Morgunblaðið - 24.09.1996, Síða 1
96 SIÐUR B/C
217.TBL.84.ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mikil átök brjótast út í Pakistan
Bhutto segir um
samsæri að ræða
Islamabad, Karachi. Reuter.
ÁTÖK brutust út að nýju í Pakistan í gær eftir að vopnaðir menn réðust
inn í mosku súnní-múslima og drápu 21 mann sem þar var á bæn. í kjöl-
farið myrtu súnní-múslimar einn af leiðtogum shíta-múslima í hefndar-
skyni. Þá skaut lögregla að stuðningsmönnum bróður Benazir Bhutto
forsætisráðherra, sem myrtur var fyrir helgi. Bhutto segir morðið sam-
særi gegn fjölskyidu þeirra.
Herlið var kallað til að stilla til
friðar við moskuna í borginni Mult-
an þar sem morðin voru framin, en
auk hinna látnu særðust fjölmargir.
Var sett á útgöngubann en reiður
múgur hlýddi því engu, barðist við
lögreglu og réðst inn í hverfi shíta-
múslima. Súnní- og shíta-múslimar
hafa háð blóðuga baráttu um nokk-
urra ára skeið en um 15% Pakist-
ana eru shítar en meirihluti lands-
manna súnní-múslimar.
Bhutto ber lof á bróðurinn
Átökin í Multan urðu á sama tíma
og lögreglan átti í átökum við stuðn-
ingsmenn Murtaza Bhutto í Lark-
ana, heimabæ systur hans, forsætis-
ráðherrans. Fullyrtu stuðningsmenn
hans í gær að lögregla hefði myrt
Murtaza Bhutto og ellefu stuðnings-
menn hans en lögregla segist hafa
skotið á þá í sjálfsvörn.
Benazir Bhutto lýsti því yfir í
gær að morðið á bróður hennar
væri samsæri gegn Bhutto-fjöl-
skyldunni. Systkinin skildu að
skiptum fyrir nokkrum árum er
bróðir hennar klauf sig út úr Þjóðar-
flokknum sem systir hans fer fyrir
og stofnaði eigin flokk. Fór Benaz-
ir fögrum orðum um bróður sinn.
„Við völdum ólíka leið en sama blóð
rann í æðum okkar,“ sagði hún og
lýsti Murtaza sem miklum baráttu-
manni fyrir lýðræði.
Fjármálaráðherrar ESB
Refsað fyrir
fjárlagahalla
Frankfurt. Reuter.
THEO Waigel, fjármálaráðherra
Þýskalands, sagðist í gær vera
ánægður með það rammasam-
komulag um aukið aðhald í ríkis-
íjármálum er náðist á fundi fjár-
málaráðherra ESB um helgina.
Fjármálaráðherrar og seðla-
bankastjórar ESB-ríkjanna kom-
ust á fundi í Dublin að samkomu-
lagi um að fjárlagahalli í þeim
ríkjum, sem hyggja á þátttöku í
hinum efnahagslega og peninga-
lega samruna Evrópu (EMU),
megi ekki fara yfir þrjú prósent.
Fari fjárlagahalli fram úr þessu
marki verður viðkomandi ríki
beitt refsiaðgerðum.
Einungis er um rammasam-
komulag að ræða og munu vinnu-
hópar vinna að frekari útfærslu
þess á næstu mánuðum.
Þetta samkomulag er talið vera
sigur fyrir Þjóðveija sem hafa
lagt ríka áherslu á að ekki verði
hvikað frá ýtrustu kröfum í pen-
ingamálum í tengslum við EMU.
Greinir á um „sektina“
Sérfræðingar á ijármálamörk-
uðum Evrópu sögðu niðurstöðu
fundarins benda til að Evrópu-
sambandinu væri alvara með
EMU-áformin en mikilvægt væri
að refsiaðgerðir gegn brotlegum
ríkjum yrðu ekki einungis til
málamynda.
Þjóðveijar hafa lagt til að ríki
verði látin greiða sekt er nemur
0,25% af vergri þjóðarframleiðslu
fyrir hvert prósent sem flárlög
fara yfir mörkin. Framkvæmda-
stjórnin leggur hins vegar til að
sektin nemi 0,1-0,2% af vergri
þjóðarframleiðslu.
Reuter
ÖRYGGISVÖRÐUR gægist út um hliðgrindurnar við sjúkrahúsið í Moskvu þar sem Jeltsín er til
rannsóknar. Læknar segja nú, að forsetinn sé svo heilsuveill, að hugsanlega verði því frestað í
nokkra mánuði að gera á honum hjartauppskurð.
Kommúnistar gera harða hríð að Rússlandsforseta
Krefjast þess að
Jeltsín seiri af sér
Moskvu. Reuter. ^^mm^J
LEIÐTOGAR rússneskra kommún- QlolrofSlir nin íirí hjartaáfa11- Læknirinn kvartaði
ista gerðu í gær harða hríð að Borís OctlVdU U1 Ulll dU yfir því að forsetinn hefði ekki hvílst
Jeltsín forseta og sögðu að hann yrði
að segja af sér vegna heilsubrests.
Þeir sökuðu forsetann og stuðnings-
menn hans um að hafa villt um fyrir
kjósendum með því að leyna hjartaá-
falli sem hann er sagður hafa fengið
skömmu fyrir kosningamar í júlí.
Rússneski skurðlæknirinn Renat
Aktsjúrín skýrði frá því um helgina
að Jeltsín hefði að öllum líkindum
fengið hjartaáfall skömmu fyrir síð-
ari umferð forsetakosninganna 3.
júlí og Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sagði þetta sýna að
Jeltsín hefði villt um fyrir kjósendum.
„Þetta jafngildir svikum. Kosning-
arnar fóru ekki heiðarlega fram,“
sagði Zjúganov.
Gennadí Seleznjov, forseti Dúm-
unnar, neðri deildar rússneska þings-
ins, sagði að Jeltsín ætti að segja
hafa villt um fyrir
kjósendum
af sér ákvæðu læknar hans að skera
hann ekki upp og segðu honum að
hafa enn hægar um sig en hann
hefur gert í sumar til að forðast of
mikið álag. „Ástandið í Rússlandi er
þannig að forsetinn getur ekki dreg-
ið úr störfum sínurn," sagði
Seleznjov.
Aktsjúrín, sem talinn er líklegastur
til að skera Jeltsín upp, sagði um
helgina að læknarnir kynnu að fresta
skurðaðgerðinni um alit að tvo mán-
uði þar sem henni fylgdi meiri áhætta
en talið var í fyrstu. Ennfremur væri
hugsanlegt að hætt yrði við aðgerðina
og forsetanum ráðlagt að forðast of
mikið álag til að koma í veg fyrir
nægilega að undanfömu, m.a. farið
á veiðar í byijun mánaðarins.
Óttast valdabaráttu
Ummæli læknisins urðu til þess
að verð rússneskra hlutabréfa lækk-
aði um 3% í gær. Sérfræðingar í
Moskvu sögðu að vestrænir fjárfest-
ar hefðu áhyggjur af pólitísku óviss-
unni og losuðu sig við hlutabréf frem-
ur en að kaupa ný.
Margir sérfræðingar í rússneskum
stjórnmálum telja að atkvæðamiklir
stjórnmálamenn í Kreml hafi þegar
hafið baráttu um forsetaembættið á
bak við tjöldin og hætta sé á að
valdabaráttan lami stjórnkerfið með
alvarlegum afleiðingum fyrir efna-
hag landsins.
■ Gætu þurft að fresta/19
Stund
milli stríða
MEÐ vopnahléinu í Tsjetsjníju
er lífið þar farið að hafa sinn
vanagang, að minnsta kosti að
sumu Ieyti. Fyrir nokkrum vik-
um barðist hún Amina við rúss-
neska hermenn en um helgina
brá hún sér í brúðarkjól og
gekk að eiga sinn heittelskaða.
Fyrir athöfnina og meðan beðið
var eftir mannsefninu sat hún
fyrir ásamt nokkrum vopna-
bræðra sinna.
Rcuter
Mikil mannekla
í heilsugæslunni
Ósló. Morgunblaðið.
ERTU hjúkrunarfræðingur og hef-
urðu áhuga á góðum launum? Þann-
ig er spurt í Noregi um þessar
mundir því að þar vantar 3.500
hjúkrunarfræðinga og annað
heilsugæslufólk til starfa auk um
400 lækna. Er nú verið að leita að
þessu fólki í útlandinu.
Ted Hanisch hjá norsku vinnu-
málaskrifstofunni hefur stjórnað
leitinni og til að bytja með hefur
hann beint henni að Svíþjóð, Finn-
landi, Irlandi og Hollandi.
Eins og fyrr segir vantar um
3.500 heilsugæslustarfsmenn í Nor-
egi, þar af um 3.000 hjúkrunar-
fræðinga, og talið er að innan
skamms muni ekki vanta 400 lækna
til starfa eins og nú, heldur 1.000.
Auk góðra launa er fólki boðið
ódýrt húsnæði og leikskólapláss og
framhaldsmenntun þess auðvelduð.