Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 52
4
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Tónlistarsalur
rís í Kópavogi
FYRSTI salurinn hér á landi sem
hannaður er sérstaklega með tónlist-
arflutning í huga mun rísa í Kópavogi.
Fyrirhugað er að framkvæmdir
hefjist á vordögum 1997 og Gunnar
Birgisson bæjarfulltrúi bindur vonir
við að verkinu verði lokið fyrir alda-
mót. Verður salur þessi, sem taka
mun um 300 áhorfendur í sæti, hluti
af nýrri menningarmiðstöð sem ætl-
aður er staður í námunda við Gerðar-
safn.
Miðstöð þessi verður reist í tveimur
áföngum. I fyrri áfanganum verða
tónlistarsalurinn og húsnæði fyrir
Tónlistarskóla Kópavogs byggð en í
hinum síðari náttúrufræðistofa og
r^i#»:asafn bæjarins. Aætlaður kostn-
aður við fyrri áfangann er 250-300
Nýtt lífeyriskerfi
ríkisstarfsmanna
Greitt verði
af öllum
launum
STARFSHÓPUR á vegum fjármála-
ráðherra, stefnir að því að leggja
fram tillögur í frumvarpsformi um
nýskipan í lífeyrismálum opinberra
starfsmanna í næsta mánuði.
Samkvæmt þeim grunnatriðum
sem unnið er út frá í starfi hópsins
er stefnt að því að frá og með næstu
áramótum verði núverandi lífeyris-
kerfi lokað og nýir starfsmenn sem
koma til starfa hjá ríkinu fái lífeyris-
réttindi samkvæmt nýja kerfínu.
Jafnframt verði núverandi starfs-
mönnum ríkisins gefinn kostur á að
færa sig yfir í nýja kerfið telji þeir
hag sínum betur borgið með þeim
hætti.
' ™*®Gert er ráð fyrir því að í hinu
nýja lífeyriskerfi opinberra starfs-
manna verði greitt af öllum launum,
en ekki dagvinnulaunum eins og nú
er hjá opinberum starfsmönnum.
Reiknað er með að nýr lífeyrissjóður
verði ekki stofnaður í kringum hið
nýja kerfi heldur verði um fjárhags-
lega sjálfstæða deild að ræða innan
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
■ Stefntað/14
milljónir króna en 130-140 milljónir
króna við þann síðari. Arkitektar
hússins eru Jakob Líndal og Kristján
Ásgeirsson.
Jónas Ingimundarson, tónlistar-
ráðunautur Kópavogskaupstaðar,
segir ákvörðun bæjarstjórnar glæsi-
legt framtak, sem fagna beri af al-
hug. Hann segir hér um að ræða
a.m.k. jafn stór tíðindi fyrir menn-
ingarlíf í landinu og þegar ákvörðun
var tekin um byggingu Borgarleik-
hússins og enn stærri fyrir tónlistar-
lífið. Þetta hús muni svara brýnni
þörf, en tekur fram, að það muni
ekki leysa vanda Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar.
■ Blað brotið/cl6
Morgunblaðið/Golli
Borgnesing-
ar fagna
SKALL AGRÍMUR frá Borgar-
nesi tryggði sér sæti í 1. deild
karla í knattspyrnu í fyrsta sinn
í sögu félagsins er það lagði
Völsung að velli, 4:2, á Húsavík
í gær. Fögnuður leikmanna liðs-
ins var ósvikinn að leikslokum
eins og þessi mynd ber með sér.
■ Stórstund/Cl
Seljabrekka í Mosfellsdal
Aliminkur ráfar
inn í íbúðarhús
ALIMINKUR ráfaði inn í íbúð-
arhúsið á Seljabrekku í Mos-
fellsdal í vikunni. Anna Olsen,
21 ára sænsk vinnukona á bæn-
um, rak minkinn út og Guðni
Bjarnason minkabani aflífaði
hann skömmu síðar. Guðni hefur
banað 56 minkum í hreppnum frá
því í janúar. Alls banaði hann 19
minkum allt árið í fyrra.
Guðjón Bjarnason, ábúandi á
Seljabrekku, sagðist hafa borað
um 13 sm stórt gat á íbúðarhúsið
fyrir vatnslögn inn í sólhýsi. Inn
um gatið, í gegnum þvottahúsið
og inn á gang hefði minkurinn
farið. Vinnukonan vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið þegar
hún sá minkinn enda hafði hún
Stuðningi veitt viðtaka
KRÖFTUGIR haustvindar höfðu
dregið sig í hlé þegar Davíð
Oddsson forsætisráðherra veitti
höggmyndinni Stuðningi, á
horni Túngötu og Garðastrætis
í Reykjavík, formlega viðtöku á
föstudagsmorgun. Höggmyndin
er gjöf Letta til íslendinga í
þakklætisskyni fyrir stuðning
íslendinga við sjálfstæðisbaráttu
Lettlands. Andris Skela, forsæt-
isráðherra Lettlands, afhenti
verkið.
Stuðningur er eftir lettneska
myndhöggvarann Paul Jaunz-
ens. Listaverkið er úr granít,
1,80 sm á hæð og 2 metrar á
breidd.
Hlutabréf í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar
6,5 faldast í
verði á einu ári
HLUTABRÉF í Hraðfrystihúsi
Eskiijarðar hf. hækkuðu um 5% á
fimmtudag þegar fyrirtækið birti
upplýsingar um afkomu sína fyrstu
átta mánuði ársins. Þá kom fram
að endanlegur hagnaður fyrirtækis-
ins á tímabilinu nam alls um 315
milljónum króna, en hagnaður fyrir
skatta nam 395 milljónum. Var
gengi hlutabréfa 2,39 í lok sl. árs,
en hefur hækkað ört á þessu ári
og var 8,40 í viðskiptum á fimmtu-
dag.
Sem dæmi um ávinning hluthafa
félagsins má nefna að bréf að nafn-
virði 1 milljón króna voru að mark-
aðsvirði 2,6 milljónir í september á
sl. ári. Sami hluthafi var orðinn
eigandi 2 milljóna króna að nafn-
virði í október eftir jöfnun sem var
að markaðsvirði 4,7 milljónir í jan-
úar. Eftir síðustu viðskipti nemur
markaðsvirði þessarar hlutabréfa-
eignar um 16,8 milljónum. Mark-
aðsvirði bréfanna hefur þannig 6,5-
faldast á einu ári.
■ Bréfin hafa/14
aldrei sé mink áður. Hún rak
dýrið því einfaldlega út.
Minkurgerír usla ífuglalífi
Eftir að Anna hafði rekið
minkinn út var Guðni Bjarnason,
minkabani á Hraðastöðum, kall-
aður til og banaði hann minknum
með löglegum hætti, þ.e. skaut
dýrið með minkabyssu, úti í bíl-
skúr við Seljabrekku skömmu
síðar. Guðni hefur haft í nægu
að snúast því alls hefur hann
banað 56 minkum í hreppnum frá
því í janúar sl. Má til samanburð-
ar taka fram að hann banaði 19
minkum allt árið i fyrra.
Guðni taldi að ástæðurnar fyrir
fjölgun minksins væru aðallega
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Sjávarút-
vegssýningu
lýkur í dag
MIKIL aðsókn hefur verið að ís-
lenzku sjávarútvegssýningunni þá
þijá daga, sem hún hefur staðið.
2.000 gestir komu fyrsta daginn,
3.000 á fimmtudag og mun fleiri á
föstudag.
Almenn ánægja er meðal sýnenda
og hafa nokkur fyrirtæki gert stóra
sölusamninga á sýningunni. Meðal
annars seldi Eltak brettaflutnings-
kerfi að verðmæti 8 til 10 milljónir
króna í nýtt frystihús Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað fyrir milli-
göngu Verkfræðistofunnar MEKA
og Istaks, sem er aðalverktaki við
byggingu hússins. Þá hafði fyrirtæk-
ið Friðrik A. Jónsson selt tæki um
borð í tvö skip í gær.
Sú breyting hefur nú orðið frá
fyrri sýningum að þessi stendur að-
eins í fjóra daga, en sýningardagar
á hinum íjórum sýningunum voru
fimm. Síðasti sýningardagur er í
dag, laugardag, og er hún opin frá
10 til 18.
Morgunblaðið/Guðný Halldórsdóttir
GUÐNI með minkinn.
tvær. Annars vegar mætti ætla
að minkur slyppi úr Dalsbúinu í
Helgadal, aðeins 4 til 5 km frá
Seljabrekku, og hins vegar hlyti
að hafa áhrif að minka- og refa-
eyðingu hefði verið hætt í Kjalar-
neshreppi, næsta hreppi, í vor.
Guðni sagði afar slæmt hversu
algengt væri orðið að minkur
gengi laus. Hann nefndi í því
sambandi að minkur gerði mik-
inn usla í fuglalífi og hreinsaði
fisk úr ám og lækjum. Síðast en
ekki síst væri auðvitað afar
slæmt að fá mink inn í íbúðarhús
eins og gerst hefði á Seljabrekku.
Hann sagði að ljós litur um-
rædds minks segði til um að um
alinn minkhefði verið að ræða.
Minkurinn væri fullorðin læða
og gera mætti ráð fyrir að hún
hefði komið upp 4 til 5 yrðlingum
næsta vor.
Guðni er á tímakaupi við störf
sín og fær því til viðbótar 1.200
kr. frá hreppnum fyrir hvert
minkaskott. Minknum sjálfum er
hins vegar eytt í Sorpu.
Viðræðu-
nefnd ISI og
Óí lögð niður
EGGERT Magnússon, formaður
yiðræðunefndar íþróttasambands
íslands og Ólympíunefndar íslands
vegna hugsanlegrar sameiningar
þeirra, telur að sameiningarmálið
sé í réttum farvegi hjá sérsambönd-
unum, héraðssamböndunum og
íþróttabandalögunum og hefur því
lagt nefndina niður.
Eggert tilkynnti nefndarmönnum,
framkvæmdastjórn ÍSÍ og fram-
kvæmdastjórn Óí ákvörðun sína
skriflega og gerði framkvæmda-
stjóm ISÍ ekki athugasemd við gang
mála en stjórn ÓI hefur ekki fjallað
um ákvörðun formannsins.
Nefndin var skipuð í kjölfar
íþróttaþings fyrir tveimur árum og
hefur lagt fram drög að lögum
„nýrra“ samtaka en þau verða tek-
in fyrir á íþróttaþingi sem verður á
Akranesi 26. og 27. október og á
aðalfundi Óí, sem verður væntan-
lega í janúar á næsta ári.
■ íþróttaþing/26
ÞREFALDUR 1. vinningur
NT4.0