Morgunblaðið - 19.11.1996, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Stefnt að stofnun nýrra samtaka jafnaðarmanna
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
UNGIR jafnaðarmenn á fundi í Bifröst í Borgarnesi um helgina.
Tími smáflokka liðinn
Ungt fólk úr Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi,
Kvennalista og óflokksbundnir jafnaðarmenn
hyggst stofna nýja stjómmáiahreyfíngu í
byijun næsta árs. Helgi Þorsteinsson ræddi
við nokkra af forvígismönnunum.
Á FUNDI ungs fólks úr stjórnarand-
stöðuflokkunum og óflokksbundinna
í Bifröst í Borgarfirði um helgina
var ákveðið að stofna nýja hreyfingu
jafnaðarmanna. Stofnfundur var
ákveðinn 18. janúar næstkomandi
og hefur níu manna undirbúnings-
hópi verið falið að undirbúa hann.
Samtök ungra jafnaðarmanna og
Verðandi, samtök ungs alþýðu-
bandalagsfólks og óháðra, munu
eiga beina aðild að nýju hreyfíng-
unni. Fundað verður að nýju næst-
komandi fimmtudag með stærri hópi
ungs fólks um áframhald samstarfs-
ins og fyrirkomulag stofnfundarins.
Gestur G. Gestsson, formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna,
segir að á fundinum hafí verið sam-
þykkt drög að helstu stefnumálum
hreyfingarinnar. Hann vildi ekki tjá
sig um efni þeirra, en unnið verður
að nánari útfærslu fram að stofn-
fundinum í janúar. „Áherslurnar hjá
ungliðahreyfíngunum eru dálítið
aðrar en hjá hinum eldri og geta
verið róttækari, eðli málsins sam-
kvæmt, en það voru allir ánægðir
með niðurstöðurnar. Tilgangurinn
með fundinum var að kanna hvort
að málefni stæðu í vegi fyrir sam-
starfi. Svo er ekki. Inn í þrjátíu ára
kaffihúsaspjall um sameiningu jafn-
aðarmanna hefur vantað formfest-
ingu og vettvang þar sem fólk hitt-
ist og ræðir af alvöru. Ég tel að
þessi fyrirhugaða hreyfíng jafnað-
armanna verði sá vettvangur. Þar
eru engin aldurstakmörk og jafnt
einstaklingar og flokksfélög og fé-
lagasamtök eru velkomin."
Gestur kynnti niðurstöður fund-
arins þingflokki Alþýðuflokksins í
gær. Hann segir að þeir hafi lýst
yfir eindregnum stuðningi við áætl-
anirnar, jafnt formaður flokksins
sem og aðrir.
„Það kom í ljós í umræðum á
fundinum að væntingar okkar og
stjórmálahugmyndir eru svipaðar,"
segir Steinunn V. Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi Kvennalistans í
Reykjavík. „Á þeim samhljómi get-
um við byggt áfram, en það eiga
eftir að koma miklu fleiri að þessu
og móta starfið. Þetta var fyrsta
skrefið."
Viðbrögð þingkvenna ágæt
Formenn ungliðasamtaka Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks hafa áður
lýst því yfír í fjölmiðlum að þeir hafí
stuðning forystumanna sinna flokka
til samstarfsins. Steinunn tekur hins
vegar skýrt fram að hún hafi ekki
verið á fundinum sem fulltrúi
Kvennalistans. „Ég var þarna fyrst
og fremst sem einstaklingur sem
hefur reynslu af þvi að starfa innan
Reykjavíkurlistans í sameiginlegu
framboði og af því að leiða fólk und-
ir merkjum Röskvu innan háskólans.
Þingkonur Kvennalistans vita af því
að við Sigrún Erla Egilsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kvennalistans, og Þór-
unn Sveinbjamardóttir, varaþing-
kona, höfum verið að hitta þetta fólk.
Viðbrögð þeirra hafa verið ágæt.“
Samþykkt stefna Kvennalistans er
að eiga samvinnu við aðra flokka en
að sameining komi ekki til greina.
„Ég hef lengi talað fyrir samvinnu
og hugsanlega sameiningu þegar
fram líða stundir," segir Steinunn.
„Ég held að komnir séu þeir tímar í
íslenskri pólitík að allir smáflokkarn-
ir, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur,
Kvennalisti og Þjóðvaki, þurfi að fara
að endurskoða tilverugrundvöllinn.
Þetta eru allt flokkar sem byggja
hugmyndakerfi sitt á gömlum tíðar-
anda og stefnuskrámar hefur að ein-
hveiju leyti dagað uppi. Gmndvöllur-
inn eru hugmyndir ’68-kynslóðarinn-
ar og raunveruleikinn sem ríkti þá.
Ég tel að tími smáflokkanna sé lið-
inn. Yngra fólkið í þessum flokkum
hefur margt reynslu af því að starfa
í Röskvu í háskólanum. Það er skrýt-
ið að koma þaðan i flokkapólíkina
og eiga að fara að beija á fyrri félög-
um sínum. Menn verða dálítið átta-
villtir á þessu og fínnst synd að geta
ekki starfað saman áfram,“ segir
Steinunn.
Komum að hreinu borði
með opnum huga
Róbert Marshall, formaður Verð-
andi, skýrir samstarfsvilja unglið-
anna af því að þeir komi að málinu
með opnum huga. „Við mættum
ekki á fundinn með troðfullar töskur
af ályktunum okkar stjórnmálasam-
taka. Við komum að hreinu borði
og með opnum huga bjuggum til
stefnu í anda hugmynda jafnað-
arstefnunnar um jafnrétti, lýðræði,
kvenfrelsi og ábyrgð einstaklingsins
fyrir umhverfinu. Við erum ekki að
reyna að bræða saman einhveijar
ályktanir ólíkra flokka, heldur búa
til nýja stefnu. Svona gengur stefnu-
mótun fyrir sig innan stjórnmála-
flokka. Menn eru ekki aiveg sam-
mála en deila með sér ákveðum
grundvallarhugmyndum. “
Róbert segir að markmiðið til
langs tíma sé að sameina flokkana.
„Það þarf auðvitað að vera vilji fyr-
ir hendi, en ég held að það sem
helst skilji milli okkar og eldri kyn-
slóðarinnar sé sú trú, að hægt sé
að gera þetta.“
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra
hefur lagt fram á Alþingi ný laga-
frumvörp um vinnumarkaðsaðgerðir
og atvinnuleysistryggingar. Drög að
báðum frumvörpum voru samin af
nefnd sem félagsmálaráðherra skip-
aði sumarið 1995 og í áttu sæti þing-
menn ásamt fulltrúum aðila vinnu-
markaðarins og sveitarfélaganna.
Með frumvarpinu um vinnumark-
aðsaðgerðir verður landið gert að
einu vinnusvæði pg vinnumiðlanir
færðar til ríkisins. í frumvarpinu um
atvinnuleysistryggingar eru mörg
nýmæli. Þeirra á meðal er ákvæði
þar að lútandi að menn geti verið á
atvinnuleysisbótum ótímabundið en
bótaréttur þess i stað bundinn við
Viðskipti Wihl-
borg Rejser
Óskað eftir
opinberri
rannsókn
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur
lokið uppgjöri vegna rekstrarstöðv-
unar ferðaskrifstofunnar ístravel
ehf. og Wihlborg Rejser á íslandi.
í fréttatilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu kemur fram að trygg-
ingafé ístravel hafí dugað fyrir
heimflutningi farþega en ekkert hafi
fengist upp í aðrar kröfur.
Istravel auglýsti í sumar leiguflug
milli Keflavíkur og Amsterdam en
hætti síðan rekstri og lagði inn
ferðaskrifstofuleyfi sitt og aflýsti
fluginu.
Fram kemur í frétt samgöngu-
ráðuneytisins að í máli Wihlborg
Rejser á íslandi hafi ráðuneytið
greitt heimflutning farþega auk þess
að greiða allar kröfur þeirra sem
lögðu inn gild gögn vegna fyrirfram
greiddra farmiða. Hefur ráðuneytið
jafnframt óskað eftir því við Rann-
sóknarlögreglu ríkisins að hún hefji
opinbera rannsókn á viðskiptum
Wihlborg Rejser á íslandi.
Wihlborg Rejser seldi farmiða hér
á landi í sumar milli Keflavíkur og
Kaupmannahafnar en öllu flugi á
vegum fyrirtækisins og umboðsaðila
þess, Bíngóferða ehf., var síðan af-
lýst.
fímm ár óslitið en eftir það missi
menn bætur í eitt ár. Ákvæði eru
um að sjálfstætt starfandi einstakl-
ingar (sem aðallega eru bændur,
smábátaeigendur og vörubifreiða-
stjórar) verði að vera hættir eigin
atvinnurekstri til þess að geta átt
rétt á bótum. Einnig er gert ráð fyr-
ir að unglingar undir 18 ára aldri
geti ekki nema í undantekningartil-
vikum fengið atvinnuleysisbætur.
Meðal annars vegna þessa ákvæðis
skilaði Hervar Gunnarsson, fulltrúi
ASÍ í undirbúningsnefndinni, séráliti
er nefndin skilaði af sér í marz sl.
Frumvörpin verða tekin til fyrstu
umræðu á Alþingi í dag, þriðjudag.
Ný sljórnarfrumvörp um vinnumark-
aðsaðgerðir lögð fram á Alþingi
Tekin til fyrstu
umræðu í dag