Morgunblaðið - 24.09.1996, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Framkvæmdir við nýja 750 milljóna fiskimjölsverksmiðju á Akranesi ganga vel
Afköstin aukast
um helming
Unnið er að stækkun fískimjölsverksmiðju
Haraldar Böðvarssonar hf. á Akranesi og
eru framkvæmdimar vel á veg komnar.
Afköst munu stóraukast og gæði afurðanna
batna. Jón Gunnlaugsson ræddi við Harald
Sturlaugsson framkvæmdastjóra.
HINAR miklu byggingarfram-
kvæmdir, sem nú er unnið að við
fiskimjölsverksmiðju Haraldar Böð-
varssonar hf. á Akranesi, eru langt
komar og byggingin farin að taka á
sig mynd svo um munar. Fram-
kvæmdir hafa staðið frá vormánuð-
um og allar tímaáætlanir staðist.
Gert er ráð fyrir að þeim ljúki í jan-
úar 1997 en um þær mundir eru 60
ár liðin frá því verksmiðjan var reist.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri HB hf., segir að um
nokkurt skeið hafði verið kannað
hvemig standa bæri að hugsanlegum
breytingum á gömlu verksmiðjunni
og hvaða valkostir væru í boði. Hann
segir viðhaldskostnað verksmiðjunnar
hafa verið orðinn of mikinn, einkum
vegna aldurs hennar og eins hafí ver-
ið óviðunandi að bræðslulykt hafí oft
legið yfír bænum þegar framleiðsla
var í gangi og gerði fólki lífíð leitt.
„Þá var það ekki síður vilji okkar
að geta aukið afkastagetu verksmiðj-
unnar,“ segir Haraldur. „Við hófum
athuganir á valkostum fyrir alvöru
um sl. áramót og í framhaldi af þeim
var ákveðið að hefjast handa við
framkvæmdir sem eru í tjórum meg-
inatriðum. í fyrsta lagi er skipt úr
háhitaþurrkun í lághitaþurrkun sem
gerir verksmiðjuna nánast mengun-
arlausa, í öðru lagi á að auka fram-
leiðslugetuna úr 550 tonnum á sólar-
hring í um 1000 tonn, í þriðja lagi
‘áðstefna um bætta
samkeppnisstöðu Islands
Hver er staða íslands í alþjóðlegri samkeppni? Hvað eru nájgrannaþjóðir að gera?
Hvert stefnum við? Er nóg að gert? Atvinnulífið a 21. öldinni.
Lítil og meðalstór fyrirtæki. ^Einkavæðing. Einföldun laga og reglugerða.
Stuðningskerfi atvinnulífsins. Áhættufjármagn. Upplýsingatækni. Rannsóknir.
Þróun. Menntun. Verðmætasköpun. Atvinna. Ný tækifæri.
Ráðstefna á Scandic Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 26. september kl. 9:00-16:00
Fyrirlesarar
Frá Bretlandi
Frá OECD
Frá Kanada
Frá Danmörku
Frá Noregi
Frá íslandi
Fundarstjórar
JL'
i
Dr. R.C. Dobbie, framkvæmdastjóri samkeppnis-
hæfnisdeildar forsætisráðuneytisins
Hans Peter Cassmann, framkvæmdastjóri iðnaðarsviðs OECD
Jerry Beausoleil, framkvæmdastjóri
stefnumörkunardeildar iðnaðarráðuneytisins
Christian Motzfeldt, forstöðumaður
efnahagsdeildar iðnaðarráðuneytisins
Tor Hernæs, forstöðumaður stefnumótunardeildar
iðnaðar- og orkumálaráðuneytisins
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra
Davíð Scneving Thorsteinsson, formaður nefndar
um lítil og meðalstór fyrirtæki og samkeppnishæfni atvinnulífsins
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða,
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur ASÍ
Vigdís Wangchao Bóasson, MBA, viðskiptaráðgjafi
Páll Kr. Pálsson, forstjóri Sólar
Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Sjávarútvegsstofnunar HÍ
Skráning er hjá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, sími 560 9420.
Aðgangseyrir kr. 8.500 - nádegisverður innifalinn.
íQíSVi
FyrTrlestrar erlendra gesta á ensku, en jafnóðum snúið á íslensku.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti / Fjánnálaráðuncytið
Nefiid um li'tíl og meðalstór íyrirtæki og .samlceppni.shæfiii atvinnulílsins.
VERKSMIÐJUSVÆÐIÐ eins og það leit út áður
en framkvæmdirnar byrjuðu.
er verið koma fyrir hráefnistönkum
með geymslurými fyrir um 3000 tonn
sem síðar verður aukið í 5500 tonn
og í fjórða lagi er verið að setja upp
fjóra mjöltanka sem eiga að geta
tekið um 4000 tonn af mjöli.
Mjöltankar 32 metrar á hæð
Nú þegar framkvæmdir eru komn-
ar vel á veg er ljóst hve gríðarmiklar
breytingar hafa orðið á verksmiðju-
svæðinu. Mest áberandi eru hinir
nýju mjöltankar sem verið er að reisa,
en hver um sig er 8 metrar í þver-
mál og 32 metrar á hæð og ofan á
þá kemur síðan færibandahús og
verður lyfta upp í það. Tankarnir
setja orðið mikinn svip á Akranes,
ekki síður en sementstankarnir í
næsta nágrenni. Sérstakur losunar-
búnaður verður settur upp í tönkun-
um, þannig að hægt verður að setja
mjölið beint á stóra flutningabíla eða
blása því beint um borð í skip og
mun þá nánast öll sekkjun mjöls
leggjast af.
Fullkominn mengunarbúnaður
Stálgrind hins nýja vélahúss er
komin upp og klæðningu hennar að
mestu lokið. Þessi bygging er röskir
800 m2 að grunnfleti og um 11500
m3 að stærð. Vegghæð frá gólfi til
lofts er 13,5 m. I húsinu verða tveir
lághitaþurrkofnar með framleiðslu-
getu fyrir allt að 1000 tonna hráefni
á sólarhring ásamt miklum öðrum
búnaði. Að sögn Haraldar munu úr
1000 tonn af hráefni fást um 200
tonn af hágæðamjöli.
Byggingarframkvæmdum við hús-
ið er að ljúka þessa dagana og mun
þá uppsetning tækja hefjast og
standa fram í janúar. „Við höfum
lagt mikla áherslu á að sá mengun-
arbúnaður, sem settur er upp, verði
sá fullkomnasti sem völ er á og
munu bæjarbúar á Akranesi vonandi
verða lítt varir við að verksmiðjan sé
í starfrækslu nema þeir spyijist fyrir
um það, sjá skipin koma fulllestuð
að landi eða sjái smá gufuvott stíga
úr reykháfunum,“ segir Haraldur.
Nýir hráefnisgeymar
Þriðji stóri verkþátturinn er svo
bygging tveggja 1500 tonna hráefn-
isgeyma og verður byggingu þeirra
lokið á þessu ári. Fyrirhugað er að
þriðji geymirinn verði byggður síðar
og einnig sérgerður beinatankur sem
getur tekið bein og afskurð úr
vinnslusölum frystihússins svo og af
skipunum. „Við gerum ráð fyrir að
þegar byggingu tankanna lýkur verði
aðstaða til að geyma í verksmiðjunni
um 6500 tonn af hráefni eða sem
svarar tæplega viku vinnslugetu,"
segir Haraldur. Samfara byggingu
tankanna og vélahússins hefur verið
nauðsynlegt að fara í ýmsar aðrar
framkvæmdir eins og t.d. að færa
rafmagnsspennistöð og stækka
hana, byggja stálgrindarhús til að
losa úr mjöltönkunum, koma fyrir
nýrri fráveitulögn fyrir kælivatn og
sjókælivatnslögn, byggja hús fyrir
soðkjarnatæki, stækka stjórnstöð og
þá er einnig verið að byggja starfs-
mannahús, þar sem er hreinlætisað-
staða og aðstaða til fataskipta fyrir
starfsmenn. AIls verða byggðir um
20.000 rúmmetrar af húsum og tönk-
um samfara þessum breytingum og
segir Haraldur að áætlaður kostnað-
ur við framkvæmdirnar verði um 750
milljónir króna.
Norðmenn með gömul tengsl
Það er ráðgjafafyrirtækið Hönnun
og ráðgjöf hf. á Egilsstöðum sem
annaðist frumhönnun þessa verks, en
það fyrirtæki hafði góða reynslu af
byggingu á fískimjölsverksmiðjum,
bæði á Fáskrúðsfirði og Eskifirði.
Eftir að leitað hafði verið tilboða í
smíði og uppsetningu þurrkofna var
ákveðið að taka tilboði norsks fyrir-
tækis. „Það er skemmtileg tilviljun,"
segir Haraldur, „að upphafsmaður
þessa norska fyrirtækis var sam-
starfsmaður Haraldar Böðvarssonar
á fyrstu áratugum þessarar aldar og
einn þeirra sem var hluthafí í Haraldi
Böðvarssyni & Co á fyrstu árum fyrir-
tækisins." Samstarfsaðili þessa
norska fyrirtækis á íslandi er Héðinn
Smiðja hf. í Reykjavík. Undirstöður
mjöltankanna sem er mikil fram-
kvæmd og flókin og að hluta til unn-
in undir sjávarmáli önnuðust Tré-
smiðjan Kjölur hf. og Steypustöð
Þorgeirs og Helga hf. á Akranesi.
Tankarnir sjálfír eru smíðaðir hjá
Héðni hf. og sjá þeir um uppsetningu
þeirra. Það sama á við um vélahúsið,
það kemur tilsniðið frá Englandi og
er sett upp af starfsmönnum Héðins
hf. Vinnu við undirstöður hússins
annaðist Trésmiðjan Kjölur hf.
Allt gengið samkvæmt áætlun
Eins og fram hefur komið hafa
framkvæmdir gengið vel og nánast
eftir áætlun og hafa engin vand-
kvæði orðið enn, sem koma í veg
fyrir að tímaáætlanir standist. Har-
aldur Sturlaugsson segir að með
þessum framkvæmdum og endurbót-
um verði betri nýting á loðnukvóta
skipanna, en afkastageta skipanna
hefur oft ekki verið nýtt sem skyldi.
Þá á verksmiðjan að geta skilað verð-
meiri afurðum ásamt auknum af-
köstum og allt þetta ætti að geta
stuðlað að því að greiða niður fjár-
festingarkostnaðinn af framkvæmd-
inni á ásættanlegum tíma.
I
í
I
I
I
I
í
I
M
c
(
i
i
í
i
A
fí
<
A
I
I
(
(
(