Morgunblaðið - 19.11.1996, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Að búa til kynþátta-
fordóma, svar
ÞANN 16. október
sendi Jón Magnússon
bréf til blaðsins undir
nafninu „Að búa tii
kynþáttafordóma". Ég
velti því fyrir mér í
nokkra daga hvort það
tæki því að svara
þassu en ákvað síðan
að láta ríða á vaðið.
Kjarninn í kenningum
Jóns er þessi. 1) Við
erum að mestu fordó-
malaus þjóð. 2) Til
þess að halda því
þannig verðum við að
koma í veg fyrir að
útlendingar komi til
landsins því þá verða
til fordómar. Einnig bendir hann á
margar hættur eins og óæskilega
kynblöndun (sem hann segir lang-
flesta íslendinga vera andvíga), at-
vinnuleysi og erfiðleika vegna mis-
munandi menningar, tungumáls og
trúarbragða. Þessu langar mig að
-isvara.
Fordómalaus þjóð? Það þarf nú
ekki annað en að líta á skrif Jóns
til að sjá að við erum ekki fordóma-
laus þjóð. Það að hann telji kyn-
blöndun óæskilega, er á móti fólki
með aðra menningu, trúarbrögð,
tungumál, litarhátt og siði, sýnir
að hann er langt frá því að vera
fordómalaus.
Að koma í veg fyrir fordóma með
því að halda útlendingum í burtu.
Sumir nauðgarar vilja kenna kon-
stíWii um að þeir nauðguðu henni.
Hún æsti þá upp! Þetta er svipað
með Jón. Hann kennir
útlendingum um að ís-
lendingar geti ekki
haldið aftur af hatri
sínu og umburðarleysi
og dragi því fram alla
verstú eiginleika þjóð-
arinnar. Ég hef nú
meiri trú á mér og þjóð
minni en Jón. Eg tel
að íslendingar séu ekki
blóðhundar sem æsast
við minnsta áreiti held-
ur hugsandi verur sem
geta tekið skynsamar
ályktanir. Þannig hlýt-
ur að vera hægt að
koma í veg fyrir for-
dóma ef viljinn er fyrir
hendi.
Ef fólk æsist upp við það að sjá
annan litarhátt, trúarbrögð, menn-
ingu eða heyra aðra tungu þá er
það merki um að fordómar voru
þegar til staðar og að ástæðan fyr-
ir því að fordómamir komu ekki í
ljós var að áreitið vantaði. Því
mætti skilja skrif Jóns á þá leið að
í raun eru íslendingar haldnir bull-
andi fordómum og að það beri að
halda útlendingum í burtu svo sjúk-
dómseinkennin komi ekki í ljós.
Ég tel að besta leiðin til að út-
rýma fordómum sé að ráðast á fá-
fræðina. Fordómar merkir að dæma
fyrirfram, nokkuð sem Jón virðist
gera. Með því að fá útlendinga til
landsins fáum við reynslu af menn-
ingu annarra þjóða og trúarbrögð-
um þeirra og þannig mun okkur
lærast að elska þá og virða. Ef það
Besta leiðin til að út-
rýma fordómum, segir
Þorkell Ágúst Ótt-
arsson, er að ráðast
á fáfræðina.
tekst ekki þá er okkur sjálfum um
að kenna ekki útlendingunum.
Atvinna. Þetta er margnotað til
að halda útlendingum í skefjum.
Málið er bara ekki svona einfalt.
Það sem hijáir okkur Islendinga er
hve fá við erum. Þegar okkur fjölg-
ar mun okkur takast að byggja upp
stærri innanlandsmarkað sem getur
keypt meira af innanlandsvörum og
þjónustu. Því er fólksfjölgun nauð-
synleg til að koma efnahagshjólinu
í gang og byggja upp það stóran
neytendahóp að fyrirtæki geti þrif-
ist hér. Einnig má benda á það að
útlendingar hafa verið í fararbroddi
í nýsköpun á atvinnumarkaðinum,
svo ekki er hægt að saka þá um
að ræna atvinnunni. Reyndar er
fiskvinnslan undantekning frá
þessu en málið er bara það að ís-
íendingar vilja ekki vinna í fiski og
því hafa útlendingar komið í veg
fyrir að fiskvinnslufyrirtæki loki
vegna manneklu. Annars er at-
vinnumál of stór kafli til að skrifa
eitthvað tæmandi um í einu bréfi
svo_ ég læt þetta nægja í bili.
Oæskilega kynblöndun. Sú stað-
hæfing að flestir íslendingar séu á
móti kynblöndun er að mínu áliti
Þorkell Ágúst
Ottarsson
ekki á rökum reist. Ég er bahá’íi
og eitt af kenningum bahá’í-trúar-
innar er að blöndun sé af hinu góða.
Bahá’íar telja um 400 manns á ís-
landi svo þar er nú kominn dágóður
hópur sem ekki er sammála. Einnig
eru allir mínir vinir og kunningjar
hlynntir kynblöndun. Það má bæta
því við að kona mín er ein af þeim
sem Jón er að armæðast yfir því
hún er frá Albaníu og dóttir okkar
er því blönduð. Æskilega blönduð
að mínu áliti. Jón er því einnig að
skrifa gegn konu minni og dóttur
og það sárnar mér mjög. Jón skrif-
ar ekki fyrir mína hönd, vina minna
né trúbræðra og töldumst við flest
íslendingar síðast þegar ég vissi.
Allar vísindalegar niðurstöður
hafa sýnt fram á að kynblöndun
er æskileg. Þeir sem standa sig
hvað best í skólum í Bandaríkjunum
eru kynblendingar. Blöndun gena
af ólíkum uppruna er af hinu góðá
og getur aðeins styrkt okkur. Menn-
ingin er ekki í blóðinu heldur í sam-
félaginu og því er kynblöndun eng-
in ógn við menningu okkar. Systir
mín ættleiddi súkkulaðibrúnan
strák frá útlöndum en hann er í
alla staði íslendingur, enda alinn
upp í íslenskri menningu.
Menning, siðir og trúarbrögð.
Það virðist stöðugt nauðsynlegt að
minna á það að ekki eru allir íslend-
ingar í Þjóðkirkjunni og það eru
meira að segja margir sem eru ekki
kristinnar trúar. Ef ólík menning
og trúarbrögð er svona mikil ógnun
væri þá ekki þjóðráð að losa sig
við þessa íslendinga? Einnig veltir
maður því fyrir sér hvort íslending-
ar sem hafa þessi viðhorf séu ekki
alfarið á móti því að aðrir íslending-
ar búi erlendis. Og ef þeir eiga það
nú til að flytja erlendis til skemmri
eða lengri tíma þá væri, samkvæmt
þessari kenningu, æskilegt að þeir
hættu að tala íslensku, skiptu um
trú, minntust aldrei á Gunnar á
Hlíðarenda og gleymdu þjóðhátíðar-
degi sínum algerlega. Það sama
hlýtur að ganga yfir alla. íslending-
ar í Kanada (sem við erum svo stolt
af) eru sem sagt stórhættulegir
kanadískri menningu.
Nei, Jón minn. Að hafa meiri
flóru í skoðunum og viðhorfum er
aðeins af hinu góða. Það gerir
menningu okkar ríkari, er uppfræð-
andi og lífgandi. Samfélag sem er
einlitt er staðnað samfélag. Einnig
er það svo að rétt eins og aðrar
þjóðir geta lært af íslenskri menn-
ingu þá getum við lært heilmikið
af menningu annarra.
Ef fólk er hrætt um að menning
okkar drukkni og hverfi vegna
áhrifa frá útlendingum þá mætti
benda á eftirfarandi þætti: í fyrsta
lagi væri viturlegra að ráðast á fjöl-
miðla, kvikmyndir, tónlist og tölvur
til að vernda menninguna því þar
á stór partur félagsmótunarinnar
sér stað. Áhrif útlendinga eru hverf-
andi í samanburði við þetta. í öðru
lagi er ísland ekki draumastaður
þjóða heimsins. Við eru norður í
ballarhafi og búum á svæði sem er
á mörkum þess að vera byggilegt
svo þú mátt trúa mér, Jón minn,
að útlendingar bíða ekki í röðum
eftir því að komast inn í landið.
Tungumál. Það skal enginn fá
mig til þess að trúa því að þótt ein
tyrknesk fjölskylda flytjist til Nes-
kaupstaðar að tungumál bæjarbúa
verði fyrir áhrifum og að „Nobbar-
ar“ fari að sletta tyrknesku í dag-
legu tali. Nei, þjóðartunga okkar
er ekki í hættu vegna útlendinga
og börn þeirra sem flytjast inn til
landsins munu tala lýtalausa ís-
lensku.
Ég vil trúa því að viljinn bak við
bréf Jóns Magnússonar sé góður
en mér þætti vænt um það að hann
velti málinu aðeins betur fyrir sér
og kynnti sér allar hliðar þess áður
en hann blési í lúðra sem gætu
búið til fordóma.
Höfundur er gvðfræðinemi.
Ilamí'arir
Kilmanock®
HIGH PERFORMANCE
ÚLPUR
VIND- OG VATNSHELDAR
í fullorðinsstærðum:
XS-S-M-L-XL-XXL
Margir litir
Sendum í póstkröfu
»hummél^F
SPORTBÚÐIN
Nóatún 17 «S: 511 3555
EKKI er langt síðan
íslenska þjóðin stóð
líkt og agndofa
frammi fyrir hrikaleg-
um hamförum af völd-
um eldgoss undir jökli,
þegar ógnarlegt
vatnsflóð æddi niður
Skeiðarársand. í
hættu voru fjórar brýr
og langur vegur, og
sex ráðherrar fóru
umsvifalaust til að
kynna sér aðstæður
og undirbúa viðbrögð
til tafarlausra endur-
bóta. Sú huggun
fylgdi þó að engin
mannslíf voru í hættu,
engin mannleg ógæfa eða sorg,
enginn persónulegur harmleikur.
Aðeins mannvirki sem kosta aðeins
peninga og fyrirhöfn. Og dijúgur
hluti tryggður í Viðlagasjóði, sem
stofnað var til af fyrirhyggju til að
mæta slíkum áföllum. Og flóðið var
hratt hlaup sem sjatnaði fljótt, nátt-
úruhamfarir sem við ráðum ekkert
við og verðum hreinlega að láta
yfir okkur ganga, af því að við
búum í þessu landi.
Annað flóð
Á sama tíma stendur þjóðin
frammi fyrir öðrum hrikalegum
hamförum, öðru flóði sem ekki vill
sjatna, og mun ekki sjatna af sjálfu
sér. Ég veit ekki til þess að neinir
ráðherrar hafi farið saman á vett-
vang til að kynna sér þær aðstæður
og undirbúa viðbrögð
til tafarlausra endur-
bóta. Þetta flóð kemur
ekki undan jökli, heldur
er það af mannavöld-
um. Og það skellur ekki
á brúm, heldur á fólki,
fyrst og fremst á ungu
fólki. Það skemmir ekki
mannvirki, heldur
mannslíf, veldur mann-
legri ógæfu og sorg,
persónulegum harmleik
og jafnvel dauða, -
slíkri kvöl að hún hefur
leitt til sjálfsvíga. Og
enginn viðlagasjóður
hefur verið stofnaður
af fyrirhyggju til að
mæta slíkum áföllum.
Þetta flóð blasir ekki við allra
augum. Þetta er flóð fíkniefna, sem
Fíkniefnaflóðið er eins
og náttúruhamfarir,
segir Njörður P.
Njarðvík, flytur ógæfu,
sorg og mannskaða.
hefur skollið á þjóð okkar eins og
flóðbylgja og varað í eitthvað um
liðlega tuttugu ár. Það sýnir engin
merki um sjötnun. Þvert á móti
sýnist bylgja þess rísa æ hærra og
færa æ fleiri í kaf. Og þó er sá
munur á þessum hamförum og nátt-
úruhamförum, að við
þurfum ekki að láta
þær yfir okkur ganga.
Þetta flóð eigum við að
geta stöðvað, ef vilji er
fyrir hendi. Það verður
til af tvennu: annars
vegar af mannfyrirlitn-
ingu þeirrar fégræðgi
sem skeytir engu um
þá ógæfu sem hún
veldur, og hins vegar
af fikti og ístöðuleysi
eftirsóknar í stundargleði, sem fyrr
en varir snýst í kvöl. Við því þarf
að bregðast samtímis.
Erfitt að skilja
Sá sem hefur þurft að horfa á
eftir barni sínu í þetta flóð á erfitt
með að skilja aðgerðaleysi þeirra
sem láta velja sig til forystu fyrir
þjóðinni og ráða almannafé. Eigum
við að trúa því, að enginn geti skilið
skelfingu þessa máls nema að hafa
lent í henni sjálfur?
Sú var tíð að við héldum að kóka-
ín og heróín væri svo fjarlæg ógn,
að hún kæmi okkur ekki við. Sú
ógæfa kæmi bara fyrir aðra. En sú
tíð er liðin. Ógnin er orðin svo ná-
læg, að menn þurfa næstum því að
stinga úr sér augu og skilning til
að aðhafast ekkert. Hér í friðsælu
hverfi, þar sem ég bý, eru tvö eitur-
lyfjabæli með svona fimmhundruð
metra millibili, að sögn lögreglu-
manns. Þetta er vitað, en um leið
segir sami lögreglumaður, að fíkni-
efnalögreglan hafi ekki fé til kvöld-
og næturvinnu. Kíló af hassi fínnst
um borð í fiskiskipi. Fjórir ungir
menn eru dæmdir fyrir innflutning
og sölu á e-töflum. Og svo rífast
menn um það, hvort 50 eða 200
ungmenni undir 16 ára aldri séu
djúpt sokkin í fíkniefnaneyslu! Og
hvað um þá sem eru komnir yfir
16 ára aldur? Þarf ekki að tala um
þá? Það vita allir sem vilja vita, að
mörg hundruð manns eru djúpt
sokkin í neyslu harðra fíkniefna.
Og þá hlýtur sú spuming að
vakna, þótt sumum þyki samanburð-
urinn kannski ekki viðeigandi, hvort
sé meira virði fjórar brýr eða hundr-
uð mannslífa. Því að til
þess að brugðist verði
við þessum hamförum
er sú hugarfarsbreyt-
ing forsenda, að
mannslíf sé í raun
meira virði en mann-
virki.
Orvæntingarreiði
Á þessu hausti er
kannski, og vonandi,
að verða grundvöllur
fyrir hugarfarsbreytingu, því að nú
verður æ meira vart við ótta for-
eldra við fíkniefnaskelfinguna og
hann byggist á þeim tiltölulega
nýja skilningi að enginn sé óhultur.
Og þeim ótta fylgir eins konar ör-
væntingarreiði mikils fjölda fólks
vegna aðgerðaleysis stjórnvalda
ríkis og sveitarfélaga.
Það þarf margt að gerast í senn:
stóraukin fræðsla til forvarna, hert
löggæsla, fleiri meðferðarúrræði til
bjargar hinum sjúku, áfallahjálp
fyrir aðstandendur og breytt við-
horf til refsidóma. Fjöldi fíkniefna-
neytenda leiðist út í afbrot til að
afla sér efnis og um leið slævist
siðferðiskenndin. Við slíkar aðstæð-
ur er til einskis að dæma fólk í
venjulegt fangelsi, því að það þarfn-
ast andlegrar umönnunar. Það þarf
að breyta löggjöf þannig, að það
sé dæmt til vistar á meðferðarstofn-
unum. Sem þá verða að vera til.
Hins vegar þarf að þyngja refsingar
þeirra, sem af fégræðgi eru tilbúnir
að skemma líf annarra og jafnvel
granda því.
Nú þarf að grípa til skjótra úr-
ræða eins og eftir ytri flóða-
skemmdir. Og ef forystumenn okk-
ar bregðast í þessu máli, þá verðum
við sjálf, fólkið í landinu, að taka
til okkar ráða. Við munum hvernig
brugðist var við berklaveikinni. A
svipaðan hátt verðum við að bregð-
ast við þessum vanda. Við getum
ekki lengur horft á fíkniefni
skemma æsku okkar og þar með
framtíð þjóðarinnar.
Höfundur er prófessor í íslenskum
bókmenntum við Háskóla Islands.
KAUPFELAG HERAÐSBUA
y1T 1 r ' 'H T / í • UMHVERFISSJÖÐUR
greioir i Umnverfissjoo Verslunarmnar verslunarinnar
Njörður P.
Njarðvík