Morgunblaðið - 20.10.1996, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
40 ár frá innrás Sovétmanna í Ungverjaland
SOVÉSKIR skriðdrekar á götum Búdapest haustið 1956.
rast alls. Þeir sögðu Gerö bera
ábyrgð á því að allt væri komið í
óefni og ýttu honum til hliðar. Við
af honum tók János Kádár, sem
árið 1951 hafði verið handtekinn
fyrir „þjóðerniskommúnisma" og
pyntaður. Hann var mitt á milli
stalínistanna og umbótasinnanna
í stjórnmálaráðinu.
Míkojan og Suslov létu þau boð
ganga til Moskvu að ungversk
stjórnvöld og Andropov ýktu styrk
andstæðingsins og vanmætu eigin
mátt. Þar höfðu þeir rangt fyrir
sér eins og átti eftir að koma í ljós.
Sovétmenn höfðu til öryggis þá
um sumarið æft áætlun, sem nefnd
var „áttavitinn" og var ætlað að
„koma aftur á opinberri röð og
reglu“ í Ungveijalandi. Þegar til
kastanna kom var sovéski herinn
hins vegar látinn aka um Búda-
pest með gömul og villandi kort
af borginni og án þess að hafa
fyrirmæli um að skjóta.
Ungverska stjórnin var þeirrar
hyggju að frekari aðgerða gerðist
ekki þörf til að kveða niður mót-
mælin.
Gerö viðurkenndi hins vegar
síðar að sovésku hermennirnir
hefðu haft þveröfug áhrif og æst
almenning. Skriðdrekasveitirnar
höfðu enga fótgönguliða til að-
stoðar og voru Ungveijum með
bensínsprengjur auðveld bráð á
þröngum götum Búdapest. „Við
höfum misst sex hundruð manns,“
sagði Suslov við yfirmenn sína í
Moskvu.
Reyndar varð bræðralags einnig
vart milli hermannanna og íbúa
Búdapest. „Við skjótum ekki á
fólkið,“ sagði einn sovéskur lið-
þjálfi og bætti við að hann tryði
ekki orðum yfirboðara sinna um
að eintómir fasistar væru á götum
borgarinnar.
Höfðu „enga stjóra á fjöldanum'
Eftir þijá daga höfðu Ungveijar
öll völd í Búdapest. Rákosi sagði
Míkojan og Suslov að hann hefði
„enga stjórn á fjöldanum“. Að-
János
Kádár
um í símtali að ástandið væri „ákaf-
lega hættulegt".
Andreas Hegedús, sem þá sat
í stjórnmálaráði ungverska
Kommúnistaflokksins, sagði að
einn af símunum fjórum, sem Gerö
hafði á borði sínu, hefði hringt
klukkan tíu um kvöldið. Það hefði
verið hvíti síminn, beina línan til
Moskvu. „Samþykkir þú að so-
véskum hermönnum verði beitt?“
spurði Khrustsjov. Gerö leit á alla
viðstadda, en enginn sagði orð.
„Allir eru sammála," sagði hann.
Míkojan mótmælir hervaldi
Þegar þarna var komið voru
flestir í forsætisráðinu í Kreml
sammála um að beita þyrfti valdi.
Aðeins Anastas Míkojan, læri-
sveinn Stalíns og lærimeistari
Khrustsjovs í utanríkismálum, var
andvígur. Míkojan var Armeni og
þjóð hans hafði öldum saman verið
undirokuð. Hann lýsti yfír skilningi
á hinum uppivöðslusömu Ungveij-
um og mæltist án árangurs til þess
að reyndar yrðu pólitískar leiðir.
Daginn eftir sendi Khrustsjov
hann ásamt Míkhaíl Suslov hug-
myndafræðingi til Búdapest. „Við
sátum í stjórnmálaráðinu þegar
Míkojan og Suslov komu inn,“
segir Hegedús, sem nú kveðst ið-
Bretar, Frakkar og ísraelar réð-
ust í sameiningu á Egypta til að
leggja undir sig Súez-skurðinn,
sem Gamal Abdel Nasser, forseti
landsins, hafði þjóðnýtt, á meðan
á uppreisninni í Ungveijalandi stóð.
Komst Khrustsjov þá að þeirri nið-
urstöðu að sýna yrði Vesturveldun-
um að taka yrði Sovét-
menn alvarlega og so-
véski herinn drekkti
frelsisbaráttu Ungveija
í blóði.
Tveir ungverskir
sagnfræðingar, János
Rainer og Wjatscheslaw Sereda,
hafa nú birt skýrslur frá fundum
æðsta ráðs miðstjómar Kommúni-
staflokks Sovétríkjanna eins og
stjómmálaráðið var þá kallað.
Eftir andlát Stalíns í mars árið
1953 voru stefnubreytingar tíðar
í Kreml gagnvart Ungveijalandi.
Mátyás Rákosi, sem kallaði sjálfan
sig „besta nemanda Stalíns", var
ýmist í náðinni eða ekki.
Khrustsjov gaf sig út fyrir að
vera sveigjanlegur. Að jafnaði hafði
hann það markmið að koma á „sós-
íalísku samveldi" þar sem hver
kommúnistaflokkur
gæti „farið sína eigin
leið að kommúnisman-
um“, en stundum hegð-
aði hann sér engu að
síður eins og harðsoðinn
heimsvaldasinni.
í febrúar 1956, á 20. flokks-
þingi Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna, afhjúpaði Krustsjov að
nokkm leyti ódæðisverk forvera
síns. Það fór skjálfti um heim
kommúnista vegna ræðu
Khrustsjovs.
Fyrstu fórnarlömbin
Fyrstu fórnarlömbin í Ung-
veijalandi létu lífið þegar ung-
verskar öryggissveitir skutu á
mannþröng fyrir utan byggingu
ríkisútvarpsins í Búdapest að
kvöldi 23. október.
Ernö Gerö, leiðtogi ungverska
kommúnistaflokksins, bað hemað-
arfulltrúann í sovéska sendiráðinu
í Búdapest að fara fram á það við
Kremlarbændur að beita sovéska
hernum, sem staðsettur var í Ung-
veijalandi. Hann vissi, sem var,
að ekki yrði hægt að reiða sig á
ungverska herinn.
Khrustsjov hikaði: „Ég skil ekki
hvað okkar ungversku félagar eru
að gera.“ Sendiherra hans í Búda-
pest, Júrí Andropov, sem síðar varð
leiðtogi Sovétríkjanna, sagði hon-
Skil ekki hvað
okkarung-
versku félag-
ar eru að gera
ÞAÐ hrikti í stoðum so-
véska heimsveldisins þeg-
ar Ungveijar reyndu
fyrir 40 árum að heimta
frelsi. Níkíta Khrustsjov, aðalritari
sovéska Kommúnistaflokksins,
átti erfitt með að gera upp hug
sinn og margsinnis hætti hann við
að beita valdi. Nú er farið að
hleypa fræðimönnum í Kremlar-
skjöl, sem veita nýja innsýn í ring-
ulreiðina í forystu Sovétríkjanna í
lok október árið 1956, og greindi
þýska vikublaðið Der Spiegel frá
niðurstöðum þeirra í vikunni, sem
leið.
Ungveijar gerðu uppreisn gegn
harðstjórn kommúnista 23. októ-
ber 1956. Margir höfðu það mark-
mið að Ungveijaland yrði óháð
ríki, sem færi þríðju leiðina, milli
kapítalisma og sósíalisma.
Það tók Khrustsjov heila viku
að gera upp við sig hvort þessi
hreyfíng í Ungveijalandi skyldi
brotin á bak aftur eða grípa ætti
til undanhalds. Nú er komið í Ijós
að hann virðist hafa tekið af skar-
ið þegar Súez-deilan braust út.
Réði Súez-deilan
úrslitum?
Níkíta Imre Anastas
Khrustsjov Nagy Míkojan
Komið er í ljós að Khmstsjov var tvístígandi
í afstöðu sinni til uppreisnarínnar í Ungverja-
landi 1956. íhugaði hann að leyfa ríkjum
Austur-Evrópu að fara sína leið áður en
hann ákvað að beita sovéska hemum.
Uppreisnin í Búdapest
olli ringnlreið í Kreml