Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Villeroy & Boch-verslun
opnuð í Kringlunni
HEILDVERSLUNIN Jóhann
Ólafsson & Co. opnaði á laugar-
dag nýja verslun með Villeroy &
Boch vörur í Kringlunni. Versl-
unin er 4 um 70 fermetra rými
á annarri hæð, andspænis útibúi
Pósts og síma.
I versluninni er boðið upp á
úrval af borðbúnaði, hnífapör-
um, kristalsglösum, þ.á.m. elsta
matarstellið frá Villeroy & Boch
sem fyrirtækið setti á markað
við stofnun árið 1748. Þá getur
verslunin einnig tekið við sér
pöntunum í aðrar vörur frá fyrir-
tækinu. Villeroy & Boch-fyrir-
tækið ákvað nýverið að breyta
útliti og innréttingum verslana
sinna um allan heim og er versl-
unin í Kringlunni önnur í röðinni
sem opnar með hinu nýja fyrir-
komulagi. _
Jóhann Ólafsson & Co. hefur
annast heildsöludreifingu á vör-
um frá Villeroy & Boch undan-
farin 50 ár. Engar breytingar eru
fyrirhugaðar á heildsöludreif-
ingunni, en vonir eru bundnar
við að nýja verslunin muni styðja
við núverandi og væntanlega
dreifingaraðila.
A myndinni eru Fríða Björg
Þórarinsdóttir, Margrét Marin-
ósdóttir og Linda Björk Stefáns-
dóttir, verslunarstjóri í nýju
versluninni.
Sölumaður
óskast til að selja norrænt merki - tákn - sem er hand-
unnin eftirlíking af „víkingaskipinu Oseberg"
- beint til fyrirtækja og stofnana.
Sími 00 47 22 11 54 55, símbréf 00 47 22 69 40 43.
4
Morgunverðarfundur
miðvikudaginn 25. sepfember 1996
kl. 8.00 - 9.30, í Sunnusal Hótels Sögu
RÍKID 0G EINKAAMLAR
■ ÓJÖFN SAMKEPPNI?
Sífellt koma upp árekstrar milli fyrirtækja í eigu opinberra aðila
og einkaaðila, Búa opinberu fyrirtækin við óeðlilega góð
samkeppnisskilyrði eða passa þau ekki inn í nútíma
markaðsþjóðfélag? Verða opinberu fyrirtækin einkavædd?
Er hægt að láta alla sitja við sama borð?
Framsögumenn:
Valur Valsson, bankastjóri Islandsbanka
Guðmundur Björnsson, aðstoðar póst- og símamálastjóri
Jónas Fr. Jónsson, aðstoðarframkvstj. Verslunarráðs
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Umræður og fyrirspurnir
Fundargjald er kr. 1.200 (morgunverður innifalinn).
Fundurinn er opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram
í síma Verslunarráðsins, 588 6666 (kl. 8.00-16.00).
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
Ný hverfisteypuvél vígð á 25 ára afmæli Borgarplasts
Samruni við Sæplast
ekki á dagskrá
Morgunblaðið/Ásdís
FINNUR Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra ræsir nýja hverfi-
steypuvél Borgarplasts í 25 ára afmælishófi þess.
STJÓRNARFORMAÐUR Borgar-
plasts hf. sakar samkeppnisaðila
fyrirtækisins um að ásælast vörur
þess og fjölfalda þær lítt breyttar.
Hann telur vænlegra að opna fyrir-
tækið almenningi en að ræða sam-
runa eða innlimun í önnur fyrirtæki.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra ræsti eina af fimm stærstu
hverfisteypuvélum í Evrópu í 25 ára
afmælishófi Borgarplasts hf. á
föstudag. Hófið var haldið í glæ-
nýrri 900 fm viðbyggingu fyrirtæk-
isins á Seltjarnarnesi og sóttu það
rúmlega 600 manns.
Með véibúnaðinum þrefaldast
núverandi framleiðslugeta fyrir-
tækisins og er honum m.a. ætlað
að framleiða endurvinnanleg ker til
útflutnings. Mun fyrirtækið leggja
megináherslu á að selja kerin til
kjöt- og matvælaframleiðenda í
Evrópu.
Borgarplast ákvað að minnast
tímamótanna m.a. með þeim hætti
að gefa grunnskólum heimabæja
sinna, Seltjarnarness og Borgar-
ness, tölvubúnaðinn Ritþjálfa, en
hann er lítil fistölva með textaskjá,
og nýtist sem kennslutæki í staf-
setningu, tungumálanámi og reikn-
ingi. Fékk hvor skóli tólf Ritþjálfa
að gjöf frá Borgarplasti.
Skotið á Sæplast
í afmælishófinu fjallaði Margeir
Daníelsson, stjórnarformaður fyrir-
tækisins, á hispurslausan hátt um
þá samkeppni er ríkir í hverfisteypu-
framleiðslu hérlendis og duldist
fáum, sem á hlýddu, að þar var fast
skotið á Sæplast hf. á Dalvík, helsta
samkeppnisaðila Borgarplasts.
Hann greindi m.a. annars frá því
að Borgarplast hefði árið 1989 kynnt
nýja tegund fiskikera úr þöndu Poly-
ethylene en enginn hefði haft áhuga
og því hefði verkefnið verið lagt til
hliðar. „í dag eru þetta kölluð endur-
vinnanleg fískiker og frumkvöðlamir
og uppfínningamennirnir orðnir allt
aðrir.“
Margeir fjallaði einnig um fram-
leiðslu fyrirtækisins á hverfimótuð-
um endurvinnanlegum plastvöru-
brettum og sagði að ekki væri vitað
til þess að sú tækni, sem þar var
beitt til að ná upp burði í þeim,
hefði verið notuð áður. „Borgar-
plast hefur aldrei sótt um einka-
leyfi á framleiðsluvörum sínum og
kemur varla til greina að gera slíkt.
Nokkuð hefur borið á því í seinni
tíð að aðrir framleiðendur eru byij-
aðir að ásælast vörur fyrirtækisins
og byijaðir að ljölfalda þær lítið
breyttar."
Stundum verður að berjast
í Morgunblaðinu hefur komið
fram að framkvæmdastjóri Sæ-
plasts vill kanna samstarfsmögu-
leika og jafnvel samruna við Borg-
arplast. í ræðu Margeirs var það
sérstaklega tekið fram vegna blaða-
viðtala við framkvæmdastjóra Sæ-
plasts að hugur hluthafa Borgar-
plasts stæði um þessar mundir ekki
til samruna við önnur fyrirtæki eða
að láta innlima sig. „Vænlegra er
talið að opna fyrirtækið almenningi
sé brýn þörf á slíku eða ef eigendum
þess dytti í hug að opna utibú, í
Austurlöndum íjær eða Ástralíu.
Samkeppnin hér innan lands á þeim
markaði, sem Borgarplast starfar
hefur farið sívaxandi og er það af
hinu góða, sé hún háð á heilbrigðum
grundvelli. Nokkuð hefur borið á
því að undanförnu að menn hafi
gleymt sér í hita leiksins og er það
verra. Borgarplast mun sem fyrr
hafa í heiðri heilræði Hræreks kon-
ungs í kvæði Davíðs Stefánssonar
er þar segir: Þeir, sem stríði vilja
veijast, verða stundum fyrst að
beijast," sagði Margeir.
Fjórði áfangi í sölu húsnæðisbréfa
Tilboði Kaupþings
og Kaupþings Norð-
urlands tekið
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins
hefur ákveðið að ganga að tilboði
verðbréfafyrirtækjanna Kaup-
þings hf. og Kaupþings Norður-
lands hf. um sölu á húsnæðisbréf-
um á síðasta fjórðungi þessa árs,
en samtals er áætlað að selja hús-
næðisbréf fyrir einn milljarð króna
í þessu útboði. Samanlögð sala
húsnæðisbréfa á árinu mun þá
nema fimm milljörðum króna.
Með tilboðinu ábyrgjast verð-
bréfafyrirtækin sölu á húsnæðis-
bréfum til 42 ára fyrir að minnsta
kosti 500 milljónir króna og sölu
á húsnæðisbréfum til 24 ára fyrir
að minnsta kosti 200 milljónir.
Ávöxtunarkrafan á fyrrnefndu
bréfunum er 0,08 prósentustigum
undir meðaltali kaupávöxtunar-
kröfu annarra verðbréfafyrirtækja
í húsbréf við opnun viðskipta hvern
dag og á síðarnefndu bréfunum
er ávöxtunarkrafan 0,02 prósentu-
stigum lægri.
Guðrún Eggertsdóttir, hjá Hús-
næðisstofnun ríkisins, sagði að það
hefðu ráðið mestu um að tilboði
Kaupþings hf. og Kaupþings
Norðurlands hf. var tekið hversu
mikil sala var tryggð i húsnæðis-
Húsnæðisbréf
Byggingarsjóðs
verkamanna árið 1996
Meðalávöxtunarkrafa (%) og
kaupverð með söluþóknun
bréfum til 42 ára. Að öðru leyti
hefðu tilboð verðbréfafyrirtækj-
anna í sölu húsnæðisbréfanna ver-
ið svipuð.
Lækkanir
vegna
uggs um
hærri vexti
London. Reuter.
TALSVERÐAR lækkanir urðu
á helztu hlutabréfa- og gjald-
eyrismörkuðum Evrópu í gær
vegna áhrifa frá Wall Street
og uggs um að aðhald í útlán-
um verði ákveðið á mikilvæg-
um fundi um mótun stefnunnar
í peningamálum í Bandaríkjun-
um.
í New York lækkaði Dow
Jones kauphallavísitalan um
50 punkta á nokkrum fyrstu
mínútunum eftir opnun. Fjár-
festar óttast neikvæð áhrif
vaxtahækkunar í efnahags-
málum og minni hagnað 1997.
Staðan í Wall Street hafði lag-
azt nokkuð við lokun markaða
í Evrópu.
Við lokun í London hafði
verð helztu hlutabréfa lækkað
um 1,12% í 3919.7 punkta, en
viðskipti voru tiltölulega lítil. Á
föstudag hafði FTSE 100 vísi-
talan lækkað um 10 punkta
eftir að hafa komizt hæst í
3994.1 um daginn og munaði
litlu að hún færi yfir 4000
punkta.
í Frankfurt lækkaði verð
þýzkra hlutabréfa um tæplega
1%. DAX lækkaði um 19.06
punkta í 2627.04. í París urðu
einnig lækkanir.