Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Brezki Verkamannaflokkurinn Lofar þjóðarat- kvæði um EMU London. Reuter. BREZKI Verkamannaflokkurinn hét því á sunnudag að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu um aðild Bret- lands að Efnahags- og myntbanda- lagi Evrópu (EMU), kæmist flokk- urinn til valda í kosningunum næsta vor. Þetta þýðir að allir stærstu stjórnmálaflokkar Bret- lands munu ganga til kosninga með þjóðaratkvæðagreiðslu um EMU á stefnuskránni. Verkamannaflokkurinn hefur bent á kosti sameiginlegrar Evr- ópumyntar. Hann hefur hins veg- ar, líkt og íhaldsflokkurinn, lagt áherzlu á að innganga í EMU kæmi aðeins til greina við hagstæð efnahagsleg skilyrði og hefur hald- ið öllum möguleikum opnum. Fram til þessa hefur Verka- mannaflokkurinn sagt að hann myndi leita samþykkis þjóðarinnar við EMU-aðild, annað hvort í þing- kosningum eða með því að boða til þjóðaratkvæða- greiðslu. Nú segir Gordon Brown, talsmaður flokks- ins í ríkisfjármálum og efnahagsmálum, hins veg- ar að ýmsir þættir í þeirri mynd, sem EMU muni endanlega taka á sig, séu enn óljósir og muni ekki skýrast fýrir þingkosning- amar, sem verða í síðasta lagi 22. maí á næsta ári. Verkamannaflokkurinn geti því ekki gert upp hug sinn fyrir kosningar. „Smáatriðin munu ekki liggja ljós fyrir áður en gengið verður til kosninga og þess vegna er rökrétt að segja að verði ákvörð- un [um EMU-aðild] tekin á meðan næsta þing situr, eigi brezkur al- menningur að fá að taka ákvörðun með þeim hætti, sem ég legg til — í þjóðaratkvæðagreiðslu," sagði Brown í viðtali við BBC. Vilja ekki slá EMU-aðild fastri Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti brezks almennings á móti því að leggja niður sterlings- pundið og taka upp evró. Verka- mannaflokkurinn hefur því óttazt að það muni draga úr forskoti hans á íhaldsflokkinn að heyja kosningabaráttu, þar sem svo virt- ist sem EMU-aðild væri slegið fastri. Verkamannaflokkurinn hef- ur nú 20 prósentustiga forskot á stjómarflokkinn í skoðanakönnun- um. Ákvörðun flokksforystunnar nú ****** /ROPA^ ætti að kveða niður deilur um' málið í skuggaráðuneyti Verka- mannaflokksins, en þar hafa Gor- don Brown og Robin Cook, tals- maður flokksins í utanríkismálum, verið á öndverðum meiði um ágæti EMU. Ákvörðunin mun einnig gera Ihaldsflokknum erfíðara fýrir að notfæra sér ótta kjósenda við missi brezks „fullveldis" með því að benda á að Verkamannaflokkurinn sé staðráðinn í að ganga í Efna- hags- og myntbandalagið, hvað sem það kostar. Þetta gæti leitt til þess að ESB- andstæðingar í íhaldsflokknum ylqu enn þrýsting sinn á John Major forsætisráðherra að útiloka algerlega EMU-aðild Bretlands, til þess að greina Evrópustefnu flokksins aftur rækilega frá áherzl- um Verkamannaflokksins. Brown neitaði því að stefna stóru flokkanna í Evrópumálum væri nú nokkum veginn sú sama og vísaði því sömuleiðis á bug að Verkamannaflokkurinn þættist hafa meiri efasemdir um Evrópus- amrunann en áður. Hann sagði að Verkamannaflokkurinn væri Evr- ópusinnaður, en íhaldsflokkurinn hefði tekið afstöðu gegn Evrópu- sambandinu. „Við styðjum sameig- inlega mynt og teljum hana hafa marga kosti, en við höfum alltaf sagt að ákvörðun þurfí að taka út frá efnahagshagsmunum þjóðar- innar þegar þar að kemur," sagði hann. Gordon Brown Dagur íslenskrar tungu Verðlaun Jónasar til Vilborgar Áhyggjur af tungunni á mál- ræktarþingi VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR, skáld og kennari, hlaut verðlaun Jón- asar Hallgrímssonar í Listasafni ís- lands á Degi íslenskrar tungu en samkvæmt reglum verðlaunanna skyldu þau veitt „einstaklingum sem hafa með sérstökum hætti unnið ís- lenskri tungu gagn í ræðu og riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu henn- ar, framgangi eða miðlun meðal nýrrar kynslóðar". Vilborg sagðist í samtali við Morg- unblaðið vera hrærð og stolt yfir því að hafa fengið verðlaunin. „Ég var satt að segja hissa á þessu þegar hringt var í mig en afskaplega glöð. Mér þykir það fallegt að tekið skuli tillit til þeirra sem vinna og skrifa fyrir böm eins og ég hef gert tölu- vert. Mér þykir þetta ekki síst vera viðurkenning fyrir bamamenninguna í landinu." Aðspurð sagðist Vilborg ekki ótt- ast um íslenskukunnáttu barna. „ís- lensk börn tala gott mál og ég held BJÖRN Bjarnason talar á Málræktarþingi. að við þurfum ekki að hafa svo mikl- ar áhyggjur af ásókn enskunnar. Þekking á öðru tungumáli gerir börn- unum bara gott auk þess sem nú er farið að talsetja ailt sjónvarpsefni fyrir böm. íslensk börn lesa líka mikið og ég tek sérstaklega eftir því hér í Austurbæjarskóla þar sem við höfum gott bókasafn að þau hafa ekki síður gaman af að lesa gamlar bækur en nýjar og það er gott.“ Einnig voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar til orðanefnda raf- magnsverkfræðingadeildar og bygg- ingaverkfræðingadeildar Verkfræð- ingafélags íslands fyrir ómetanlegt framlag þeirra til viðgangs íslenskrar tungu eins og sagði við afhending- una. Báðar þessar orðanefndir hafa unnið ötullega að því að gefa erlend- um tækniorðum íslensk heiti. Einar B. Pálsson prófessor tók við viður- kenningunni fyrir hönd orðanefndar byggingaverkfræðinga en Gísli Júl- íusson yfirverkfræðingur fyrir hönd orðanefndar rafmagnsverkfræðinga. Áhyggjur en bjartsýni á málræktarþingi Á Degi íslenskrar tungu var hald- ið málræktarþing íslenskrar mál- nefndar í Háskólabíói. Á þinginu var fjallað um stöðu tungunnar og þeirri spumingu varpað fram hvort Islend- ingar væru að verða tvítyngdir. í samtali við Morgunblaðið sagði Heimir Pálsson sem stýrði málþing- inu að þar hefðu menn verið sam- mála því eins og fyrr að íslendingar þyrftu að hafa tök á erlendum mál- um. „Það sem menn hafa hins vegar áhyggjur af er ef enskan yrði eina Flutnmgsréttar- greiðsluglíma MIKIÐ hefur verið fjallað um út- gáfumál, kostnað og hagnað, í fjöl- miðlum víða um heim, ekki síst þar sem heldur virðist halla undan fæti hjá ýmsum útgáfufyrirtækjum sem helga sig sígildri tónlist. í löngu lesendabréfi í nýjasta tölublaði Gramophone sem Ted Perry, eig- andi Hyperion-útgáfunnar ritar undir fyrir hönd ýmissa útgefenda annarra hamast hann að flutnings- réttarfyrirtækjum og segir þau Þránd í Götu eðlilegrar útgáfu á seinni tíma tónlist. Hyperion-útgáfa Teds Perrys er margverðlaunuð og hefur sérhæft sig í að gefa út breska tónlist, þótt fyrirtækið hafí einnig gefíð út mörg helstu verk eldri tónbókmennta. Hann ritar undir bréfið í umboði fleiri frammámanna lítilla útgáfu- fyrirtækja, þar á meðal Brians Couzens hjá Chandos, Roberts von Bahrs hjá BIS, en bæði þau fýrir- tæki hafa gefið út nokkuð af ís- lenskri tónlist, Hywels Davies hjá ASV, Dieters Heulers hjá Hoch Schwann, Helmuts Konigs hjá Thorophon og Gerharts Ortmanns hjá CPO, en öll eru þau fyrirtæki í fremstu röð í útgáfu á nýrri tón- list og gleymdum tónverkum seinni tíma tónskálda. í bréfinu segir Perry að svo virð- ist sem flutningsréttarfyrirtæki hafí bundist samtökum um að kreista út úr þessum smáfyrirtækj- um sem mest fé án tillits til sölu- vænleika þeirra verka sem þau gefa út. Þannig hafi meðal flutn- ingsréttargreiðslur hækkað um meira en helming á síðustu fimm árum meðan sala á plötum dregst saman. Perry segir að dæmi séu um að slík fyrirtæki krefjist þess að fá greiddar rúmlega 6.500 kr. fyrir hveija mínútu af uppteknu verki, sem þýði það að fyrir klukku- stundar disk, sem sé algengasta útgáfulengd, þurfi að greiða ná- lægt 400.000 kr. óháð því hve disk- urinn á eftir að seljast. Einnig kvartar hann yfír því að fyrirtækin heimti æ fleiri kynningareintök af viðkomandi diskum, nefnir sem dæmi að flutningsréttarfyrirtækið Schott hafí krafíst þess að fá 20 eintök af diski frá Chandos með verkum Percys Graingers, þótt réttur fyrirtækisins hafí aðeins náð til hálfrar þriðju mínútu á disknum. Einnig séu dæmi um að fyrirtækin heimti allt að 200 diska fyrir sinn snúð. Þetta bætist ofan á ósann- gjarnar greiðslur, en flutningsrétt- arfyrirtækin eigi hvort eð er flest V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.