Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 39
Námskeið um
umönnun dauðvona
Núverandi viðfangsefni ísienskra
hjúkrunarfræðinga erlendis
Hjúkrunar-
störf
Kennsla
Nám
Heima-
vinnandi
Annað
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands stendur fyrir nám-
skeiði um umönnun dauðvona
föstudaginn 27. september í sam-
starfi við norræna nefnd sem undir-
býr ráðstefnu um umönnun við
ævilok. Sú ráðstefna verður haldin
í Reykjavík í júní 1977.
Námskeiðið er ætlað öllum heil-
brigðis- og félagsstéttum og verður
sérstök áhersla lögð á öldrunar-
lækningar og hlutverk heilsugæslu,
ennfremur verður fjallað um ein-
kennameðferð og mikilvægi vonar-
innar í umönnun dauðvona. Gesta-
fyrirlesarar verða frá Danmörku,
Svíþjóð og Finnlandi, og flytja þeir
| sín erindi á dönsku og sænsku.
Ennfremur verða íslenskir fyrirles-
arar sem starfa að málefnum dauð-
vona. Umsjón með námskeiðinu
hefur Valgerður Sigurðardóttir,
krabbameinslæknir.
Dagskrá fyrirlestra verður sem
hér segir: Einkennameðferð, öndun-
arerfiðleikar Sigurður Arnason,
| Morgun-
stundir
jafnaðar-
manna
| MORGUNSTUNDIR jafnaðar-
I manna hefjast í dag, laugardaginn
21. september, kl. 10-12 í Borgar-
' byggð og á Akureyri. Þær verða
haldnar víða um land á laugardags-
morgnum næstu þrjá mánuði.
Hér er um að ræða pólitískar
samræður yfir kaffibolla þar sem
þingmenn, sveitarstjórnarmenn,
fólk úr verkalýðsfélögum og áhuga-
, menn um stjórnmál koma saman
til þess að ræða samstarf jafnaðar-
I manna og annað það sem efst er á
i baugi. Morgunstundirnar eru í
! knöppu samræðuformi og er ætlast
til líflegra skoðanaskipta, segir í
frétt frá jafnaðarmönnum.
Morgunstund jafnaðannanna á
Akureyri er í Deiglunni frá kl.
10-12 á laugardag og er hún í
boði Lýðveldisklúbbsins sem staðið
hefur fyrir umræðu um stjórnmál.
Þingmennirnir Jón Baldvin Hanni-
balsson, Rannveig Guðmunsdóttir
1 og Svanfríður Jónasdóttir eru gest-
ir í Morgunstundinni auk þess sem
nokkrir heimamenn hafa verið sér-
staklega beðnir um að leggja orð í
belg.
Einar Karl Haraldsson, sem stýr-
ir verkefninu Samstarf jafnaðar-
manna fyrir hönd Þingflokks jafn-
aðarmanna, er gestur Morgun-
stundarinnar í Deiglunni.
Morgunstund jafnaðarmanna í
Borgarbyggð verður í Hyrnunni við
Borgarfjarðarbrú kl. 10-12 á laug-
ardag. Gestir í Morgunstundinni í
Borgarbyggð verða þau Ágúst Ein-
arsson, Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, Gísli S. Einarsson og Guð-
mundur Árni Stefánsson. Sveitar-
stjórnarmenn Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags í Borgarbyggð, þeir
Sigurður Már Einarsson og Jenni
R. Olason, munu greina frá nýrri
stöðu sveitarstjórnarmála þar. Þá
hafa fleiri Vestlendingar verið sér-
staklega beðnir um að leggja sitt
til mála.
Sýningu Árna
Rúnars lýkur
MÁLVERKASÝNINGU Árna Rún-
arsí Listhúsi 39, Strandgötu 39,
Hafnarfirði, lýkur á mánudaginn. Á
sýningunni eru olíumálverk á
striga.
Sýningin er opin frá kl. 12-18 í
dag, laugardag, sunnudag frá kl.
14-18 og á mánudaginn kl. 10-18.
krabbameinslæknir; „Pallativ
medicin och omsorg inom geriatrin"
Arne Sjöberg, öldrunarlæknir,
Lénssjúkrahúsinu í Kalmar í Sví-
þjóð; Einkennameðferð hjúkrun,
mæði, þreyta, Gunnlaug Guð-
mundsdóttir og Nanna Friðriksdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur, Landspít-
ala; „Háb“, séra Christian Juul
Busch, sjúkrahúsprestur við Rík-
isspítalann í Kaupmannahöfn;
„Halsocentralens roll vid várd i liv-
ets slut“, Carl-Erik Vænerberg,
skurð- og heilsugæslulæknir Finn-
landi; Verkjameðferð, hlutverk fé-
lagsráðgjafa. Bárbel Schmid, fé-
lagsráðgjafi, Endurhæfingar- og
æfingadeild Landspítala og loks
Einkennameðferð, ógleði, Valgerð-
ur Sigurðardóttir, krabbameins-
læknir, Krabbameinsfélagi Íslands.
Upplýsingar og skráning í símum
525 4923 og 525 4924, myndsíma
525 4080 og tölvupósti endurm.r-
hi.hi.is
Gestafyrirlesar-
ar frá Munchen
NORRÆNA þjóðfræðastofnunin í
Turku í Finnlandi hefur sent hingað
til lands tvo gestafyrirlesara frá
háskólanum í Múnchen, prófessor
dr. Klaus Roth og dr. Juliana Roth.
Þau munu dvelja hér dagana
21.-25. september nk. á vegum
Árnastofnunar og félagsvísinda-
deildar og heimspekideildar Há-
skóla íslands, og flytja tvo opinbera
fyrirlestra á mánudag og þriðjudag.
Klaus Roth er Þjóðveiji og hefur
skrifað mikið um ballöður af þýsk-
um og enskum málsvæðum. Hin
síðari ár hefur hann einkum stund-
að rannsóknir á alþýðumenningu í
Búlgaríu og birt um þær fjölda
greina í bókum og tímaritum. Klaus
flytur fyrirlestur sinn mánudaginn
23. september kl. 17.15 í stofu 101
í Odda og nefnist hann: „History
Lessons in the Streets. On Fairgro-
und singing in Bulgaria" (með
myndbandi til skýringar).
Juliana Roth er búlgörsk að upp-
runa og hefur fengist við rannsókn-
ir á menningar- og hugmyndasögu
í Suðaustur Evrópu, nútímavæð-
ingu og alþýðumenningu. Hún hef-
ur skrifað mikið um þjóðfræði í
Búlgaríu í aiþjóðleg tímarit. Juliana
heldur sinn fyrsta fyrirlestur í stofu
101 í Lögbergi, þriðjudaginn 24.
september kl. 17.15, og nefnist
hann: „Can East Meet West?
European Intercultural Communi-
cation Problems after the „End of
Systems““.
Báðir fyrirlestrarnir verða fluttir
á ensku og eru allir velkomnir með-
an húsrúm leyfir.
Hundatísku-
sýning
HALDIN verður hundatískusýning
í húsakynnum Dýraríkisins Grens-
ásvegi sunnudaginn 22. september.
Þar munu 8 mismunandi tegund-
ir hunda sýna tísku- og skjólfatnað
fyrir hunda frá Ítalíu. Fatalínan
sem sýnd verður er frá ítalska fyrir-
tækinu Dog Line sem hefur getið
sér gott orð fyrir einstaklega vand-
að efnisval og hágæða framleiðslu.
Hundategundirnar sem koma fram
eru Boxer, Weimaraner, Papillon,
Miniature Pinscher, Labrador, Silki
Terrier, íslenskur og Poodle.
í tilefni sýningarinnar verða
kynningar og kynningarafsláttur á
hundamat frá Select Balance,
Kibble’s Bits og Gravy Train. Allar
vörur fyrir hunda verða með 15%
afslætti. Húsið opnar kl. 12. 1. sýn-
ing er frá kl. 13—14 og 2. sýning
frá kl. 15-16.
íslenskir hjúkr-
unarfræðingar
erlendis
VEGNA mistaka birtist ekki með-
fylgjandi súlurit með frétt um ís-
lenska hjúkrunarfræðinga erlendis
sem birtist í Morgublaðinu í gær.
Könnun sem birtist í Tímariti
hjúkrunarfræðinga var gerð fyrri
hluta þess árs og náði til 158 félags-
manna í Félagi íslenskra hjúkrunar-
fræðinga sem búsettir eru erlendis.
Þar af voru 154 konur og fjórir
karlmenn. Svarhlutfall var 75% eða
118 manns. Tilgreina mátti fleiri
en eina ástæðu fyrir brottflutningn-
um og sýnir súluritið viðfangsefni
íslenskra hjúkrunarfræðinga er-
lendis.
Tíu fing’ur með
Englaspil í Æv-
intýra-Kring-
lunni
BRÚÐULEIKHÚSIÐ 10 fingur
verður með sýninguna Englaspil í
Ævintýra-Kringlunni í dag, laugar-
daginn 21. september. Þessi sýning
verður hvern laugardag út septem-
ber.
Þetta er sýning um púka sem
vill verða góður og engil sem kann
ekki að fljúga. Krakkarnir taka
virkan þátt í sýningunni og fá að
aðstoðað brúðurnar á ýmsan hátt.
Það er Helga Arnalds sem á veg
og vanda af þessari sýningu en hún
samdi leikritið, hannaði brúðurnar
og stjórnar þeim. Ása Hlín Svavars-
dóttir er leikstjóri. Sýningin hefst
kl. 14.30 og er um 40 mínútur í
flutningi. Miðaverð er 500 kr. og
er þá barnagæsla innifalin.
Nú fer haustið að ganga í garð
og er ætlunin að leiksýningar verði
á hveijum laugardegi í vetur. í
október verður Furðuleikhúsið með
sýningar á leikritinu Mjallhvít og
dvergarnir sjö og í nóvember verða
líklega fleiri brúðuleiksýningar.
Ævintýra-Kringlan er barna-
gæsla og listasmiðja fyrir börn á
aldrinum 2-8 ára. Hún er staðsett
á 3. hæð í Kringlunni og þar geta
viðskiptavinir Kringlunnar skilið
börnin eftir á meðan þeir versla.
Götuhlaup í
Hafnarfirði
GÖTUHLAUP FH, Búnaðarbankans
og Vina Hafnarfjarðar fer fram við
Suðurbæjarlaugina í Hafnarfirði
laugardaginnn 21. september kl. 13.
Skráning fer fram við Suðurbæj-
arlaugina frá kl. 11-12.30.
Keppnisflokkar og vegalengdir;
10 ára og yngir 600 m, 11-14 ára
1.300 m, 15-18 ára 3 km, 19-34
ára 5 km, 35 ára og eldri 5 km.
Tímataka. Þátttökugjald er 500 kr.
fyrir 19 ára og eldri og 300 kr. fyr-
ir 18 ára og yngri. Allir keppendur
fá frítt í sund að hlaupi loknu. Þá
verða sérverðlaun í einstökum flokk-
um.
Hafnarfjarðarbær og Búnaðar-
bankinn í Hafnarfirði styrkja hlaupið.
Söfnun til
styrktar
Kolbrúnu
Sverrisdóttur
SKIPSTJÓRA- og stýrimannafé-
lagið Bylgjan á ísafirði hefur tek-
ist á hendur að standa fyrir söfnun
til styrktar Kolbrúnu Sverrisdóttur
vegna hins sviplega sjóslyss er
Æsa ÍS fórst á Arnarfirði og með
henni Hörður Bjarnason, sambýl-
ismaður Kolbrúnar, og Sverrir Sig-
urðsson faðir hennar.
Fyrir þá sem vilja styrkja þessa
söfnun er hægt að leggja inn á
bók nr. 2222 í Landsbankanum á
Isafirði sem merkt er v/Kolbrún
Sverrisdóttir.
Aðrir bankar og sparisjóðir
veita styrkjum viðtöku og koma
þeim áleiðis.
Gönguferð
um Engey 4
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð um Engey
sunnudaginn 22. september, sem er
haustjafndægur.
Mæting er við Hafnarhúsið kl. 16.
Þaðan verður gengið til skips. Áætl-
að er að koma til baka um kl. 19.
Allir eru velkomnir.
Réttað í Þór-
kötlustaðar-
hreppi
RÉTTAÐ verður í Grindavík í Þór-
kötlustaðarhreppi í dag, laugardag-
inn 21. september.
Réttirnar hefjast kl. 14 og verður
margt til skemmtunar. Grindvíkingar ;
eiga von á fjölda fólks þar sem þetta I
eru einu réttimar sem haldnar eru á j
Suðurnesjum.
LEIÐRÉTT
Höggmyndin Torso afhjúpuð
LITIL frétt birtist í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 18. september sl. af
afhjúpun á listaverki í höggmynda-
garði Sólheima í Grímsnesi. í fyrir-
sögn fréttarinnar birtist meinleg villa
þar sem höggmyndin var sögð eftir
„Torso“. Hið rétta er að höggmyndir
sem hafa höfuð og bol án útlima
bera alþjóðlegt heiti sem er torso.
Eru hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökíim.
Höggmyndina sem frú Hildur
Jackson afhjúpaði á Sólheimum á
dögunum gerði Marteinn Guðmunds-
son árið 1943 af yngri dóttur sinni,
Steinunni Marteinsdóttur. Steinunn
sagði í samtali við Mbl. að faðir sinn
hefði aldrei kallað verkið annað en
„Torso“ en ekki skírt það sérstak-
lega.
FASTEIGNA
fpi MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540. 552-1700. FAX 562-0540
%
SERHÆÐ VIÐ TÓMASARHAGA.
5 herb. 131 fm góð efri sérhæð. íbúðin skiptist í þrjár glæsilegar saml.
stofur, 2 svefnherb., eldhús, baðherb. og gestasnyrtingu. Stórar suður-
svalir. Sjávarsýn. I kjallara eru sérþvottaherb. og geymslur. 23 fm bíl-
skúr. íbúðin getur losnað fljótlega.
SMÁRAFLÖT GBÆ.
156 fm einb. auk 35 fm bílskúrs. húsið þarfnast ýmissa lagfæringa. Laust
strax.
LEIFSGATA.
Parhús sem er kj. og tvær hæðir 205 fm. 36 fm bílsk. Möguleiki á séríb. í
kj. Þrjár stofur og 5 herb. Áhv. byggsj./húsbr. 6.8 millj. Verð 12,5 millj.
FROSTAFOLD BYGGSJ.
Góð 85 fm íb. á 2. hæð í litlu fjölb. Frábært útsýni. Stutt í alla þjónustu.
Þvottaherb. í íb. Verð 8,3 millj. Áhv. 5,2 millj. byggsj.
ÁLFTALAND.
Mjög góð 136 fm íb. á tveimur hæðum. Parket. Innr. og skápar frá JP.
Marmari á baðherb. 4 svefnherb. Tvennar svalir. Arinn í risi.
BREIÐVANGUR HF.
Góð efri sérhæð 140 fm. Forstofuherb. með sér wc. Saml. borð- og
setustofa með stórum suðursvölum. 3 svefnherb. í svefnálmu. 26 fm
bílskúr. 70 fm rými í kjallara, ýmsir nýtingarmöguleikar.
SKAFTAHLÍÐ.
104 fm íb. i kjallara sem skiptist í saml. skiptanlegar stofur og 1 herb.
Sérinngangur og hiti. Verð 6 millj. Ekkert áhv. Laus strax.
Lyklar á skrifstofu.
BÆJARGIL GB.
%
Einbýli á tveimur hæðum 212 fm. Vandaðar innréttingar og gólfefni.
5 svefnherb. 36 fm bílskúr. Áhv. 9 millj. byggs./húsbr.
VINNUSTOFA ÓSKAST.
Leitum að 150-250 fm hentugu húsnæði fyrir listamann. Húsnæðið
þarf að vera á 1. eða 2. hæð með góðri aðkomu og góðri lofthæð í
vistlegu umhverfi. Æskileg staðsetning Reykjavík eða Kópavogur.
Opið í dag, laugardag, frá kl. 11-14.
FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf
•ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540Z
J