Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 EIWSTAKUR 84% ALOE VERA hand- og lílcams- áburðurinn frá JASON á engan sinn líka. Gæðin tandurhrein og ótrúleg. Fæst meðal annars í öllum apótekum á landinu. mmsm Gómsætar jólakrásir á glæsilegu jólahlaðborði. Rammíslenskir jólasveinar, söngurog lifandi tónlist FjÖRUKRÁIN - FJARAN - FJÖRUGARÐURINN Slrandgötu 55 • Hafnarfirði • Sími 565 1890 • Fax 565 1891 Félagsfundur Nýjar leiðir í kjarasamningum - hlutverk fyrirtækja - Samtök iðnaðarins halda opinn fund um nýjar leiðir í komandi kjarasamningum miðvikudaginn 20. nóvember nk. ld. 8.00-10.00 árdegis. Vinnuveitendasambandið hefur lagt fram hugmyndir um nýjar leiðir við gerð kjarasamninga. Þar er gert ráð fyrir því, að ábyrgð og hlutverk einstakra fyrirtækja verði annað og meira en hefur tíðkast. Tilgangurinn er sá, að breyta og bæta vinnutilhögun innan fyrirtækjanna sem skili sér í bættum kjörum starfsmanna. Samtökin hvetja alla sína félagsmenn til þess að sækja fundinn. Frummælendur: Þórarinn V. Þórarinsson, framkvstj. VSI. Geir A. Gunnlaugsson, framkvstj. Marels hf. Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðjunnar hf. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri: Tími: Staður: Haraldur Sumarliðason, formaður SI. Miðvikudagur 20. nóvember nk. kl. 8.00 árdegis. Gullhamrar, Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg 1. SAMTÖK IÐNAÐARINS IDAG Með morgunkaffinu BROSTU nú. í brúðkaup- um eiga menn að gleðjast. ÞÁ ertu aftur kominn tvær mínútur fram yfir tímann. HÖGNIHREKKVÍSI VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Óskilakettir í Kattholti MARGIR óskilakettir eru í Kattholti um þessar mundir. Einn af mörgum köttum sem nú dvelur uppi í Kattholti er svart- ur fressköttur sem er bæklaður á framfæti og er honum mjög í mun að komast heim til sín. Sigríður Heiðberg brýnir fyrir þeim, sem tapað hafa ketti, að hafa sam- band upp í Kattholt og athuga hvort þeirra dýr gætu verið þar. Gæludýr Kettlingur óskast ÓSKAÐ er eftir 8-10 vikna læðu á gott heim- ili. Vinsamlega hringið í síma 557-4585. SKAK Umsjón Margrir Fétur.sson STAÐAN kom upp á Evrópumóti í atskák í Cap d’Agde í Frakklandi í haust. Spánski stórmeistarinn Jorge Magem-Badals (2.570) var með hvítt, en sjálfur FIDE heimsmeistar- inn Anatólí Karpov (2.775) hafði svart og átti leik. 50. — Bh3+! og hvítur gafst upp. 51. Kxh3 — Dhl er mát og eftir 51. Kh2 — Dfl er hvítur óveijandi mát á g2. 20 skákmenn tóku þátt á mót- inu. Fyrst voru háðar undan- rásir, en síðan útsláttarkeppni. Karpov varð hlutskarpastur, hann sigraði Hollendinginn Loek Van Wely í úrslitahrað- skákum eftir að atskákum þeirra lauk báð- um með jafn- tefli. Heildarröðin varð: 1. Karpov, Rússlandi 2. Van Wely, Hollandi, 3. Akopjan, Armeníu, 4. Hracek, Tékk- landi, 5. Gelfand, Hvíta- Rússlandi, 6. Lautier, Frakklandi, 7. Smirin, Isra- ei, 8. Curt Hansen, Dan- mörku, 9. Adams, Eng- landi, 10. Leko, Ungveija- landi, 11. Gelk, Rússlandi, 12. Short, Englandi, 13. Azmaiparashvili, Georgíu, 14. Smagin, Rússlandi, 15. I. Sokolov, Bosníu, 16. Ehlvest, Eistlandi, 17. Va- iser, Frakklandi 18. Ma- gem, Spáni, 19. Bauer, Frakklandi og 20. Pia Cramling, Svíþjóð. • b c d « | g h SVARTUR leikur og mátar. Víkveiji skrifar... AÐ eru svo sem engin ný sann- indi, að samþykktir og ákvarðanir landsfunda og flokks- þinga stjórnmálaflokka endur- spegli ekki endilega viðhorf al- mennings og jafnvel ekki almennra stuðningsmanna viðkomandi flokka. Engu að síður er athyglis- vert að sjá hvað mikill munur er á niðurstöðu flokksþings Alþýðu- flokksins í formannskjöri og skoð- un hins almenna borgara á því, hvað hefði verið Alþýðuflokknum fyrir beztu. Eins og menn muna var lítill munur á þeim Sighvati Björgvins- syni og Guðmundi Árna Stefáns- syni í formannskosningu á flokks- þingi Alþýðuflokks. Gallupkönnun leiddi hins vegar allt annað í ljós um viðhorf kjósenda til þess, hver væri bezt fallinn til að taka við af Jóni Baldvini Hannibalssyni, sem formaður Alþýðuflokks. Samkvæmt niðurstöðu þeirrar könnunar, sem skýrt var frá hér í blaðinu í fyrradag, töldu 52,8% kjósenda, að Sighvatur Björgvins- son væri bezt til þess fallinn. Næstflestir tilnefndu Rannveigu Guðmundsdóttur eða 21,5%. Guð- mundur Árni Stefánsson var í þriðja sæti með aðeins 14,3% og Óssur Skarphéðinsson hlaut 9,2%. Nú er það vissulega svo, að al- mennir kjósendur ráða hvorki kjöri trúnaðarmanna á slíkum flokks- þingum né ályktunum. Hins vegar þurfa flokkarnir að leita eftir fylgi þessara sömu kjósenda, þegar kemur að kosningum. Og þá getur hætta verið á ferðum, ef trúnaðar- menn flokkanna eru langt frá því að taka ákvarðanir, sem samrým- ast sjónarmiðum kjósenda. xxx NÝLEGA barst Morgunblaðinu grein til birtingar um alvar- legt mál, þar sem m.a. var spurt, hvort „teipun“ unglinga væri rétt- lætanleg. Höfundur brást vel við ósk blaðsins um að breyta þessu orðalagi. Það er auðvitað alkunna, að í fagmáli ýmissa starfshópa er notað alls kyns slangur og er blaðamannastéttin ekki undanskil- in. Það er hins vegar hætta á ferð- um, ef þetta slangur verður að rit- máli. Á degi íslenzkunnar var m.a. spurt, hvort Islendingar væru að verða tvítyngd þjóð. Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal varpaði því fram fyrir nokkrum árum, að hér væri orðið til tungu- mái, sem á ensku mætti kalla „Icel- ish“. Vonandi verða umræður um þessi mál, t.d. á degi íslenzkunnar, til þess að fólk vakni til vitundar um nauðsyn þess að vernda málið og rækta sterka málvitund með uppvaxandi kynslóðum. xxx IFYRRADAG birtist hér í blaðinu kafli úr bók, sem m.a. fjallar um Gunnar Ragnars, fyrrum for- stjóra Útgerðarfélags Akur- eyringa, þar sem hann talar opin- skátt um það álag, sem á honum hafi hvílt í því starfi og áhrif þess á heilsufar hans. Fyrir þá, sem starfa við fjölmiðla, er sérstakt umhugsunarefni, hvað atgangur þeirra hefur verið honum mikil raun. Það þarf mikinn kjark til þess að tala af svo mikilli hreinskilni, sem Gunnar Ragnars gerir í þess- ari bók. Með því stuðlar hann að því á afar virðingarverðan hátt, að sjúkdómur og þjáningar, sem lengi hefur verið farið með sem feimnismál, njóti meiri skilnings en hingað til. Þeir, sem hafa til- hneigingu til að leyna sjúkdómi sínum eða aðstandenda sinna af ótta við fordæmingu eða skiln- ingsleysi umhverfis síns, öðlast aukið sjálfstraust við það, að sjá einstakling, sem gegnt hefur mik- ilvægum trúnaðarstörfum í at- vinnulífi og stjórnmálum, tala með þeim hætti, sem Gunnar Ragnars gerir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.