru uppí bústað jafnt á sumri sem vetri þó ekki væri til annars en líta eftir að allt væri í lagi, því eldmóður Hauks var eink- t AUÐUR SNORRADÓTTIR, Langholtsvegi 178, lést á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn fimmtudaginn 19. september. Útför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Tómas H. Ragnarsson, Brynjar Tómasson, Berglind Ósk Tómasdóttir, Birgir Örn Tómasson. t Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, BRYNJÓLFUR GUÐJÓN ÁRSÆLSSON, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést 19. september. Útförin auglýst síöar. Brynjólfur Þór Brynjólfsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Guðrún Brynjólfsdóttir, Jón Ágúst Brynjólfsson, Brynjólfur Guðjón Brynjólfsson, Ragnar Þór Magnússon. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, ARNDÍS M. ÞÓRÐARDÓTTIR, Granaskjóli 34, sem andaðist 12. september, verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 24. september kl. 13.30. Baldur Sveinsson, Þórunn B. Baldursdóttir, Magnús Óskarsson, Ólafía Ingibjörg Sverrisdóttir, Baldur Örn Magnússon. MINNIIMGAR ar mikill og gaf hann ekkert eftir sér yngri mönnum. Sér Skúli hér á eftir tengdaföður sínum og ekki hvað síst mjög góðum vini. Pétur sonur Hauks og Dóra tengdadóttir hans eiga sumarbústað á sama svæði aðeins spölkorn frá og var mikið ráðgert um uppbyggingu ttjáræktar, því Haukur átti mikinn og fallegan garð heima hjá sér í Grindavík þannig að hann gat miðl- að upplýsingum til okkar sem höfð- um ekki þessa þekkingu og reynslu á garðrækt. Haukur var líka órag- ur að nota ýmsar aðferðir við gróð- ursetningu á trjám. Hann var mik- ið fyrir að keyra um og alltaf var hann boðinn og búinn að keyra okkur ef við þurftum á að halda. Haukur fór mikið út í Nes þar sem hann var alinn upp. Tók hann þá oft hressilega göngu enda er þama gott útsýni yfir sjóinn og hafði Haukur gott auga fyrir því sem í fjörunni leyndist. Einnig var gott útsýni úr Nesinu yfir sjóinn þar sem hann fylgdist oft með son- unum Árna og Guðjóni þegar þeir voru úti á trillunni sinni. Haukur var alltaf boðinn og búinn til að aðstoða þá og grípa inn í ef á þyrfti að halda í sambandi við útgerðina enda var þeirra samstarf mjög gott og oft leitað til hans með ráðlegg- ingar. Árni sonur Hauks býr á efri hæð hússins á Staðarhrauni 2 í Grindavík ásamt fjölskyldu sinni. Mikið öryggi var fyrir Hauk að vita af þeim uppi eftir missi eigin- konu sinnar, enda var vel litið til með honum af þeim og samgangur mikill milli hæða. Því verður erfitt á næstunni á Staðarhrauninu því tómarúmið er mikið. Haukur var kistulagður hinn 18. september 1996 á 37. afmælisdegi sonar síns Péturs og 17 ára afmæl- isdegi Agnesar dóttur Péturs. Bíl- prófíð þreytt sama dag hjá þeirri ungu stúlku, mjög tilfinningaríkur dagur. Haukur var mjög góður afí barn- anna. Oft var leitað til hans á leið til og frá skóla og þá voru hjólin oft geymd á stéttinni meðan á skólatíma stóð, og ekki má gleyma að alltaf átti afi eitthvað til að stinga að þeim þegar þau komu við á Staðarhrauninu. Afabörnin munu sárt sakna hans því nú er enginn afi þar lengur. Við tengdabörn Hauks Guðjóns- sonar kveðjum hann nú með sökn- uði og þökkum honum fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur og umhyggj- una sem hann bar fyrir okkur. Biðj- um við Guð að styrkja þig á nýju tilverustigi. Blessuð sé minning þín. Við kveðjum Hauk með þessum sálmi. Þessi dagur nú úti er, en náttar tíð að höndum fer. Guð minn góður, ég gef mig þér, gættu nú enn í nótt að mér. Veittu mér, Drottinn, værð og ró, vek mig á réttum tíma þó. Líkaminn sofi sætt sem ber, sálin og andinn vaki í þér. (S. Jónsson frá Presthólum.) Skúli, Dóra, Þórný og Fríða. Það var erfitt að trúa því þegar okkur barst sú fregn að pabbi hefði orðið bráðkvaddur á sínum venju- lega morgunrúnti úti í Nesi, því sem hann dáði svo mjög, enda uppalinn þar. Það voru ófáar ferðirnar sem hann fór þangað, bæði til að ganga um sér til heilsubótar, horfa á sjó- inn og fýlgjast með okkur bræðrum, þegar við vorum að draga grá- sleppunetin. Hann fylgdist grannt með okkur, hringdi oft í okkur til að spyrja um fiskiríið, og alltaf var hann mættur á bryggjuna þegar við komum í land, og hjálpaði til við löndun, enda áhuginn mikill. Hans verður sárt saknað þar. Hann var alltaf tilbúinn að aðstoða okkur við allt sem viðkom trillunni. Pabbi var hörkuduglegur til vinnu, við allt sem hann tók sér fyrir hendur, og hlífði sér í engu, þó heilsan væri ekki alltaf upp á það besta hin síðari ár. Hann festi kaup á sumarbústað fyrir nokkrum árum við Þingvallavatn ásamt Bryndísi dóttur sinni og manni hennar Skúla. Hann hafði mikið dálæti á þeim stað og naut sín vel þar við uppbyggingu og gróðursetn- ingu. Höfðu þau nýverið fest kaup á landi við hliðina á bústaðnum, þar sem hann hugðist rækta upp, enda var hann alltaf mikill garðyrkju- maður. Skúli tengdasonur hans var honum eins og sonur, og mikill kærleikur var með þeim. Það verður erfitt að hugsa sér veru þar án hans, en eflaust svífur andi hans þar yfir vötnum. Að lokum vil ég þakka honum fyrir þann hlýhug og móttökur sem hann sýndi minni sambýliskonu og hennar fjölskyldu, þegar þau fluttu að Staðarhrauni 2 á haustmánuðum 1992. Hann var alltaf tilbúinn að aðstoða við allt sem hann var beð- inn um. Ég vil þakka pabba fyrir öll árin sem við áttum samleið, nú þegar hann hverfur á annað tilveru- stig, þar sem mamma og aðrir ætt- menn munu taka vel á móti honum. Hinsta kveðja. Hans sonur Árni B. Hauksson. Við viljum minnast þín, elsku afi, með fáeinum orðum. Það er mjög erfitt að sætta sig við það og trúa því að þú sért farinn frá okk- ur. Þetta gerðist mjög skyndilega. Við áttum alls ekki von á að þú færir svona fljótt. Við munum ávallt geyma allar þær góðu stundir sem við áttum saman. En við eigum eftir að sakna þess að geta ekki komið til þín og heimsótt þig. Því þú gast alltaf glatt okkur og gefið okkur eitthvert góðgæti. Það var alltaf gaman að koma og hjálpa þér í garðinum því amma bakaði alltaf pönnukökur handa okkur. Þú varst alltaf til í að koma með okkur og sýna okkur Nesið þar sem þú bjóst þegar þú varst lítill, og rúnta með okkur hingað og þangað. Það var gaman að fá að koma með þér, afi, upp í sumarbústað því þú hafð- ir svo gaman af að sýna okkur hvað þú varst að gera. Það verður mjög erfitt að eiga enga ömmu og afa til að heim- sækja á Staðarhraunið. Þú munt lifa í minningu okkar alla tíð. En nú ertu kominn til ömmu og við vitum að þér líður vel hjá henni. Við munum aldrei gleyma hvað þú varst góður og frábær afi. Blessuð sé minning þín. Þín barnabörn. HREIÐAR JÓNSSON + Hreiðar Jóns- son fæddist í Bollakoti í Fljóts- hlíð 19. janúar 1918. Hann lést á Selfossi 14. september síð- astliðinn. Foreldar Hreiðars voru hjón- in Jón Björnsson, bóndi í Bollakoti, og kona hans, Arndís Hreiðarsdóttir. Systkini hans voru sjö: Halla, látin, var verkakona í Reykja- vík; Júlíus, látinn, var trésmiður í Reykjavík, var kvæntur Rannveigu Guðjóns- dóttur; Helgi var bóndi í Bolla- koti en dvelst nú á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli; Ragnar var bóndi í Bollakoti, dvelst einnig á Kirkjuhvoli, var kvæntur Þor- björgu Björnsdóttur, látin; Þor- björn, var bóndi á Grjótá í Fljótshlíð, kvæntur Helgu Sveinsdóttur, látin, hann dvelst nú einnig á Kirkjuhvoli; Sigur- laug, húsmóðir í Reykjavík, gift Hannesi Ágústssyni; Þórunn húsmóðir í Hafnarfirði, gift Sigurgeiri Guð- mundssyni vélsljóra. Árið 1979 kvæntist Hreiðar Guðrúnu Ernu Sæmundsdótt- ur. Foreldrar henn- ar voru Sæmundur Bjarnason, látinn, og kona hans, Kristín Grímsdóttir. Guðrún var áður gift Lúðvík Friðrik Jónssyni, d. 1976, og átti með honum átta börn. Þau eru: Lo- vísa Kristín, Erna, Guðmundur Rúnar, Ægir, Jón, Grímur, Sæ- unn og Sólveig Friðrikka. Útför Hreiðars fer fram frá Hlíðarendakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 16. Einn þér sóma og æru gaf sá alla hluti styður, þínum Ijómar aupm af yndi.blíða og friður. (Guðm. Torfason.) Hreiðar var í foreldrahúsum til fimmtán ára aldurs þegar hann fór sem vinnumaður í Árkvörn til Páls Sigurðssonar bónda og konu hans, Höllu Jónsdóttir. Hreiðar fór á nokkrar vertíðir til Vestmannaeyja. Þegar Páll hætti búskap árið 1963 tók Hreiðar við búinu. Gekk Hreiðar yngstu systur minni, Sólveigu, strax í föður stað, enda barngóður með eindæmum og tók maður eftir því hvað börn hændust að honum. Árið 1989 hættu þau búskap og fluttu að Smáratúni 8 á Selfossi. Þar kunnu þau vel við sig, enda hesthús og smiðja í skúr á lóðinni. Smíðaði Hreiðar skeifur í smiðjunni eins og hann hafði gert fyrir austan, hafði hann yndi af hestum og hross var hann með fyrsta veturinn í Smárat- úninu. Hreiðar hafði mjög gaman af söng og söng hann með kirkjukór Fljóts- hlíðar alla tíð og einnig með kór eldri borgara á Selfossi eftir að hann flutti á Selfoss. Þegar ég hugsa til Hreiðars þá kemur ávallt í huga minn kolaofninn í kjallaranum þar sem brenndar voru spýtur sem til féllu, dagblöð og allt rusl sem brenn- anlegt var, rauk þá oft mikið úr strompinum. Hreiðar og mamma ferðuðust nokkuð og sérstaka ánægju höfðu þau af bændaferðunum, þar sem þau kynntust mörgu ágætis fólki. Mikið hafði Hreiðar gaman af því þegar hann fór í siglingu með Gunnari mági mínum á Stokksey ÁR, er þeir gengu um stræti stórborga og sá Hreiðar þar ýmislegt sem hann hafði aldrei augum litið. Hreiðar hélt alltaf tryggð við sína heimasveit, Fljótshiíðina, og fór oft austur í Hlíð. í dag fer hann í sína síðustu ferð austur í Fljótshlíð sem hann hafði svo sterkar taugar til. Kæri Hreiðar, við þökkum þér samfylgdina og þá hlýju sem þú barst til okkar alla tíð og þá birtu sem þú gafst börnunum okkar. Elsku mamma, megi Guð styrkja þig í sorg þinni. Öðrum aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Vort er líf í herrans hönd, hvar sem endar dagatal; að láni hafa allir önd, „unpr má, en gamall skal“. (Séra Þorlákur Þórarinsson.) Ægir, Ásgerður og börn. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.