Morgunblaðið - 24.09.1996, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Elliðaárnar enn undir smásjá fisksjúkdómafræðinga
Kýlaveiki greindist
í gönguseiðum í vor
KÝLAVEIKI kom upp í gönguseið-
um í keri við Elliðaárnar í vor og
fannst einnig í tveimur hoplöxum á
leið til hafs. Vísindamenn eru því
undrandi á því að kýlaveikin hafi
ekki komið upp í göngufiski í sumar.
Gísli Jónsson fisksjúkdómafræð-
ingur á Keldum telur það samspil
heppni og fleiri þátta, en ekki sé
trúlegt að laxastofn Elliðaánna hafi
komið sér upp ónæmi á svo skömm-
um tíma. Samkvæmt reynslu Skota
og Norðmanna taki það laxastofna
a.m.k. 3-5 ár að koma sér upp ein-
hvers konar vörn við veikinni.
Gísli sagði að ytri aðstæður í Ell-
iðaánum hefðu um tíma í sumar
verið ósköp svipaðar og í fyrra er
kýlaveikin færðist í aukana. „Við
erum afar undrandi að veikin hafi
ekki skotið upp kollinum og ég geri
ráð fyrir að það sé heppni og það
að aðstæður hafa þróast þannig að
veikin hefur ekki greinst."
Að sögn Gísla hefur í sumar verið
strangt eftirlit frá upphafí og vand-
lega fylgst með laxi, bæði í ánni og
afla veiðimanna. Tveir sjúkir laxar
náðust úr ánni í byrjun maí er hop-
lax var tekinn og hugsanlegt er að
tekist hafi að hreinsa árnar að því
marki að smit tók sig ekki upp í
göngufiski. „Úr þessu er ekki líklegt
að veikin komi upp á þessu ári, en
næsti prófsteinn verður er við kreist:
um klaklaxa úr ánni í nóvember. í
fyrra reyndust 14 af 110 klaklöxum
vera sýktir, eða um 8% prósent, sem
var svipað hlutfall og kom fram í
afla um sumarið miðað við heildar-
gönguna samkvæmt teljaranum,"
segir Gísli.
Kýlaveikin í gönguseiðum
Kýlaveikin reyndist vera fyrir
hendi í ánum í maí. Auk tveggja
hoplaxa sem áður var getið, kom
veikin upp í öðru tveggja kera þar
sem geymd voru gönguseiði sem
fyrirhugað var að sleppa í árnar.
Samtals voru seiðin um 4.000 og
er veikin greindist var þeim öllum
fargað.
Aðgerðir þær sem hafist var
handa við í fyrra til að halda kýla-
veikinni sem best í skefjum halda
áfram í haust. Dregið verður á hylji
neðan Árbæjarstíflu og laxi fargað,
en náttúrulegt klak þar fyrir ofan
látið óáreitt.
Eyðilegging
í Hólakoti
BÖRNIN á nágrannaleikskólan-
um Suðurborg guðuðu á glugga
barnaheimilisins Hólakots í gær
til að virða fyrir sér hinar miklu
skemmdir sem urðu í eldi á
sunnudag. RLR telur að kveikt
hafi verið í húsinu og sást þar
til mannaferða áður en eldur
kom upp. Elínborg Þorláksdótt-
ir, annar tveggja leikskóla-
stjóra, kveðst telja húsið ónýtt
að útveggjum undanskildum, en
ætlunin er að endurbyggja það.
„Bruninn hefur mikil áhrif á
starfsemina hjá okkur. A Hóla-
koti eru 23-24 börn á aldrinum
þriggja til sex ára, og við þurft-
um að hafa samband við for-
eldra þeirra og óska eftir að
þeir héldu börnunum henna
mánudag og þriðjudag. f sam-
vinnu við stjórn Dagvistar
barna erum við að leita úrræða
og munum trúlega byija með
dagskrá fyrir börnin í sal, sem
er hér innan veggja Suðurborg-
ar, á morgun,“ segir hún.
Stal á ann-
að hundr-
að núm-
eraplötum
SEXTÁN ára réttindalaus öku-
maður var handtekinn um helg-
ina eftir að lögreglan uppgötv-
aði að hann ók um með fölsk
skráningarnúmer. í fórum pilts-
ins fundust á annað hundrað
bílnúmeraplötur sem hann hafði
tekið ófijálsri hendi.
Ökumaðurinn viðurkenndi að
hafa stolið plötunum úr gámi á
svæði endurvinnslufyrirtækis-
ins Hringrásar í Sundahöfn.
Hann játaði að hafa tekið fleiri
plötur og við leit í bílskúr á
heimili hans fundust 114 núm-
eraplötur til viðbótar, þannig
að telja má að sögn lögreglu
að hann hafi verið birgur fyrir
lífstíð af bílnúmerum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu hefur Bifreiðaskoðun
íslands í áranna rás sent notað-
ar númeraplötur eða af afskráð-
um bifreiðum til endurvinnslu
og hafa plöturnar verið geymd-
ar í gámi í Sundahöfn áður en
þær fá nýjan tilgang í nýrri
mynd.
Bifreiðin sem númeraþjófur-
inn ók er í eigu bróður hans
og leikur grunur á að pilturinn
hafí tekið hana án leyfis. Piltur-
inn kvaðst hafa sett fölsk núm-
er á til að geta ekið um á óskoð-
uðum bíl og ekki hafi annar
tilgangur og verri legið að baki.
• •
Oruggur
skáksigur
á Kanada
Jerevan. Morgunblaðið.
ÍSLENSKU skákmennirnir á
Ólympíuskákmótinu í Jerevan
voru fljótir að ná sér eftir hinn
slæma skell gegn Bandaríkj-
unum í sjöttu umferð og unnu
öruggan sigur á Kanada í sjö-
undu umferð.
Þröstur Þórhallsson hafði
betur gegn Lawrence Day,
Hannes Hlífar sigraði Yan Tep-
litsky, Helgi Ölafsson vann
Livshits, en Margeir Pétursson
og Kevin Spraggett skildu jafn-
ir. Úrslitin urðu því 3Vi - Vi.
■ Snögg umskipti/11
Esjuskaflinn
ekki horfínn
ENN er að finna skafl þann í
Esju sem þar hefur verið um
áratuga skeið, að sögn Reynis
Eyjólfssonar lyfjafræðings og
áhugamanns um náttúrufræði,
en fyrir skömmu héldu menn
sem skoðað höfðu fjallið því
fram að hann væri horfinn.
Reynir gekk upp á fjallið á
laugardag og segir skaflinn
minni en nokkru sinni frá því
að hann hóf að fylgjast með
honum fyrir aldarfjórðungi, en
þó sjáist hann vel, jafnvel með
berum augum úr talsverðri fjar-
lægð.
Ekki horfið í 32 ár
„Páll Bergþórsson veður-
fræðingur segir að skaflinn
hafi ekki horfið alveg síðan
1964 og hann hefur verið til
staðar síðan ég hóf að fylgjast
með honum fyrir 25 árum. I
raun er um tvo skafla að ræða
og er sá nyrðri stærri, eða um
30 metrar á lengd og 17 metrar
á breidd þar sem hann er breið-
astur. Sá syðri er um 15 metrar
á lengd og 7 metrar á breidd,
sem er miklu minna en vant er,
sem bendir ótvírætt að mínu
mati til hlýnandi veðurfars,“
segir Reynir.
Skaflinn eða skaflarnir eru í
svo kölluðu Gunnlaugsskarði,
hvilft í fjallinu, en þaðan rennur
Kollafjarðaráin niður með
Kistufelli. I þessari hvilft safn-
ast fýrir mikill snjór að vetrar-
lagi. Reynir kveðst telja það
óskiljanlegt með öllu að menn
sem voru að svipast um eftir
skaflinum hafi ekki séð hann,
og telur helst þoku um að kenna
eða öðrum ástæðum ókunnum.
„Skaflinn, jafn lítill og hann
er i dag, sést greinilega með
berum augum frá Reykjavík,
þar sem á annað borð sést inn
í Gunnlaugsskarðið, og meira
að segja frá Hafnarfirði þar
sem ég bý, eða í 25 kilómetra
fjarlægð, sést hann vel. Ég ótt-
ast að skaflinn fari alls ekki í
haust, enda farið að kólna.“
Breytt notkun Safnahúsinss samþykkt í ríkisstjórn
Þjóðmenningarhús við
Hverfisgötu árið 2000
RÍKISSTJÓRNIN hefur, að tillögu
menntamálaráðherra, ákveðið að
Safnahúsið við Hverfisgötu í Reykja-
vík verði þjóðmenningarhús í fram-
tíðinni. Ólafur Davíðsson, ráðuneyt-
isstjóri í forsætisráðuneytinu, segir
að gert sé ráð fyrir að þjóðmenning-
arhúsið hýsi fastar og tímabundnar
sýningar frá helstu söfnum. Þjóð-
menningarhús heyrir undir forsætis-
ráðuneytið.
Ólafur tók fram að hugmyndin
væri að annars vegar hefðu helstu
söfn, t.d. Þjóðminjasafn, Listasafn
og Ámastofnun, fasta aðstöðu til
að kynna sýnishom muna í þjóð-
menningarhúsinu. Hins vegar myndi
þriggja manna hússtjórn þjóðmenn-
ingarhússins taka ákvörðun um
stærri tímabundnar sýningar.
Hann sagði að ákvörðun um
breytta starfsemi í húsinu væri tekin
með góðum fyrirvara svo hægt yrði
að finna núverandi starfsemi aðra
aðstöðu. Nú er í Safnahúsinu lestrar-
salur, afgreiðsla og eldri skjöl Þjóð-
skjalasafns íslands. Auk þess eru
enn geymd þar varaeintök bóka í
eigu Landsbókasafnsins. Miðað er
við að ný starfsemi geti tekið við í
húsinu árið 2000.
Þriggja manna hússtjórn
Salome Þorkelsdóttir, fyrrverandi
forseti Alþingis, veitir þriggja
manna hússtjórn forystu. Aðrir
nefndarmenn eru Jóhannes Nordal,
FORSÆTISNEFND Alþingis ákvað
á fundi í gær að Jónshús skuli áfram
vera miðstöð félags- og menningar-
starfs íslendinga í Kaupmannahöfn.
Þá var Karli M. Kristjánssyni,
fulltrúa Alþingis í stjórn Jónshúss,
falið að gera tillögur um breytingar
á rekstri þess en jafnframt lögð
áhersla á gott samstarf við Islend-
fyrrverandi Seðlabankastjóri, og Ól-
afur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður.
Hússtjórnin hefur fengið Guðmund
Magnússon, forstöðumann upplýs-
ingasviðs Þjóðskjalasafns, til að hafa
umsjón með undirbúningsstarfinu.
Á mánudag, 23. september, voru
90 ár liðin frá því Hannes Hafstein,
ráðherra íslands, lagði hornstein að
Safnahúsinu við Hverfisgötu.
ingafélögin í Kaupmannahöfn. Á
fundi forsætisnefndar var húsregl-
um breytt þannig að sendiherra Is-
lands í Kaupmannahöfn er ekki leng-
ur sjálfkrafa formaður hússtjórnar.
Á næstunni mun forsætisnefnd
skipa nýja þriggja manna stjórn þar
sem formaður núverandi stjórnar
hefur sagt upp störfum.
Jónshús áfram miðstöð
félagsstarfs Islendinga