Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 31
LISTIR
James Bond og X-
skýrslumar mæt-
ast á Jökulfjörðum
Lúðrasveit
verkalýðs-
ins í Lang-
holtskirkju
ENN á ný er komið að tónleik-
um Lúðrasveitar verkalýðsins
og verða þeir að þessu sinni
haldnir á sunnudaginn kemur
kl. 17 í Langholtskirkju.
A efnisskránni verður; Festiv-
al March eftir C.M. von Weber;
Adagio eftir Franz Krommer,
Einleikur á klarinett: Sveinhild-
ur Torfadóttir og Elva Dögg
Melsteð; 2 Gymnopediur eftir
Satie; Lítil fúga í g-moll eftir
J.S. Bach; Toccata Marziale eft-
ir R.V. Williams; Voluntary VIII
eftir Stanley; Frönsk svíta eftir
Millhaud, Kaflar: I Normandie,
III lle de France, Iv Alsace-
Lorrraine og V. Provence; Was-
hington Post eftir marsakon-
unginn J.P. Sousa; Radetzky
Mars eftir J. Strauss eldri.
Sveitina skipa nú 44 hljóð-
færaleikarar, flest ungt fólk
sem stundar tónlistarnám í tón-
listarskólum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Aðgangur er ókeypis.
Málaðar
svart-hvítar
ljósmyndir
SVALA Sigurleifsdóttir opnar
sýningu á máluðum svart-hvít-
um ljósmyndum ájarðhæð Suð-
urgötu 7, (horni Vonarstrætis
og Suðurgötu) föstudaginn 22.
nóvember.
Svala er fædd á í Isafirði
1950. Hún stundaði myndlist-
arnám í MHÍ og í skólum í
Denver, Kaupmannahöfn, Ósló
og New York. Hún hefur sýnt
ein og með öðrum, heima og
erlendis.
Sýningin stendur til 8. des-
ember. Opið er alla daga frá kl.
14-18 og er aðgangur ókeypis.
Sýningu
Rogers
framlengt
í ANDDYRI Norræna hússins
hefur staðið yfir sýning á leir-
verkum eftir finnska listamann-
inn Roger Westerholm.
Sýningunni átti að lýka 24.
nóvember en nú hefur verið
ákveðið að framlengja sýning-
una til 1. desember.
Hún er opin daglega frá kl.
9-19, nema sunnudaga kl.
12-19.
BÓKMENNTIR
Spcnnusaga
AMETYST. LJÓS DAUÐANS
Gústaf Gústafsson.
Skjaldborg 1996.261 bls.
ÍSLENSKAR afþreyingarbók-
menntir hafa átt sér fremur skrykkj-
ótta sögu og er það miður því hætt
er við að háar bókmenntaeikurnar
riði til falls ef ekki er neinn lággróð-
urinn til að skýla þeim. íslenskar
bókmenntir þarfnast þess að sæmi-
lega ritfærir menn skrifi eitthvað
annað en Nóbelshæfa doðranta því
bæði er það að meginþorri lesenda
hefur einfaldlega engan áhuga á því
að lesa hátimbruð bókmenntaverk og
eins styrkir innlend spennu-, hryll-
ings- og ástarsagnagerð tilfinningu
lesenda og höfunda fyrir grunnþátt-
um eins og fléttu og spennu sem góð
frásögn getur varla verið án. Vanda-
málið við hérlendar afþreyingarbækur
hefur þó einkum verið að þær skortir
þann sennileika sem þessi tegund
bókmennta byggir svo sterkt á þegar
allt kemur til alls. Byssubardagar í
Austurstræti eru einfaldlega óraun-
sæir og leynileg rannsóknarstöð
Bandaríkjamanna á Jökulfjörðum er
ekki síður lítt til þess fallin að skjóta
traustum stoðum undir atburðarás
sem annars væri spennandi. Nú verð-
ur því ekki í móti mælt að atburðarás
margra spennusagna erlendra höf-
unda er ekki alltaf upp á marga físka
og að margt er þar ótrúlegt og furðu-
legt, enda ekki annars að vænta,
spennusagan er þegar upp er staðið
eins konar fullorðinsævintýri. En
reyndir spennusagnahöfundar í
fremstu röð eins og t.d. Fredrick
Forsythe, Robert Ludlum eða Tom
Claney, vita að lesendur þeirra eru
tilbúnir til að fyrirgefa höfundi ævin-
týralegan söguþráðinn svo lengi sem
hann heldur sig innan ramma þess
líklega og svo lengi sem furðumar
eru bættar upp með hafsjó upplýsinga
um her- og fjarskiptatækni, stjómmál
og sögu enda eru spennusögur nútím-
ans ekki hvað síst tæki lesenda til
að átta sig á valdahlutföllum og
tæknikunnáttu samtímans. Spennu-
sögumar em lesnar vegna þess að í
þeim er nýjasta tækni og vísindi sett
í samhengi við valdaátök sem þorri
fólks þekkir úr fréttum. Spennusagan
púslar brotunum saman í heillegri
frásögn sem heldur manni við efnið.
Þessi góða regla er því miður
margbrotin í sögu Gústafs Gústafs-
sonar. Sagan af rúmenska vísinda-
manninum Gogol og íslenska blaða-
manninum Atla sem lenda inn í miðri
hringiðu átaka milli stórveldanna er
reyndar læsileg framan af og prýðis-
skemmtan þrátt fyrir að þekkingu á
hátækni og nýjustu rannsóknum á
herfræðisviðinu sé nokkuð ábóta-
vant. Týpurnar eru náttúrulega allar
í steríó en það er haganlegt steríó
og rímar vel við ævintýrakennda at-
burðarásina sem þó nær því að vera
spennandi. Reyndar er hún svo
spennandi að ótrúverðugleiki frá-
sagnarinnar af bardögum bandaríska
hersins og leyniþjónustunnar við
málaliða rússneskra nasista í Vatns-
leysufirði í Jökuifjörðum gleymist um
stund og lesandi nýtur þess eins að
vera staddur í miðjum eltingaleikn-
um. En svo fer allt út um þúfur.
Sagan sem lengst af er í einskonar
Ian Fleming-stí! þar sem stefnan er
sett á heimsyfirráð eða dauða verður
allt í einu að X-skýrslu. Álfar og
huldufólk birtast og taka virkan þátt
í atburðum og til að bæta gráu ofan
á svart kemur í ljós að þessir álfar
eru einskonar geimverur sem nú
melda sig beint hjá forseta Banda-
ríkjanna og ræða við hann í gegnum
faxtæki. Hámarki nær þessi ójarð-
neska íhlutun þegar „góðu geimver-
urnar“ (það eru nefnilega til vondar
geimverur líka og þær hafa gert eins-
konar rannsóknar- og þróunarsamn-
ing við Bandaríkjastjórn) bjarga
söguhetjunum á Keflavíkurveginum.
Þar koma sannarlega „guðir úr vél“
eins og í Evrípedesarharmleik og
redda málunum. James Bond er allt-
af skemmtilegur og X-skýrslurnar
eru það líka. Saman er þetta tvennt
hins vegar ekki jafnvel lukkað.
Kristján B. Jónasson.
TÍUNDA
INNSÝNIN
AÐ l'ANGA HUGSÝNINA
James Redfield
.Mclsðluhófundur CELHSTINE H.WDRJTSINS
„Tíunda innsýnin er heillandi
framhald af fyrri bók James Redfield
- Celestine handritinu. Fyrir mér opnar
tessi töfrandi saga nýja sýn og vísar
eið fyrir mannkynið í átt að því eina,
sem skiptir raunverulega máli, þegar
upp er staðið, kærleikanum."
Kristín Snœhólm, dagskrárgerðarkona
LEIÐARLJ*S ehf.
Fyrirlestrar - Ráðgjöf- Námskeið - Utgáfa
Sími: 435 6800. Fax: 435 6801
Brekkubæ, Hellnum, 355 Snæfellsbæ.
Afgreiðsla í Reykjavík, sími: 567 3240.
,Okkar markmið er... að hjálpa þér að ná þínu!“
Metsölubókin
sem fer sigurför um
heiminn...
...er sjálfstætt framhald af margfaldri metsölubók CELESTINÉ
HANDRITINU, sem selst hefur í rúmlega fimm milljón eintökum og hefur
verið á New York Times listanum yfir söluhæstu bækur í 110 vikur.
„í ævintýralegum og spennandi söguþræði er
okkur sýnt fram á hversu andleg auðlind, sterk
sjálfsmeðvitund og kærleikur kemur til með að skipta
miklu máli í framtíðinni - þegar við siglum inn í
nýja tíma.“
Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur
„Tíunda innsýnin setti hugsanir
mínar um andleg málefni í skýrara
samhengi, auk þess sem hún var
skemmtileg aflestrar. Mannkynssagan
verður aldrei söm ásýndar eftir að þú
hefur lesið Tíundu innsýnina.“
Guðjón Bergmann, kynningarfulltrúi
og blaðamaður
Til marks um trú manna hjá Warner Books
á velgengni þessarar bókar, þá prentuðu
þeir 1.000.000 eintök í fyrstu prentun.
Fæst í öllum helstu bókaverslunum.
Verö kr. 2.990 innbundin.
Teg. 1812
Svartir og brúnir
St. 36-41
Kr. 8.990
Teg. 1814
Svartir og brúnir
St. 36-41
Kr 6.990
Nýjar sendingar á alla aldurshópa
SKÓVERSLUNIN
Teg. 1800
Svartir og brúnir
St. 36-41
Kr. 5 490
Teg. 1797
3rúnir
St. 3641
Kr. 5.490
Teg. 1299
Svartir
St. 40-46
Kr. 6.290
KRINGLUNNI SÍMI 568 9345
SKO
GLliGGINN
REYKJAVIKURVEGI
Sími 565-4275
PÓSTSENDUM
<
i