Morgunblaðið - 20.10.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1996 25
NETIÐ fellur yfir ijúpur „annars heims“ á hjalli.
KVENFUGL á fiskihjalli.
Eins og oilor
rjúpnaskytfur vita
er tiltölulega
auðvelt að komast í
20-30 m færi við
sitjandi rjúpu.
Merkingamenn nýfa
sér þetta og
strengja netbleðil ó
milli sín sem þeir
fella ofan ú fuglana
menn sveifluðu netum allt í kring-
um þær.
Hvað hafa merkingarnar sýnt?
Rjúpur eru friðaðar í Hrísey og
ekkert skotið þar, þær virðist ekki
gera sér grein fyrir þessu því þær
eru flestar farnar upp á land fyrir
veiðitímann.
Af fuglum sem merktir voru
haustið 1994 og 1995 voru 24% og
20% skotnir á veiðitímanum strax
á eftir. Þetta bendir til þess að allt
að þriðjunur af heildarafföllum
Hríseyjarijúpna sé vegna skotveiði
og þetta er hærra hlutfall en fræði-
menn höfðu ímyndað sér áður.
Merkingarnar hafa einnig sýnt að
fuglarnir eru tiltölulega staðbundn-
ir þannig að þessar tölur um afföll
vegna veiða endurspegla ástandið
í Eyjafirði. Á öðrum svæðum þar
sem rjúpur hafa verið merktar svo
sem í Suður-Þingeyjarsýslu og í
Öræfum er veiðiálagið minna. Hrís-
eyjarfuglarnir hafa flestir náðst í
Höfðahverfi austan megin Eyja-
fjarðar og í Svarfaðardal og ná-
grenni vestan megin fjarðarins.
Fáeinir fuglar hafa farið iengra, það
er norður á Lágheiði, vestur í
Skagafjörð og suður á Öxnadal.
Árangur ijúpnamerkinganna velt-
ur á góðri samvinnu við skotveiði-
menn. Veiðimenn eru hvattir til að
huga vel að þeim fuglum sem þeir
fella og kanna hvort þeir beri merki
eða ekki. Hríseyjarfuglamir eru allir
merktir með hefðbundnum fótmerkj-
um, álhring með númeri og heimilis-
fangi Náttúrufræðistofnunar. Fáein-
ar ijúpur merktar á öðrum svæðum
bera vængmerki, en það er álplata
sem krækt er í hægra vængbarðið,
og fáeinir fuglar á Suðvesturlandi
eru með radíósendi um hálsinn auk
venjulegs fótmerkis.
Þeir sem hafa merki undir hönd-
um eru hvattir til að senda það
ásamt upplýsingum um fundarstað
og fundartíma til Náttúrafræði-
stofnunar íslands. Allir sem skila
inn merkjum fá til baka upplýsingar
um viðkomandi fugl.
RJÚPN AHÓPUR freistar þess að forða
sér undan netinu, en of seint!
Upplýsi^ar í tölvu
- miölun og varöveisla -
Námstefna verður haldin á vegum
Félags um skjalastjórn á Grand Hótel
Reykjavík 24. og 25. október 1996.
Fyrirlesari: David O. Stephens,
forstöðumaður ráðgjafadeildar um skjalastjórn
hjá Zasio Enterprises, sem er leiðandi fyrirtæki í
ráðgjöf og hugbúnaði fyrir skjalastjóm
í Bandaríkjunum.
Skráning þátttöku: Sími 560-5938, fax 567-9840.
Almennt verð kr. 16.800, félagsmezm
Félags um skjalastjóm kr. 13.800.
Innifalið: Námstefmigögn, kaffi og léttar veitingar.
Hver gætir
hagsmuna þinna?
Skotveiðifélag íslands er landsfélag um skymsamlega
skotveiði og fjölmennustu samtök skotveiðimanna á
íslandi. Félagið berst fyrir hagsmunum skotveiðimanna,
stendur fyrir fjölbreyttu fræðslustarfi, gefur út fagrit
um skotveiðar og útivist, og semur fyrir hönd
félagsmanna sinna um margskonar afslætti af vörum
og þjónustu. Aðeins tæp 10% íslenskra skotveiðimanna
em nú félagar í SK0TV1S. Til þess að tryggja hagsmuni
skotveiðimanna enn frekar og auka þjónustuna til
muna, er nauðsynlegt að sem flestir skotveiðimenn
gangi í SK0TVÍS.
Leitið frekari upplýsinga á skrifstofu félagsins í síma
551 4574 eða á myndsendi 551 4584. Skrifstofan er
opin þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 1300 -17.00.
Skotveiðifélag íslands.
Við skorum á íslenska
skotveiðimenn aðganga vel um íslenska náttúru
og taka með sér til byggða notuð skothylki og
þau skothylki, sem þið kunnið aðfinna úti
í náttúrunni.
cTMAVURj
<j£STAURÁ^
ÉK
eilsuhúsiö
SPARISJÓDUR
VÉLSTJÓRA