Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Góð staða byggingariðnaðar á Akureyri Enginn flótti iðnaðarmanna en ótti við launaskrið STAÐA byggingariðnaðarins á Akureyri er al- mennt góð en sumir verktakanna sjá fram á verk- efni allt að ár fram í tímann. Þetta kemur fram í könnun sem unnin var á Atvinnumálaskrifstof- unni meðal stærstu fyrirtækjanna í byggingariðn- aði í bænum. Helgi Jóhannesson forstöðumaður skrifstofunn- ar segir að ekki sé um að ræða fiótta iðnaðar- manna af svæðinu, en verktakar óttist þó launa- skrið í kjölfar mikilla framkvæmda á suðvestur- landi. „Menn búast ekki við mikill þenslu hér á þessu svæði, en gera eins ráð fyrir að til launa- hækkunar komi í kjölfar framkvæmdanna syðra þar sem halda þurfí í mannskapinn," segir Helgi. Stór verkefni sem nú er unnið að eru m.a. við Giljaskóla, Sundlaug Akureyrar, íbúðir í félagslega kerfínu og verslunar- og skrifstofubygging í mið- bænum. Þá sjá menn fram á framkvæmdir við viðbyggingu við Ráðhús bæjarins, að brú verði byggð yfír Glerá og eins líta verktakar til væntan- legra framkvæmda við Háskólann á Akureyri. Einhæft lóðaframboð Verktakar telja brýnt að úthluta lóðum á suð- urbrekku, eftirspurn sé eftir lóðum á því svæði og byggingaiðnaður rr.yndi örvast við það. Bygg- ingaverktakar telja að lóðaframboð í bænum sé ekki nægilegt og einhæft, en m.a. vanti lóðir undir raðhús á einni hæð og fyrir minni íbúðir. Einnig var í könnuninni spurt um iðnaðarhús- næði og virðist að sögn Helga vera komið að nokkrum þröskuldi hvað það varðar. Nánast allt iðnaðarhúsnæði sem fyrir er í bænum er fullt, en verktakar hyggjast ekki á þessari stundu mikið spá í að bæta við sig slíku húsnæði. Eitt af því sem fram kom í könnuninni er að verktakar telja gæðastjórnun Akureyrarbæjar vegna verka ófullnægjandi og að þörf sé á að bæta skipulag framkvæmda, m.a. telja þeir að ekki sé nægiiega vel staðið að útboðum bæjarins. Fyrirtæki á Akureyri hafa lítið leitað út fyrir bæinn í leit að verkefnum og ekki virðist vera stemmning fyrir því meðal verktaka eins og stað- an er nú að sameina krafta sína og bjóða í stærri verk utan bæjarins. Kynningar- fundur hjá Kiwanis- klúbbnum Emblu VETRARSTARF Kiwanis- klúbbanna á Akureyri er að hefjast, en þeir eru tveir, Kald- bakur sem er karlaklúbbur og Embla sem er kvennaklúbbur. Kynningarfundur á vegum Emblu verður í kvöld, þriðju- dagskvöldið 19. nóvember, kl. 20.30, en almennir fundir hjá Kiwanisklúbbnum Emblu er í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð á þriðjudagskvöldum í vetur. Þær konur sem áhuga hafa á starfinu eru velkomnar á fund- inn í kvöld. Kiwanis er þjónustu- hreyfing þeirra sem áhuga hafa á að bæta samfélagið. Morgunblaðið/Kristján SULAN EA, sem hér siglir fánum prýdd inn Eyjafjörðinn, hefur tekið mikium breytingum og er hið glæsilegasta skip á að líta. Súlan E A til heimahafnar eftir breytingar NÓTASKIPIÐ Súlan EA-300 kom til heimahafnar á Akureyri sl. sunnudag, eftir umfangsmiklar breytingar í Póllandi. Skipið var lengt um 6 metra og byggður hvalbakur, skipt var um brú og hún hækkuð, skipt um allar spillagnir og settir tankar í lest. Auk þess var skipið sandblásið og málað, rafkerfið var endurnýjað, settur nótaniðurleggj- ari, auk minni verkþátta. Breytingarnar kostuðu um 120 milljónir króna og tók verkið um 80 daga. Súlan fór til Siglufjarð- ar í gærkvöldi, þar sem sett verður ný loðnuskilja og rennur í skipið. Eftir breytingarnar ber Súlan um 1.000 tonn af loðnu en áður bar skipið tæp 800 tonn. BJARNI Bjarnason skipstjóri t.v. og Sverrir Leósson útgerðarstjóri í nýju brúnni. Bjarni Bjarnason skipstjóri var að vonum ánægð- ur er hann kom með skipið til Akureyrar. Hann segir að Pólveijarnir sem unnu við breytingarnar hafi staðið sig vel og skilað góðu verki. Ferðin heim tók tæpa 7 sólarhringa en Bjarni sagði að leiðindaveður og bræla hafi verið á móti alla leið- ina. Hann segir að stefnt sé að því að halda til loðnuveiða í næstu viku en þó verði alveg örugg- lega ekki byijað á mánudaginn. Andlát FINNUR EYDAL FINNUR Eydal, kenn- ari og tónlistarmaður á Akureyri, lést síðastlið- inn laugardag, 16. nóv- ember. Finnur fæddist á Ak- ureyri, 25. mars 1940. Foreldrar hans voru Pál- ína Indriðadóttir og Hörður Eydal. Bræður hans voru Ingimar tón- listarmaður sem lést árið 1993 og Gunnar, skrif- stofustjóri Reykjavík- urborgar og hálfbróðir samfeðra Kristbjöm fiskmatsmaður. Finnur kvæntist Helenu Eydal söngkonu og tryggingafulltrúa og eignuðust þau þrjú börn. Finnur lauk einleikaraprófi á klari- nett frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík árið 1956 og prófi í prentiðn frá Iðnskólan- um á Akureyri 1974. Hann lék í áraraðir í hljómsveit Ingimars bróður síns auk eigin hljómsveitar. Hann samdi nokkur lög og út- setti íjölda laga á hljóm- plötum, þeirra þekktust eru Útlaginn, Einsi kaldi úr Eyjunum og Bjórkjall- arinn. Finnur lék um það bil 200 lög inn á hljóm- plötur. Auk starfa sinna sem hljómlistamaður var hann prentari hjá Prentsmiðju Björns Jóns- sonar og Skjaldborg á Akureyri, feld- skeri hjá mokkadeild SÍS á Akureyri og var kennari við Tónlistarskólann á Akureyri. Sýningum á Sigrún Ástrósu hætt Ekkert lát á aðsókn á Dýrin í Hálsaskógi SÝNINGUM á leikritinu Sigrún Ástrós, hefur verið hætt, í bili að minnsta kosti. Alls sáu um 1.000 manns verkið á 13 sýningum hjá Leikfélagi Akureyrar. Mjög góð aðsókn hefur verið að hinu sígilda barnaleikriti Dýrin í Hálsaskógi og um 3.800 gestir hafa séð verkið á 18 sýningum. Að sögn Trausta Ólafssonar leikhússtjóra er ekkert lát á aðsókn á Dýrin í Hálsaskógi og viðbúið að það verði á sviðinu eitthvað lengur. Leikfélag Akureyrar stóð fyrir samkeppni um nafn á nýja leiksvið félagsins í Gránufélagshúsinu við Strandgötu. Fyrir valinu varð nafnið Renniverkstæðið en í þessu húsnæði var einmitt renniverk- stæði Vélsmiðjunnar Odda á sínum tíma. Það var gamall starfsmaður Odda, Guðmundur Hjaltason renni- smiður, sem átti hugmyndina að nafninu. Þann 29. desember nk. verður leikritið Undir berum himni eftir Steve Tesich frumsýnt á Renniverk- stæðinu en þar fara Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson með aðalhlut- verkin. I o 5 „Gleymdust nýju skíðaskórnir fyrir sunnan? Engar áhyggjur, þeir komast með bílnum í kvöld. A hverjum degi klukkan 17:00 aka bílar frá Landflutningum-Samskipum til Akureyrar. Farmurinn er allt frá smápökkum til þungavöru. Strax næsta morgun keyra bílstjórar FMN, samstarfsaðila Landflutninga, vörur til viðtakanda á Akureyri og Dalvík, og um hádegið er farið til Ólafsfjarðar með viðkomu á Dalvík og Ársskógsströnd. Daglegar ferðir eru einnig til Hríseyjar. Þrisvar í viku er ekið til Siglufjarðar og á aðra staði á Norður- landi eru 1-2 ferðir á viku. Skútuvogi 8, Reykjavík. Sími: 569-8400. Fax: 569-8657. Afgreiáslutími: Mánudaga-Jimmtudaga 8-17,föstudaga 8-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.