Morgunblaðið - 24.09.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 39
FRÉTTIR
St. Jósefs-
spítali 7 0 ára
ST. JÓSEFSSPÍTALI í Hafnarfirði.
ST. JÓSEFSSPÍTALI í Hafnar-
firði hélt upp á 70 ára afmæli
sitt 5. september sl. í tilefni af-
j mælisins var opnuð sýning er
I sýnir sögu spítalans í Smiðjunni,
Byggðasafni Hafnarfjarðar, og
I er hún opin daglega milli kl. 13
og 17 í september. Þá er fyrir-
huguð ráðstefna um heilbrigðis-
mál í Hafnarfirði í október í til-
efni afmælisins.
Haldið var upp á afmælið í sal
spítalans. Ræður voru fluttar,
hljómlist og söngur ómaði og
spítalanum voru færðar gjafir.
■ Starfsmannaráð hafði daginn
I áður afhent stjórn vígða kapellu
í spítalanum sem það hafði út-
' búið. Þá var afhjúpuð stytta af
heilagri Maríu sem áður stóð í
bakgarði spítalans en hafði nú
verið færð og staðsett fyrir fram-
an göngudeild andspænis spítal-
anum.
Þann 7. september var síðan
opið hús þar sem bæjarbúum var
kynnt starfsemi spítalans. Fjöldi
fólks kom og skoðaði húsakynni
og tæki. Flestir fengu einnig
blóðþrýstings- og blóðsykurs-
mælingu sem hjúkrunarfræðing-
ar önnuðust. Að kvöldi var starfs-
fólkinu boðið til afmælisfagnað-
ar.
Fyrir eitt hundrað árum komu
hingað til Iands systur af reglu
heilags Jósefs til starfa á meðal
erlendra sjómanna á Austfjörð-
um. Þær voru fjórar til að byrja
með en fljótlega bættust fleiri i
hópinn og aðrir staðir nutu
starfskrafta þeirra. Snemma
stofnuðu þær spítala í höfúð-
staðnum Reykjavík.
í Hafnarfirði var enginn spít-
ali starfræktur en mikil þörf fyr-
ir slíka stofnun. Árið 1921 keypti
kaþólska kirkjan jörðina Jófríð-
arstaði og var ákveðið að þar
skyldi reistur spítali sem Jósefs-
systur tækju að sér að reka.
Þremur árum síðar var hafist
handa við byggingu spítalans
sem Guðjón Samúelsson, þáver-
andi húsameistari ríkisins, hafði
teiknað. Sjúkrahúsið var byggt á
ótrúlega skömmum tíma og 5.
september 1926 var það vígt við
mikla athöfn.
Andi mannúðar sveif yfir allri
starfsemi spítalans þar sem syst-
urnar störfuðu af mikilli fórnfýsi
og gengu í öll störf á spítalanum.
Þær ráku spítalann allt til ársins
1987 er Hafnarfjarðarbær og
ríkissjóður tóku við rekstri hans.
Þótt nýir eigendur tækju við spít-
alanum og tekist hafi verið á um
rekstur hans í gegnum árin hefur
stefna systranna, rekstur í anda
mannúðar, ávallt einkennt spítal-
ann. Og á sjötiu ára ferli hefur
St. Jósefsspítali þjónað Hafnfirð-
ingum og öðrum landsmönnum
af alúð, segir í fréttatilkynningu
frá spítalanum.
■ VINÁTTUFÉLAG íslands og
Kanada heldur fund í Norræna
húsinu miðvikudagskvöldið 25.
september kl. 20.30 sem tengist
Kanada og Grænlandi. Einar
Bragi rithöfundur les úr þýðingum
sínum á bókmenntum grænlenskra
inúíta og Sigfús Jónsson, land-
fræðingur og leiðsögumaður í
Kanada, fjallar um Nýfundnaland
og Labrador. Einnig verða tónlistar-
atriði. Vináttufélag íslands og Kan-
anda og Grænlensk-íslenska félag-
ið, Kalak, standa að fundinum.
Fundurinn er opin og aðgangur
ókeypis.
■ HJÁLPARSVEIT skáta í
Hafnarfirði verður með kynning-
arfund í kvöld, þriðjudaginn 24.
september, á starfi sveitarinnar í
máli og myndum. Á fundinum gefst
fólki kostur á að sækja um inn:
göngu í nýliðaflokk sveitarinnar. í
vetur verða m.a. námskeið í skyndi-
hjálp, fjallamennsku, þyrlunotkun,
notkun áttavita o.fl. Fundurinn
verður haldinn í húsnæði sveitarinn-
ar að Hraunbrún 57, Hafnarfirði,
og hefst kl. 20.30. Allir þeir sem
áhuga hafa á að starfa með sveit-
inni og hafa náð 17 ára aldri eru
velkomnir.
Dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Engar líkamsmeið-
ingar um helgina
ENGIN líkamsmeiðing var til-
kynnt til lögreglu um helgina, en
það telst til tíðinda. Þrátt fyrir
flölgun á tilkynntum meiðingum
til lögreglu undanfarin ár, að
þessu ári þó undanskildu, hefur
dregið verulega úr alvarleika
áverkanna. Likamsmeiðingar eru
oftast afleiðingar slagsmála ölv-
aðs fólks sem þekkist eða rysk-
inga þeirra á millum. Oftast eiga
þessa meiðingar sér stað í heima-
húsum eða á veitingastöðunum.
Tilkynnt var um 12 innbrot og
17 þjófnaði, auk 20 eignarspjalla.
Þá var tilkynnt um þrjá bruna,
tvo minniháttar og einn meirihátt-
ar.
Afskipti voru höfð af 49 manns
vegna ölvunarháttsemi á al-
mannafæri og þurfti að vista 39
í fangageymslunum yfir helgina.
Tólf ökumenn, sem stöðvaðir
voru, eru grunaðir um ölvunar-
akstur. Umferðaróhöppin halda
áfram, en um helgina var tilkynnt
um tæplega 40 slík til lögreglu.
Þar af urðu meiðsli á fólki í fimm
tilvikum. Kvartað var 38 sinnum
vegna hávaða og ónæðis frá ölv-
uðu fullorðnu fólki, oftast vegna
hávaða innan dyra. Enga ungl-
inga undir 16 ára aldri var að
finna í miðborginni um helgina.
í innbrotum helgarinnar var
m.a. farið inn í bifreiðir við Fiski-
slóð og við Ánanaust. Þá var brot-
ist á skrifstofu við Síðumúla, bak-
arí við Hringbraut, íbúð við Rauð-
arárstíg, bílskúr við Víðihlíð, bif-
reiðaverkstæði við Funahöfða,
verslun við Hafnarstræti, fyrir-
tæki við Hverfisgötu, skóla við
Keilugranda og í skúra við Lauga-
veg. I fyrirtækinu við Hverfisgötu
var m.a. stolið tölvum, hugbúnaði
og öðru þvi er lýtur að gerð kvik-
myndar þannig að tjónið þar er
mun meira en ella. Fimm menn
voru handteknir eftir innbrotið í
Hafnarstræti. Um miðnætti á
laugardag brutust sex unglingar
inn í kjallara við Laugaveg og
stálu þaðan fjórum bjórkössum.
Tveir unglinganna náðust og voru
færðir á lögreglustöð.
Ökumaður var fluttur á slysa-
deild eftir harðan árekstur
tveggja bifreiða á gatnamótum
Amgrímsgötu og Guðbrandsgötu
á föstudagsmorgun. Síðdegis á
laugardag fóru ökumaður og far-
þegi á slysadeild eftir árekstur
tveggja bifreiða á Kringlumýrar-
braut við Miklubraut. Ekið var
yfir fót á stúlku í Pósthússtræti
aðfaranótt sunnudajgs. Hún var
flutt á slysadeild. A sunnudags-
kvöld voru ökumaður og farþegi
fiuttir á slysadeild eftir að hafa
ekið á ljósastaur við Ármúla.
Um hádegi á laugardag kom
upp eldur í færibandi í Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi þegar
reimar þess ofhitnuðu. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn og hlaust
lítið tjón af. Snemma á sunnu-
dagsmorgun var tilkynnt um reyk
frá barnaheimili við Suðurhóla.
Þar urðu miklar skemmdir af völd-
um elds. Grunur er um að kveikt
hafi verið í húsinu. Á sunnudags-
kvöld brann yfir straumbreytir
fyrir gólfþvottavél í verslun við
Holtagarða. Talsverður reykur
myndaðist, en enginn eldur.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
um að átta ljósker af fjórtán hefðu
verið brotin við þyrlubjörgunar-
pallinn austan Borgarspítalans.
Skemmdarverk gefa ærið oft til-
efni til að efast um andlegt heil-
brigði þeirra, sem að þeim standa,
en sá eða þeir sem að þessu
skemmdarverki stóðu þurfa alvar-
lega að athuga sinn gang.
Lögreglumenn lögðu hald á
hassbút eftir afskipti af fólki við
Laugaveg á föstudagskvöld. Þá
fundust tvö gr af amfetamíni á
ökumanni, sem stöðvaður var í
Vesturbergi á laugardagsmorgun.
í framhaldi af því var gerð hús-
leit í húsi við Miklubraut. Þar
fannst hassblandað tóbak, 80 töfl-
ur af meintu amfetamíni, hasspíp-
ur, kannabisfræ og fleira.
Tveir drengir voru handteknir
aðfaranótt laugardags eftir að
hafa unnið skemmdir á fjórum
bifreiðum við Ásvallagötu.
Um helgina var handtekinn
maður. Á bíl hans var óskráð
númer. í fórum hans fundust á
annað hundrað bílnúmeraplötur,
sem teknar höfðu verið úr gámi.
Lögreglan er nú að skoða
hvernig framkvæmd framhalds-
skólaskemmtana hefur gengið
fyrir sig, þ.e. hvort skilyrði leyfa
fyrir slíkum skemmtunum hafi
verið haldin og hvort þær vonir,
sem bundnar höfðu verið við jafn-
ingjafræðsluna, gætu skilað sér
þangað með einhverjum hætti.
Samstarf lögreglu, ökumanna,
foreldra og barna við upphaf
skólagöngu yngstu nemendanna
virðist hafa skilað góðum ár-
angri, a.m.k. hefur ekki verið til-
kynnt um slys á barni á þeim aldri
á leið í eða frá skóla á tímabilinu.
Það er von lögreglu að fólk haldi
vöku sinni og haldi áfram að fara
varlega þar sem vænta má skóla-
barna á ferð í skammdeginu. Full-
trúar lögreglunnar á Suðvestur-
landi koma saman í Kópavogi í
dag (þriðjudag). Þeir munu m.a.
ræða næstu sameiginlegu verk-
efni í umferðaröryggismálum
svæðisins.
Foreldrar og forráðamenn eru
beðnir um að vera vakandi fýrir
hugsanlegri misnotkun barna og
unglinga á kveikjaragasi, en þrjú
ungmenni voru staðin að því að
þefa af því fyrir helgina. Afleið-
ingar slíkrar neyslu geta orðið
mjög alvarlegar.
Á laugardagskvöld var tilkynnt
um að níu manns hefðu villst í
þoku á Esjunni. Tveir menn komu
niður þremur tímum seinna, en 7
voru aðstoðaðir niður síðasta spöl-
inn af björgunarsveitarfólki. Þá
var fólkið orðið þreytt og slæpt.
ATVINNIIA UGL YSINGA R
SJÚKRAHÚS
R.EYKJ AVÍ K U R
Hjúkrunarfræðingar
Heila- og taugaskurðlækningadeild
og háls-, nef- og eyrnadeild A-5
Hjúkrunarfræðingar óskast á heila- og tauga-
skurðlækningadeild og háls-, nef- og eyrna-
deild í Fossvogi.
Vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Bjarnveig Pálsdóttir
deildarstjóri í síma 525 1065 og Margrét
Tómasdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 525 1306.
Deild A-6
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á lyf-
lækningadeild A-6. Vinnuhlutfall og vaktafyr-
irkomulag eftir samkomulagi.
Deildin er almenn lyflækningadeild með
áherslu á hjúkrun sjúklinga með:
Innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma.
Lungnasjúkdóma.
Meitingarfærasjúkdóma.
Nýrnasjúkdóma.
Spennandi uppbyggingarstarf á deildinni er
framundan í vetur.
Nánari upplýsingar veita Guðrún Halldórs-
dóttir deildarstjóri í síma 525 1635 og Mar-
grét Björnsdóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 525 1555.
Barnadeild
Lausar eru tvær stöður hjúkrunarfræðinga á
barnadeild. Vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Ýmsir vaktamöguleikar koma til greina, m.a.
fastar kvöldvaktir. Unnið er 3ju hverja helgi.
Aðlögun er einstaklingshæfð og fer eftir
reynslu og þekkingu viðkomandi hjúkrunar-
fræðings.
Á deildinni eru 26 rúm og þar fer fram blönd-
uð starfsemi, bæði hand- og lyflæknishjúkrun.
Allar nánari upplýsingar veita Auður Ragn-
arsdóttir deildarstjóri í síma 525 1566 og
Margrét Björnsdóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 525 1555.
Hjúkrunardeild fyrir aldraða 1 -A
Hjúkrunarfræðingar óskast á hjúkrunardeild
fyrir aldraða á Landakoti. Vinnuhlutfall og
vaktafyrirkomulag eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Bryndís Gestsdóttir
deildarstjóri í síma 525 1912 og Anna Birna
Jensdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
525 1888.
Öldrunarlækningadeild 2-A
Hjúkrunarfræðingur óskast á öldrunarlækn-
ingadeild á Landakoti á kvöld- og helgarvakt-
ir. Vinnuhlutfall og vaktafyrirkomulag eftir
samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Guðbjörg Jóna Her-
mannsdóttir deildarstjóri í síma 525 1917
og Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í síma 525 1888.
Læknaritarar
Læknaritari óskast á röntgendeild í Fossvogi
í fullt eða hlutastarf. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi löggildingu sem læknaritari.
Læknaritari óskast á rannsóknadeild í Foss-
vogi í fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi
hafi löggildinu sem læknaritari.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Helgadóttir,
fulltrúi starfsmannaþjónustu, í síma 525 1949.