Morgunblaðið - 27.11.1996, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
M0RGUN3LAÐIÐ
FRÉTTIR
Fj ár málaráðherra heldur ráðstefnu um nýskipun í ríkisrekstri
Morgunblaðið/Asdís
NOKKUÐ á annað hundrað manns sótti ráðstefnu um nýskipan í ríkisrekstri sem haldin var í
Reykjavík í gær á vegum fjármálaráðuneytisins.
Fækkun verkefna
og dreifing valds
meðal markmiða
Markmið nýskipunar í ríkisrekstri er að
skipulag og starfsemi ríkisins sé með þeim
hætti að ríkið geti sinnt skyldum sínum við
borgarana á eins hagkvæman, skjótvirkan
og árangursríkan hátt og unnt er og að
opinber þjónusta sé svo skilvirk að hún gefí
íslenskum fyrirtæk]’um forskot í vaxandi al-
þjóðlegri samkeppni.
FRIÐRIK Sophusson fjár-
málaráðherra skýrði frá
nýjum markmiðum í ríkis-
rekstri í erindi sínu á ráð-
stefnu um nýskipan í ríkisrekstrin-
um sem haldin var á Hótel_ Sögo í
gær undir yfirskriftinni „Árangur
og markmið til aldamóta.
Ráðherra segir að þessum mark-
miðum verði náð með fækkun á
verkefnum ríkisins, með því að
dreifa valdi og ábyrgð til þeirra sem
stjórna daglegum rekstri á hveijum
stað og aðskilja ábyrgð á rekstri
frá pólitískri stefnumörkun.
Fjármálaráðherra rifjaði í fyrstu
upp hvernig hlutur hins opinbera í
þjóðarbúskapnum hefði aukist mjög
á iýðveldistímanum, hann hefði ver-
ið 20% árið 1950 en 42% árið 1989.
Kvaðst hann vona að yfirstandandi
áratugur myndi einkennast af við-
spymu gegn útgjaldaþenslu og
skuldasöfnun. Nýskipan í ríkis-
rekstri sagði ráðherra eiga rætur f
þeirri staðreynd að ekkert félag
fengi staðist nema að tekjur þess
stæðu undir útgjöldum. Sífelldur
hallarekstur ríkissjóðs leiddi til þess
eins að „smám saman brestur
skuldafjötruð stjórnvöld getuna til
að gera allt það góða sem kjósend-
ur vilja gjöra, vegna sívaxandi af-
borgana.
Ekki má heldur ofmeta hlutverk
ríkisvaldsins í efnhags- og atvinnu-
málum eins og okkur íslendingum
hefur stundum hætt til.“ Sagði
hann stjórnmálamenn ekki búa til
störf, það gerðu fyrirtækin, en
stjórnmálamenn sköpuðu góð
rekstrarskilyrði.
Ráðherra sagði fækkun verkefna
ríkisins gerast með femu móti:
Heilir málaflokkar eru fluttir til
sveitarfélaga, unnið er að einka-
væðingu ríkisfyrirtækja og sölu á
hlut ríkisins í fyrirtækjum, rekstrar-
formi ríkisfyrirtækja breytt til
dæmis eins og gert verður með
Póst og síma um næstu áramót og
í fjórða lagi fækkar verkefnum rík-
isins með útboðum.
Sameining sýslumanna og
framhaldsskóla?
Ríkisstarfsmönnum fækkar um
20% á þessu ári með flutningi
grunnskóla og breytingu Pósts og
síma í hlutafélag. Þá hafa um þrjú
þúsund manns keypt hlutabréf í
einkavæddum fyrirtækjum fyrir um
2,1 milljarð króna frá árinu 1992.
Ráðherra sagði áformað að breyta
rekstrarformi ríkisbankanna og
fjárfestingarlánasjóða á næsta ári
þannig að fjármagnsmarkaðurinn
yrði sem mest í höndum einkaaðila,
útboð vegna rekstrar og þjónustu
yrðu aukin og rætt væri um samein-
ingu stofnana víða í ríkiskerfinu,
meðal annars framhaldsskóla,
sýslumannsembætta, heilbrigðis-
stofnana og rannsóknastofnana.
Annað meginatriði í nýskipan
sagði fjármálaráðherra vera að
koma nýjum viðhorfum í starfs-
mannamálum í framkvæmd. Kjarni
nýju starfsmannalaganna væri að
flytja vald og ábyrgð á starfs-
mannamálum til forstöðumanna
ríkisstofnana. Skipað hefði verið
sérstakt samningaráð forstöðu-
manna ríkisstofnana til að fylgjast
með kjarasamningum og móta
áherslur þeirra. Væri þetta upphaf
að eins konar vinnuveitendasam-
bandi ríkisstofnana þar sem for-
stöðumenn þeirra myndu í framtíð-
inni taka meiri þátt í kjarasamning-
um ríkisvaldsins.
Eiríkur Tómasson prófessor fjall-
aði um breytingar á nýjum starfs-
mannalögum og sagði markmið
þeirra að jafna réttarstöðu og auka
sjálfstæði forstöðumanna ríkis-
stofnana, m.a. til að ákveða starfs-
mönnum viðbótarlaun ef hæfni,
álag eða árangur þeirra gæfu til-
efni til. Forstöðumönnum væru nú
sett erindisbréf þar sem tilskilið
væri að þeir settu markmið varð-
andi rekstur og verkefni. Þetta kall-
aði á nýjan hugsunarhátt á öllum
sviðum, gæfi kost á meiri sveigjan-
leika og ætti að miða fjárveitingar
framvegis við verkefni stofnunar
en ekki fjölda stöðugilda.
Minna starfsöryggi
Ögmundur Jónasson, alþingis-
maður og formaður BSRB, ræddi
breytt umhverfi starfsmannsins
og sagði að inntakið í nýju lögun-
um um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna sem samþykkt
voru á þingi sl. vor væri stjórn-
endahyggja sem byggðist á oftrú
á skipulagi sem byggi í haginn
fyrir stjórnandann. Gagnrýndi
hann þessa stefnu og sagði for-
stjóra ríkisstofnana fá svigrúm til
að segja mönnum upp störfum sem
þýddi minna starfsöryggi, biðlaun
væru úr sögunni og forstjóri gæti
þvingað fólk til að starfa allt að
hálft ár eftir að það segði upp,
þ.e. þrjá mánuði umfram uppsagn-
arfrest.
Þá sagði hann rangnefni að tala
um viðbótarlaun, ætlunin væri sú
að búa til launakerfi þar sem
grunnlaun vega minna en nú ger-
ist en ofan á þau bættist síðan
álag. „Með þessu móti er hluti
launamyndunarinnar á valdi for-
stjórans, hann verðlaunar þá sem
gera vel en hinir sem ekkert fá
geta væntanlega sjálfum sér um
kennt. Með þessum hætti er ætl-
unin að örva starfsmenn til dáða,
brýna þá eins og önnur verkfæri,"
sagði Ögmundur ennfremur.
Þá sagði Ögmundur að „eftir því
sem grunnlaun vega minna í launa-
mynduninni en viðbótin meira, þeim
mun meira verður starfsmaðurinn
háður þeim sem viðbótina skammt-
ar enda leikurinn til þess gerður
að hann fái á honum matarást,"
og sagði hann mjög mikilvægt að
rugla ekki saman greiðslum af
þessu tagi, á forsendum forstjóra,
og umsömdum launahækkunum á
forsendum kjarasamninga stéttar-
félaga.
Ráðhús Reykjavíkur jgj
innkeyrsla í kjallara fráTjarnargötu SS
f|§ Bflastæðasjóður
Könnunarpróf í raungreinum 1992
Ekkisetiðá
niðurstöðunum
SLÖK niðurstaða úr könnunarpróf-
um í raungreinum, sem lögð voru
fyrir nemendur í nokkrum grunn-
skólum árið 1992, var meðal þess
sem réð þeirri ákvörðun að taka
þátt í fjölþjóðlegu TIMSS-rannsókn-
inni á raungreinakunnáttu barna.
Guðríður Sigurðardóttir, ráðuneytis-
stjóri í menntamálaráðuneytinu,
segir að niðurstöðurnar hafi einnig
verið hafðar til hliðsjónar við nám-
skrárgerð.
Allyson Macdonald sagði í viðtali
sem birtist í gær í Morgunblaðinu
að lokaniðurstöður könnunarprófs-
ins hefðu aldrei birst þó ekki hefði
þurft nema nokkurra vikna vinnu til
að ljúka við þær. „Heildarniðurstað-
an hefur ekki verið send út eða birt
en það hefur verið tekið mið af
henni,“ segir Guðríður. „Þetta er
ekkert sem hefur verið setið á, held-
ur þvert á móti hefur verið bent á
það hversu alvarlegt ástandið væri
og tekið mið af því. Niðurstöður ein-
stakra skóla voru sendar til þeirra."
RÁÐGJÖF • BÓKHALD • SKATTAADSTOD • KAUP OG SALA FYRIRTÆKJA
== ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
Höfum í einkasölu sérhæft þjónustufvrirtæki á sviði hreingerninga.
Fyrirtækið er búið fullkomnum tækjum og áhöldum og er starfrækt í
rúmgóðu húsnæði. Góð viðskiptasambönd. Uppl. einungis á skrifstofunni.
VIÐSKIPTAÞJÓNUS TAN
■ 'fó/r///tr/t/t-)/írf- /A//y/rú//u'
Knstinn B. Ragnavsson, viðskiptafrœðingur
SíDumúla 31 • 10H Rcykjavík • Sími 568 9299 • Fax 568 1945
)
I
I
|
\
i
>
i
i
i
I
I
I
r
»
i
i