Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Aðeins einn hjartasérfræðingur á Akureyri og vinnuálagið gífurlegt Hjartasjúkling- ar hafa áhyggj- ur af ástandinu JÓN Þór Sverrisson er eini starf- andi hjartasérfræðingurinn á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri og hann er jafnframt eini starfandi hjartasérfræðingurinn á lands- byggðinni, eftir því sem næst verð- ur komist. Tveir hjartalæknar voru starfandi á FSA en Jón Þór hefur verið einn i um 2 ár og hann segir að vinnuálag hafi verið gífurlegt á þeim tíma og í raun allt of mikið. „Við erum að vinna í því að fá annan hjartalækni til starfa en það hefur ekki tekist enn og lausn er ekki í sjónmáli. Biðin eftir þjón- ustunni hefur verið að aukast en við reynum að sjálfsögðu að sinna öllum bráðatilfellum." Stendur frekari uppbyggingu fyrir þrifum Jón Þór segir að á meðan þeir voru tveir hjartalæknarnir starfandi á FSA, hafi verið búið að byggja upp ákveðna þjónustu og hann rétt nái að halda henni gangandi í dag. Hins vegar hafi biðtími eftir þjón- ustu hjartalæknis aukist. „Þetta ástand stendur iíka frekari upp- byggingu og nýjungum fyrir þrif- um,“ sagði Jón Þór. Gísli Eyland, fráfarandi formað- ur Félags hjartasjúklinga á Eyja- fjarðarsvæðinu, segir ástandið mjög alvarlegt og hjartasjúklingar séu því áhyggjufullir. Nú séu í kringum FIMM tilboð bárust í lagningu plaströrs í jörð fyrir Hitaveitu Akureyrar, frá suðurenda flug- brautarinnar á Akureyrarflugvelli og fram að Laugalandi í Eyjafjarð- arsveit. Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 7,9 milljónir króna og voru öll tilboðin vel undir kostn- aðaráætlun. Halldór Baldursson, verktaki á Akureyri, átti lægsta tilboðið og á fundi stjórnar Hita- og vatnsveitu í gær var hita- og vatnsveitustjóra falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Verkið var boðið út í síðustu viku og var sjö verktök- um á Akureyri og í Eyjafjarðar- sveit boðið að leggja inn tilboð. Bakrásarvatni dælt niður Hitaveita Akureyrar, Orkustofn- un og samstarfsaðilar þeirra, fengu í sumar styrk úr rannsóknar- og þróunarsjóði Evrópusambandsins að fjárhæð allt að 54 milljónir króna til þess að hefja í stórum stíl niðurdælingu á vatni í jarðhita- kerfið á Laugalandi í Eyjafjarðar- sveit. Verkefnið felst m.a. í því að leggja plaströr frá dælustöð hita- veitunnar í Þórunnarstræti um 12 km leið að Laugalandi. Eftir þessu 2.000 hjartasjúklingar á svæði FSA, frá Egilsstöðum vestur í Húnavatnssýslur og þeim fjölgi vikulega. „Það er um þriggja mánaða bið- tími eftir viðtali við eina hjarta- lækninn á landsbyggðinni. Jón Þór Sverrisson hefur unnið mjög gott starf en hann kemst engan veginn yfir að sinna öllum þeim er til hans þurfa að leita. Ef við viljum leita suður eftir læknisaðstoð þurfum við að standa straum af öllum kostnaði því samfara og fáum ekkert greitt frá Tryggingastofnun, vegna þess að það er hjartasérfræðingur á svæðinu," segir Gísli. Félag hjartasjúklinga hefur skrifað bréf til stjórnar FSA, heil- brigðisráðherra og Guðmundar Bjarnasonar, landbúnaðar- og um- hverfisráðherra og fýrsta þing- röri verður dælt um 15°C heitu bakrásarvatni frá Akureyri að Laugalandi. Þar verður vatninu dælt niður í djúpar holur sem fram til þessa hafa ekki verið virkjaðar vegna þess hversu lítið vatn þær gefa. Vatnið, sem dælt verður nið- ur, dreifist síðan um 90-100°C heitt bergið á 500-2000 m dýpi, hitnar þar og er síðan dælt upp um vinnsluholur veitunnar. Aflgeta veitunnar styrkist Starfsmenn HVA munu sjá um lagningu plaströrsins frá dælustöð- inni við Þórunnarstræti og suður fyrir flugbrautarenda, í samvinnu við verktaka og þeir munu einnig sjá um allar plastsuður á lögninni fram að Laugaiandi. Samkvæmt tilboðsgögnum skal verkinu lokið fyrir maílok á næsta ári. Gert er ráð fyrir að niðurdæiing- artilraunin hefjist næsta sumar og standi yfir í allt að 2 ár. í lok árs- ins 1999 munu endanlegar niður- stöður liggja fyrir. Gert er ráð fyr- ir að orkuvinnsla á Laugalandi geti aukist um allt að 25 gígawatt- stundir á ári við niðurdælinguna, auk þess sem aflgeta veitunnar styrkist verulega. manns Norðurlandskjördæmis eystra, þar sem leitað er eftir stuðn- ingi þessara aðila við að ráða annan hjartalækni til starfa á FSA. Málið hefur einnig verið rætt við áðra þingmenn kjördæmisins. Astandið óviðunandi Baldur Dýrijörð, formaður stjórnar FSA, segir þetta mál ráð- ast m.a. af ljárlagagerð Alþingis og að ekki sé heimild fyrir fleiri læknisstöðum við sjúkrahúsið. „Yf- irlæknir lyflækningadeildar var hjartasérfræðingur en hann flutti suður fyrir um tveimur árum. Nú- verandi yfirlæknir deildarinnar er hins vegar ekki hjartasérfræðingur. Við höfum átt fundi með forsvars- mönnum Félags hjartasjúklinga og erum í raun sammála þeim um að ástandið sé óviðunandi og að eitt- TVEIR selir, móðir með kóp sinn, hafa síðustu daga gert sig heimakomna á Pollinum við Akureyri og hafa vegfar- ÞRÍR ungir rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum á ferð um landið. Þetta eru þau Andri Snær Magnason, Gerður Kristný og Kristján B. Jónasson sem öll hafa sent frá sér sín fyrstu prósa- verk hjá Máli og menningu, Andri smásagnasafnið Engar smá sögur, Gerður skáldsöguna Regnbogi í póstinum og Kristján skáldsöguna Snákabani. Ætlunin er að lesa upp í a.m.k. þremur framhaldsskólum; Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- ALLMARGIR hafa verið yfirheyrðir hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri vegna skemmdaverkanna í Akureyrarkirkju um liðna helgi en ekkert komið fram um hver eða hveijir hafa verið að verki. Rann- sókn stendur yfir. Rannsóknarlögregla upplýsti í hvað þurfi að gera. Það hefur hins vegar ekki enn fengist stöðuheimild fyrir annan hjartasérfræðing en við höfum verið að vinna í að ná því fram með ýmsum leiðum.“ FSA haldið sig við fjárlög Tómas Ingi Olrich, þingsmaður Sjálfstæðisflokks í kjördæminu, segir að unnið sé að því að finna lausn á þessu máli og bæði hann og Valgerður Sverrisdóttir, þing- maður Framsóknarflokks í kjör- dæminu, hafa m.a. rætt við aðstoð- armann heilbrigðisráðherra. „Það er engin önnur lausn til en að ráða annan hjartasérfræðing við sjúkra- húsið. FSA hefur haldið sig við fjár- lög á undanförnum árum, á meðan Ríkisspítalarnir og sjúkrahúsin í Reykjavík hafa farið fram úr fjár- lögum. Á sama tíma eru þessi sjúkrahús að bjóða í sérfræðinga sem eru fyrir norðan. Og ef menn búa sér til svigrúm með því að fara fram úr fjárlögum, hafa þær stofn- anir öðruvísi aðstöðu til að bjóða fólki upp á starfskjör, en þær stofn- anir sem halda sig fast við ljárlög- in,“ segir Tómas Ingi. Hann segir þetta því ekki ein- göngu tengjast FSA og sérstökum vanda á Akureyri, heldur fjárlaga- gerðinni almennt og hvernig stofn- anir ríkisins standa sig gagnvart Ijárlögum hveiju sinni. endur haft ánægju af því að fylgjast með þeim flatmaga á þessum steini, en það gera þeir iðulega. nesi, Menntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum á Egilsstöðum og e.t.v. einnig í Fjolbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. í kvöld lesa skáldin upp í Kaffi Króki á Sauðárkróki, annað kvöld, fimmtudagskvöldið 28. nóvember í Kaffi Kverinu í Bókval á Akureyri og loks á föstudagskvöldið á Café Nilsen á Egilsstöðlhn. Kvölddag- skrárnar hefjast allar kl. 20.30. Þá er áformað að lesa í kaffihorni Kaupfélags Héraðsbúa á föstudag, 29. nóvember kl. 16.30. tengslum við yfirheyrslurnar annað innbrot sem framið var fyrir um 10 dögum í Umferðarmiðstöðina á Akureyri. Tveir piltar um tvítugt viðurkenndu að hafa brotið sér þar leið inn, stolið um 10 þúsund krón- um og valdið töluverðum skemmd- um. Mikil vatnssala í kulda- kastinu SALA á heitu vatni hjá Hita- og vatnsveitu Akureyrar hefur verið með allra mesta móti í kuldakastinu síðustu vikur. Franz Árnason, hita- og vatns- veitustjóri, segir að sl. fjórar vikur hafi verið dælt upp um hálfri milljón tonna af heitu vatni en í nóvember í fyrra var um 360 þúsund tonnum. Vatnsnotkunin í bænum á þessu fjögurra vikna tímabili er um 210 lítrar á sekúndu en meðaltalsnotkun á ári er um 128 lítrar á sekúndu. Tekjur veitunnar vegna sölunnar síð- ustu vikur er um 55 milljónir. Gítartónleikar í Deiglunni Bach o g Nirvana KRISTJÁN Eldjárn gítarleikari heldur tónleika í Deiglunni í kvöld, miðvikudag, og heij'ast þeir kl. 20.30. Kristján lauk burtfaraprófi í klassískum gítarleik frá Tón- listarskóla Sigursveins D. Krist- inssonar sl. vor en hafði lokið burtfararprófi í djassgítarleik frá Tónlistarskóla F.Í.H. Auk spænskrar tónlistar spannar efnisskráin svið sem nær frá 1. lútusvítu Bachs til lagsins All Apologies eftir hljómsveitina Nirvana, sem Kristján hefur útsett fyrir klassískan gítar. Kristján hefur undanfarið leikið á höfuðborgarsvæðinu ásamt djasstríói sínu. Hann leikur í Safnaðarheimilinu á Vopnafirði á fimmtudagskvöld og í Dalvíkurkirkju á laugar- dagskvöld. Maður fær bætur eftir slys ÚTGERÐARFÉLAG Akur- eyringa og Tryggingamiðstöðin voru í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær dæmd til að greiða manni sem starfaði hjá ÚA tæpar 2,2 milljónir auk dráttar- vaxta frá september 1992. Ak- ureyrarbær vegna hafnarsjóðs var sýknaður af kröfum manns- ins. Málsatvik eru þau að maður- inn slasaðist þegar hann ók lyft- ara við vinnu sína fyrir fáum árum. Maðurinn var úrskurðað- ur 15% öryrki eftir slysið. ÚA og Tryggingamiðstöðinni var gert að greiða rúmlega 250 þúsund króna málskostnað í ríkissjóð. Stúlka kærði nauðgun ÁTJÁN ára stúlka kærði nauðgun til lögreglunnar á Akureyri sl. föstudag. Atvikið átti að hafa gerst í samkvæmi í miðbæ Akureyrar aðfaranótt föstudags. Málsaðilar hafa verið til yfir- heyrslu hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri. Rann- sókn málsins er ekki lokið og því vildi lögreglan ekki tjá sig frekar um málsatvik seinni partinn í gær. HÚSEIGN í VARMAHLÍÐ Til sölu er húseignin Norðurbrún 5 (Gamli Lundur) í Varmahlíð. Um er að ræða gamalt einbýlishús, 71 fm að stærð og geymsluskúra 39 fm. Heildarfasteignamat er kr. 1.030.000 og brunabótamat kr. 2.387.000. Tilboð sendist undirrituðum, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Arnar Sigfússon hdl., Skipagötu 16, 600 Akureyri, sími 462 5919, fax 461 1444. Rannsóknarverkefni Hita- og vatns- veitu Akureyrar á Laugalandi 5 tilboð í lagn- ingu plaströrs Morgunblaðið/Kristján Flatmagað á steini Bókareisa 1996 Ungir rithöfundar lesa úr bókum sínum Skemmdarverk í Akureyrarkirkju Sökudólgar ófundnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.