Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ INIEYTENDUR ERLEIMT Varasamar bakteríur í eldhúsinu Morgunblaðið/Halldór LENGI hefur verið álitið að bakteríumengun á heimilum sé helst að finna í baðherberginu. Margrét Þorvalds- dóttir komst að því að eldhúsin eru óhreinni. BANDARÍSKIR vísindamenn í Arizona hafa rannsakað fyrirbær- ið og segjast aldrei hafa fundið bakteríur eins og E coli og salmon- ella á salernissetum en í eldhúsum virðist þær vera alls staðar - í svampi, á eldhúsklútum, í vaski og borðplötunum. Þessar bakteríur er vert að taka alvarlega þar sem þær geta orsakað alvarlegar sýk- ingar og valdið dauðsföllum, sér- staklega hjá ungum börnum, öldr- uðum og fólki með bælt ónæmis- kerfi. Þær valda 9 þúsund dauðs- föllum á ári í Bandaríkjunum. Hér á landi hafa einnig komið upp sýkingar og er skemmst að minn- ast hinnar víðtæku salmonellusýk- ingar frá ijómabollum á liðnum vetri. Matarsýkingar í heimahúsum Þó að meira sé vitað um fjölda- sýkingar eru sýkingar hjá ein- staklingum í heimahúsum, sem koma fram í magaverkjum, niður- gangi og uppköstum ekki síður algengar. Slíkar sýkingar eru tald- ar mun algengari en fólk almennt gerir sér grein fyrir. I rannsókn sem gerð var í Bretlandi og Wales á árunum 1989-91 kom í Ijós að rekja mátti um 89% sýkingatilfella af völdum saimonella til eldhúsá- halda. Nú er verið að rannsaka hvar sýkingavaldar í eldhúsi halda sig aðallega og hvernig best sé að útrýma þeim. Vaskur og pottasvampur gróðrarstíur Rannsóknir hafa leitt í ljós að vatnslásinn í vaskinum og eldhús- klúturinn og plastsvampar sem nú eru mikið notaðir í eldhúsum, eru miklar gerlastíur fyrir mengandi bakteríur og hafa E coli bakter- íur, salmonella, pseudomonas, og staphylococcar verið greindar á þessum eldhúsáhöldum. Vísinda- menn athuguðu eitt heimili í 6 daga og komust að því að bakter- íurnar voru bókstaflega alls stað- ar, allt frá borðplötum að hurð ísskápsins. En svo varð snögglega breyting á og engar bakteríur fundust, í ljós kom að fjölskyldan hafði tekið nýjan svamp í notkun. Svampurinn virðist vera sér- stakleg hagstæður bakteríum, þar er fæða yfirleitt fyrir hendi og raki. í rökum svampi geta bakter- íur haldist lifandi í allt að tvær vikur. En á þurru yfirborði lifa þær aðeins í nokkrar klukkustundir. Bakteríur á stályfirborði Þó að bakteríur uni sér vel í svampinum þá heillar stálið þær líka. Stálið virðist hafa slétt yfir- borð en á því eru bæði rispur og dældir og þar sem bakteríur finna raka og fæðu eru þær fljótar að hreiðra um sig og fjölga sér. Ef þær eru ekki fjarlægðar fljótt geta þær spunnið sig áfram sem fínir þæðir á yfirborði stálsins og nán- ast sementað sig við stálflötinn - nægjanlega vel til standa af sér lélegan þvott þ.e. létt skol, létta burstun og veikt sápuvatn. Smám saman bætast aðrar örverur í hóp- inn og mynda lífræna þynnu sem ver bakteríusamfélagið enn frekar. Hreinsun mataráhalda Matarbrettin með sínum skorn- ingum og örum bjóða bakteríum heim, en gerlamengun á plast- og trébrettum ræðst af rakastiginu. Góðu fréttirnar eru þær að fremur auðvelt er að fjarlægja þessar bakteríur með ýmsum hreinsunar- aðferðum. Þvottaefni leysir upp bæði fæðu og bakteríugróður á stáláhöldum og með bursta og nuddi má ná mestu af því í burtu °g fylgja síðan eftir með góðu skolvatni. Til að koma í veg fyrir að bakteríur setjist að aftur að skal gæta þess að halda hreinsuðu yfirborði þurru. Rannsóknir hafa leitt í ljós að nægjanlegt er að nota sápuvatn og bursta til að hreinsa viðarfleti,. Bakteríur geta þó lifað undir yfirborði í nokkrar klukkustundir eftir þvott. Jafnvel þó að þær mengi ekki fæðu sem kemst í snertingu við brettið, þyk- ir nauðsynlegt að fjarlægja þær. Örbylgjan drepur bakteríur I tímaritinu „Journal of Food Protection" er greint frá árangurs- ríkum aðferðum til að eyða E coli bakteríum og staphylococcus aur- eus af viðaráhöldum með örbylgju. Meðalstórt viðarskurðbretti var laust við bakteríur á báðum hliðum eftir 10 mínútur í örbylgjunni, væri þrettið rakt nægði skemmri tími. í örbylgjuofni er einnig hægt að sótthreinsa aðra eldhúshluti eins og svampinn og nægðu 30 sekúndur í örbylgjunni ef hann var þurr, en 1 mínúta ef hann var rakur. Borðklútur þurfti 30 sek- úndur ef hann var þurr en 3 mínút- ur ef hann var rakur. Örbylgjan nær ekki að sótt- hreinsa plastbretti þar sem hún nær ekki að hita yfirborð plastsins nægjanlega vel til að drepa bakter- íur. Aftur á móti hafa aðrar rann- sóknir sýnt fram á að uppþvotta- vél nær að sótthreinsa jafnvel slitnustu plastbretti. Hreinlæti við matargerð nauðsynlegt Hreinlæti er mjög mikilvægt þegar unnið er við matargerð jafnt í heimahúsum sem annars staðar. Nauðsynlegt er að vera á verði, fjölmargir gera sér t.d. ekki grein fyrir því að nauðsynlegt er að þrífa vel bæði skurðbretti og hníf eftir meðhöndlun á hráu kjöti og kjúkl- ingum. Salmonella og E coli bakt- eríur geta valdið mjög slæmum matareitrunum og eru sum af- brigði þeirra beinlínis lífshættuleg. Því er vert að hafa ætíð hugfast að heilsan er í okkar eigin höndum. UNDIRBÚIÐ JÓLIN MEÐ LA BAGUETTE Heildsöluverð í nóvember: 10 smjörhom 335 kr. 10 smjörbrauð/súkkulaði 370 kr. 8 snúðar 370 kr. og á frönskum kökum LA BAGUETTE Frystiverslun og heildsölubirgðir GLÆSIBÆ, SÍMI 588 2759. OPIÐ MÁNUD. -FIMMTUD. KL. 12 -18. FÖSTUD. 12 -19. LAUGARD. KL. 10 -14. Nýtt Fituminna súkkulaði KOMIÐ er á markað súkkulaðið Halo sem framleitt er í Bretlandi. Það var sett á markað árið 1993 og fæst nú víða um heim. Súkkuiaðið er hægt að fá með þremur bragðteg- undum, appelsínu-, hunangs-, og karamellubragði. í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu i&d segir að Halo innihaldi 97 hitaeiningar og sé helm- ingi fituminna en sambærilegt súkk- ulaði. í stað fitu og sykurs er notað efnið litesse sem unnið er úr glú- kósa. Halo er fáanlegt í mörgum lyfjaverslunum, heilsubúðum, á lík- amsræktarstöðvum, í 10-11 verslununum, á bensínstöðvum og í sölubúðum Rauða krossins á sjúkra- húsum. HERTOGAYNJAN af Jórvík með nýju sögu sína, Mín hlið. Fergie í blaðaviðtali Blá og marin eftir barsmíðar l I > > í i ) \ London. Reuter. SARAH Ferguson, hertogaynja af Jórvík, öðru nafni Fergie, sagði í viðtali við blaðið Independent on Sunday, að bandarískur fjármála- ráðgjafi hennar, John Bryan, hefði lamið hana illilega er hún neitaði honum um að skoða dagbók hennar að loknu kvöldverðarboði í mars í fyrra. Fergie kvaðst hafa verið blá og marin á báðum handleggjum eftir meðferðina. Æði hefði runnið á Bryan er hún neitaði honum að skoða dagbókina. Bar hún hana fyrir sig og er hann náði taki á bókinni reif Bryan hana í tætlur og fleygði um salinn. Hertogaynjan átti samtal við blaðið til að kynna nýja ævisögu sína, Mín hlið, þar sem dregin er upp fremur niðrandi mynd af bresku konungsfjölskyldunni. Einn- ig kom hún fram í viðtalsþætti hjá BRC-sjónvarpsstöðinni á sunnudag í sama tilgangi. Ást bresku þjóðarinnar á Fergie hvarf sem dögg fyrir sólu dag nokk- urn árið 1992 er myndir af henni fáklæddri á sólbekk í Suður-Frakk- landi í faðmlögum með Bryan birt- ust í einu bresku blaðanna. Á einni myndanna var að sjá sem Bryan væri að sjúga á henni tærnar. Ruglaðist af megrunarpillum Sarah Ferguson skildi að lögum við mann sinn, Andrew prins, í maí sl. Hún sagði í samtölunum, að Elísabet drottning hefði veitt sér mikilvægan stuðning í erfiðleikum sínum - og gerði enn. „Við ræð- umst við. Ég elska hana, alveg inn að beini,“ sagði hún. Fergie gaf drottningarmanni, Filippusi prins, hins vegar ekki háa einkunn og sagði hann hafa sent „ótrúlega hrottafengin" bréf þar sem hann sakaði hana um að hafa sett blett | á konungsfjölskylduna með kenj- | óttri hegðan sinni. í sjónvarpssamtalinu hélt Fergie * því fram, að megrunarpillur, sem hún tók í fjóra daga í heimsókn hjá móður sinni í Argentínu, hefðu brenglað dómgreind hennar varan- lega. Hún var 16 ára á þessum tíma og leið kvalir álappaleg og klunna- leg í vexti við hlið grannra og glæsi- legra argentínskra kynsystra. Að ráði vinkpnu tók hún megrunarpill- | urnar. „Ég gjörbreyttist, persónu- leikinn varð annar. Ætli þetta hafi | ekki verið það sem kallast eitur- ■ verkun," sagði Fergie. Hún sagði pillurnar hafa ruglað sig í ríminu. Fergie sagðist hafa náð niður lík- amsþyngd sinni að undanförnu með sérstakri drykkjarblöndu sem gerð væri úr aspas, spínati, vætukarsa og seljurótarsafa. Aftur í eina sæng? í samtalinu við Independent on Sunday gaf hertogaynjan af Jórvík l til kynna, að mögulegt væri að þau 1 Andrew prins tækju saman á ný. „Jú, við gætum búið aftur saman," sagði hún. En er nánar var gengið á hana kom Fergie sér hjá því að útskýra frekar hvað hún ætti við og svaraði: „Ég er ekki viss hvort ég ætti að segja meira.“ Snegur með forystu i Chisinau. Reuter. MIRCEA Snegur, forseti Moldovu, hafði örugga forystu eftir fyrri umferð forsetakosninga, sem fram fóru á sunnudag. í seinni umferð- inni, 1. desember nk., verður kosið milli hans og Petru Lucinschi, hóf- sams miðjumanns. Snegur var sigri hrósandi í gær og sagðist ekki efast um hveijar lyktir seinni umferðarinnar yrðu. „Atkvæði greidd mér eru áfall fyrir vinstri öflin. Okkur duga tvær vikur til viðbótar til að tryggja sigur í eftir tvær vikur,“ sagði Snegur. Lucinschi sagði dæmin frá öðrum ríkjum sýna, að sá sem er í öðru sæti eftir fyrri umferðina vinnur á endasprettinum. Bráðabirgðaúrslit sýndu, að Snegur hefði fengið 39% atkvæða á sunnudag, Lucinschi 28%, Vladimir Voronin, frambjóð- andi kommúnista 10%, Andrei L Sangheli forsætisráðehrra 9% og * þjóðernissinninn Valeriu Matei 9%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.