Morgunblaðið - 24.09.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 13
Eldsvoði í miðbæ Akureyrar á sunnudagsmorgun
Skemmtistaðurinn 1929
stórskemmdist í eldi
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
SIGURÐUR Sigurðsson starfsmaður skemmtistaðarins 1929 var
að tína sótsvartar vínflöskurnar af barnum en ljóst er að þessi
mjöður verður ekki drukkinn.
Slökkviliðsmenn rufu þakið á
húsinu, en stórt og mikið háaloft
er yfir húsinu. „Ég vildi opna þakið
og hleypa út brunagasi áður en til
sprengingar kæmi,“ sagði Tómas
Búi.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
kannar eldsupptök og sagði Gunnar
Jóhannesson að þau væru ókunn,
en rannsókn stæði yfir. I fljótu
bragði virðist þó sem eldur hafi
ekki kviknað út frá rafmagni.
Kór Tónlistarskólans
Jólaóratóría Bachs
meðal verkefna
NÝJA BÍÓ, við Ráðhústorgið í
miðbæ Akureyrar, stórskemmdist í
eldi snemma á sunnudagsmorgun.
Síðustu ár hefur verið rekinn
skemmtistaður í húsinu, 1929, en
hann dregur nafn sitt af bygging-
arári hússins. Um áratugaskeið var
þama annað af tveimur kvikmynda-
húsum bæjarins. Þá urðu skemmdir
í Levi’s búðinni sem er í sömu húsa-
lengju, en búið var að pakka niður
öllum vörum verslunarinnar. Mála
þarf húsnæðið áður en nýjar vörur
verða teknar inn. Einnig urðu
nokkrar reykskemmdir á Kaffi
Torginu sem er á hæðinni fyrir ofan
Levi’s búðina. Þar þarf einnig að
mála að nýju og hreinsa innan-
stokksmuni og rafmagnstæki fyrir-
tækisins. Aðrar verslanir í húsaröð-
inni sluppu án skemmda.
Tilkynnt var um eld til Slökkvi-
liðsins á Akureyri laust efir kl. 8 á
sunnudag en þá skömmu áður höfðu
starfsmenn í hreinsunardeild heyrt
mikinn dynk innan dyra og jafn-
framt sáu þeir eld skjótast úr um
hurðarfalsinn á aðaldyrum hússins.
Starfsfólk 1929 hafði verið að störf-
um í húsinu fram á morgun, eða
fram undir kl. fimm.
Mikill dökkur reykur
Tómas Búi Böðvarsson sagði að
þegar tilkynnt var um atburðinn
hafi eldur staðið út úr skýli yfir
neyðarútgangi bak við húsið. „Þeg-
ar við komum að er töluverður eld-
ur í skýlinu en við voru fljótir að
slökkva hann og fóru reykkafarar
þá inn í húsið,“ sagði Tómas Búi
en reykkafarar voru að sögn hissa
á hversu lítill hiti var innandyra.
„Það var afskaplega dökkur reykur
inni í húsinu og erfitt að sjá nokk-
uð. Það var lítill eldur inni í hús-
inu, en mikill og svartur reykur.“
Eldur var í kringum senuna og þá
var nokkur eldur í millilofti, í pan-
el, reiðingi og hefilspóni. „Þegar
við komum var greinilegt að eldur-
inn hafði kraumað lengi í húsinu,
hann hafði brennt innan úr því
öllu.“
KÓR Tónlistarskólans á Akureyri
er að hefja vetrarstarfið um þessar
mundir. Æft er einu sinni í viku, á
miðvikudagskvöldum frá kl. 18 til
20 á sal Tónlistarskólans við
Hafnarstræti 81, 4. hæð.
Fyrsta verkefni vetrarins verður
Jólaóratóría Cachs sem verður flutt
með einsöngvurum, kór og hljóm-
sveit skömmu fyrir jól.
Kórinn samanstendur af nem-
endum og kennurum tónlistarskól-
ans ásamt öðru áhugasömu söng-
fólki.
Áhugasamir nýliðar eru boðnir
velkomnir til starfa og hvattir til
að mæta á næstu æfingar, en nán-
ari upplýsingar gefur stjórnandi
kórsins, Michael Jón Clarke, heima
eða í tónlistarskólanum.
£F*
Stjórntækniskóli Islands
Höfdabakka 9
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjorntækmskoii islands^ll
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í markaðs-
fræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi
kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað
fólki, sem vill bæta við sig þekkingu og fá innsýn í heim
markaðsf ræðan na.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér
markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi og nái
þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru próf
í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða reynslu við
kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar:
Markaðsfræði. Stjórnun og sjálfstyrking.
Sölustjórnun og sölutækni. Auglýsingar.
Vöruþróun.
Töivunotkun í áætlanagerð.
Vörustjómun. Viðskiptasiðferði.
„Ég mæli með
náminu fyrir alla
þá, er starfa við
markaðs- og
sölustörf. Ég
hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár
og námskeiðið hefur nýst mér
vel í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið."
Elísabet Ólafsdóttir,
Eggert Kristjánsson hf.
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
- kjarni málsins!
mar|<aðs. Solu-,
upplýsinga-, skipulags-, og/
eða framleiðslumálum sinna
fyrirtækja."
Hendricus Bjarnason,
Skýrr
Barnakór Glerárkirkju
Æfingar
hafnar
UNDANFARNA vetur hefur verið
starfandi barnakór í Glerárkirkju á
Akureyri. Hlutverk kórsins er að taka
mánaðarlega þátt í fjölskylduguðs-
þjónustum í kirkjunni auk þess sem
kórinn hefur heimsótt elliheimili og
sjúkrahús um jólin. Þá hefur barna-
kórinn sungið á aðventukvöldum og
á tónleikum með Kór Glerárkirkju,
Starf Barnakórs Glerárkirkju
verður með líku sniði í vetur og verð-
ur fyrsta æfingin á morgun, mið-
vikudaginn 25. september kl. 15.30
í Glerárkirkju og eru öll áhugasöm
börn velkomin. Kórstjóri Barnakórs
Glerárárkirkju er Jóhann Baldvins-
son organisti.
U0gg- og gólfflísa
flísaverzlun
Nýbýlavegi30 rkópavogi • $(mi 554 6800
■
Verö frá
39300 kr.
'Innifalið: Fluý, ýisting ogflugvallarskattar.
Helgardvöl í heimsborg
fyrir líkama og sál
Listasöfn, leikhús og
lífsins lystisemdir
Boston
| Haföu samband viö söluskrifstofur okkar, umboösmenn, ferða-
skrifstofurnar eða söludeild Flugleiða í síma SO SOÍOO
(svarað mánud. - föstud. kl. 8-19 og á laugard. kl. 8 -16).
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
á mann í tvíbýli í 3 daga
í nóvember*.