Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 60
MORGUSBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUWCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Bankakerfið á Islandi mun óhagkvæmara en á hinum Norðurlöndum Rekstrarkostnaður hlut- fallslega hæstur hérlendis ÍSLENSKA bankakerfið er mun dýr- ara og óhagkvæmara í rekstri en bankakerfi hinna Norðurlandanna, samkvæmt nýrri skýrslu OECD um rekstur bankastofnana í aðildarríkj- unum á árunum 1985-1994. Tölur yfír íslenska banka og sparisjóði er þar nú að fínna í fyrsta sinn. Fram kemur að hlutfall rekstrar- kostnaðar af niðurstöðutölu efna- hagsreiknings hefur verið mun hærra hjá bönkum og sparisjóðum á íslandi undanfarin ár, en hjá slíkum stofnun- um á Norðurlöndum. Þá hefur hlut- fall vaxtamunar og framlaga í af- skriftarreikning sömuleiðis verið hærra hér á landi, en afkoman óvíða lakari, hin allra síðustu ár. Langmesti vaxtamunurinn Samkvæmt skýrslunni var rekstr- arkostnaður hjá íslenskum banka- stofnunum um og yfir 5% af niður- stöðutölu efnahagsreiknings á árun- um 1990-1994, en 2-3% að jafnaði hjá bönkum og sparisjóðum í Dan- mörku, Svíþjóð og Noregi. Á þessu er aðeins ein undantekning, því rekstrarkostnaður sænskra banka mældist 5,35% á árinu 1992 og 6,46% árið 1993, en þar virðast liggja að baki sérstakar ástæður. Hlutfall rekstrarkostnaðar var t.d. 2,38% í danska bankakerfinu á árinu 1994, 3,28% hjá sænskum viðskipta- bönkum, 2,48% hjá norskum við- skiptabönkum og 2,9% hjá norskum sparisjóðum, en 4,79% hér á landi. Vaxtamunurinn var sömuleiðis að jafnaði mun meiri hér á landi á árun- um 1990-1994, en í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Á árinu 1994 var hlut- fall hreinna vaxtatekna af niður- stöðutölu efnahagsreiknings t.d. 3,83% í danska bankakerfínu, 2,56% hjá sænskum viðskiptabönkum, 2,92% hjá norskum viðskiptabönk- um, 4,14% hjá norskum sparisjóðum Rekstrarkostnaður banka og sparisjóða sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings — jSLAND, viðsk.b. og sparisjóöir .....ISLAND, viðskiptabankar —— NOPEQUR, sparisjóðir 1 SVIÞJOÐ, viðskiptabankar —— ÞYSKALAND, sparisjóðir —— DANMÖRK, viðsk.b. og sparisj. en langhæst eðá 4,71% í íslenska bankakerfinu. Munur á milli stofnana Verulegur munur er á stærð banka- stofnana í einstökum löndum og eru íslenskir bankar og sparisjóðir hlut- fallslega mjög smáir. Þá kann munur að vera á starfsemi stofnana í einstök- um löndum. T.d. kann hluti af hús- næðislánakerfínu að vega þyngra í erlendum bönkum, þannig að efna- hagsreikningurinn sé stærri erlendis fyrir vikið og kostnaðarhlutföll lægri. Eins kann stærri hluti af starfsemi fjárfestingarlánasjóða, sem hér er al- mennt haldið utan við bankakerfíð, að vera hjá einhveijum stofnunum í samanburðarlöndunum. Hins vegar þykir ljóst að þetta skýri ekki að fullu óhagstæða útkomu íslenska banka- kerfísins í samanburðinum. ■ Vaxtamunur/16 Tölfræðirit á vegum ESB um menntamál > Islendingar með í næstu útgáfu MENNTAMÁLARÁÐUNEYT- IÐ er um þessar mundir að undirbúa þátttöku íslendinga í tölfræðiritinu Key Data on Education in the European Union með því að afla sem víð- tækastra upplýsinga frá skól- um landsins. í tölfræðiritinu eru saman- burðarhæfar upplýsingar um menntamál í öllum löndum Evrópusambandsins (ESB) auk nokkurra landa sem standa utan ESB. Að sögn Margrétar Harðardóttur deildarstjóra mats- og eftirlitsdeildar menntamálaráðuneytisins hafa íslendingar verið þátttakendur í Upplýsinganetum mennta- mála í Evrópu (Eurydice) frá 1994, en tölulegar upplýsingar héðan verða í fyrsta sinn í út- gáfu næsta árs. ■ Sjálfsmat/34 VR vill breytta samningsgerð Markaðslaun í stað launataxta í KRÖFUGERÐ Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur, sem kynnt var í gær, er lagt til að í næstu kjara- samningum verði annars vegar gerð- ir grunnkjarasamningar sem kveði á um lágmarksprósentuhækkun launa og hins vegar verði gerðir starfsgreina- eða fyrirtækjasamn- mgar með það að markmiði að hækka lægri laun sérstaklega. VR vill að launataxtar falli að öðru leyti niður og samið verði um svokölluð markaðslaun, þar sem samningsaðilar beiti sér fyrir vönd- uðum launakönnunum til viðmiðunar við ákvörðun um launahækkanir í fyrirtækjunum. Samning til þriggja ára VR kynnti Vinnuveitendasam- bandi íslands kröfugerð sína í gær. Félagið hefur ekki greint frá því hversu mikilla launahækkana verður krafist en er reiðubúið að gera samn- ing til lengri tíma en hingað til hef- ur tíðkast, jafnvel til þriggja ára. Áhersla er Iögð á að viðhalda stöðugleika, auka kaupmátt og stytta vinnutíma. Vill félagið að kja- rasamningar verði gerðir með þeim hætti, að þeir hvetji til framleiðni- aukningar og að í samningum verði ákvæði um framleiðniráð og ábata- skiptakerfi þar sem launþegar njóti hlutdeildar í framleiðniaukningunni. Lýsir félagið sig einnig reiðubúið til að ræða sveigjanlegan vinnutíma, færa frídaga í miðri viku að helgi og skipta orlofi í sumar- og vetraror- lof. ■ Lægri laun/31 Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Stórhríð í Eyjum Verkstæðisbíll sprakk í loft upp „Feikilegt högg, eins og keyrt hefði verið á húsið“ VERKSTÆÐISBÍLL sprakk í loft upp við dæluhús Hitaveitu Egilsstaða og Fella við Urriðavatn laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Tvo menn, sem staddir voru í öðru dæluhúsi "■^kammt frá, sakaði ekki og slökkvi- iiði tókst að veija dæluhúsið skemmdum. Bifreiðin, sem var af Mercedes Benz-gerð, var í eigu verktaka á Egilsstöðum, Valdimars Benedikts- sonar. Bíllinn var innréttaður sem verkstæði, m.a. með logsuðutækjum og tilheyrandi gaskútum. Valdimar ög hitaveitustjórinn, Guðmundur Davíðsson, unnu við að ræsa viðbót- ardælur hitaveitukerfisins vegna mikils frosts eystra. Verkstæðisbíll- inn var í gangi meðan þeir fóru á bíl Guðmundar 80-100 metra leið í annað dæluhús. „Himinninn varð rauður“ „Við vorum að athuga dæluna inni í dæluhúsinu þegar við heyrðum gíf- urlega sprengingu. Þetta var feiki- legt högg, eins og keyrt hefði verið á húsið,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. „Það suðaði í hausnum á manni lengi á eftir.“ Hvellurinn heyrðist alla leið til Fellabæjar, tveggja til þriggja kíló- metra leið. íbúar á Egilsstöðum sáu hvernig „himinninn varð rauður“ yfir slysstaðnum, að sögn sjónarvotts. Margir urðu til að tilkynna lögreglu og slökkviliði sprenginguna. Að sögn Guðmundar kviknaði feiknarlegt bál í bílflakinu, en talið er sennilegt að gaskútar í bílnum hafí sprungið. Um tlma óttuðust menn að eldurinn kæmist í dæluhús- ið, en slökkviliðið á Egilsstöðum kom fljótlega á vettvang og tókst að varna því. Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. MIKIL snjókoma og skafrenn- ingur var í Vestmannaeyjum í gær. Óveðrið skall á laust fyrir hádegi með austanátt, ofan- komu og skafrenningi og síð- degis var orðið illfært víðast hvar í bænum. Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út um klukkan hálf fimm til að aðstoða fólk sem fest hafði bíla sína og einnig til að aka börnum heim af leikskólum og koma fólki heim eftir vinnu. Snjó- ruðningstæki bæjarins reyndu að halda götum færum en höfðu ekki undan og bílar voru fastir víðsvegar um bæinn. Adolf Þórsson, formaður Björgunarfélagsins, var í stjórnstöð félagsins og sagði að stanslaus útköll hefðu verið frá því að þeir komu til starfa og enn var nóg að gera um klukk- an tíu í gærkvöldi. Ofankoman fór minnkandi síðla kvölds en miklum snjó hafði kyngt niður og skóf jafnharðan þar sem snjóruðningstæki fóru um. Skaflar á annan metra á dýpt fylltu sumar götur í bænum í gærkvöldi og erfitt var að ryðja þar sem bílar voru sums staðar á kafi í sköflunum. Á myndinni sjást félagar úr Björgunarfé- lagi Vestmannaeyja aðstoða við að losa bíl sem stóð fastur á miðri götu í Foldahrauni í stór- hríðinni í gærkvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.