Morgunblaðið - 21.09.1996, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
llmsjðn Arnðr G.
Ragnarsson
Kraftur að færast í
vetrarstarfið á Suðurnesjum
FYRSTA mót Bridsfélags Suðumesja
á vetrinum hefst nk. mánudag. Þetta
er árleg keppni, Butler-tvímenningur.
Segja má að það sé nokkurt rang-
nefni að kalla þetta tvímenning því
reiknað er út meðalskor fyrir hvert
spil og þeir sem eru yfiri meðalskor
fá plús, hinir mínus. Áætlað er í
skipulagi að spila 3 kvöld en ef þátt-
taka verður mikii verður að spila 4
kvöld. Spilamennskan hefst kl. 19.45
og eru þátttakendur beðnir um að
mæta kl. 19.30. Skráning í mótið er
hafin hjá stjórn félagsins.
Spilaður var eins kvölds tvímenn-
ingur sl. mánudag og spiluðu 20
pör. Eldri spilarar félagsins settu
svip sinn á kvöldið, en þeir Einar
Júlíusson og Gunnar Siguijónsson
unnu A/V-riðilinn með miklum
glæsibrag, hlutu 279 stig en meðal-
skor var 216.
Næstu pör í A/V:
RandverRaparss.-GuðjónS.Jensen 261
Sigurður Albertss. - Jóhann Benediktss. 247
Efstu pör í N/S:
Karl Karlsson - Gunnlaugur Sævarsson 250
Dagur Ingimundars. - Birkir Jónsson 234
Ingimar Sumarliðason - Ævar Jónasson 232
Spiluð voru 27 spil - þijú spil
milli para.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 16. september var
spilaður eins kvölds tölvureiknaður
Howell-tvímenningur. 14 pör spiluðu
26 spil og meðalskor var 156. Efstu
pör voru:
Ámi Þorvaldsson - Sævar Magnússon 189
DröfnGuðmundsd,- Ásgeir Ásbjömsson 181
Halldór Einarss. - Gunnlaugur Óskarss. 177
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 171
Mánudaginn 23. september verð-
ur spilaður eins kvölds tvímenning-
ur. Minnt er á að 2 bestu kvöldin af
3 fyrstu eins kvölds tvímenningum
félagsins gilda til sérstakra heildar-
verðlauna.
Mánudaginn 30. september verð-
ur spilaður eins kvölds tvímenning-
ur. Minnt er á að 2 bestu kvöldin af
3 fyrstu eins kvölds tvímenningum
félagsins gilda til sérstakra heildar-
verðlauna.
Mánudaginn 30. september hefst
minningarmót um Þórarin Andrews-
son og Kristmund Þorsteinsson. Spil-
aður verður barómeter tvímenningur.
Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar á
mánudagskvöldum í félagsmálum
Haukahússins með innkeyrslu frá
Flatahrauni. Spilamennska hefst kl.
19.30. Keppnisstjóri er Sveinn R.
Eiríksson.
Vetrar-mitchell
Vetrar-mitchell hófst sl. föstudag.
Spilaður verður Mitchell annað hvert
kvöid í vetur og Monrad Barómeter
hin kvöldin, alltaf eins kvölds keppn-
ir. Einnig verður boðið upp á mið-
næturútslátt eftir að tvímenningnum
lýkur um kl. 23.00. Umsjónarmenn
verða hinir eldhressu Sveinn Rúnar
og Matthías Gísli.
^^^^HAPPnUÆT 1 1 ^
Vinningaskrá 19. útdráttur 19. Scpt. 1996 Bifreiðarvmningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
78903
Ferðavinningar Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
10073 | 38495 42397 69801
Ferðavinningar Kr. 50.000 Kr. 100.0 00 (tvöfaldur)
7602 11475 23605 25826 29037 42304
9516 15320 23854 27141 36717 79232
Húsbúnaðarvinnin Kr. 10.000 Kr. 20.C gar 60 (tvöfaldur
799 10328 21548 32525 42792 51806 65045 71941
1519 10543 22327 33540 43122 52307 65150 72297
1540 11887 22387 34412 43270 52468 65684 72299
1745 12121 22631 35230 43740 52563 65782 72469
1884 12147 23513 35895 43854 52812 65933 72863
2010 12238 23775 37176 44031 53199 66288 73161
2794 12286 24089 37296 44765 53924 66295 73377
3428 12944 24810 37363 45020 54170 66739 73449
3785 13460 25060 37682 45192 54337 67200 73699
4191 13618 25145 37697 45420 54590 67690 73924
4383 14022 25312 37816 45725 55720 68159 73933
4532 14686 25314 37878 45776 56108 68182 74047
4944 14781 25583 37936 46060 56279 68430 75216
6270 15288 25723 38073 47182 56719 68678 75856
6594 15864 26492 38223 47656 56759 68728 76093
7518 15899 26722 38288 48247 57270 68810 76145
7768 16971 27785 38514 48327 58172 68909 76294
7782 17733 28512 38564 48396 58245 69181 76363
8742 18031 28575 38731 48415 58728 69198 76444
8798 18164 28780 39139 48433 59785 69242 76499
8887 18323 29086 39288 48775 59854 69764 77344
8981 18349 29298 40844 49179 61457 69799 78454
8998 18376 29565 40946 49244 61548 70028 78496
9188 18687 30371 41045 49384 62704 70069 79304
9477 19331 30734 41146 49765 62996 70359 79474
9611 19526 30842 41352 50299 63224 70799 79704
9751 20521 31076 41521 50772 63744 70812 79861
9825 20726 31355 41539 51278 64070 71486 79959
10055 21073 32158 42022 51302 64293 71665
10241 21483 32398 42294 51704 64656 71706
Hcimasíða i Intemeti: http//www.itn.is/das/
Ólympíuskákmótið í Armeníu
Tap fyrir Eistlend-
ingnm í 5. umferð
Jerevan, Armeníu. Morgunblaðið.
ÍSLAND beið ósigur gegn Eistlandi
í fimmtu umferð Olympíuskákmóts-
ins í Armeníu, hlaut 1,5 vinninga
gegn 2,5.
Margeir Pétursson hafði hvítt
gegn Ehlvest á efsta borði en missti
fljótlega frumkvæðið og átti í vök
að veijast upp frá því. Þrátt fyrir
annálaða seiglu sína í erfiðum stöð-
um dugði hún ekki í þetta sinn og
Ehlvest sigraði eftir langa og
stranga skák. Þetta var fyrsta og
hingað til eina skákin sem íslend-
ingur hefur tapað á mótinu því öðr-
um skákum lauk með jafntefli. Jó-
hann Hjartarson hafði svart gegn
Oll, Hannes Hlífar hvítt gegn Ryt-
sjagov og Þröstur Þórhallsson svart
gegn Sjukin. Hannes Hlífar mun
hafa verið kominn með vonda stöðu
á tímabili en skákir Jóhanns og
Þrastar voru tíðindalitlar.
Eistlendingar eru nokkuð sterk
skákþjóð og þeir Ehlvest og Oll eru
báðir geysiöflugir stórmeistarar
með vel yfír 2.600 Elo-stig, en aðr-
ir eistneskir skákmenn standa þeim
tvímenningum nokkuð langt að
baki.
Rússar í efsta sæti
Rússland hrifsaði til sín efsta
sætið á mótinu með því að sigra
Kína, 2,5-1,5. Kasparov heims-
meistari var ekki með að þessu sinni
svo Vladimir Kramnik var á efsta
borði Rússa. Hann stóð um tíma
höllum fæti gegn stórmeistaranum
Ye Jiangchuan en hélt jafntefli.
Jafntefli sömdu einnig þeir Svidler
og Xu og Bareev og Wang en á
fjórða borði sigraði Rublevski Peng.
Rússar hafa nú 15 vinninga en
Kínveijar koma næstir með 14,5.
Síðan koma þijár þjóðir með 14
vinninga, A-sveit Armena sem vann
Kazakstan 3-1, Spánveijar sem
unnu Svía 2,5-1,5 og Englendingar
sem unnu Hollendinga með sama
mun. Á efsta borði í viðureign Spán-
veija og Sviss sömdu Shirov og
Andersson um jafntefli en Illescas
Cordoba vann Akesson á öðru borði.
Jafntefli var einnig gert á tveimur
neðstu borðunum.
Enski stórmeistarinn Matthew
Sadler vann hollenska kollega sinn,
Friso Nijboer, á fjórða borði og réð
sú skák úrslitum með Hollendingum
og Englendingum því aðrar skákir
urðu jafntefli. Eftir að Margeir
Pétursson tapaði í gær eru Eng-
lendingar nú eina þjóðin sem ekki
hefur tapað einni einustu skák.
Portúgalir halda áfram að koma
á óvart, nú gerðu þeir jafntefli 2-2
gegn geysisterkri sveit Úkraínu og
hvíldu þó eina stórmeistara sinn í
þessari umferð. Alþjóðameistarinn
Damaso vann stórmeistarann Mal-
anjuk og titillausi skákmaðurinn
Ribeiro vann stórmeistararann No-
vikov. Báður eru Úkraínumennirnir
mjög stigaháir en stigin hjálpuðu
þeim ekki í þetta sinn. A efsta borði
Úkraínu vann Ivantsjuk snaggara-
legan sigur og Romanishin vann á
því þriðja, og björguðu því sem
bjargað varð fyrir Ukraníumenn.
Meðal annarra úrslita má nefna
að Frakkland vann Moldovu 3-1
og vann hinn 13 ára Etienne Bac-
rot sína skák. Hinn 13 ára snáðinn
á mótinu, Levon Aronian, sem tefl-
ir með B-liði Armeníu vann líka
sína skák í gær, heimamönnum til
mikillar gleði. Aronian tefldi við
írskan skákmann og vann B-lið
Armena nauman sigur. Bosníu-
menn unnu Slóvena 3-1, Króatar
lögðu Dani 3-1 og Usbekar burst-
uðu Chile-menn, andstæðinga ís-
lendinga í 4. umferð, 3,5-0,5. Júgó-
slavar unnu Finna 3-1, en Norð-
menn unnu góðan sigur á sterku
liði Víetnama 3-1. Ungveijar unnu
Tékka 2V2-IV2 og Kúbumenn og
Georgíumenn skildu jafnir.
í kvennamótinu hafa Kínveijar
og Úkraínumenn forystu, Georgía
er í 3ja sæti og síðan koma Víetnam
og Rúmenía.
Lögregla í Armani-fötum
Mikil ánægja ríkir meðal þátttak-
enda með aðstæður á skákstað og
flestallt sem lýtur að skipulagningu
mótsins og aðbúnaði. Nokkur
magakveisa hefur gert vart við sig
í íslenska liðinu en þó ekki þannig
að til vandræða horfi. Áhorfendur
eru fjölmargir í hverri umferð og
eru á öllum aldri og af báðum kynj-
um. Öryggisgæsla er mikil en afar
kurteisleg og bæði einkennisklædd-
ir og óeinkennisklæddir lögreglu-
menn á hveiju strái.
Athygli hefur vakið hversu vel
klæddir lögreglumennirnir eru. Al-
mennt virðast Armenar hafa gaman
af því að ganga vel til fara en lög-
reglumennirnir bera þó af, því hver
einasti þeirra er í fínustu Ármani-
jakkafötum eða hvað þau heita
þessi fínu merki, í silkiskyrtum og
með silkibindi. Vera má að þar sé
komin skýringin á því hversu glæp-
ir eru fátíðir í Armeníu; lögreglu-
mennirnir fái einfaldlega svo gott
kaup að það borgi sig frekar fýrir
unga menn að ganga í lögregluliðið
en glæpaflokk.
Forsetakosningar verða í Arme-
níu á sunnudag en órói virðist eng-
inn vegna þess og allt ganga fýrir
sig með eðlilegum hætti. Ovíst er
um úrslit en þó þykir Levon Ter-
Petrosjan, núverandi forseti, líkleg-
asti sigurvegarinn. Helsti keppi-
nautur hans er Vasgen Manukian,
frambjóðandi nokkurra stjórnar-
andstöðuflokka, en frambjóðandi
kommúnista, Sergei Badalian, mun
hafa lítið fylgi.
Júdít Polgar heillum
horfin gegn Kínverjum
SKÁK
Jcrcvan, Armcníu
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
Ólympíuskákmótið fer fram
í Armeníu dagana 15. september
til 2. október.
UNGVERSKA skákdrottningin
Júdít Polgar teflir á 1. borði fyrir
Ungveija á ólympíuskákmótinu í
Jerevan, eins og hún gerði í
Moskvu fyrir tveimur árum. Ung-
verska sveitin er sú þriðja sterk-
asta á mótinu, og þess vegna vek-
ur það mikla athygli, að kona skuli
tefja á fyrsta borði sveitarinnar.
í þriðju umferð tefldu Ungveijar
við Kínveija, sem eru nr. 30 í styrk-
leikaröðinni. Þeir síðarnefndu unnu
óvæntan stórsigur, 3-1, og átti
Júdít Polgar sinn stóra þátt í þeim
úrslitum, því að hún tapaði sinni
skák illa.
Hvítt: J. Polgar Svart: Ye
Spánski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7
6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3
- 0-0 9. d3 -
Skákdrottningin reynir að koma
andstæðingi sínum á óvart með
rólegri taflmennsku. Venjulega er
leikið hér 9. h3, en eftir það á
svartur um ýmsar leiðir að velja,
t.d. 9. - Ra5, 9. - Rb8, 9. - Rd7
og 9. — h6.
9. - Ra5 10. Bc2 - c5 11. Rbd2
- Rc6 12. Rfl------h6 13. a4 -
Be6 14. Re3 - Hc8 15. De2 -
He8 16. axb5 — axb5
Það er ekki auðvelt að finna góðan
leik fyrir hvitan, því að svartur
hefur þegar leyst öll vandamál sín
í byijuninni og stendur síst lakar.
Spurningin er, hvort hvitur verði
ekki að taka lífinu með ró og leika
17. h3 ásamt Rf3-h2-g4.
17. c4?! -
Með þessum vafasama leik gefur
hvítur eftir d4-reitinn og gefur
svörtum að auki sókn á hálfopinni
b-línu gegn peðinu á b2.
17. — bxc4 18. dxc4 — Rh7 19.
Rd5 - Bg5 20. Rxg5 - Rxg5
21. Be3 - Hb8 22. h4 - Rh7 23.
Ba4 - Bd7 24. g3 - Rf6 25.
Hadl?? -
Júdít hefur teflt skákina ráðleysis-
lega til þessa, en nú leikur hún
illa af sér. Líklega hefði verið best
að veijast með 25. Rxf6+ — Dxf6
26. Bxc6 —
Bxc6 27. f3
o.s.frv.
25. - Rd4!
26. Bxd4 -
Bxa4 27.
Hal -
Eftir 27.
Rxf6+ —
Dxf6 28.
Hal — exd4
29. Hxa4 —
Hb3! 30.
Hdl - Dg6!
hrynur hvíta
staðan. 27. — Rxd5! 28. Bxc5 —
Eða 28. Hxa4 - Rb6 og svartur
vinnur mann.
28. — dxc5 29. exd5 — Hb4 og
hvítur gafst upp.
Bragi Kristjánsson
■ SAMBAND ung-ra sjálf-
stæðismanna verður með undir-
búningsfund fyrir Landsfund Sjálf-
stæðisflokksins í félagsheimilinu
Seltjarnarnesi við Suðurströnd
laugardaginn 21. september nk.
Dagskráin hefst með setningar-
ræðu formanns SUS, Guðlaugs
Þórs Þórðarson. Framsögur flytja:
frelsisvísitala, Guðlaugur Þór
Þórðarson; jafnréttismál, Ásdís
Halla Bragadóttir; húsnæðismál,
Magnús Arni Skúlason; skatta-
mál, Áslaug Magnúsdóttir; og
kjördæmamál, Birgir Ármanns-
son.
Júdít Polgar