Morgunblaðið - 24.09.1996, Síða 52
RoC
WGMARKS Off'WM
ENCJNIlMEtN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Leikfang í
vanskilum
kom af stað
~sprengjuleit
í Leifsstöð
MIKILL viðbúnaður var í Leifsstöð
á Keflavíkurflugvelli þegar ræst-
ingafólk tilkynnti lögreglu að það
hefði séð plastpoka liggja á gólfi
í farþegasal flugstöðvarinnar um
kl. 20.30 í gærkvöldi. Talið var í
fyrstu að í pokanum gæti verið
sprengja.
Engir farþegar voru í salnum
þegar pokinn fannst. Sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar
voru kallaðir til. Flugstöðinni var
^Jokað meðan sérfræðingar athug-
uðu með tækjabúnaði hvað í pok-
anum leyndist. í ljós kom að í pok-
anum var rafdrifið leikfang sem
óheppinn farþegi virðist hafa
gleymt.
Morgunblaðið/Muggur
Spáð hærri vöxtum fram yfir samninga og fjárlagagerð vegna aðgerða Seðlabanka
Viðskiptahallinn á árinu
sjö til tíu milljarðar
SEÐLABANKI íslands tilkynnti í
gær tvíþættar aðgerðir til að stuðla
að stöðugleika í verðlagsmálum og
sporna við þenslu í þjóðfélaginu.
Samkvæmt innflutningstölum fyrir
tímabilið frá janúar til ágúst jókst
innflutningur til landsins um
13-14% að raungildi á þessum tíma
og skv. heimildum Morgunblaðsins
.benda nýjustu upplýsingar til að
viðskiptahallinn verði sjö til tíu
milljarðar á árinu. Því er spáð að
aðgerðir Seðlabankans muni valda
hærri vöxtum fram yfir gerð kjara-
samninga og samþykkt fjárlaga, en
þá geti þeir lækkað aftur.
Aðgerðir stjórnar Seðlabankans
eru tvíþættar. „í því skyni að stuðla
áfram að lágri verðbólgu hefur
bankastjórn Seðlabankans ákveðið
að hækka vexti Seðlabankans í við-
skiptum við innlánsstofnanir og
ávöxtun í tilboðum bankans í ríkis-
víxla á Verðbréfaþingi íslands um
0,4%. Jafnframt hefur verið ákveðið
að hækka lausafjárhlutfall innláns-
stofnana úr 10% í 12% frá 1. októ-
ber n.k.,“ segir í tilkynningu Seðla-
bankans í gær.
„Þetta mun hafa í för með sér
vaxtahækkun, bæði á markaðinum
og hjá bönkum. Aðgerðirnar bein-
ast að bönkunum, sérstaklega til
þess að bankar og sparisjóðir hækki
útlánsvexti sína. Ég geri ráð fyrir
því að innlánsstofnanir muni bregð-
ast við núna um næstu mánaða-
mót,“ segir Valur Valsson, banka-
stjóri íslandsbanka. Stefán Pálsson,
bankastjóri Búnaðarbankans, telur
að ákvörðun Seðlabankans um
hækkun vaxta hljóti að leiða til
hækkunar á vöxtum skammtíma-
lána banka og sparisjóða. Taismenn
annarra banka segja að skoðað
verði á næstu dögum hvort breyt-
ingar verði gerðar á vöxtum um
næstu mánaðamót.
Vaxtalækkun eftir raunsæja
samninga og hallalaus fjárlög
„Mér sýnist líklegt að vextir verði
tiltölulega háir á næstu vikum og
mánuðum en þegar kjarasamningar
eru frá og sú óvissa sem tengist
þeim og fjárlagagerðin hefur jafn-
framt verið samþykkt, þá tel ég að
á þeim grunni geti skapast skilyrði
fyrir vaxtalækkun á ný, enda eru
vextir hér tiltölulega háir í saman-
burði við það sem gerist annars
staðar," segir Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
„Ég tel eðlilegt að Seðlabankinn
hamli gegn þenslu þegar sjáanlegt
er að viðskiptahallinn er að aukast,
rétt eins og við sömu skilyrði er
eðlilegt að ríkissjóður sé rekinn í
jafnvægi. Þetta er mjög í hátt við
það sem gerist hjá öðrum þjóðum
með opið hagkerfi við samskonar
aðstæður. Það má svo gera ráð
fyrir að vextir muni síga aftur í
sömu átt og í nágrannalöndunum
þegar ljóst verður að fjárlög verða
afgreidd í jafnvægi og gerðir hafa
verið raunsæir kjarasamningar,"
segir Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra.
■ Stigið á bremsur/26
íslenzka sjávarútvegssýningin tókst afburðavel
Samherji keypti sjö
Fyrsta síldin
troll á 70 milljónir
fýETAGERÐIN Ingólfur seldi sjö
troll í einu til skipa Samherja og
DFFU í Þýzkalandi á íslenzku sjáv-
arútvegssýningunni sem lauk nú
um helgina. Auk þess seldi neta-
gerðin tvö pör af toghlerum og
nemur andvirði sölusamningsins um
70 milljónum króna.
Trollin eru frá írsku netagerðinni
Swan Net, sem er samstarfsaðili
Ingólfs hér á landi, en hlerarnir eru
frá danska fyrirtækinu Perfect sem
einnig starfar með Ingólfi. Trollin
eru hönnuð í samvmnu Birkis Agn-
arssonar, framkvæmdastjóra Ing-
ólfs, og Þorsteins Vilhelmssonar,
eins eigenda Samhetja og eru að
hluta til sett upp í Vestmannaeyjum.
Ymis önnur fyrirtæki gerðu
sölusamninga á sýningunni sem
þótti takast afburðavel. Aðsókn var
meiri en nokkru sinni áður og urðu
sýningargestir alls um 14.700
þrátt fyrir að sýningardögum hefði
verið fækkað um einn frá síðustu
sýningu fyrir þremur árum. Fjöldi
sýningargesta nú er rúmlega 20%
meiri en þá.
■ Selt fyrir 70 milljónir/18
BÖRKUR NK kom með fyrstu
síldina að landi á þessari vertíð,
120 tonn af vænni síld sem veidd
var í Berufjarðarál og skipað
var upp í Neskaupstað í gær.
Síldin úr þessari löndun verður
flökuð, söltuð og fryst - allt til
manneldis. Að löndun lokinni
hélt Börkur aftur á miðin. A
síðasta ári barst fyrsta síldin
að landi þann 25. september.
Rör í
Járnblendið
VERIÐ var að flytja risavaxið
stálrör um Akranes á dögunum.
Rörið, sem vegur 12-14 tonn,
er hluti af hreinsibúnaði Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga sem verið er að end-
urnýja. Skipta á um rör sem
liggur frá einum ofni verksmiðj-
unnar yfir í reykhreinsivirkið
og er framleiðslan stöðvuð í
þrjá daga á meðan. Stálsmiðjan
annast verkið.
Ljósmæð-
ur ávísi á
„pilluna“
ÓLAFUR Ólafsson landlæknir tel-
ur vel koma til greina að ljósmæð-
ur ávísi á getnaðarvamapillur, að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Hann segir að verið sé að skoða
allar hliðar þessa máls hjá land-
læknisembættinu. Þessari breyt-
ingu verði hins vegar ekki hrint í
framkvæmd nema með lagabreyt-
ingu.
Asta Möller, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir
í nýútkomnu Tímariti hjúkrunar-
fræðinga að æskilegt sé af hag-
kvæmnisástæðum að veita hjúkr-
unarfræðingum takmarkað leyfi til
lyfjaávísana. Hún bendir á að
hjúkrunarfræðingar í mörgum öðr-
um löndum hafi leyfi til að gefa
út lyfjaávísanir þegar um sé að
ræða endurnýjun á getnaðar-
varnapillum og fleiri lyfjum.
Landlæknir segir að skoða beri
þessa tillögu Ástu Möller. „Ég hef
lagt til að ljósmæðrum verði heim-
ilað að ávísa getnaðarvarnatöflum.
Við erum að skoða það. Það þarf
lagabreytingu til að hrinda slíkri
breytingu í framkvæmd, en ef af
þessu verður þarf að setja um þetta
strangar reglur, m.a. um að við-
komandi kona sé einkennalaus og
ekkert bendi til fylgikvilla," sagði
Ólafur.
■ Hjúkrunarfræðingar/4