Morgunblaðið - 19.11.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 25
SÍMON H. ívarsson
gítarleikari.
Gítarleikur
á Háskóla-
tónleikum
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 20. nóv-
ember flytur Símon H. Ivarsson gít-
arleikari verk sem hann hefur sjálfur
sett saman úr hefðbundnum stefjum
spænskrar þjóðlagatónlistar. Verkin
bera eftirfarandi heiti: Colombiana,
Granadina, Rumba gitana, Rondena
og Farruca. Tónleikarnir eru um
hálftími að lengd og heíjast kl.
12.30.
Símon H. ívarsson stundaði gít-
arnám við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar hjá Gunnari H. Jóns-
syni. Vorið 1975 lauk hann fullnað-
arprófi frá skólanum en þá um
haustið hóf hann nám við Huc-
hschule fúr Musik und darstellende
Kunst í Vínarborg hjá próf. Karl
Scheit. Þaðan lauk hann einleikara-
prófi vorið 1980. Símon starfaði síð-
an sem gítarkennari við Tónlistar-
skólann í Luzern í Sviss en er núna
gítarkennari við Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar.
Símon hefur farið í tónleikaferðir
bæði heima og erlendis. Undanfarin
ár hefur hann stafað með fiðluleikar-
anum Hlíf Sigurjónsdóttir og þýska
gítarleikaranum Michael Hilenstedt
auk þess að leika á einleikstónleik-
um.
Handhöfum stúdentaskírteina er
boðinn ókeypis aðgangur en að-
gangseyrir fyrir aðra er 400 kr.
....—♦.♦.♦...
Fyrirlestur
umjapanska
glerlist
GLERLISTAMAÐURINN Sigrún
Einarsdóttir og Sören S. Hansen
halda opinn fyrirlestur miðvikudag-
inn 20. nóvember kl. 16-17 í Barma-
hlíð, Skipholti yngra 4. h. um verk
a.m.k. 35 japanskra glerlistamanna,
verk þeirra eru skúlptúrverk og
nytjahlutir sem verða kynnt með
spjalli og litskyggnum.
Sigrún mun einnig kynna sögu
glerlistarinnar í Japan ásamt því að
fjalla um ýmsa skóla og stofnanir
sem tengjast gierlistinni. Þessi fyrir-
lestur var unninn af Sigrúnu Einars-
dóttur og Sören S. Larsen og hefur
verið fluttur víða og hlotið góðar
viðtökur.
Fyrirlesturinn er öllum opinn end-
urgjaldslaust.
♦ ♦ ♦---
Hauststemmn-
ing í myndum
BJÖRN Blöndal hefur sett upp ljós-
myndasýningu á veitingastaðnum Á
næstu grösum á Laugavegi 20b.
Á sýningunni eru stemnings-
myndir teknar að hausti. Ljósmynd-
irnar eru allar teknar sama daginn
en á ólíkum stöðum, t.d. Þingvöllum,
Kaldadal, Húsafelli og í Borgarfirði.
Ljóð og ljósmyndir á
gluggasýningu
í LISTHÚSI39 við Strandgötu
í Hafnarfirði stendur nú yfir
gluggasýning á ljósmyndum
eftir Lárus Karl Ingason ljós-
myndara. Myndirnar eru úr
bókinni Fjársjóðir íslenskrar
ljóðlistar (Treasures of Ice-
landic Verse) sem út kom í
sumar, en í þeirri bók eru ljós-
myndir Lárusar við ljóð eftir
íslensk skáld, allt frá Jónasi
Hallgrímssyni til ungskálda
nútímans.
Þetta er fjórða einkasýning
Lárusar Karls, sem er fæddur
1959, og hefur unnið við ljós-
myndun undanfarin ellefu ár.
Sýningin stendur til 24. nóv-
ember.
LÁRUS Karl við nokkur verk sín.
Njótið lífsins
- notið húsin
Sex glæsileg bílahús í hjarta borgarinnar
Staðsetning
bílastæða er
á götukortum
AMð
Þjónustuskrá
Gulu línunnar
Reykjavíkurborg hefur á undanförnum
árum komið myndarlega til móts
við þörfina á fleiri bílastæðum í hjarta
borgarinnar meðal annars með byggingu
bílahúsa, sem hafa fjölmarga kosti
framyfir önnur bílastæði.
Fátt er skemmtilegra en að rölta
um miðborgina og njóta mannlífsins,
verslananna og veitingahúsanna.
Þeim fjölgar stöðugt sem hafa upp-
götvað þau þægindi að geta lagt bílnum
í rólegheitum inni í björtu og vistlegu
húsi og síðan sinnt erindum sínum
áhyggjulausir. í bílahúsi rennur tíminn
aldrei út, þú borgar aðeins fyrir þann
tíma sem notaður er.
Og síðast en ekki síst eru bílahúsin
staðsett með þeim hætti að frá þeim
er mest þriggja mínútna gangur
til flestra staða í miðborginni.
Nýttu þér bílahúsin. Þau eru
þægilegasti og besti kosturinn!
Vitatorg, bílahús með innkeyrslu ítá Vitastíg og Skúlagötu. 223 stæði.