Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 17

Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 17 Islandsbanki kaupir AlphaServer tölvur ÍSLANDSBANKI hefur gert samning við Digital á íslandi ehf. um kaup á nýjum AlphaServer tölvum. Samningurinn felur í sér uppfærslu á tveimur af móður- tölvum bankans auk einnar nýrr- ar. AIIs verða sjö AlphaServer tölv- ur í þjónustu bankans á næstunni og segir Karl Wernersson, fram- kvæindastjóri Digital á Islandi, að ráðist hafi verið í kaupin vegna stóraukinnar tölvuvinnslu hjá bankanum. „Með nýju AlphaSer- ver vélunum verður hægt að sinna mun fleiri viðskiptavinum samtím- is og svartími ætti að styttast þar sem afköstin fimmfaldast." Eftir uppfærsluna verður aðal- tölva bankans AlphaServer 8400 með tveim gjörvum og 512MB vinnsluminni og segir Karl að þetta sé afkastamesta tölva lands- ins. Á meðfylgjandi mynd sjást Karl Wernersson og Haukur Oddsson, forstöðumaður tölvu- deildar Islandsbanka, handsala samninginn. Fólk Breytingar hjá IS um áramót • HÖSKULDUR Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Iceland Sea- food Ltd. í Evrópu, mun í árs- byijun 1997 taka við starfi fram- kvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs hjá Islenskum sjávarafurð- um hf. Hann mun bera ábyrgð á sölu- og markaðs- málum á öllum mörkuðum ÍS. A undanförnum árum hefur Sæmundur Guð- mundsson aðstoðarforstjóri ÍS, einnig stýrt markaðs- og sölu- sviði Islenskrar sjávarafurða. Vegna mikillar aukningar á um- svifum ÍS, m.a í fjarlægum heimshlutum, þykir nú ástæða til að styrkja yfirstjórn fyrirtækisins og jafnframt að efla markaðs- þáttinn enn frekar. Frá l.janúar 1997 mun Sæmundur alfarið helga sig starfi aðstoðarforstjóra og mun hann starfa náið með Benedikt Sveinssyni, forstjóra ÍS, að daglegri stjórnun og eftir- liti með rekstri, segir í frétt frá fyrirtækinu. Höskuldur Ásgeirsson er fædd- ur árið 1952. Hann útskrifaðist sem fiskitæknir frá Fiskvinnslu- skólanum árið 1976 og lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Is- lands árið 1983. Höskuldur stundaði framhaldsnám við Heneley Business School í Eng- landi og lauk þaðan mastersprófi í rekstrarhagfræði (MBA) árið 1989, með sérstakri áherslu á markaðsfræði. Hann var for- stöðumaður söluskrifstofu Ice- land Seafood Ltd. í Boulogne- sur-Mer í Frakklandi á árunum 1987 til 1992. Frá því í desember 1992 hefur Höskuldur verið framkvæmdastjóri Ice'.and Sea- food Ltd. með aðsetur í Hessle í Englandi, en jafnframt ábyrgur fyrir svæðisskrifstofu í Þýska- landi og Frakklandi. Höskuldur er kvæntur EIsu Þórisdóttur förðunarmeistara og eiga þau þijú börn. Stóll með stíl! Staflanlegur stóll fyrir hótel, skóla, ráðstefnusali og samkomuhús. Staðgreiðsluverð: 9.800 kr. 108 Reykjavík, sími 553 2035 - kjarni málsins! Hagnaður Fiat minni Mílanó. Reuter. FIAT hefur skýrt frá því að hagnaður á fyrri árshelmingi hafi minnkað um 28% og gerir ráð fyr- ir að hagnaður á árinu í heild verði minni en í fyrra. Hagnaður Fiats fyrir skatta á fyrri árshelmingi minnkaði í 1.547 billjónir líra eða 67 milljarða króna, en að frádregnum aukagróða 1995 minnkaði hagnaðurinn fyrir skatta 1996 um aðeins 12,6%. Hagnaðurinn varð minni vegna mikilla fjárfestinga í nýjum gerð- um bifreiða og dráttarvéla, lægðar á ítölskum bílamarkaði, sem ekki sér fyrir endann á, og sterkari stöðu lírunnar. Hækkun lírunnar olli 450 milljarða líra rýrnun á hagnaði. Fiat býst við aukagróða á síðari árshelmingi. í ráði er að selja 40% hlutabréfa í New Holland drátta- véla- og landbúnaðarvélafyrirtæk- inu eða önnur fyrirtæki óviðkom- andi kjarna starfseminnar. Bílasala Fiats jókst um 6,4% í 1.226 milljónir vegna markaðssetn- ingar Bravo/Brava línunnar í lok síðasta árs. Hlutdeild á Evrópu- markaði jókst í 11,9% úr 11,5%. Fundur um samkeppm einkaaðila og ríkis VERSLUNARRAÐ Islands efnir til morgunverðarfundar á morgun, miðvikudaginn 25. september, í Sunnusal Hótels Sögu þar sem fjall- að verður um grundvallarspurningar varðandi stöðu hins almenna at- vinnu- og viðskiptarekstrar í landinu í samkeppni við hið opinbera. Fram kemur í frétt að í þessu samhengi sé ótal spurningum ósvarað varðandi nánustu framtíð, beina samkeppnisstöðu einkarekst- urs og opinbers reksturs, hvað hið opinbera ætlast fyrir og hvaða kröfur, tillögur og aðgerðir samtök atvinnu- og viðskiptalífsins hafi uppi. Á fundi Verslunarráðsins verða þessi mál reifuð af þeim Vali Vals- syni, bankastjóra íslandsbanka hf., Guðmundi Björnssyni, aðstoðar póst- og símamálastjóra, Jónasi Fr. Jónssyni, aðstoðarframkvæmda- stjóra VI, og Finni Ingólfssyni, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra. Fundurinn á miðvikudaginn stendur frá kl. 8.00 til 9.30. Hann er opinn, en nauðsynlegt er að til- kynna þátttöku fyrirfram til skrif- stofu Verslunarráðsins. ER BÓKHALDSKERFIÐ OF HÆGVIRKT? Þú færð betri svörun ó CONCORDE með t a AlphaServer Digital á íslandi Vatnagardar 14-104 Reykjavík Sími 533-5050 - Fax 533-5060

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.