Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Tíu tonn af sprengi-
efni í verksmiðju IRA
London. Reuter.
Endurtalning
í Bosníu
Kjör Izet-
begovic
staðfest
Sar^jevo, Jusici. Reuter.
ENDURTALNING í kosningunum í
Bosníu staðfesti að Alja Izetbegovic,
forseti Bosníu, hlaut flest atkvæði
til forsætisráðsins, þótt mjótt væri á
mununum á honum og Bosníu-Ser-
banum Momcilo Krajisnik. Ekki er
þó hægt að staðfesta úrslitin form-
lega fyrr en farið hefur verið yfír
þau enn einu sinni og ljóst er að
ekki berast fleiri kærur. Er búist við
að það verði ekki fyrr en um næstu
helgi, að sögn Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, sem hafði eftirlit
með kosningunum.
Virt eftirlitsstofnun, ICG, sagði á
föstudag að atkvæðatölur í kosning-
unum í Bosníu um síðustu helgi
bentu til þess að kjörsóknin hefði
verið um 103%.
Stofnunin sagði að kjörsóknin á
svæðum múslima, Serba og Króata
hefði reynst svo mikil að hún gæti
ekki staðist. „Einkum gætu músl-
imarnir hafa verið duglegir við að
setja falsaða kjörseðla í kjörkassana
vegna þess að þeir vildu fyrir alla
muni að Alija Izetbegovic bæri
sigurorð af Momcilo Krajisnik".
Talsmaður ÖSE sagði að ábend-
ingar ICG yrðu teknar til rækilegrar
athugunar. „Augljóslega hefur eitt-
hvað brugðist einhvers staðar." Var
það vegna fjölda dæma um villur í
talningu sem ákveðið var að efna
til endurtalningar.
Samkvæmt henni hlaut Izet-
begovic 731.024 atkvæði en Kraji-
snik 690.130 atkvæði. Bosníu-Kró-
atinn Kresimir Zubak hlaut 329.891
atkvæði til forsætisráðsins.
Múslimar ögra Serbum
Yfírvöld Bosníu-Serba gáfu hópi
múslima í gær nokkurra tíma frest
til að yfirgefa þorpið Jusici, sem
þeir bjuggu í áður en Bosníustríðið
braust út. Múslimarnir, um 100 tals-
ins, voru vopnaðir og hugðust flytja
aftur inn í hús sín, sem nú eru á
yfírráðasvæði Bosníu-Serba.
Talsmenn Qölþjóðaliðs IFOR
sögðu að vissuiega kvæði Dayton-
friðarsamkomulagið á um að flótta-
menn hefðu rétt til þess að snúa til
fyrri heimkynna, en þegar heimili
þeirra væru á svæðum þar sem
ástandið væri eldfímt, yrði að fara
að öllu með gát og sýna þolinmæði.
BRESKA lögreglan skaut írskan
hryðjuverkamann í áhlaupi á
nokkra felustaði liðsmanna írska
lýðveldishersins (IRA) í gærmorg-
un. Hald var lagt á um 10 tonn af
sprengiefnum. Talið er að með að-
gerðunum hafí verið komið í veg
fyrir yfírvofandi sprengjutilræði af
hálfu IRA í London.
Lögreglan handtók fimm manns
í áhlaupi sínu í dögun á felustaði í
London og suðurhluta Englands.
Auk um 10 tonna af sprengiefni,
nokkurra tilbúinn sprengja og fjölda
tækja til sprengjugerðar, lagði lög-
reglan hald á þrjá Kalashníkov-
rifla, tvær skammbyssur og tvo
sendibíla.
Sprengjurnar voru af þeirri gerð
sem IRA er þekkt fyrir, þ.e.
sprengjur sem faldar eru undir bíl-
um.
Sir Paul Condon, yfírmaður
Lundúnalögreglunnar, sagði að
komið hefði verið í veg fyrir stórtæk
tilræði af hálfu IRA, sem ráðgerð
hefðu verið fljótlega og hefðu getað
kostað fjölda mannslífa, gífurlegt
eignatjón og verulega röskun á
margs konar starfsemi.
Aðstoðarmaður Sir Pauls, David
Veness, gaf til kynna, að IRA hefði
ráðgert sprengjutilræði í London í
gær, mánudag, eða í dag. Síðasta
tilræði IRA var framið í Manchester
í júní en þar slösuðust á þriðja hund-
rað manns og eignatjón varð gífur-
legt. í bílsprengjunni, sem þá var
notuð, voru 1,5 tonn af sprengi-
efni, eða einungis einn sjötti þess
magns sem hald var lagt á í gær.
Uppgötvun lögreglunnar gerir
ennfremur að engu vonir um að IRA
hafí verið um það bil að lýsa að
nýju yfir TOpnahléi í deilunum um
Norður írland. Írskir fjölmiðlar
höfðu sagt undanfarið, að yfírlýsing
þess efnis væri yfírvofandi. John
Major forsætisráðherra sagði að
afrakstur áhlaups lögreglunnar
setti slíkar vangaveltur „í rétt sam-
hengi“. „Það er útilokað að finna
samsvörun í friðarhjali Sinn Fein
og morðáætlunum IRA,“ sagði
Major.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
stjómmálaarms IRA, sagðist gera
ráð fyrir því að vopna- og sprengju-
búrið, sem lögreglan fann, tilheyri
IRA.
Frakklandsferð páfa tókst betur en búist var við
Fjallaði ekki um
viðkvæm deilumál
París. Reuter.
HEIMSÓKN Jóhannesar Páls II páfa til Frakklands lauk
á sunnudagskvöld og þótti hún takast mun betur en
búist hafði verið við. Um 200.000 manns sóttu messu
páfa á sunnudag, tvöfalt fleiri en ráðamenn kirkjunnar
höfðu gert ráð fyrir en aðeins fáeinar þúsundir tóku þátt
í mótmælagöngum ýmissa hópa í París. Páfí forðaðist
að flalla um viðkvæm deilumál á borð við getnaðarvarn-
ir í ræðum sínum og hrósuðu fjölmiðlar honum fyrir
varkárnina.
Ferðin var farin í tilefni þess að minnst er 1.500 ára
sögu kristninnar sem ríkistrúar í landinu en talið er að
Clovis, konungur Franka, hafi láti skírast árið 496 þótt
margir efíst um sannleiksgildi þeirra frásagna. Þess
má geta að páfí notaði ekki virðingarheitið „Elsta dótt-
ir kirkjunnar" í ferð sinni að þessu sinni en fyrir það
var hann gagnrýndur árið 1980 í fyrstu heimsókn sinni
til landsins. Ríki og kirkja voru aðskilin með lögum
árið 1905 en mikill meirihluti Frakka segist þó vera
kaþólskur. Kirkjusókn er lítil og fáir taka tillit til margra
umdeildra skoðana páfans sem er m.a. mjög andvígur
notkun getnaðarvarna.
„Andstæðingar ferðarinnar efldu samheldni hinna
trúuðu með því að ráðast á Hinn heilaga föður,“ sagði
íhaldsblaðið Le Figaro í gær. „Heimsóknin gekk miklu
betur en okkur hafði órað fyrir,“ sagði talsmaður bisk-
uparáðsins í Frakklandi, Bernard Lagoutte. Hann vísaði
því á bug að ákveðið hefði verið að sníða ræður páfa
í ferðinni sérstaklega að aðstæðum í Frakklandi en viður-
kenndi þó að menn hefðu gætt þess að nota ekki
„hættuleg“ orð.
Þótt páfí væri þreyttur eftir erfíða dagskrá vakti það
athygli að hann virtist mun hraustari en hann hefur
verið undanfama mánuði.
Reuter
KAÞÓLSK nunna heldur á krossi sem á stendur
„Eitt hjarta" við messu sem Jóhannes Páll II
páfi hélt i Reims á sunnudag.
Forsætisráðherra um ESB-aðild
Ekki neikvæður, en
aðild ekki nauðsynleg
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagðist í svari við spumingu
sænsks blaðamanns á blaða-
mannafundi þeirra Görans Pers-
son, forsætisráðherra Svíþjóðar, í
gær, ekki vera neikvæður í garð
Evrópusambandsins. Aðild að því
væri hins vegar ekki nauðsynleg
fyrir Island.
Sænski blaðamaðurinn spurði
hvers vegna forsætisráðherra ís-
land væri svo neikvæður í garð
hugsanlegrar aðildar ísland að
ESB. Davið svaraði: „Ég er ekki
neikvæður í garð ESB. Þú hefur
hins vegar rétt fyrir þér um að
ég sé ekki að aðild að sambandinu
sé nauðsynleg fyrir ísland. Við
höfum EES-samninginn, sem færir
okkur aðild að 70-80% Evrópusam-
bandsins. Síðan er það spumingin
um þau áhrif, sem við fengjum
með aðild. Við höfum áhrif í gegn-
um EES, en fengjum dálítið meiri
***,gr.
EVROPA^
áhrif ef við ættum aðild að ESB.“
Missir áhrifa yfir sjávarútvegi
gegn litlum áhrifum í ESB
Davíð benti á að sjávarútvegur-
inn væri afar mikilvægur fyrir lífs-
kjör á íslandi. „Við myndum missa
áhrif okkar á sjávarútveginn, á
móti því að fá lítil áhrif í ESB.
Það er mín skoðun, og ég tel að
meirihluti íslenzkra stjórnmála-
manna sé mér sammála, að það
sé ekki nauðsynlegt fyrir okkur,
að minnsta kosti ekki á þessum
tíma, að sækja um aðild að ESB,“
sagði forsætisráðherra.
Clarke rýfur „vopna-
hlé“ í Evrópudeilum
íhaldsmanna
London. The Daily Telegraph.
ÁTÖKIN innan breska íhaldsflokks-
ins hafa magnast á ný eftir að Kenn-
eth Clarke fjármálaráðherra lýsti því
yfír að það væri „fáránlegt“ ef Bretar
útilokuðu þátttöku í hinum peninga-
lega samruna Evrópu (EMU) frá upp-
hafí og myndu þess í stað bíða og
sjá hvemig mál þróuðust. „Það væri
versta hugsanlega niðurstaðan ef
Bretar myndu líkt og venjulega ekki
geta gert upp hug sinn og gerast loks
aðilar á síðari stigum,“ sagði Clarke.
Sæmilegur friður hefur ríkt í
íhaldsflokknum síðustu mánuði enda
Ijóst að John Major forsætisráðherra
verður að boða til kosninga ekki síðar
en í maí á næsta ári. Gera jafnt Evr-
ópusinnar sem Evrópuandstæðingar
sér grein fyrir að harðvítug innan-
flokksátök myndu tryggja að flokkur-
inn biði ósigur í kosningunum. Nú
telja hins vegar sumir fréttaskýrendur
að „borgarastyijöld" sé í uppsiglingu
vegna yfírlýsinga Clarkes
Áður hafði Clarke lýst efasemdum
um að EMU-áformin yrðu að veru-
leika. Samkomulag evrópskra fjár-
málaráðherra í Dublin um helgina,
um aðgerðir til að stuðla að stöðug-
leika í ríkisfjármálum, þykir hins
vegar hafa aukið líkurnar á að sú
verði þrátt fyrir allt raunin. Sagði
Clarke í samtali við BBC á sunnudag
að hann teldi nú líklegt að sameigin-
legur gjaldmiðill liti dagsins ljós á
næstu þremur til fjórum árum.
Þingmaðurinn John Redwood sak-
aði Clarke um að rjúfa samstöðu
innan stjómarinnar og að samkomu-
lag væri um að halda öllum mögu-
leikum opnum. Þá sagði Tebbit lá-
varður að hugsanlega kynni að vera
skynsamlegt að skipta um fjármála-
ráðherra í ríkisstjóminni.
í síðustu viku gáfu sex fyrrum
áhrifamenn í íhaldsflokknum, lá-
varðarnir Carrington, Howe og
Whitelaw auk Leon Brittan, Douglas
Hurd og Edward Heath, út sameigin-
lega yfírlýsingu þar sem þeir segja
það stríða gegn þjóðarhagsmunum
Breta að útiloka þátttöku í EMU.
Útilokar
ekki sam-
starf
PADDY Ashdown, leiðtogi
Fijálslyndra demókrata í Bret-
landi, útilokaði í gær ekki sam-
starf við Verkamannaflokkinn
að loknum þingkosningum á
næsta ári, þótt hann segðist
telja slíkt ólíklegt. Vera kann
að flokkurinn verði í oddaaðp-
stöðu að kosningunum loknum.
Hart barist á
Sri Lanka
STJ ÓRN ARHERINN á Sri
Lanka drap eða særði yfír 200
tamílska skæruliða í mestu
átökum sem orðið hafa á milli
þessara tveggja fylkinga í rúm-
an mánuð. Réðist stjórnarher-
inn að vígi skæruliðanna á
norðurhluta eyjarinnar, sem
veittu harða mótspyrnu.
Strokupiltur
fundinn
FRÆGASTI strokupiltur Bret-
lands sneri aftur til síns heima
í gær en ekkert hafði þá spurst
til hans í tæpa viku. Það var
þýska Iögreglan sem stöðvaði
Peter Kerry, 15 ára, þar sem
hann hjólaði eftir hraðbraut þar
í landi, og sendi hann heim er
í ljós kom um hvern var að
ræða. Á síðasta ári tók Kerry
vegabréf og greiðslukort föður
síns traustataki og hélt til
Malasíu.
Israelum líkt
við risaeðlur
EGYPSKUR embættismaður
lét hafa eftir sér í gær að ísra-
elskir stjórnmálamenn væru
líkastir „risaeðlum" þegar þeir
ræddu ástand mála í Mið-Aust-
urlöndum. Það var aðstoðarut-
anríkisráðherra Egyptalands,
Fathi el-Shazli, sem lét þessi
orð falla í tilefni viðtals sem
Der Spiegel átti við Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra
Israels.
Sakar Vest-
urlönd um
samsæri
BANDARÍSK yfirvöld óskuðu í
gær skýringa á ásökunum Alex-
anders Lúkasjenkó, forseta
Hvíta-Rússlands, um að starfs-
menn vestrænna sendiráða
reyndu að draga úr stöðugleika
í landi hans. I sjónvarpsávarpi
á sunnudagskvöld sakaði Lúk-
asjenkó sendiherra Atlantshafs-
bandalagsríkja um að reyna að
koma í veg fyrir að ný stjómar-
skrá landsins sem borin verður
undir þjóðaratkvæði í nóvem-
ber, verði samþykkt.
Skemmdar-
verk djöfia-
dýrkenda
DJÖFLADÝRKENDUR veltu
um koll 155 legsteinum í
kirkjugarðinum í Norderhov,
norð-vestur af Ósló um helgina.
Þá máluðu þeir einnig tákn
djöfulsins á miðaldakirkjuna í
Ringerike. Talið er að ástæða
skemmdarverkanna sé sú að
um helgina voru haustjafndæg-
ur, sem djöfladýrkendur telja
hátíðisdag.