Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 33
GUÐNI
MAGNÚSSON
+ Guðni Magnús-
son fæddist í
Narfakoti í Innri
Njarðvíkum 21.
nóvember 1904.
Hann lést í Sjúkra-
húsi Suðurnesja
hinn 15. september
siðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Magnús Pálsson
útvegsbóndi og
kona hans, Stein-
unn Ólafsdóttir.
Systkini hans voru
Kristinn Jóel, f.
I 25.2.1893, d. 28.12.
1981; Sigurbjörn, f. 4.1. 1898,
d. 22.2. 1918; og Árnheiður, f.
2.9. 1900, d. 18.10. 1993.
Fyrri kona Guðna var Jóna
Jónsdóttir, f. 18.12. 1904, d.
18.7. 1939. Börn þeirra: 1)
Vignir, f. 30.8. 1931. Maki
Guðríður Árnadóttir. Börn
hennar frá fyrra hjónabandi:
Árni Jakob og Guðný. 2) Jón
Birgir, f. 14.7. 1939. Maki
Harpa Þorvaldsdóttir. Börn:
Jóna Björk, Sóley, Börkur, Ösp
og Burkni. Eftirlifandi kona
Guðna er Hansína Kristjáns-
dóttir, f. 8.5.1911. Börn þeirra:
3) Eiríkur, f. 3.4. 1945. Maki
Þorgerður Guðfinnsdóttir.
Börn: Guðfinnur, Guðni Magn-
ús, Hanna Rún og Oddný Lára.
4) Steinunn, f. 4.6. 1949. Maki
Neville Young frá Notting-
ham, Englandi. Börn: Hannes
Pétur og Tómas Viktor. 5)
Árnheiður Stefanía, f. 3.12.
1951. Maki Jónas H. Jónsson.
Börn: Guðni Hörðdal, Jón
Hörðdal og Samúel
Ilörðdal. 6) Ellert
Eiríksson (sljúp-
sonur Guðna,sonur
Hansínu frá fyrra
hjónabandi), f. 1.5.
1938. Maki Guð-
björg Sigurðar-
dóttir. Börn hans
frá fyrra hjóna-
bandi: Eiríkur, Jó-
hannes og Elva.
Börn hennar: Sig-
urður, Una og Páll.
Mestan hluta
sinnar starfsævi
stundaði Guðni
málarastörf í Keflavík. Hann
tók og virkan þátt í félags- og
fræðslumálum svo sem á vett-
vangi iðnaðarmanna, bindind-
ismanna, samvinnuhreyfingar
og sveitarsljórnar auk Rótarý
og Málfundafélagsins Faxa, en
hann var einn af stofnendum
þess. Hlaut hann margvíslegar
viðurkenningar fyrir störf sín.
Varð t.d. heiðursfélagi í Iðn-
aðarmannafélagi Suðurnesja
og Málarameistarafélagi
Reykjavíkur. í Rótarý hlaut
hann Paul Harris-orðuna og
árið 1982 var hann sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir störf sín að
félagsmálum. Hann safnaði
ýmsum fróðleik um sögu Suð-
urnesja og skrifaði margar
greinar, einkum í Faxa. Eftir
hann liggur og bókin Iðnaðar-
mannatal Suðurnesja.
Útför Guðna fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og
hefst atliöfnin klukkan 14.
Ung var ég þegar ég kom fyrst
inn á heimili Guðna og Hönnu með
Eiríki syni þeirra. Dálítið óörugg
og kvíðin leit ég á húsbóndann,
þennan háa, virðulega, þögula
| mann. En kvíðinn var fljótur að
| víkja og fljótt fannst mér ég eiga
heima í þessari stóru fjölskyldu.
Hann Guðni sagði aldrei mikið og
hafði aldrei hátt en ekki hafði ég
þekkt hann lengi þegar ég gerði
mér grein fyrir að þarna fór traust-
ur maður. Hann varð einn af hom-
steinunum í lífl mínu, bjarg sem
gott var að halla sér að. Handtakið
var þétt og faðmlagið hlýtt og við
vissum það öll að ef eitthvað bját-
i aði á var óhætt að leita til hans.
| Það var alltaf gott að koma á Suður-
götuna til Hönnu og Guðna og
ógleymanleg eru öll jólaboðin þar
sem stórfjölskyldan safnaðist sam-
an.
Síðustu árin var Guðni farinn að
kröftum en alltaf tók hann á móti
okkur með hlýja brosinu sínu, þegar
við komum í heimsókn. Hann hefur
nú fengið langþráða hvíld. Ég vil
þakka tengdaföður mínum fyrir
samfylgdina og bið Guð að styrkja
jj Hönnu á þessum erfiðu dögum.
Þorgerður Guðfinnsdóttir.
Hann afi er dáinn, við kveðjum
hann með söknuði en vitum að hann
var saddur lífdaga enda tæplega
92 ára. Afi var sá sem við ólumst
upp við að vert væri að taka okkur
til fyrirmyndar, hann var jafnlynd-
i ur, hæglátur, vinnusamur, orðhepp-
a inn og reglusamur. Við kynntumst
J honum öll, hvert á sinn máta, heima
hjá þeim ömmu og afa og eins unnu
Björk og Börkur með honum enda
lærðu þau málaraiðnina sem er svo
vinsæl í fjölskyldunni. Börkur minn-
ist kaffitímanna uppi á lager þegar
Jón Páll fletti „léttu“ tímaritunum
meðan hans alvörugefni afi Ias í
gömlum Faxa. Björk minnist þess
er afi fann að við hana að penslarn-
I ir hennar eyddust á ská, hún átti
j að snúa þeim á víxl til að nýta þá
til fulls; nýtnin var afa í blóð borin.
Það var alltaf gott að koma á
Suðurgötuna, maður var alltaf vel-
kominn og afi tók i höndina á okk-
ur með sinni stóru, hlýju hendi, um
leið og hann faðmaði okkur og
kyssti. Góðar minningar eru tengd-
ar samverustundum á Suðurgöt-
unni þegar ijölskyldan kom saman
þar um jól og fannst okkur mikið
til koma þegar afi spilaði á píanóið.
Afi mætti alltaf í allar veislur sem
hann var boðaður til og eins barna-
afmæli og fannst okkur systkinun-
um skrýtið þegar aðrir voru að
dást að því að langaafinn mætti í
afmæli barna okkar, okkur fannst
það svo sjálfsagt, við þekktum ekk-
ert annað en að afi væri alltaf til
taks og á meðan hann vann fulla
vinnu og sinnti félagsmálum fund-
um við aldrei fyrir því að hann
væri upptekinn og hefði ekki tíma
fyrir okkur.
Burkni er í Þýskalandi og getur
ekki kvatt afa með okkur í dag, en
sendir ömmu og fölskyldunni sínar
bestu kveðjur um leið og hann þakk-
ar afa fyrir allt.
Elsku amma, missir þinn er mik-
ill, en þú ert sterk sem fyrr og veist
að afi er kominn á góðan stað og
þökkum við honum samfylgdina.
Björk, Sóley, Börkur, Ösp,
Burkni og fjölskyldur.
Kær frændi hefur kvatt. Hann
kvaddi þennan heim hljóðlega en
hann var einmitt hljóðlátur maður
og traustur. Þú vissir hvar þú hafð-
ir þennan mann, það geta allir sem
þekktu hann tekið undir, en það er
ekki grafskrift sem hver og einn
verðskuldar. Guðni föðurbróðir
minn var gæfumaður þrátt fyrir að
hafa upplifað þá sorg að missa fyrri
konu sína frá tveim ungum sonum,
öðrum nýfæddum. Ég minnist þess
frá barnæsku minni þegar Jóna
heitin dó, þá var mikil sorg og sökn-
uður á æskuheimili mínu á Urðar-
stígnum í Hafnarfírði. Þegar ég svo
kom á Suðurgötuna í Keflavík
fannst mér ég sjá sorgina sem hafði
haft svo mikil áhrif. Ég sá hana
inni í stofu. Þar var stór silfurskjöld-
ur á svörtu flaueli hangandi uppi á
vegg og stór mynd af Jónu þar hjá.
Það birti svo aftur í lífí frænda
míns þegar hann kynntist seinni
konu sinni, henni Hönnu, en hún
var ekkja með einn son. Hanna var
sannkölluð guðsgjöf fyrir frænda
minn, alltaf hress, alltaf kát og
saman eignuðust þau þijú böm,
einn son og tvær dætur. Oll eru þau
systkin samheldin eins og alsystkin
væru enda var áreiðanlega ekki
gert upp á milli þeirra.
Guðni tók saman pistil um ævi
og uppruna foreldra sinna sem hann
kallaði „Hjónin í Garðbæ". Við ætt-
ingjarnir eigum honum þakkir að
gjalda fyrir þetta framtak sitt. Að-
allega held ég að unga fólkinu í dag
sé það holl lesning að vita hvernig
ævikjör forfeðranna vom þó ekki
fjær í tíma en þetta. Þá þekktust
ekki atvinnuleysisbætur og styrkir.
Afí fór á vertíð eins og svo margir
þurftu að gera. Hann fór t.d. sam-
fellt í 20 sumur austur á Borgar-
fjörð. Guðni var yngstur fjögurra
systkina, en faðir minn elstur. Bróð-
ir þeirra, Sigurbjörn, drukknaði tví-
tugur að aldrei þegar vélbátur sem
afi átti hlut í fórst og var það mesti
harmleikur fjölskyldunnar eins og
Guðni orðaði það í áðurnefndum
pistli. Systir þeirra bræðra, hún
Adda, var stoð og stytta foreldra
sinna meðan þeir lifðu. Hún gifti
sig um fimmtugt eins og reyndar
nafna mín og móðursystir gerðu en
þær áttu heima í Njarðvíkunum.
Ég á mynd af þessum frænkum
mínum í rósóttum kjólum þar sem
þær standa í blómstrandi túni geisl-
andi af hamingju og þetta tengist
minningunni um Guðna frænda, því
þá voru þau Hanna nýgift og sunnu-
dagsferðir fjölskyldu minnar voru
gjarnan til þeirra. Alltaf þegar ég
hitti Guðna mætti mér slík hlýja
og mér fannst alltaf að ég væri svo
sérstök í huga hans, eins og hann
var líka í mínum huga og þannig
minnist ég hans með þakklæti.
Ég og fjölskylda mín sendum
Hönnu og börnum þeirra öllum og
fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning frænda míns.
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr,
en hinn látni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna,
þeir eru himnamir honum yfír.
(Hannes Pét.)
Þórdís Kristinsdóttir.
brjóturinn óbifanlegi, sem baráttu-
öldurnar brotnuðu á.
Þrátt fyrir mikil umsvif, bæði í
félagsmálum og ævistarfi, var
Guðni hógvær, dulur og hlédrægur
að eðlisfari, svo undarlegt sem það
kann að virðast. En hæfileikar hans
til líkama og sálar urðu þess eigi
að síður valdandi, að til hans var
horft, til hans leitað og honum
treyst öðrum fremur þegar mikils
þurfti við. Og það sýndi sig jafnan
að hann reyndist traustsins verður
og vandanum vaxinn.
Guðrii Magnússon var drengur
góður í þess orðs bestu og fegurstu
merkingu. Og „þar sem góðir menn
fara, þar eru Guðs vegir“.
Eftirlifandi eiginkonu Guðna,
Hansínu Kristjánsdóttur, börnum
og öðrum ástvinum, sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur, fel þau
öll og framtíð þeirra góðum Guði
og bið þess, að þau megi huggun
hljóta og hugarstyrk, er þau lauga
sig í ljósi þeirra björtu og hjart-
fólgnu minninga, sem ástvinur
þeirra eftirlætur þeim.
Björn Jónsson, Akranesi.
Gamall og góður samtíðarmaður
er genginn.
Eg hitti Guðna fyrst upp úr 1940
þegar ég var um það bil að hætta
sjómennsku og ákvað að gerast
lærlingar í málaraiðn að ráði bróður
míns Jóhanns sem taldi mig ekki
efni í sjómann.
Um það leyti störfuðu þeir Guðni
og Jón Páll Friðmundsson málara-
meistari saman og höfðu gert frá
1930 og gerðu lengi eftir það.
Ég gerðist nemi hjá Jóni Páli og
það leiddi til þess að ég kynntist
Guðna betur en ella hefði orðið.
Mér varð fljótlega ljóst hvílíkur
mannkostamaður Guðni var og datt
í hug orðafar sem notað var fyrir
vestan „hann er eins og klettur úr
hafínu".
Guðni var hógvær, góður í um-
gengni, tilsögugóður, reglumaður,
góðum gáfum gættur og þrekmaður
mikill að hverju sem hann gekk.
Lítil saga sannar dugnað Guðna.
Þegar þeir félagarnir voru að
mála sjúkrahúsið lenti næsti nemi
á eftir mér, Jóhann R. Benedikts-
son, í því að lakka stórt loft með
penslum á móti Guðna og segist
hann aldrei hafa lent í erfiðari
keppni. Jóhann var um 25 árum
Ólíklegt þykir mér að margar ef
nokkrar góðtemplarastúkur hér á
okkar landi hafí átt styrkari for-
ystusveit en Stúkan Vík nr. 262 í
Keflavík á blómaskeiði sínu. Síst
er ofmælt, þótt staðhæft sé, að þar
hafi verið valinn öndvegismaður í
hveiju rúmi. Nú eru þeir flestir
horfnir yfír móðuna miklu. En
minningin um dáðrík hugsjónastörf
þeirra lifír og þau heillaspor, sem
þeir mörkuðu fram á strönd tímans
munu verða mörgum vegvísir til
gifturíkrar æviferðar.
Einn þessara traustu liðsmanna
í templarasveit var Guðni Magnús-
son málarameistari í Keflavík, sem
í dag er kvaddur að lokinni nær-
fellt aldarlangri æviför.
Guðni var sérstæður maður á
margan hátt og þeim ógleymanleg-
ur, sem eitthvað kynntust honum.
Hann var ljúfur í viðmóti, hýr og
hlýr í góðra vina hópi, fyndinn og
skemmtilegur og gat verið einstak-
lega orðheppinn og orðhagur, þegar
því var að skipta. Félagsmál lét
hann mikið til sín taka og alls stað-
ar þar sem hann lagðist á sveifina
var hann meðal þeirra, sem örugg-
ast og best var að treysta. Hann
var bæði spakvitur og gjörhugull,
ráðsnjall og réttsýnn, enda þóttu
tillögur hans og hugmyndir oft og
tíðum gulls ígildi til eftirbreytni.
Sama má um hann segja á vett-
vangi starfsins. Þar var hann
margra manna maki.
Ekki verður ofsögum af því sagt,
að Stúkan Vík hafi átt hauk í horni
þar sem Guðni var annars vegar.
Þótt aðrir virtust e.t.v. eins virkir,
jafnvel virkari í bindindisstarfinu
en hann, þá var hann eigi að síður
alltaf hinn trausti bakhjarl, brim-
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
IIÖTEL LOFTLEIBIH
yngri og vildi standa sig enda fræg-
ur fyrir dugnað og góðan árangur
í íþróttum gegnum tíðina.
En það var fleira sem Guðna var
til lista lagt en að vera góður og
duglegur fagmaður, hann kom víða
við í félagsmálum og einnig hafði
hann mikil afskipti af bæjarmálum.
Þar má nefna Kaupfélag Suður-
nesja, stúkuna Vík, Rótarýklúbb
Keflavíkur, Málfundafélagið Faxa
og Iðnaðarmannafélag Suðurnesja,
en hann var einn af stofnendum
þess og formaður í 9 ár. Guðni sat
mörg iðnþing fyrir Iðnaðarmanna-
félag Suðurnesja, bæði þegar hann
var formaður og einnig síðar, enda
var áhugi hans slíkur að hann var
sjálfsagður í þetta hlutverk og var
gerður að heiðursfélaga 1964.
Guðni safnaði efni í Iðnaðar-
mannatal Suðumesja, hefur skrifað
margar greinar í blöð, einkum
Faxa, og safnað fróðleik um sögu
Suðurnesja.
Keflavíkurverktarkar vom stofn-
aðir 1957. Nú starfa fjögur hlutafé-
lög undir þessu nafni út á við en
em samt sjálfstæð hvert í sínu lagi
og heita Byggingaverktakar Kefla-
víkur, Járn og pípul.verktakar
Keflavíkur, Rafmagnsverktakar
Keflavíkur og Málaraverktakar
Keflavíkur.
Guðni var með í að stofna Mál-
araverktaka og formaður stjórnar
í 21 ár eftir stofnun og þar af leið-
andi einnig í stjórn Keflavíkurverk-
taka.
Þama skilaði Guðni góðu starfi
og sannaði einu sinni enn að sama
var að hveiju hann kom, honum
lánaðist að stjóma vel og starfa
með öðrum svo öllum líkaði.
Við sem störfuðum með honum
á þessu tímabili, bæði hjá Keflavík-
urverktökum og eins félagar hans
í Málaraverktökum þökkum fyrir
langt og gott samstarf sem aldrei
bar skugga á.
Ég vil persónulega þakka for-r
sjóninni fyrir að hafa fengið að
verða samferða Guðna um svo langt
skeið.
Guðni á góða fjölskyldu, sem
aðrir gera skil, en ég vil minna
hana á að slíkan höfðingja er óþarfí
að gráta, hann er eins og klettur
úr hafínu og minningin um hann
mun lifa, þótt hann hnigi til foldar.
Þorbergur Friðriksson.
Islenshur efniviður
Islenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
Bi S. HELGAS0N HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGl 48 • SÍMl 557 6677