Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 43
MINNINGAR + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 43 c J J c c i c I I « i i i i i i i 4 i i I 4 i i 4 4 ( i aði hann vitaskuid. Kvaðst hann naumast vita lengur, hver okkar væru í hvorum hópi. Bauð hann okkur því dús. Og minnist ég ekki annarra vandræða í samskiptum hans við okkur. Var hann satt að segja í hinum mestu metum hjá okkur sem fremstur meðal fáeinna frábærra jafningja í því kennaraliði. Fjórir áratugir eru senn liðnir síð- an bein kynni mín hófust af Guð- mundi. Hafa þau staðið síðan og jukust þau, þegar hann létti af sér rektorsembættinu. Þá gat hann bet- ur sinnt hugðarefnum sínum. Góður liðsmaður var hann um árabil í orða- skrárvinnu stærðfræðinga og lagði þar til mála af smekkvísi og hug- myndaauðgi. Ritstörfum sinnti hann eftir megni og má að því er stærð- fræði varðar nefna forvitnilega rit- gerð hans fyrir fáum árum um gull- öld grískrar stærðfræði. Það var aðall hans, hversu lipurlega hann setti fram mál sitt, hvort heldur mælt eða ritað, og hversu vel hann höfðaði til forvitni og fróðleiksfýsnar þess, er hann beindi máli sínu til. Og hin síðustu misseri vann hann af kappi, sat löngum stundum á söfnum og auðnaðist áður en kallið kom að ljúka verki í góðri samvinnu við Sigurð Helgason um læriföður sinn og meistara, doktor Ólaf Daní- elsson, sem hann mat svo mikils. Guðmundur Arnlaugsson var bú- inn ieiftrandi hæfileikum til náms og nýttust þeir honum hið bezta í skóla, svo sem þeir gerðu og ævina alla. Svo vildi til, að í sumar hafði ég undir höndum á dönsku skjala- safni öskju, þar sem reyndust vera nokkur gögn um hann frá námsár- unum við Hafnarháskóla. Þótt askj- an væri í mínum höndum af allt annarri ástæðu, gaut ég augum á þessi plögg og leyndist ekki, með hversu miklum ágætum þar var vott- að um árangur hans í námi. Sagði ég honum af því þá á eftir, hvað mér hefði af tilviljun borið fyrir augu, en af hógværð sinni og lítil- læti vildi hann lítt af þessu vita. Ungum anda sínum hélt Guð- mundur Arnlaugsson alla tíð. Sam- nejd-i við hann var ánægjulegt og mannbætandi og er fyrir það þakkað að leiðarlokum. Sér í lagi er að þakka einstaklega hlýja kveðju, er hann sendi mér í hvatningarskyni fyrir fáum misserum. Þeim öllum, er hon- um stóðu hið næsta, sendi ég inni- lega samúðarkveðju. Jón Ragnar Stefánsson. + Ólafía Þorvalds- dóttir fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1918. Hún lést á Landspítalanum 13. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar Ólaf- íu voru Þorvaldur Ólafsson, vélstjóri frá Keflavík, og Þórunn Halldórs- dóttir. Systkini Ól- afíu sem upp kom- ust voru: Ólafur Bergsteinn, f. 17.5. 1914, Laufey, f. 16.1. 1917, d. 19.1. 1995, Hafsteinn, f. 12.2. 1926, og Haukur, f. 12.2. 1926. Ólafía giftist 7.10. 1944 Sig- urði Halldórssyni, sjómanni, f. 18.3. 1903, d. 15.3. 1986. Dætur Ólafíu eru: 1) Þórunn Sigurðar- dóttir, kaupmaður, f. 18.8. í dag er hún vinkona mín, Ólafía Þorvaldsdóttir, borin til grafar. Daginn sem hún kvaddi þetta líf rigndi hressilega og allar götur og stræti voru skúruð út í hvert horn, síðan kom snjórinn og klæddi borg- ina snjóhvítu teppi, þetta fannst mér táknrænt af almættinu að láta borgina skarta sínu fínasta þegar Ólafía kveddi þessa jarðvist. Ég kynntist þessari yndislegu konu árið 1989 þegar ég tók að mér að koma reglulega og þrífa húsið á Freyjugötu þar sem hún bjó ásamt bræðrum sínum, það mynduðust strax sterk vináttubönd á milli okk- ar sem styrktust með hveiju árinu. Ólafía átti fallegt heimili sem skart- aði mörgum dýrgripum því hún hafði yndi af því að safna fögrum hlutum sem hún kom af smekkvísi fyrir, stundum varð mér á orði hve margar vinnukonur á undan mér væru búnar að þurrka af þessum eða hinum antikskápunum og suss- aði hún vinkona mín þá á mig og svaraði að það væri engin vinnu- kona í þessu húsi, hún Óiafía fór ekki í manngreinarálit og talaði með virðingu um alla. Oft var skraf- að og mikið hlegið yfir kaffi og heimabökuðum kökum hennar og 1955, gift Magnúsi Ólafssyni, við- skiptafræðingi, f. 12.3. 1950. Börn þeirra eru: Sigurð- ur Jarl, f. 1982, Lóa Bára, f. 1984, Katr- ín Þyri, f. 1988, og Vala Sif, f. 1992. 2) Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir, hjúki-unarfræðing- ur, f. 19.3. 1958, gift Guðna Krist- inssyni, apótekara, f. 13.4. 1953. Börn þeirra eru: Krist- inn Haukur, f. 1980, Hafsteinn Óli, f. 1987, Guðni Dagur, f. 1990, og Elísabet Þórunn, f. Í99L Útför Ólafíu fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. fannst mér oft unun að því að hlusta á hana segja frá og þótt við værum ólíkar í skoðunum, bæði í stjórnmál- um og trúmálum, virtum við alltaf skoðanir hvor annarrar og enduðum alltaf umræður okkar sáttar. Já, hún Ólafía sáði mörgum perlum í hjarta mitt sem ég mun varðveita í minningunni. Þegar veikindi Ólaf- íu fóru að knýja óþægilega á dyr fór hún að hafa meiri þörf fyrir vináttu okkar sem leiddi til þess að ég reyndi að heimsækja hana dag- lega og fram á síðasta dag hélt þessi mæta kona glettni sinni og reisn. í dag kveð ég þessa kæru konu og bið almættið að blessa minningu hennar og að styrkja alla ástvini hennar í sorg þeirra og söknuði, með minni vissu um að betri tími taki við hjá henni því Biblían lýsir svo fagurlega hvernig sjúkdómum, öldrun og dauða verður útrýmt og segir: „Guð mun sjálfur vera hjá þeim, Guð þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra, og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til, hið fyrra er far- ið. (Opinb. 21.3-4.) Gunnhildur Gróa Jónsdóttir. OLAFIA ÞOR VALDSDÓTTIR Kveðja frá íslenska stærðfræðafélaginu. Þegar sú fregn berst mér að Guð- mundur Arnlaugsson sé látinn, sæk- ir margt á hugann. Guðmundur var góður vinur föður míns og ég minn- ist þess hversu ljúfur og barngóður hann var. Jafnframt man ég eftir skemmtilegum skákþáttum hans og hversu notalegan svip hann setti oft á skákmót með sinni yfirveguðu ró. Þættir hans í sjónvarpi um það sem þá hét „nýja stærðfræðin" eru einn- ig ógleymanlegir, enda límdust margir við tækið þegar þeir voru á dagskrá. Reyndar er framlag Guð- mundar til þvers konar stærðfræði- iðkunar á íslandi einkar markvert. Fyrir utan að vera snjall lærifaðir sem með yfirgripsmikilli þekkingu og fáguðu handbragði vakti áhuga margra kynslóða á stærðfræði gerði hann margt annað til að efla við- gang hennar. Ber sérstaklega að geta þess þegar hann, ásamt fleiri heiðursmönnum, stofnaði ísienska stærðfræðafélagið árið 1947. Allt frá stofnun þess félags var hann boðinn og búinn að vinna því gagn. Meðal annars sat hann hin síðari ár í orðanefnd félagsins þar sem þekk- ing hans og smekkvísi nutu sín vel. Víst er um það að við fráfall Guðmundar sjáum við í stærðfræða- félaginu á bak einum af okkar bestu félögum og vandfyllt það skarð sem hann skilur eftir sig. Blessuð sé minning Guðmundar Arnlaugssonar. Jón Ingólfur Magnússon. 0 Fleiri minningargreinar um Guðmund Arnlaugsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Innilegar þakkir fyrir veitta samúð við andlát og útför SVANHILDAR MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR, sem andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sólvangs. Guðlaug Jónsdóttir, Haukur Bogason, Þorleifur Jónsson, Jenný Lind Arnadóttir, Bergur Jónsson, Gunnhildur Þorsteinsdóttir, Unnur Sfmonar, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir s'endum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS JENSSONAR prófessors og fyrrv. forstöðumanns Blóðbankans, Laugarásvegi 3. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki aðhlynningar krabbameinssjúkra, KARITAS, og læknum og hjúkr- unarfólki deildar 13-D, Landspítala, fyrir góða umönnun. Erla Guðrún ísleifsdóttir, Arnfríður Ólafsdóttir, Þórður Sverrisson, ísleifur Ólafsson, Erna Kristjánsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Þorkell Sigurðsson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar og tengda- móður, SIGRÚNAR KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR frá Söndum í Miðfirði. Sólrún Kristín Þorvarðardóttir, Valgerður Þorvarðardóttir, Halldóra Þorvarðardóttir, Stefán Egill Þorvarðarson, Kristján Einar Þorvarðarson, Börkur Benediktsson, Sigfús Jónsson, Þórður Jónsson, Guðrún Lára Magnúsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, GEIRS GÍSLASONAR, Bauganesi 42, Skerjafirði. Kristín Geirsdóttir, Steindór Gunnarsson, Guðrún Dóra Steindórsdóttir, Geir Steindórsson, Þorleifur Geirsson, Þóra Geirsdóttir, Haraldur Harvey, Magnús Haraldsson, Karitas Haraldsdóttir. 1 + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim Vi sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengda- fCÉIlr* »• w móður, ömmu og langömmu, LIV JÓHANNSDÓTTUR, ^h- ^ Silfurteigi 5, jjgÉ, I *r JSt Reykjavík. ‘ Guðlaug Eiríksdóttir, ' Pétur Elíasson, Hanna M. Eiriksdóttir, Edgar Guðmundsson, Katrín Eiríksdóttir, Matthias Gunnarsson, Jóhann Grétar Eiriksson, Þórey Jónmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð og virðingu við andlát og útför GUNNARS MÖLLERS frá Siglufirði, Safamýri 55. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 14G í Landspítalanum og heimaað- hlynningar Karitas. Nanna Þórðardóttir, Þórður G. Möller, Ingibjörg S. Helgadóttir, RögnvaldurG. Möller, Helgi, Nanna og Gunnar. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, ÁRNA JÚLÍUSAR HALLDÓRSSONAR, Viðimel 23, Reykjavík. Margrét Halldórsdóttir, Anna Halldórsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÁRNA VILBERGS, Rauðalæk 32, Reykjavík. Jónína Magnúsdóttir, Svandis Árnadóttir, Sævar Jóhannsson, Gylfi Vilberg Árnason, Soffía Guðlaugsdóttir og afabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.