Morgunblaðið - 12.11.1996, Page 16
16 E ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTLITSTEIKNING af húsinu. Fjölbýlishúsið stendur við Fálkahöfða 2-4 í Mosfellsbæ og í því verða sextán íbúðir, ýmist 3ja eða 4ra herbergja. Allar íbúðirnar eru með
sér inngangi. Mjög stórar svalir eru á íbúðunum og ná þær fyrir horn á endaíbúðunum. Svalirnar snúa í suðvestur en inngangurinn í íbúðirnar er norðaustan megin.
Ibúðirnar eru til sölu hjá fasteignasölunni Hóli.
Morgunblaðið/Ásdís
ELÍAS Haraldsson, sölumaður hjá fasteignasölunni Hóli og Guðjón Þorvaldsson múrarameistari.
Mynd þessi er tekin fyrir framan fjölbýlishúsið, sem Guðjón er með í byggingu við Fálkahöfða 2-4.
í baksýn er Esjan. Framkvæmdir standa nú yfir af fullum krafti og ætlunin er að steypa tvær
hæðir upp fyrir áramót. Síðan verður lokið við íbúðirnar og þær afhentar í vor.
Framboð hefur veríð lítið á nýjum íbúðum
í fjölbýlishúsum í Mosfellsbæ. Magnús Sig-
urðsson kynnti sér íbúðir, sem Guðjón Þor-
valdsson múrarameistari hefur hafíð bygg-
ingu á í flölbýlishúsi við Fálkahöfða.
Allar íbúðirnar eru með sér inn-
gangi, en gengið er inn í opið stiga-
hús inn á pall og síðan inn í þijár
íbúðir á hveijum palli. Mjög stórar
svalir eru á íbúðunum og ná þær
fyrir horn á endaíbúðunum. Svalirn-
ar snúa í suðvestur. en inngangurinn
í íbúðirnar er norðaustan megin.
Þvottahús er í hverri íbúð og góðar
sér geymslur á 1. hæð fyrir hveija
íbúð.
íbúðirnar eru ýmist 3ja eða 4ra
herbergja. Þriggja herb. íbúðirnar
eru mismunandi að stærð, þær minni
eru 87 ferm. fyrir utan sameign og
geymslu. en þær stærri 97 ferm.
Fjögurra herb. íbúðimar eru svo 117
ferm. nettó.
Sala á íbúðunum er þegar hafin.
Verð á minni 3ja herb. íbúðunum
tilbúnum undir tréverk er 6,4 millj.
kr. en 6,8 millj. kr. á þeim stærri og
á 4ra herb. íbúðunum er verðið 7,6
millj. kr.
Það er einnig hægt að fá íbúðirn-
ar fullbúnar en án gólfefna og þá
er verð á minni 3ja herb. íbúðunum
7,3 millj. kr. en 7,8 millj. kr. á þeim
stærri og 8,7 millj. kr. á 4ra herb.
íbúðunum.
Átta bílskúrar verða byggðir við
húsið og er hægt að fá þá keypta
sérstaklega. Bílskúrarnir verða 25
ferm. og eru þeir seldir tilbúnir að
utan en fokheldir að innan. Kaup-
verð þeirra er 750.000 kr. Sameign-
arlóð verður skilað fullfrágenginni,
bílastæði malbikuð og gangstéttar
hellulagðar eða steyptar.
Vænlegur staður
— Það hefur lítið verið úthlutað
af lóðum í Mosfellsbæ undir fjölbýlis-
hús, enda þótt mörgum finnist bær-
inn mjög vænlegur staður til að búa
í, segir Guðjón Þorvaldsson. — Þann-
ig var mjög góð eftispurn eftir þeim
íbúðum, sem ég byggði fyrir nokkr-
IMýjar íbúðir við Fálka
höfða í Mosfellsbæ
MOSFELLSBÆR hefur yfir sér
sérstakt yfirbragð. Útivist-
armöguleikar er óvíða meiri, útsýni
er mikið og fjallahringurinn gefur
umhverfmu sérstakan blæ. Urbæn-
um er ekki nema stundarfjórðungs
akstur upp i Skálafell, eitt bezta
skíðasvæði landsins. Aðstaða er enn-
fremur afar góð fyrir hestamenn,
enda eru þeir margir í bænum. í
Mosfellsbæ er einnig mjög góður
golfvöllur, sem er mikið notaður. í
bænum er ennfremur gott íþróttahús
og sundlaug og stór íþróttaleikvang-
ur.
Mosfellsbær hefur því haft mikið
aðdráttarafl fyrir marga. Bæjarbú-
um hefur fjölgað verulega á undan-
förnum árum, en þeir eru nú um
5000. Lengst af hefur fjölgunin ver-
ið um 3% á milli ára eða talsvert
fyrir ofan landsmeðaltai. Aðal ný-
byggingasvæðið er á svokölluðu
Höfðasvæði, en þar er búið að út-
hluta lóðum við tvær götur. Einnig
eru hafnar byggingaframkvæmdir
við Hjallahlíð. Aherzla hefur verið
lögð á að hafa rúmt á milli húsa,
þannig að byggðin verði ekki of þétt.
Miðbærinn í Mosfellsbæ hefur
fengið á sig svipmeira yfirbragð en
var, en þar er búið að reisa mikið
stórhýsi, sem setur svip á umhverfi
sitt og gefur því meiri miðbæjarblæ.
Þarna verður ráðhús Mosfellsbæjar,
en bærinn hefur keypt þrjár hæðir
undir bóksafn og bæjarskrifstofur.
Þarna verður ennfremur verzlunar-
og þjónustumiðstöð með aðstöðu
fyrir margs konar fyrirtæki, sem
veitt geta fjölbreytta þjónustu.
í bænum eru stórir atvinnurek-
andur eins og Reykjalundur, bygg-
ingafyrirtækið Álftárós og svo auð-
vitað bæjarfélagið sjálft vegna þeirr-
ar þjónustu, sem það veitir. Engu
að síður sækja margir bæjarbúar
atvinnu út fyrir bæjarfélagið, enda
þótt þeir séu líka margir annars stað-
ar að á höfuðborgarsvæðinu, sem
sækja atvinnu sína í Mosfellsbæ.
Sextán íbúðir
Sérbýlið hefur lengi sett mikinn
svip á Mosfellsbæ, en fjölbýlishús
verið þar í miklum minnihluta. Eftir-
spurn eftir góðum íbúðum í fjölbýlis-
húsum þar hefur þó verið töluverð.
Við Fálkahöfða 2-4 er byggingafyr-
irtækið Guðjón Þorvaldsson hf. nú
að reisa þriggja hæða fjölbýlishús
með 16 íbúðum. Framkvæmdastjóri
þess og aðaleigandi er Guðjón Þor-
valdsson múrarameistari, en hann
hefur unnið að húsbyggingum í ára-
tug. Fyrir nokkrum árum byggði
hann 18 íbúða fjölbýlishús við
Bjartahlíð í Mosfellsbæ og í fyrra
lauk hann við Qölbýlishús við Gull-
engi í Engjahverfi.
Húsið við Fálkahöfða er stein-
steypt og einangrað að innan á hefð-
bundinn hátt, en allir milliveggir eru
hlaðnir og múraðir. Það er hannað
af Kjartani Sveinssyni. Framkvæmd-
ir standa nú yfir af fullum krafti og
ætlunin er að steypa tvær hæðir upp
fyrir áramót. Síðan verður lokið við
íbúðirnar og þær afhentar í vor.
um árum við Bjartahlíð í Mosfellsbæ
og það gekk mjög vel að selja þær.
Nú er ég einnig að byggja á mjög
góðum stað, en lóðin, sem ég fékk
úthlutað, stendur á mjög skemmti-
legum stað við götuna Fálkahöfða.
Þessi gata er í beinu framhaldi af
svonefndu Tangahverfi, sem liggur
skammt fyrir ofan golfvöllinn í Mos-
fellsbæ.
— Þetta er tvímælalaust eitt
skemmtilegasta nýbyggingasvæðið í
Mosfellsbæ, heldur Guðjón áfram. —
Þaðan er útsýni í suðvestur yfir
Grafarvog, borgina og flóann og síð-
an allan hringinn vestur á jökul og
til norðurs yfir sundin og til Esju
og fjallanna þar.
Viðbrögð við auglýsingu um þess-
ar íbúðir hafa verið góð og tilboð
þegar farin að berast. — Það er
bæði yngra og eldra fólk, sem sæk-
ist eftir þessum íbúðum, segir Guð-
jón. — Félagsleg aðstaða verður
þarna mjög góð, en það á að reisa
barnaskóla og verzlun rétt hjá.
Sú spurning kemur upp, hvort
fjarlægðin frá Reykjavík upp í Mos-
fellsbæ sé ekki til trafala, einkum í
ófærð og myrkri á veturna? — Fólk
setur fjarlægðina ekki fyrir sig, seg-
ir Guðjón. — Ég tel, að þáttaskil
hafi orðið í samgöngum með Höfða-
bakkabrúnni og allt annað en var
að aka frá borginni upp í Mosfellsbæ.
Nú er þetta bein og greið leið,
því að það þarf ekki lengur að nema
staðar við Höfðabakka. Þaðan er
varla nema 10 mínútna akstur upp
í Mosfellsbæ og vegurinn er raflýst-
ur. Snjór er hreinsaður eldsnemma
á morgnana, áður en fólk fer al-
mennt til vinnu, þannig að vegurinn
er mjög greiðfær á veturna. Fjar-
lægðin úr borginni upp í Mosfellsbæ
er því ekki lengri en svo, að hún
aftrar engum manni frá því að setj-
ast þar að. Þar við bætist, að gatan
Fálkahöfði er vestast í Mosfellsbæ.
Það er því styttra þangað en í önnur
hverfi í bænum og ekki þarf að aka
í gengum bæinn til þess að komast
þangað.
Rúmgóð eldhús
— Ég tel, að þessar íbúðir séu
mjög vel hannaðar og að það eigi
sinn þátt í, hversu góðar móttökur
þær hafa fengið úti á markaðnum,
segir Elías Haraldsson hjá fasteigna-
sölunni Hóli, þar sem þessar íbúðir
eru til sölu.
Eldhúsin eru lokuð en mjög rúm-
góð og með góðum borðkrók, en
ekki opin við stofu, eins og nú tíðk-
ast í mörgum nýjum íbúðum. Rýmið
er nýtt á mjög skemmtilegan hátt
og ég tel, að það hafi ráðið úrslitum
HORFT út yfir sundin. Frá Fálkahöfða er gott útsýni í suðvestur yfir Grafarvog, borgina og flóann og síðan allan hringinn vestur á
jökul og svo til norðurs til Esju og fjallanna þar.