Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Nordsol - tónlistar- keppni Norð- urlanda 1997 í SAMVINNU við Ólafsdagana í Þrándheii gengst Norræna tónlistarháskólaráðið fyrir Nordsol, keppni ungra einleik- ara og einsöngvara dagana 9.-13. júní 1997 í Þrándheimi, en Þrándheimur heldur upp á 1000 ára afmæli á næsta ári og er keppnin liður í hátíð- arhöldum borgarinnar. Hér á landi mun Tónlistar- skólinn í Reykjavík, sem er að- ili að Norræna tónlistarháskól- aráðinu, sjá um forkeppnina, sem verður haldin sunnudaginn 23. mars 1997, en frestur til að senda inn umsóknir er til 31. janúar 1997. LEIKLIST Lcikíclag Sclíoss OTTO NASHYRNINGUR eftir Ole Lund Kirkegaard Leikgerð og söngtextar: Hörður Sigurðarson Tónlist: Þorgeir Tryggvason Leik- stjóri: Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson Aðalleikendur: Guðmundur K. Sig- urdórsson, Dagmar Gunnarsdóttir, Júlía Þorvaldsdóttir, Ingólfur Þórs- son, Ogmundur Magnússon, Orri Þrastarson, Maríanna Ó. Sigfúsdótt- ir, Baldvin Ámason, Sigrún S. Skúla- dóttir, Kristinn Pálmason. Frumsýn- ing á Selfossi 14.11. ALLIR virðast þekkja Otto. Þetta er bleikur nashyrningur sem lík- amnast af rissi sem strákur nokkur dregur á vegg af prakkaraskap sín- um. Dagsatt. Allir í þorpinu taka honum eins og sjálfsögðum hlut. jafnvel þótt hann detti niður um eitt gólfið af öðru í þriggja hæða ÆFT fyrir tónleikana í Fella- og Hólakirkju. Bleikur, með langt nef timburhúsi sem hýsir kaffihús á jarðhæðinni. Helst er það kaffihúsa- eigandinn sem amast við þessu dýri og furðar engan, því sá maður bindur trúss sitt við rökhyggju og kanelsnúða og það kann ekki góðri lukku að stýra. Að minnsta kosti ekki rökhyggjan. Svo kann hann ekki einu sinni að laga aimennilegt kaffi. Það kann hins vegar ungfrú Flóra og ávinnur sér með því hylli allra og hug herra Hólm. En fleiri draga sig saman í þessu þægilega litla verki fyrir unga áhorfendur. Toppur er skotinn í Sillu sem held- ur því statt og stöðugt fram að hann sé bilaður. Uppsetning Selfyssinga á þessu vinsæla verki telst varla tii tíðinda. Guðmundur Kari, Dagmar, Júlía, Ingóifur og Kristinn fara öll ljúflega og hnökralítið með sín hlutverk, enda reyndir leikarar öil og Ög- mundur og Orri eru að þreifa fyrir sér á sviðinu sem pjakkarnir tveir. Ögmundur þarf að gæta að fram- sögninni og tala skýrar og Orri sem er ágætlega skýrmæltur, þarf að gleyma áhorfendum í salnum og hafa hugann allan við hlutverkið. Tvær íjórtán ára stúlkur, þær Silja og Bryndís, gáfu sér tíma til að sjá sýninguna með mér (þótt báðar séu í óða önn að smíða sér fagra fram- tíð) og þær skemmtu sér ágætlega og ekki síst yfir ungfrú Flóru sem er orðin meiri frú en ung og hefur efni á því að vera gæskan uppmál- uð. Ekki dró það úr skemmtun þeirra að hafa lesið bókina og séð myndina og segir það nokkuð um efnið. Leikmynd er einföld og nýtist vel. Þorgeir Tryggvason samdi tón- listina sérstaklega fyrir Leikfélag Selfoss og lætur hún vel í eyrum. Yfir öllu saman trónir svo Sigur- geir Hilmar Friðþjófsson. Hann gerir hér ásamt félögum á Selfossi og dreifðum byggðum þar um kring nokkuð sem æviniega skal berast milli bæja: Til er fólk sem unir ekki kverkataki myndbandavæðingar- innar á unga fólkinu og býður hinn sanna og varanlega valkost leiklist- arinnar: Að vera maður sjálfur með því að vera, á sviðinu, annar en maður er, og njóta í salnum nándar- innar við þann ljúfa galdur. Guðbrandur Gíslason SAMANTEKT FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR Á SÖLU BÓKA í OKTÓBER 1996. UNNIÐ FYRIR MORGUNBLAÐIÐ, FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA OG FÉLAG BÓKA- OG RITFANGAVERSLANA. Bóksölulisti 1ÁTTU VON Á GESTUM? Þýð. Guðrún H. Hilmarsdóttir. Útg. Setberg 2ÍSLAND - FRAMANDI LAND Sumarliði ísleifsson. Útg. Mál og menning 6LITLI PRINSINN Antoine de Saint-Exupéry. Útg. Mál og menning 7FYRSTU KYNNI AF TÖLVUM Margrete Stephens. Útg. Nesútgáfan Nákvæmni og* þéttur ritháttur ENGLAR ALHEIMSINS Einar Már Guðmundsson. Utg. Mál og menning HÍBÝLI VINDANNA Böðvar Guðmundsson. Útg. Mál og menning 8 ÆVINTYRI LISU í UNDRALANDI Lewis Carroll. Útg. Mál og menning 0 DAGUR í LÍFI SKARPA Birgir Svan Símonarson. Útg. Barnabókaútgáfan KVENNAFRÆÐARINN Miriam Stoppard. Útg. Forlagið 10 LIFSKLUKKAN TIFAR Skúli Björn Gunnarsson. Útg. Vaka-Helgafell TONEIST Fella og Ilólakirkja KAMMERTÓNLEIKAR Flutt voru verk eftir Guðmund Haf- steinsson. Laugardagurinn 16. nóv- ember, 1996. FLUTT voru fímm verk, samin á árunum 1989-96, Tvö fyrstu verkin eru fyrir málmblásara og heitir það fyrra Brum, er minnir á, að af smáu brumi getur vaxið hátt tré. Verkið er fýrir 2 alt-, tenór- og baríton sax- ofón, flóra trompetta, hom, baríton- hom, básúnu og túpu. Verkið sprettur upp af smá tónfrymi er fær síðan blómstrandi samhljóman allra hljóð- færanna. Verkið er vel unnið og gott en á því er einn galli, það er of stutt. Þama var efniviður og sá hljóðfæra- Qöldi, að miklu meira hefði mátt gera, með þessa skemmtilegu hljóðfæra- samsetningu. Flytjendur léku verkið mjög vel og sama má segja um næsta verk, sem er fyrir sópran, orgel, tvo trompetta, hom og básúnu, við texta Iesnum hjá Jesaja spámanni og hefst á orðunum Hann veitir kraft hinum þreytta. Það er margt fallega hljóm- andi í þessu sérkennilega verki en síðari hluti textans var yfírflæddur miklum hljómi orgels og málmblásara og þó Marta Halldórsdóttir syngi ágætlega, náði hún ekki í gegnum seinni hluta söngverksins. Höfund- urinn stjómar báðum verkunum. Spuni I er fyrir einleiksfíðlu og þar fór Sigrún Eðvaldsdóttir á kostum í þessu frábæra tónverki. Þama er Guðmundur að glíma við ýmis leik- tæknileg og túlkunaratriði en eitt af því er einkennir tónmál hans, er þétt- leiki í hugsun og má segja, að í þessu verk slitni aldrei hin samfellda hugs- un. Leikur Sigrúnar var glæsilegur og sannfærandi og hafði hún auð- heyrilega fullt vald á tæknivandamáli verksins og ekki síður músíklegu in.ii- haldi þess. Trúlega hefur Guðmundur ekki mikið fengist við sönglagagerð og einhvem veginn voru tvö lög við kvæðin, Lauffall og Veturgrið, eftir Snorra Hjartarson, ekki margbrotnar tónsmíðar. Undirleikurinn í höndum höfundar, voru þungleiknar hljómar- aðir en lagferlið, þ.e. söngröddin, var skýr. Hugsanlega falla þessi lög betur að dökkleitari rödd, en hjá Mörtu, sem söng lögin samt sem áður af öryggi. Síðasta verkið, Borgarkveðja, er sérkennilegt og fallegt. Hljóðfæra- skipanin er víbrafónn, harpa, píanó og cimbalon og veit undirritaður ekki til þess, að leikið hafí verið oftar á cimbalon en tvisvar hér á landi. I fýrsta skipti með Sinfóníuhljómsveit íslands af ungverskri tónlistarkonu og nú er Guðmundur lék á þetta skemmtilega hljóðfæri en stjómandi var Snorri Sigfús Birgisson. Verkið er nákvæmnislega samið, úthugsað og sérlega skemmtilega hljómandi og var athyglisvert hversu vel þessi hljóðfæri blönduðust. Á köfl- um var samspilið eins hjá einu hljóð- færi, enda margt sameiginlegt þess- um hljóðfærum og tónn þeirra oft á tíðum glitrandi fallegur. Ekki væri langt til séð, að ætla þessu verki nokkrar vinsældir, svo fallega hljóm- andi er það. Stjórnandi var Snorri Sigfús Birgisson. Það sem sérlega einkennir vinnu- brögð Guðmundar er nákvæmni, fín- leg vinnubrögð og þéttur ritháttur. Það má heyra ýmislégt í tónmáli hans sem skírskotar til heimspeki og jafn- vel dulúðar, eins og t.d. í söngverkun- um og hvemig hann merkir verk sín t.d Brum, Hugur minn líður, Spuni og Borgarkveðja. Bæði Spuni I og Borgarkveðjan eru sérlega áhugaverð tónverk og einnig var frysta verkið, Brum, skemmtilegt áheyrnar. Ein- hvern veginn var undirritaður ekki sáttur við söngverkin, þó raddskipan í því fyrra, Hann veitir kraft hinum þreytta, væri um margt áhugaverð. Jón Ásgeirsson Einstakir flokkar: Skáldverk 1 ENGLAR ALHEIMSINS Einar Már Guðmundsson. Útg. Mál og menning 2 HÍBÝLI VINDANNA Böðvar Guðmundsson. Útg. Mál og menning 3 LÍFSKLUKKAN TIFAR Skúli Björn Gunnarsson. Útg. Vaka-Helgafell 4 ENGAR SMÁ SÖGUR Andri Snær Magnússon. Útg. Má! og menning 5 ÞAR SEM DJÖFLA- EYJAN RÍS Einar Kárason. Útg. Mál og menning 6 TÍUNDA INNSÝNIN dames Redfield. Utg. Leiðarljós 7-8 SNÁKABANI Kristján B. Jónasson. Útg. Mál og menning 7-8 VÍSNABÓKIN Útg. Iðunn 9-10 bósasagaog HERRAUÐS Útg. Mál og menning 9-10 STÓRBÓK EINARS KÁRASONAR Útg. Mál og menning Almennt efni 1 ÁTTU VON Á GESTUM? Þýð. Guðrún H. Hiimarsdóttir. Útg. Setberg 2 ÍSLAND - FRAMANDI LAND Sumarliði ísleifsson. Útg. Mál og menning 3 KVENNAFRÆÐARINN Miriam Stoppard. Útg. Forlagið 4 FYRSTU KYNNI AF TÖLVUM Margrete Stephens. Útg. Nesútgáfan 5 AF BESTU LYST Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir. Útg. Vaka-Helgafell í samvinnu við Hjartanefnd, Krabbameinsfélagið og Manneldisráð 8 SNJALLYRÐI - TILVITNANIR OG SPAKMÆLI FRÁ ÝMSUM TÍMUM Kjartan Örn Ólafsson tók saman. Útg. Vaka-Ilelgafell 7 SÆLIR ERU ÞEIR SEM ÞYRSTIR ísak Harðarson. Útg. Mál og menning 8 HVERNIG BÚA Á TIL FALLEG VINABÖND Þýð. Áslaug Benediktsdóttir. Útg. Skjaldborg 9 GÓÐAR STELPUR KOMAST TIL HIMNA Ute Ehrhardt. Útg. Bókaútgáfan Brandur 10 FRÖNSK/ÍSLENSK - ÍSLENSK/FRÖNSK ORÐABÓK Þór Stefánsson. Útg. Orðabókaútgáfan Börn og unglingar 1 LITLI PRINSINN Antoine de Saint-Exupéry. Útg. Mál og menning 2 ÆVINTÝRI LÍSU I UNDRALANDI Lewis Carroll. Útg. Mál og menning 3 DAGUR í LÍFI SKARPA Birgir Svan Símonarson. Útg. Bamabókaútgáfan 4 GAGGALA GAGGALA GÚ Steve Lavis. Útg. Mál og menning 5 HJÖRDÍS Arni Árnason. Útg. Barnabókaútgáfan 6 DANNI HEIMSMEISTARI Roald Dahl. Utg. Mál og menning Sj I 00 FÍLON FRÁ ALEXANDRÍU Gunnar Harðarson. Útg. Barnabókaútgáfan I 00 SOKKI OG BOKKI Daniela Kulot-Frisch. Útg. Mál og menning 9 VEÐURTEPPTUR Hjörleifur Hjartarson. Útg. Barnabókaútgáfan 10 ÍSLENSKU DÝRIN Myndir. Halldór Pétursson. Útg. Setberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.